Morgunblaðið - 08.11.2004, Side 6

Morgunblaðið - 08.11.2004, Side 6
6 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR N ÁM HL IÐ A S T A RF I NÁM S A M H L I Ð A S T A R F I SA V O R 2 0 0 5 www.endurmenntun.is/sími 525 4444 EFTIR REKSTRAR- OG VIÐSKIPTANÁMIÐ GETUR ÞÚ HALDIÐ ÁFRAM NÁMI Í VIÐSKIPTA- OG HAG FRÆÐI DEILD HÍ OG LOKIÐ ÞAÐAN BS-GRÁÐU Umsó er til 15. nó KJÖRDÆMISÞING framsóknar- manna í Norðvesturkjördæmi sam- þykkti með lófaklappi í gær ályktun þar sem þingflokkur framsóknar- manna er hvattur til að leysa þann ágreining sem uppi hafi verið innan hans. „Þingið lýsir fullum stuðningi við þingmenn kjördæmisins og hvet- ur þá til þess að snúa bökum saman og vinna þannig kjördæminu til heilla,“ segir einnig í ályktuninni. Magnús Ólafsson, fráfarandi for- maður kjördæmisstjórnar fram- sóknarmanna í kjördæminu, segir að einhugur hafi ríkt á þinginu um ályktunina. „Og þingmenn flokksins í kjördæminu [Magnús Stefánsson og Kristinn H. Gunnarsson] innsigl- uðu það með handabandi frammi fyr- ir þingheimi,“ bætti hann við. Staða Kristins var rædd á þinginu, en þingflokkurinn tók þá ákvörðun, eins og kunnugt er í haust, að velja hann ekki í nefndir á vegum Alþing- is. Kristinn leggur áherslu á að ályktunin afsanni það að flokka- drættir séu í kjördæminu. „Þing- fulltrúar standa á bakvið okkur báða,“ útskýrir hann. „Kjördæmið er búið að afgreiða málið af sinni hálfu og málið stendur upp á þingflokkinn að leysa í samræmi við vilja kjör- dæmisþingsins.“ Aðspurður kveðst hann skilja ályktunina sem hvatningu til þing- flokksins um að velja hann aftur í nefndir á vegum þingsins. „Það er al- veg skýrt,“ segir hann. Kristinn flutti ræðu á þinginu, áð- ur en tillagan var samþykkt, þar sem hann sagði m.a. að hann léti ekki hrekja sig úr flokknum. „Ég verð ekki barinn til bókarinnar,“ sagði hann meðal annars. Vinni að framgangi tillagna um atvinnu- og byggðamál Magnús Ólafsson segir að með ályktuninni sé kjördæmisþingið að leggja fyrsta steininn í brú til sátta innan þingflokksins. „Við skorum á þingflokkinn að leysa þessi mál – alla þingmennina tólf; þar er enginn und- anskilinn hvorki Kristinn H. Gunn- arsson, formaður þingflokksins né aðrir.“ Skilaboð kjördæmisþingsins séu m.ö.o. þau „að menn byggi upp traust og spili saman í liði“, útskýrir Magnús ennfremur. Í ályktun þingsins voru þingmenn einnig hvattir til að vinna að fram- gangi tillagna nefndar um atvinnu- og byggðamál í Norðvesturkjör- dæmi og beita sér fyrir því að nauð- synlegt fjármagn fáist til að hrinda þeim í framkvæmd. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins sátu um 170 framsóknar- menn þingið um helgina en 212 höfðu rétt til að sitja það. Ályktun á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi Þingflokkurinn hvattur til að leysa allan ágreining Ljósmynd/Magnús Ólafsson Þingfulltrúar stóðu upp og klöppuðu er Magnús Stefánsson og Kristinn H. Gunnarsson tókust í hendur áður en ályktun þingsins var samþykkt. EINAR Benediktsson, forstjóri Ol- íuverslunar Íslands, sendi í gær frá sér afsökunarbeiðni í tilefni skýrslu Samkeppnisstofnunar um samráð olíufélaganna. Orðrétt seg- ir þar: „Olíuverzlun Íslands hf. og við- komandi stjórnendur biðja við- skiptavini félagsins og aðra lands- menn afsökunar á því, sem miður hefur farið í starfsemi félagsins. Félagið hefur hins vegar margar athugasemdir við skýrslu Sam- keppnisstofnunar og telur nauð- synlegt að fá skorið úr um málið fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnis- mála og ef þörf krefur fyrir dóm- stólum landsins. Sú erfiða ákvörð- un var tekin innan félagsins, að tjá sig ekki að sinni í fjölmiðlum um skýrslu Samkeppnisstofnunar um meint ólögmætt samráð olíufélag- anna. Augljóslega skaðar það fé- lagið í þeirri umræðu, sem nú fer fram. Ástæðan er sú að málið er einnig til rannsóknar hjá embætti Ríkislögreglustjóra. Stjórnendur félagsins reyndu á fundum með starfsmönnum Sam- keppnisstofnunar að upplýsa málið. Starfsmenn Samkeppnisstofnunar völdu hins vegar þá leið í skýrslu sinni að gera hlut olíufélaganna og starfsmanna þeirra enn verri, en efni standa til og í mörgum til- fellum, að því er virðist, draga vís- vitandi rangar ályktanir í ein- stökum efnisatriðum. Þátttaka í opinberri umfjöllun nú er félaginu og stjórnendum þess ómöguleg, þar sem slíkt gæti skaðað réttar- stöðu félagsins og einstaklinga á síðari stigum. Ég bið um þolinmæði viðskipta- vina og annarra landsmanna til að bíða með endanlegan dóm, þar til málið hefur fengið umfjöllun í rétt- arkerfi landsins. Félagið og ég sem forstjóri þess mun axla þá ábyrgð, sem réttarkerfi landsins ákvarð- ar.“ Yfirlýsing frá forstjóra Olíuverslunar Íslands Biður þjóðina afsökunar JÓHANNA Sigurðardóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um að settar verði reglur um innheimtu skulda. Er í því m.a. lagt til að sá sem í atvinnu- skyni annist innheimtu gjaldfallinna peningakrafna skuli hafa fengið inn- heimtuleyfi frá ráðherra Meðflutningsmenn eru tíu þing- menn úr öllum flokkum. Frumvarp sama efnis hefur áður verið lagt fram á Alþingi, en hlaut ekki afgreiðslu. „Markmiðið með þessu frumvarpi er að settar verði ákveðnar meginreglur um innheimtu til hagsbóta fyrir neyt- endur, m.a. um góða innheimtu- hætti,“ segir í greinargerð. Staða skuldara afar veik Segir í greinargerð að slík löggjöf sé vel þekkt hjá flestum nágranna- þjóðum okkar. „Neytendasamtökin hér á landi hafa margoft farið fram á að sett yrðu lög um innheimtu. Með réttu telja þau að staða skuldara hér á landi sé afar veik og innheimtuaðilar geti hagað sér frjálslega við gjaldtöku af þeim sem lenda í fjárhagserfiðleik- um og vanskilum. Fyrirtækjum sem sérhæfa sig í innheimtum hefur fjölg- að mikið hér síðustu ár og er lögum þessum m.a. ætlað að tryggja eftirlit með starfsemi þeirra og þá ekki síður með hagsmuni kröfuhafa í huga en skuldara. Þannig eru gerðar ítarlegar hæfiskröfur til innheimtuaðila og þeim gert að gæta góðra innheimtu- hátta og að hafa starfsábyrgðartrygg- ingu í gildi.“ Reglur verði settar um innheimtu skulda EINAR K. Guðfinnsson, þing- flokksformaður Sjálfstæðisflokks- ins, segir á vefsíðu sinni, þar sem hann fjallar um málefni olíufélag- anna, að dómstólar götunnar muni, ef að líkum lætur, verða ákaflega virkir á næstunni „og taka menn óhikað af lífi“. Hann minnir hins vegar á að menn séu saklausir þar til sekt sé sönnuð. „Það ríkir mikil reiði í garð olíu- félaganna í kjölfar skýrslu Sam- keppnisstofnunar,“ segir þingmað- urinn í upphafi greinar sinnar á ekg.is. „Skýrslan kveður á um meint verðsamráð olíufélaganna og á grundvelli hennar telur sam- keppnisráð að fyrir það beri þau að gjalda milljarða króna. Þetta er hluti af því regluverki og því fyr- irkomulagi sem við höfum sett upp með löggjöf. Því er ætlað að tryggja réttláta málsmeðferð, að menn fari að lögum og að þeir sem bornir eru sökum eigi rétt.“ Hann segir mjög mikilvægt að menn hafi þetta í heiðri. „Það er hins vegar ekki gert hjá dómstól- um götunnar. Þeir munu hins veg- ar verða ákaflega vel virkir á næstunni, ef að líkum lætur og taka menn óhikað af lífi. Þetta eru sannarlega velmektardagar þessa dómstigs. En reynslan sýnir að sá dómstóll fer ekki eftir leikreglum en dæmir eitt í dag og annað á morgun. Hjá honum getur skúrkur dagsins í dag orðið hetja morg- undagsins – og öfugt.“ Einar segir dæmi um að dóm- stólar götunnar hafi farið offari. „Við þekkjum dæmi úr nýliðinni sögu, þar sem menn voru bornir þungum sökum, þar sem dómstól- ar götunnar fóru offari, þar sem stjórnmálamenn dagsins hoppuðu á vinsældarvagninn og tóku sér þar far. Menn voru jafnvel sak- lausir hnepptir í fangelsi eða svipt- ir störfum sínum í gerningahríð- inni. Nýverið hafa þessir atburðir verið rifjaðir upp og öllum ljóst að þeir sem felldu þyngstu dómana og fóru fremstir í stóryrðunum hafa haft lítinn sóma af. Það væri hollt að minnast þessa núna.“ Málin verði könnuð Einar segir þó eðlilegt að olíu- verðsmálin verði könnuð. Rétt eins og verið sé að gera. „Þýðingarmik- ið er að það sé gert á þeim for- sendum sem lög gera ráð fyrir og lyktir málsins séu ákvarðaðar af til þess bærum aðilum.“ Hann segir einnig eðlilegt að umræða fari fram og að menn hafi skoðanir. „Það er einfaldlega þáttur í lýð- ræðislegu nútímasamfélagi. Í slíkri umræðu þarf hins vegar að gæta þess að öll sjónarmið komist til skila. Það er eitt þeirra hlutverka sem fjölmiðlar landsins eiga að sinna.“ Þingmaður var- ar við dómstól- um götunnar LÖGREGLAN í Keflavík hefur ver- ið með sérstakt eftirlit með hugsan- legum rjúpnaveiðum að undanförnu, en algert rjúpnaveiðibann er í gildi í landinu. Að sögn lögreglunnar hafa borist upplýsingar um ferðir rjúpnaveiði- manna síðustu daga í nágrenni Grindavíkur og þótti ástæða til að kanna málið nánar. Að sögn lögreglu hefur ekki tekist að hafa hendur í hári meintra rjúpnaveiðimanna þrátt fyrir eftir- grennslan. Eftirlit með rjúpna- skyttum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.