Morgunblaðið - 08.11.2004, Síða 13

Morgunblaðið - 08.11.2004, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 13 BYGGÐAMÁL Daði Bredesen ogHafþór Jónssoneru samhentir í smábátaútgerðinni á Patreksfirði. Þeir unnu við það að koma Tinda- röstinni, báti Daða, á land er Morgunblaðs- menn voru á ferð um Vesturbyggð nýlega. Daði var á leiðinni til bátasmiðs til að setja nýtt spil í bátinn svo línuveiðar geti farið fram í vetur. Hann fékk 45 tonna kvóta úthlutaðan, sem var um helmingur af því sem hann var að veiða í sóknardagakerfinu. „Maður er ekkert allt of sáttur við þessa úthlutun en þá er bara að reyna að útvega sér meiri heimildir. Ég hef lagt hart að mér til að reyna skapa mér einhverja atvinnu allt árið um kring,“ sagði Daði, sem ásamt þremur öðr- um smábátasjómönnum á Patreksfirði réðst í það verkefni að byggja eigin smábátahöfn. Daði Bredesen og Hafþór Jónsson. Samhentir í útgerðinnium allt land. Ég sé engar töfra-lausnir,“ segir Magnús. Hann segir samstöðu og sam- vinnu fólks mikilvæga til að lifa þjóðfélagsbreytingarnar af. Magnúsi líður vel á Tálknafirði og hann segir svæðið að ýmsu leyti frábrugðið. Tálknfirðingar séu „miðjufólk“ sem ætíð hafi farið gætilega til orðs og æðis. Í firð- inum hafi einnig verið meira bind- indi og reglufesta en víða annars staðar á Vestfjörðum. „Ég hef verið með kenningu um að landfræðilega er fjörðurinn óvenjulegur og með gott jarðnæði. Hann er það grösugur að góðir möguleikar eru á þéttri búsetu. Þegar heilu fjöllin og dalirnir skilja fólk að þá kemur upp bak- nag og hrepparígur,“ segir Magn- ús, viss í sinni trú, enda búinn að sigla margan sjóinn. skóla, auk byggingar á íþróttahúsi og sundlaug. Íþróttahúsið verði klárað á næstu vikum og vonandi opnað formlega 1. des- ember næstkomandi. „Við höfum stofnað nefnd til að fara gagngert yfir atvinnu- málin, ekki bara innan Hólmavíkurhrepps heldur á Ströndum í heild sinni. Við viljum skoða okkar möguleika á að byggja upp nýja atvinnustarfsemi. Þannig viljum við skapa tækifæri fyrir okkar unga fólk sem vill snúa heim að loknu námi,“ segir Ásdís og nefnir sem dæmi möguleika í fiskeldi og ferðaþjónustu, sem fari stöðugt vaxandi. Verið sé að auka þjónustu við ferðamenn á Ströndum og halda eigi áfram á þeirri braut sem Galdrasýning á Ströndum og Sauðfjársetrið hafa markað með góðum árangri. Einnig séu góðir möguleikar á að markaðssetja betur lamba- kjötið frá bændum á Ströndum. Kjötið hafi ákveðna sérstöðu vegna þykkra vöðva og lítillar fitu. Sér Ásdís m.a. möguleika á að selja Strandakjötið á Netinu, líkt og bændur á Austurlandi hafa gert. Samgöngurnar til skammar Hún segir samgöngumál brenna heitt á Strandamönnum, sem þykja vegabætur afar brýnar. Þær séu í raun forsenda fyrir áframhaldandi búsetu og vaxandi byggð á svæðinu. Það sé í raun til skammar að árið 2004 sé ekki enn búið að leggja bundið slit- lag á veginn milli Hólmavíkur og Drangsness, svo dæmi sé tekið. Sömuleiðis myndi létta verulega af veginum inn í Brú, með því að leggja veginn um Arnkötludal. Allir þungaflutningar yfir vet- urinn fari um veginn frá Brú til Hólmavíkur og hann sé alls ekki hannaður fyrir slíka umferð. Óhapp hafi átt sér við þessa þunga- flutninga og aðeins sé tímaspursmál hvenær verði slys á fólki. Að sögn Ásdísar er atvinnuleysi lítið á Ströndum og horfur ágætar í atvinnumálum þrátt fyrir erfiðleika í rækjuiðnaði. Rækjuvinnslan hjá Hólmadrangi sé vel rekin og engan bilbug að finna á stjórnendum þess fyrirtækis. „Áður en ég kom hingað var ég búsett í Reykjavík og ég komst á þá skoðun að það eru ákveðin forréttindi að fá að búa hérna. Ég tel að Strandamönnum séu allir vegir færir og við horfum bjartsýn fram á veginn. Tækifærin eru fyrir hendi, það er bara að nýta þau. Það er aldrei gott að sitja og bíða eftir því að eitthvað gerist fyrir sunnan, við verðum að sýna sjálfsbjarg- arviðleitni,“ segir Ásdís. Vesturbyggð og Tálknafjörður sameinist Frá Ströndum yfir í Vesturbyggð. Tíu ár eru liðin síðan sveit- arfélagið varð til með sameiningu fjögurra hreppa; Barða- strandar-, Rauðasands, Patreks- og Bíldudalshrepps. Íbúar sveitarfélagsins eru nú ríflega 1.000 og hefur fækkað um 26% frá árinu 1993, þegar hrepparnir fjórir liðu undir lok. Miðstöð Vest- urbyggðar er Patreksfjörður, með um 700 manns, en næst- stærsti byggðakjarninn er Bíldudalur, þar sem búa um 230 manns. Flatarmál sveitarfélagsins er um 1.300 ferkílómetrar og meginatvinnugreinin sjávarútvegur, líkt og víðast annars staðar á Vestfjörðum, auk landbúnaðar og ferðaþjónustu. Sem fleygur inn í Vesturbyggð, mitt á milli Patreksfjarðar og Bíldudals, ligg- ur svo Tálknafjarðarhreppur með um 340 manns, en 60% íbúa þar felldu sameiningu við aðra hreppa í V-Barðastrandarsýslu árið 1994. Hefur nú verið gerð tillaga um að Vesturbyggð og Tálknafjörður sameinist í kosningu næsta vor. Verkefnisstjórn félagsmálaráðuneytisins telur að með sameiningu geti orðið til öflugt fjarðasamfélag, líkt og gerst hafi á Vestfjörðum, sem geti sótt fram af krafti í atvinnu- og byggðamálum. Sveitarfélögin hafi þegar með sér nokkurt samstarf og samgöngur innan svæð- isins hafi batnað verulega með vegabótum um Hálfdán og Kleifaheiði. Samgöngur út fyrir svæðið, til Reykhólahrepps og norðanverðra Vestfjarða, séu hins vegar ekki nógu góðar. Sam- einað sveitarfélag teldi um 1.400 íbúa. Guðmundur Guðlaugsson hefur verið sveitarstjóri í Vestur- byggð í um hálft ár, eftir að hafa verið bæjarstjóri á Siglufirði um skeið. Spurður fyrst um sameiningarmálin segir Guðmundur samstarfið við Tálknfirðinga vera mjög gott og viðræður fari nú fram við þá, samkvæmt tillögu verkefnisstjórnar. Eðlilegt sé að sveitarfélögin verði stærri og öflugri einingar en á sunnan- verðum Vestfjörðum þurfi frekari samgöngubætur. Er við hittum Guðmund að máli á skrifstofu sveitarfélagsins á Patreksfirði var hann að bíða eftir svörum frá sjávarútvegsráðu- neytinu við umsókn Vesturbyggðar um byggðakvóta. Í umsókn- inni var bent á „sláandi tölur“ um skerðingu aflaheimilda í sveit- arfélaginu frá 1991 til 2004. Á þeim tíma minnkuðu aflaheimildir um 50%, eða úr 10.294 þorskígildistonnum árið 1991 í 5.189 tonn á nýliðnu fiskveiðiári. Mest hefur skerðingin orðið í Bíldudal, en einnig á Patreksfirði og Brjánslæk. Guðmundur segir þennan samdrátt hafa valdið miklum vanda og haft alvarleg áhrif á at- vinnulífið í Vesturbyggð. Bendir hann á að af 60 störfum í Bíldu- dal í október árið 2003 hafi 36 störf verið við fiskvinnslu, eða 60% af vinnumarkaðnum. Kalkþörungar „okkar stóriðja“ Síðustu mánuðina hefur atvinnuleysi reyndar verið lítið í sveitarfélaginu og nú orðið vantar fólk í fiskvinnslu á álags- tímum. Illa hefur gengið að fá Íslendinga til vinnu og sem fyrr hafa útlendingar borið uppi fiskvinnsluna. Guðmundur segir eitt stærsta verkefnið vera að auka fjölbreytni starfa, ekki takist að auka mikið við hlut fiskvinnslu og -veiða. Í Vesturbyggð sé einna mest horft til möguleika í tengslum við kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal. Undirbúningsframkvæmdir eru þegar hafnar, með landfyllingu við höfnina þar sem verksmiðjan á að rísa. Sótt hef- ur verið um starfs- og byggingarleyfi þannig að allt stefnir í að verksmiðjan verði að veruleika. Guðmundur bindur vonir við að byggingarframkvæmdir hefj- ist á næsta ári og framleiðsla geti hafist á vordögum 2006. „Þetta er okkar stóriðja,“ segir Guðmundur en verksmiðjan mun skapa um 15 störf. Í framhaldinu er ætlunin að þróa afurðir úr kalk- þörungum, sem getur skapað enn fleiri störf í Vesturbyggð og Tálknafirði. Ótalin eru afleidd störf í tengslum við verksmiðjuna. Spurður um önnur helstu tækifæri og möguleika í Vest- urbyggð segir Guðmundur þau vera mörg. Bæta þurfi sam- göngur en helstu möguleikarnir liggi í ferðaþjónustunni. Nátt- úrufegurðin sé mikil og staðir eins og Látrabjarg, Selárdalur, minjasafnið á Hnjóti í Örlygshöfn, Vatnsdalur og Rauðasandur séu forvitnilegir og spennandi. „Sveitarfélagið getur ýtt undir þróun og reynt að skapa um- gjörð um hugmyndir, sem geta orðið að veruleika. Við höfum tekið þátt í mótun atvinnumálastefnu með Tálknfirðingum til ársins 2008 og fengið Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismann, til að koma með tillögur og hugmyndir í atvinnumálum og ferða- þjónustu,“ segir Guðmundur. Sveitarstjórinn í Vesturbyggð var sem fyrr segir bæjarstjóri á Siglufirði og hann segir margt líkt með Siglfirðingum og Vest- firðingum. Þeir eigi hið minnsta eitt sameiginlegt; þ.e. að koma þurfi á samgöngubótum. „Raunhæfar og nútímalegar sam- göngubætur geta ráðið úrslitum um byggðaþróun og aðstæður fólks á þessum svæðum. Slíkar bætur eru að mínu mati arð- samar fyrir þjóðfélagið,“ segir Guðmundur. Fjölbreyttir möguleikar Hann vitnaði til hugmynda Árna Johnsen en eins og nýlega kom fram í Morgunblaðinu hefur Árni kynnt og sett fram 57 til- lögur um átak í ferðaþjónustu og atvinnumálum í Vesturbyggð og 25 sambærilegar tillögur fyrir Tálknafjörð. Af tillögunum um Vesturbyggð telur Árni í skýrslu sinni að raunhæft sé að stefna að því að hrinda 44 í framkvæmd á einu og hálfu til tveimur ár- um, hinar tillögurnar séu langtímaverkefni. Hann telur kostnað við tillögurnar 44 vera rúmar 30 milljónir króna og stóran hluta af því megi fjármagna með styrkjum. „Vesturbyggð býr yfir ótrúlega fjölbreyttum möguleikum til þess að styrkja byggð og ímynd svæðisins, ferðaþjónustu og um leið atvinnusköpun, að- allega í tengslum við ferðaþjónustu,“ segir Árni m.a. í skýrsl- unni. Tálknafjörð segir hann vera einstaklega fallegan fjörð og það sé eins og almættið hafi vandað sig sérstaklega hvað varðar náttúru og fegurð fjalla sem skapi „ótrúlegan geisla“ til beggja átta frá firðinum. Af tillögunum 25 telur Árni raunhæft að hrinda 20 þeirra í framkvæmd á næstu árum. Kostnaður geti numið 13–14 milljónum króna. Það er því engan bilbug að finna á Vestfirðingum á sunn- anverðum Vestfjörðum og Ströndum. Fólk reynir að aðlagast breyttum aðstæðum og leita sér nýrra tækifæra, með von um bættar samgöngur bæði innan svæðis og til næstu landshluta í norðri og suðri. Í næstu grein verður farið til norðurs á Vest- fjörðum og staðan þar könnuð með sambærilegum hætti og hér hefur verið gert. vegi um Arnkötludal bæta samgöngur Morgunblaðið/RAX Fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækið Oddi á Patreksfirði er stærsti atvinnu- rekandinn á staðnum. Auk hefðbundinnar vinnslu hefur fyrirtækið verið að þróa sig áfram með steinbítsafurðir, m.a. í samstarfi við breska versl- anakeðju. Hér er einn starfsmaður Odda innan um stæður af fiskkörum. Ásdís Leifsdóttir, sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps. Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri Reykhólahrepps. Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri Vesturbyggðar.                                  !" #                  bjb@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.