Morgunblaðið - 08.11.2004, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SPENNUSAGA
ÁRSINS!
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Á liðnu ári skipaði Dan Brown
sér í hóp vinsælustu
spennusagnahöfunda
veraldar með hinni frábæru
bók Da Vinci lyklinum.
Englar og djöflar gefur
henni ekkert eftir enda
hefur bókin setið
mánuðum saman á
metsölulistum víða
um heim.
ELDGOSI LOKIÐ
Eldgosi í Grímsvötnum er lokið,
en líklegt er að því hafi lokið á föstu-
dagskvöld eða snemma á laugardegi.
Er jarðvísindamenn könnuðu svæðið
í gær kom í ljós að nýr sigketill hefur
myndast suðaustan við Grímsfjöll, á
að giska 10–20 metra djúpur og hálf-
ur km að breidd.
Neyðarlög í Írak
Stjórn Iyads Allawis í Írak setti í
gær neyðarlög til 60 daga í mestöllu
landinu. Var sagt að lögin myndu
gera auðveldara að efla öryggi í
landinu fyrir þingkosningarnar sem
eiga að fara fram í janúar. Alls féllu
um 60 manns í árásum uppreisnar-
manna og hryðjuverkum í Írak um
helgina. Talið var í gær að stórárás á
vígi uppreisnarmanna í Fallujah
yrði gerð á næstu sólarhringum.
Frestunar verkfalls óskað
Launanefnd sveitarfélaganna
mun óska eftir því við kennara að
þeir fresti verkfalli fari svo að miðl-
unartillaga ríkissáttasemjara verði
felld en fastlega er reiknað með að
svo verði, samkvæmt heimildum
blaðsins.
Óljóst hvort þotan flýgur
Fraktþota Atlanta fór fram af
flugbraut í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum. Enginn um borð
slasaðist, en vélin er mikið skemmd
og því óvíst hvort hún flýgur á ný.
Frakkar koma á ró í Abidjan
Franskar friðargæslusveitir
treystu tök sín á stærstu borg Fíla-
beinsstrandarinnar, Abidjan, í gær.
Blóðug átök hófust á fimmtudag er
stjórnarherinn rauf vopnahlé og
réðst á uppreisnarmenn. Flugher
stjórnarliða felldi níu franska her-
menn í árás en Frakkar svöruðu
með því að granda flugvélunum.
Arafat enn í dái
Líðan Yassers Arafats Palest-
ínuleiðtoga var óbreytt á sjúkrahús-
inu í París í gær, hann var í dái og er
talið að lifrin sé hætt að starfa.
Helstu leiðtogar Palestínustjórnar á
hernumdu svæðunum voru vænt-
anlegir til Frakklands í dag.
Fischer óskar eftir hæli
Bobby Fischer, fyrrverandi
heimsmeistari í skák, hefur sent
Þórði Ægi Óskarssyni, sendiherra
Íslands í Japan, bréf þar sem hann
óskar formlega eftir pólitísku hæli á
Íslandi. Fischer er í varðhaldi í Jap-
an og eftirlýstur í Bandaríkjunum
fyrir brot á samskiptabanni Samein-
uðu þjóðanna gegn Júgóslavíu á
árinu 1992.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Hestar 34
Viðskipti 11 Dagbók 38/40
Byggðamál 12/13 Myndasögur 38
Vesturland 14 Listir 41
Erlent 16 Leikhús 41
Daglegt líf 18 Fólk 42/45
Umræðan 20/23 Bíó 42/45
Bréf 20 Ljósvakar 46
Forystugrein 24 Veður 47
Minningar 27/33 Staksteinar 47
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
STÆKKUN Járnblendiverksmiðj-
unnar á Grundartanga gæti skapað
allt að 100 ný störf, þar af 50–60
störf við verksmiðjuna sjálfa, að
sögn Jans Fredriks Rosenbergs,
fjármálastjóra Íslenska járnblendi-
félagsins. Verksmiðjan er í eigu
norska fyrirtækisins Elkem, og var
greint var frá áformum um stækk-
un verksmiðjunnar í Aftenposten
um helgina og að bætt yrði tveimur
ofnum við þá þrjá sem þar eru fyr-
ir.
Að sögn Jans Fredriks er hér um
langtímastefnumótun að ræða og
gæti ákvörðun um hugsanlega
stækkun legið fyrir á næstu 1–2 ár-
um.
Viðræður við Landsvirkjun,
Orkuveitu Reykjavíkur og Hita-
veitu Suðurnesja um hugsanlega
orkuöflun séu á byrjunarstigi og
framtíð verkefnisins ráðist af því að
það takist að tryggja orku á hag-
stæðum kjörum. Áætlaður kostn-
aður við stækkun verksmiðjunnar
gæti numið í kringum 10 milljörð-
um króna.
Þyrftu 90 MW
viðbótarraforku
Járnblendiverksmiðjan fram-
leiddi um 120.000 tonn á síðasta ári
og er gert ráð fyrir svipaðri fram-
leiðslu á þessu ári. Að sögn Jans
Fredriks liggur ekki fyrir hver
framleiðsluaukningin verður með
stækkun verksmiðjunnar. Verið sé
að skoða aðra kosti en framleiðslu á
kísiljárni einvörðungu, m.a. á
magnesíumjárnblendi.
Fyrir liggi þó að ef ráðist yrði í
stækkun verksmiðjunnar þyrfti að
tryggja 90MW viðbótarraforku fyr-
ir ofnana tvo sem rætt sé um að
reisa en þeir yrðu álíka stórir og
þriðji ofninn sem reistur var árið
1999.
Heimsmarkaðsverð á kísiljárni
hefur tvöfaldast frá í mars 2002 og
er nú nálægt 1.100 dollarar á tonn-
ið.
Að sögn Jans Fredriks ræðst
hátt heimsmarkaðsverð m.a. af því
að Kínverjar, sem fluttu út mikið af
kísiljárni til Evrópu og Bandaríkj-
anna fyrir nokkrum árum, flytja
mun minna út í dag og nota meira í
eigin iðnaði. Ekki sé þó reiknað
með að heimsmarkaðsverðið haldist
jafnhátt og raun ber vitni. Að sögn
hans þarf heimsmarkaðsverð á kís-
iljárni að haldast í 7–800 dollurum á
tonnið eða umfram, til að hagnaður
sé af framleiðslunni.
Hagnaður verksmiðjunnar á síð-
asta ári, sem er að fullu í eigu
norska fyrirtækisins Elkem, var
um 500 milljónir króna.
Elkem áformar stækkun Járnblendiverksmiðjunnar
Stækkun gæti skapað
allt að 100 ný störf
nefndin skilaði niðurstöðu sinni til
menntamálaráðherra, Þorgerðar K.
Gunnarsdóttur, fyrir helgi.
Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra, segir
að ekki verði hægt að greina nánar
frá efnisatriðum frumvarpsins fyrr en
það hafi verið kynnt í ríkisstjórn.
Tvær greiðslur á ári
Árleg endurgreiðsla námslána
ákvarðast í tvennu lagi, að því er fram
kemur í núgildandi lögum LÍN. Ann-
ars vegar er föst greiðsla sem inn-
heimt er á fyrri hluta ársins, óháð
tekjum, og hins vegar er viðbótar-
greiðsla sem innheimt er á síðari
hluta ársins og er háð tekjum fyrra
árs. Fastagreiðslan er nú skv. lögun-
um rúmlega 52.000 en viðbótar-
greiðslan miðast við 4,75% af launum
skuldarans.
SÁTT hefur náðst milli stjórnarflokk-
anna um að endurgreiðsluhlutfall
lána frá Lánasjóði íslenskra náms-
manna (LÍN) verði lækkað um 1 pró-
sentustig, að því er fram kom í máli
Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráð-
herra og formanns Framsóknar-
flokksins, á kjördæmisþingi fram-
sóknarmanna í Norðvesturkjördæmi.
Greiðslubyrðin mun skv. frumvarp-
inu lækka úr 4,75% af launum skuld-
arans í 3,75%. Frumvarpið verður
kynnt á ríkisstjórnarfundi í vikunni.
Nefnd á vegum stjórnarflokkanna
hefur að undanförnu unnið að endur-
skoðun laga um LÍN. Í nefndinni sitja
m.a. Gunnar Birgisson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og formaður
menntamálanefndar Alþingis, og
Dagný Jónsdóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokks og varaformaður
menntamálanefndar. Lánasjóðs-
Endurgreiðsluhlut-
fall LÍN lækki um 1%
„ÞETTA voru yndislegir tónleikar þar sem nokkrir af okk-
ar helstu dægurlagaflytjendum fluttu ný og fjölbreytt lög
fyrir fullri kirkju af fólki,“ segir Marteinn Hunger Frið-
riksson dómorganisti en ellefu ný lög og ljóð sem ætluð
eru til flutnings í hjónavígslum voru kynnt á tónleikum í
Dómkirkjunni í gær. Er það ekki seinna vænna því ung
pör eru þegar byrjuð að undirbúa brúðkaup sem eiga að
fara fram næsta sumar.
„Lagavalið var býsna fjölbreytt þó að eðlilega hafi farið
mest fyrir einsöngslögum sem helgast af því að oftast eru
fengnir einsöngvarar til að koma fram í brúðkaupum og
hjónavígslum. En einnig voru flutt nokkur kórverk af
Dómkórnum og Kór MR.“ Aðspurður segist Marteinn
telja að þónokkuð hafi verið af tilvonandi brúðhjónum á
tónleikunum og segist hann eiga von á því að eitthvað af
lögunum sem flutt voru muni heyrast í kirkjum landsins á
næstu misserum.
Að sögn Marteins eru lögin ellefu afurð úr samkeppni
Dómkórsins um nýja hjónavígslutónlist og gafst tónleika-
gestum færi á því að greiða atkvæði um besta frumsamda
lagið og ljóðið undir lok tónleikanna, en úrslitin verða
kynnt á lokatónleikum Tónlistardaga Dómkirkjunnar 16.
nóvember nk. Marteinn segir markmið keppninnar að
hvetja til meiri umræðu og meðvitundar um lagaval í
hjónavígslum. /8
Undirbúningur fyrir brúðkaup næsta sumars þegar hafinn
Ný hjóna-
vígslulög kynnt
í Dómkirkjunni
Morgunblaðið/Sverrir
Páll Óskar Hjálmtýsson söng við undirleik Mon-
iku Abendroth á tónleikum í Dómkirkjunni.
KARLMAÐUR sem slasaðist
alvarlega í árekstri við flutn-
ingabíl á Reyðarfjarðarhálsi á
föstudag lést
á sjúkrahús-
inu í Nes-
kaupstað á
laugardags-
morgun. Hinn
látni hét Thor
Klausen, 85
ára að aldri,
til heimilis á
Strandgötu 95, Eskifirði. Hann
var fæddur 25. september 1919
og var ókvæntur og barnlaus.
Slysið varð neðan við Reyð-
arfjarðarháls inni við svokall-
aða Hólma og atvikaðist þannig
að bíll Thors lenti framan á
flutningabílnum þegar hann ók
út á aðalveginn frá afleggjara
að sveitabæ. Hinn slasaði var
fluttur á sjúkrahúsið í Nes-
kaupstað og lést þar á laugar-
dagsmorgun sem fyrr segir.
Ökumann flutningabílsins
sakaði ekki.
Lést
í bílslysi
TÆPLEGA 93.000 rúmmetrar af
fyllingarefni bættust við í
Kárahnjúkastíflu í fyrri viku, eða
15.500 rúmmetrar að meðaltali á
sólarhring.
Þar með er kominn í stífluna ríf-
lega fjórðungur fyllingarinnar eða
nákvæmlega 26,2%. Þessi afköst
nálgast met á einni viku frá því
framkvæmdir hófust við stíflu-
gerðina, að því er fram kemur á
vef Landsvirkjunar.
Mikil afköst hjá
stóru borunum þremur
Þá segir að afköst boranna
þriggja hafi verið í heildina meiri
en í vikunni þar áður. Hægast
gekk hjá bor nr. 2 og ástæðan var
sem fyrr vandræði með færibönd-
in.
Í Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal
var byrjað að sprengja neðstu og
síðustu bergsneiðina í stöðvarhús-
hellinum mikla og fram haldið
undirbúningi slitlags á akbrautina
inn aðkomugöng virkjunarinnar.
Hlýindi undanfarna daga hafa
komið sér vel við framkvæmdir.
Kárahnjúkastífla
Fjórðungur
fyllingar
kominn