Morgunblaðið - 08.11.2004, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 08.11.2004, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 9 FRÉTTIR MIKILL fjöldi fólks var í Faðmi, nýjum höfuðstöðvum álversins í Straumsvík, sl. föstudag þegar nýja húsnæðið var vígt með formlegum hætti, en húsið var tekið í notkun fyrir rúmum þremur vikum. Að sögn Hrannars Péturssonar, upp- lýsingafulltrúa Alcan á Íslandi, heppnaðist hófið í alla staði mjög vel. „Hér var góð mæting og mikið af skemmtilegu fólki. Þannig að þetta var eins og við gátum látið okkur best dreyma um.“ Nýja húsnæðið, sem Teiknistofa Ingimundar Sveinssonar teiknaði, er um 1.130 fermetrar að stærð og hýsir skrifstofuhald verksmiðj- unnar, tæknimenn og stjórnendur, alls um 35 manns, en samtals starfa um 500 manns í álverinu í Straums- vík. Nýjar höfuðstöðvar leysa af hólmi eldra skrifstofuhúsnæði sem verið hefur í notkun frá því bygg- ingarframkvæmdir við verksmiðj- una hófust fyrir næstum fjórum áratugum árið 1967. Að sögn Hrannars hafa flutning- arnir í nýtt húsnæði lagst afar vel í starfsfólk. „Það er mjög góður andi í byggingunni og skemmtileg stemning. Raunar höfðu sumir ákveðnar áhyggjur af því þegar fréttist að til stæði að vinna í opn- um rýmum í nýja húsinu og létu í ljósi efasemdir um að slíkt væri sniðugt. Þetta var kannski skilj- anlegt í ljósi þess að flestir höfðu haft sinn eigin kontór í ár eða jafn- vel áratugi. En breytingin hefur, að ég leyfi mér að segja, heppnast nánast fullkomlega. Þannig eru all- ir mjög sáttir við þetta, enda gaman að vera komin í svona nýja og góða aðstöðu.“ Á myndinni má sjá Rannveigu Rist, forstjóra Alcan á Íslandi, við vígsluna á Faðmi. Morgunblaðið/Þorkell Góður andi í Faðmi Fáðu úrslitin send í símann þinn Mynd, Hafnarfirði sími 565 4207 www.ljósmynd.is Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020 Tilboðsmyndatökur Jólamyndatökur Hefðbundnar myndatökur Barnamyndatökur Verslið við fagmenn www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Flauels- fatnaður Jakkar og buxur frá Sendibíladekk AGILIS SNOW-ICE Karlar og konur á norrænum vinnumarkaði Tveggja daga málþing 11.-12. nóvember á Grand hótel Reykjavík Fimmtudagurinn 11. nóvember 13.00-17.00 Karlar í „kvennastörfum“ 13.00-13.55 Erik Hauglund: Menn i barnehager – like viktig som kvinner i styrerommet 13.55-14.30 Þórður Kristinsson: Fields of masculinity: Icelandic men in nursing. 14.30-15.05 Steinunn Hrafnsdóttir: In the World of Women: Men in female-dominated work organizations. 15.05-15.25 Kaffi 15.25-16.20 Marie Nordberg: Men in Female Occupations – Gender flexible models for gender trans- formations or for hegemonic masculinity? 16.20-16.55 Hafsteinn Karlsson: En man bland kvinnliga lärare Föstudagurinn 12. nóvember 9.00-13.00 Kynjaskiptur vinnumarkaður 09.00-09.55 Helinä Melkas: Gender segregation in Nordic labour markets: Trends and challenges 09.55-10.30 Lárus Blöndal: Changes in the Icelandic Occupational Structure 10.30-11.05 Fríða Rós Valdimarsdóttir: Föräldraledighet i Norden: Lösning eller ytterligare problem? 11.05-11.25 Kaffi 11.25-12.20 Steen Bagöe Nielsen: Mænd i omsorgs-, social- og sundhedsuddannelser. Nye veje med forhindringer. 12.20-12.55 Kjartan Ólafsson: The future heaven of gender equality? Occupational preferences of Icelandic youths1968-2003 Aðgangur er ókeypis og öllum heimill en þó er mikilvægt að þátttakendur skrái sig og er það gert á slóðinni: http://registration.yourhost.is/KochM2004/ eða í 551 0668 E N N E M M / S IA / N M 13 9 7 8 Sendum lista út á land 15% afsláttur af jökkum og yfirhöfnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.