Morgunblaðið - 08.11.2004, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Kristinn
Framtíðarstefnumótun
fyrir íslenskt þjóðfélag
Morgunblaðið/Ómar
ANNAR fundur í fimm funda röð
Verslunarráðs Íslands og Háskólans
í Reykjavík um framtíðarstefnumót-
un fyrir íslenskt þjóðfélag, var hald-
inn í Þjóðmenningarhúsinu á föstu-
dag. Þór Sigfússon, framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs Íslands, segir
að markmiðið með fundunum sé að
fá fram hreinskiptna og opna um-
ræðu um framtíð íslensks þjóðfélags
og hvert við stefnum.
„Fyrirtæki á Íslandi hafa verið að
leggja meiri rækt við framtíðarsýn
sína en áður. Jafnframt gera menn
sér grein fyrir að miklu máli skiptir
hvernig íslenskt þjóðfélag er að
þróast. Sú öra þróun sem á sér stað í
viðskiptalífinu gerir auknar kröfur
til forystumanna þess að miðla af
þekkingu sinni og sýn,“ segir Þór.
Niðurstöður kynntar
forsætisráðherra
Á fyrstu tveimur fundum í funda-
röðinni, sem Guðfinna Bjarnadóttir,
rektor Háskólans í Reykjavík,
stýrði, voru alfarið fulltrúar úr við-
skiptalífinu, að sögn Þórs, en áform-
að er víkka út þessa umræðu á næstu
þremur fundum sem haldnir verða á
næsta ári. „Þá höfum við áhuga á að
fá til liðs við okkur einstaklinga úr
stjórnmálum, menningar- og há-
skólalífi og af vinnumarkaði,“ segir
hann. Þegar niðurstöður fundarað-
arinnar liggja fyrir munu þær verða
kynntar fyrir forsætisráðherra.
„Hver niðurstaðan verður vitum við
ekki enn sem komið er,“ segir Þór.
Meðal þess sem rætt hefur verið á
fundunum er hvernig nota megi
þekkingu forystumanna í viðskipta-
lífinu við stefnumörkun í þjóðfélag-
inu. Einnig samskipti viðskiptalífs
og stjórnvalda, og hvernig megi
bæta það.
Þór nefnir atriði í umræðunum
sem hafi komið nokkuð á óvart og
þar á meðal hafi í umræðum um
ástæður fyrir velgengni landsins,
ekki endilega verið rædd mál sem
mætti áætla að viðskiptalífið talaði
helst um. „Jákvæð viðhorf til at-
hafnamennsku og fjölskyldustefna á
Íslandi eru ofarlega á baugi hvað
þetta varðar. Hið síðarnefnda getur
jafnvel haft talsverð áhrif á staðsetn-
ingu fyrirtækja og forystumanna
þeirra í heiminum. Það skiptir þá
heilmiklu máli að hér er gott að búa
og ala upp börn.“
Þór segir umræðuvettvang sem
þennan þekkjast víða um heim og í
mars sl. hafi Danir sett á laggirnar
hugmyndabanka undir heitinu
Cepos en Verslunarráð hefur verið í
sambandi við stofnendur Cepos
varðandi fundaröð sína. Einnig segir
Þór Breta vinna að margvíslegum
verkefnum á þessu sviði.
Athafnafólk Fyrsta fundinn sem haldinn var í ágúst sátu: Þór Sigfússon,
Róbert Wessmann, Baldur Guðnason, Guðfinna Bjarnadóttir, Sigurður
Gísli Pálmason, Svafa Grönfeldt, Bjarni Ármannsson og Jakob Sigurðsson.
Annan fundinn sátu Katrín Pétursdóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Guðfinna
Bjarnadóttir, Ágúst Guðmundsson, Elfar Aðalsteinsson, Jón Karl Ólafsson
og Hafþór Hafsteinsson.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Antwerpen
124 km
Brussels
100 km
Liege
Lille
224 km
Paris
387 km
London
420 km
Düsseldorf
135 km
Eindhoven
128 km
Dortmund
232 km
Hannover
Bremen
Köln
123 km
Bonn
123 km Frankfurt
320 km
Luxembourg
142 km
Strassbourg
406 km
Stuttgart
Rotterdam
224 km
Amsterdam
250 km
Eins
og
skot
Liège
-beint fraktflug 11 sinnum í viku
Frá 15. október eykur Icelandair Cargo vikulegt fraktflug til og frá Liége úr 6 ferðum í 9 á viku.
Við bætum svo um betur frá 1. nóvember og fljúgum 11 sinnum í viku á þessari leið. Icelandair
Cargo í Liege er í innan við 400 km fjarlægð frá mörgum af stærstu borgum Evrópu.
Á skyggða svæðinu hér að ofan á 75% af allri flugfrakt frá Evrópu sér uppruna. Icelandair
Cargo býður þér landflutninganet hvaðan sem er í Evrópu.
Nýttu þér hraðvirkasta flutningsmátann innan Evrópumarkaðar.
Hafðu strax samband við Icelandair Cargo við Flugvallarveg í Reykjavík.
Sími 5050 400, fax 5050 630, veffang icelandaircargo.is.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
FR
2
57
01
09
/2
00
4
Geymdu það ekki til morguns sem við getum gert í dag.
Alcan kaupir land
● GREINT er frá því á vefsíðu Alcan á
Íslandi að fyrirtækið hafi keypt
10.350 fermetra land við Straumsvík.
Athygli vekur að þessi samningur hafi
verið undirritaður sama dag og til-
kynnt var um fyrirhugaða stækkun
Norðuráls en Alcan ráðgerir ekki að
byggja á landinu, sem keypt var af
Hafnarfjarðarbæ, heldur verði það
notað sem útivistar- og athafnasvæði
fyrirtækisins. Samkvæmt vefsíðunni
er það stefna fyrirtækisins að eiga allt
land þar sem starfsemi þess fer fram.
sé gott verð á mjöli og lýsi og
þokkalegt verð á heilfrystri síld.
Áætlað er að afkoma félagsins á
árinu í heild verði „réttum megin
við núllið“.
● TAP varð af rekstri Tanga hf. á
Vopnafirði á fyrstu níu mánuðum
ársins sem nam 51 milljón króna
en á sama tímabili árið áður var
134 milljóna króna hagnaður af
rekstri félagsins. Á þriðja ársfjórð-
ungi eingöngu nam tapið 57 millj-
ónum króna samanborið við 86
milljóna króna hagnað á þriðja árs-
fjórðungi 2003, en inni í þeirri tölu
var mikill hagnaður af sölu var-
anlegra aflaheimilda í loðnu.
Helstu skýringar á lélegri afkomu á
þriðja ársfjórðungi í ár eru sagðar
vera dræm kolmunnaveiði og hátt
verð á olíu.
Velta félagsins fyrstu níu mánuði
ársins dróst saman um 15% miðað
við fyrra ár en rekstrargjöld stóðu
nánast í stað. Veltufé frá rekstri
nam 102 milljónum króna.
Fjórði ársfjórðungur er sagður
byrja vel. Kolmunnaveiðin hafi
glæðst og síldveiðin verið góð. Þá
Tangi tapar 51 milljón
ATVINNA mbl.is
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI