Morgunblaðið - 08.11.2004, Side 16

Morgunblaðið - 08.11.2004, Side 16
16 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT PALESTÍNSKIR embættismenn sögðu í gær að lifur Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, væri hætt að starfa og líðan hans hefði ekki batnað, hann mun enn vera í dái. „Arafat er á lífi, “ sagði Michel Barnier, utanríkisráðherra Frakk- lands, í gær. Hann bætti því við að ástand leiðtogans væri „mjög alvar- legt“ en stöðugt. Ahmed Qurei, for- sætisráðherra palestínsku heima- stjórnarinnar og Mahmoud Abbas, starfandi leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu, PLO, báðu í gær um leyfi til að heimsækja Arafat á sjúkrahús- inu í París og voru þeir væntanlegir þangað í dag, mánudag. Sagt er að fram til þessa hafi að- eins eiginkona hans, Suha Arafat, og örfáir aðrir fengið heimild til þess. Ríkir óánægja með þessa tilhögun í röðum frammámanna PLO og vildu þeir fá að kynna sér ástand hans sjálfir án milligöngu eiginkonunnar. Ísraelar hafa lokið undirbúningi fyrir að Arafat verði jarðsettur á Gaza. Sjálfur hefur Arafat fyrir löngu beðið um að verða jarðsettur í Jerúsalem en þar segist hann hafa fæðst þótt margir telji að raunveru- lega fæðingarborgin hafi verið Kaíró í Egyptalandi. Arafat liggur á frönsku hersjúkrahúsi í grennd við París. Aðstoðarmenn hans sögðu að hann yrði hugsanlega fluttur á sjúkrahús í Kaíró en þaðan yrði hægt að flytja lík hans skjótar heim ef hann deyr. Samkvæmt hefðum múslíma ber að jarðsetja látið fólk eins fljótt og unnt er. Enn er ekki ljóst hvað hrjáir Ara- fat. Læknar hafa útilokað hvítblæði en viðurkenna að þeir viti ekki hvað olli því að heilsu hans hrakaði skyndilega eftir að hann kom á franska sjúkrahúsið. Sögusagnir hafa þegar komist á kreik meðal Palestínumanna um að eitrað hafi verið fyrir leiðtoganum. Hann er 75 ára gamall og hefur oft verið heilsu- veill. Vilja tryggja lög og reglu Leiðtogar Palestínumanna hafa fallist á áætlun um að koma aftur á lögum og reglu á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu og koma í veg fyrir óeirðir ef Arafat deyr. Er þetta sögð mikilvægasta ákvörðun sem Palest- ínustjórn tekur eftir að Arafat var fluttur frá Ramallah til Parísar. Embættismenn segja að áætlunin hafi verið gerð í mars og snúist frek- ar um að koma böndum á ástandið á heimastjórnarsvæðunum en að koma höndum yfir liðsmenn hópa Palestínumanna sem risu upp gegn hernámi Ísraela fyrir fjórum árum. Samkvæmt áætluninni verður ör- yggislögreglumönnum fjölgað á svæðinu. Líðan Arafats Palestínuleiðtoga sögð vera óbreytt Qurei og Abbas til Parísar Reuters Liðsmenn samtaka gyðinga sem eru andvígir zíonisma kveikja á kertum fyrir utan Percy-herspítalann í Clamart við París þar sem Arafat liggur. Ramallah, Jerúsalem, París. AFP, AP. OF LÍTIL þátttaka var í gær í þjóð- aratkvæðagreiðslu í Makedóníu um tillögu þess efnis að hnekkt yrði lög- um sem kveða á um aukin réttindi þjóðarbrots albönskumælandi fólks í landinu. Kjörsókn þurfti að verða minnst 50% til að úrslitin teldust bindandi en var aðeins 25–27%. Það voru makedónskir þjóðernis- sinnar sem kröfðust atkvæðagreiðsl- unnar. Þeir voru andvígir breytingum sem urðu þegar friðarsamkomulag batt enda á uppreisn albanskra víga- hópa í landinu fyrir þrem árum. Var þá m.a. ákveðið að fækka mjög sveit- arfélögum og munu Albanarnir nú verða í meirihluta í tveim borgum, Struga og Kicevo. Albanska verður auk þess annað opinbera tungumálið í höfuðstaðnum, Skopje. Bæði samsteypustjórnin í Maked- óníu, þar sem Albanar eiga fulltrúa, og alþjóðasamfélagið höfðu hvatt íbúa landsins til að greiða ekki atkvæði. Mun þorri Albana hafa orðið við þeirri ósk og einnig stór hluti slav- neskumælandi kjósenda. Of fáir mættu á kjörstað Skopje. AFP. Þjóðaratkvæðagreiðsla í Makedóníu TÍMAMÓT urðu í Dallas í Tex- as á kjördag þegar demókrat- inn Lupe Vald- ez sigraði repúblikanann Danny Chandler í kosningum um embætti lögreglustjóra. Chandler hafði gegnt embætt- inu í um 30 ár, að sögn CNN- sjónvarpsstöðvarinnar. Mörg hneyksli hafa komið upp hjá lögreglunni í Dallas síð- ustu árin. Valdez er 52 ára gömul kona, samkynhneigð og eins og nafnið bendir til af ætt- um Hispana, þ.e. fólks með rætur í Rómönsku Ameríku. Foreldrar hennar voru innflytj- endur. Fékk Valdez 51% at- kvæða og er talið að margt spænskumælandi fólk hafi kos- ið hana. Hún verður fyrst kvenna til að gegna embættinu í Dallas. Valdez verður lög- reglustjóri Lupe Valdez Dallas í Texas SJÖ manns a.m.k. fórust og 10 slös- uðust alvarlega þegar háhraðalest fór út af sporinu eftir árekstur við bíl í þorpi vestan við London á laug- ardagskvöld, myndin var tekin á slysstað í gær. Um 300 farþegar voru í lestinni sem var á leið frá Lundúnum til Plymouth. Allir átta vagnar lestarinnar fóru út af sporinu. Rannsakað verður vandlega hvað olli atburðinum en yfirvöld vildu í gær ekki fullyrða neitt um orsök- ina. Lögreglumaður sem varð vitni að árekstrinum segir að bíllinn hafi stöðvast teinunum. Hlið til beggja handa við teinana lokast með sjálf- virkum hætti áður en lest kemur. Reuters Sjö fórust í lestarslysi BILL Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að demókrat- ar eigi að hætta að „væla“ yfir sigri George W. Bush og einhenda sér þess í stað í að bæta ímyndina, segir í frétt AP-fréttastofunnar. Sagði Clinton í ræðu á föstudag að re- públikönum hefði tekist að fá kjósendur í strjálbýli og litlum borgum til að halda að Demókrata- flokkurinn tryði ekki á Guð og fjölskylduna, legði ekki áherslu á vinnusemi og frelsi. „Repúblikanar sendu skýr skila- boð, sendiboðinn stóð sig vel, skipu- lagið var gott og áætlunin frábær,“ sagði Clinton. Mikið er nú rætt hver verði for- setaefni demókrata árið 2008 og er ljóts að varaforsetaefni John Kerr- ys, John Edwards, er þegar byrj- aður að berjast fyrir tilnefningu eft- ir fjögur ár. Hann þykir hafa ýmislegt með sér, er myndarlegur, á auðvelt með að ná til almennings og er frá Suðurríkjunum sem vega æ þyngra í kosningum. En bent er á að hann hafi litla stjórnmálareynslu og honum tókst ekki einu sinni að tryggja demókrötum sigur í ríkinu þar sem hann var öldungadeild- arþingmaður, Norður-Karólínu. Allir þekkja hana Fleiri veðja því á eiginkonu Bills Clintons, Hillary Rodham Clinton, öldungardeildarþingmann frá New York. Hún hefur lengi notið mikils fylgis meðal demókrata og er að sjálfsögðu landsþekkt sem skiptir miklu máli. Þess má geta að flestir Bandaríkjamenn vissu sáralítið um John Kerry þar til hann háði sjón- varpseinvígi sín við Bush. Breska tímaritið The Economist segir í síðasta tölublaði að Hillary Clinton standi nú með pálmann í höndunum eftir ósigur Kerrys og Edwards. Búast megi við því að Bandaríkjamenn muni þrá að fá aðra en repúblikana að stjórnvel- inum eftir átta ára setu Bush í Hvíta húsinu og horfurnar því góðar fyrir frambjóðanda demókrata 2008. Vinstrisinnar í flokknum hafi mikið álit á Rodham Clinton vegna stefnu hennar í heilbrigðismálum og ekki spilli að hún sé kona. Meirihluti kjósenda í forkosningum demókrata sé konur. „En hún hefur færst sig nær miðju eftir að hún varð öld- ungadeildarþingmaður fyrir New York: hún hefur gætt þess að styðja stríðið í Írak og náði sæti í her- málanefnd öldungadeildarinnar. Stuðningsmenn Clinton-hjónanna ráða mestu í flokksvélinni, hvort sem rætt er um hugveitur eins og Centre for American Progress eða Media Fund, stofnun sem reynir að fá fleira fólk til að kjósa. Og eig- inmaður hennar er einn snjallasti maðurinn í pólitísku ráðabruggi sem demókratar eiga,“ segir tíma- ritið. Tilnefning ekki á silfurfati Það leggur samt áherslu á að hún muni ekki fá tilnefninguna á silf- urfati. Vinstrisinnar í flokknum búi sig nú undir að berjast gegn því sem þeir álíti vera hneigð foryst- unnar til að halda sig á miðjunni. Þeir séu þess fullvissir að ekkert hafi verið að stefnu Howards Deans heldur hafi hann ekki verið heppi- legur merkisberi. Rétta ráðið fyrir demókrata sé að berjast af sama ákafa fyrir vinstri-áherslum og Bush hafi barist fyrir hugmyndum hægrimanna. The Economist segir að demó- kratar þurfi vissulega að bæta skipulagið. Repúblikanar hafi ekki aðeins haldið forsetaembættinu heldur líka báðum deildum þingsins. Demókratar hafi hafnað í þeirri stöðu að hvítir verkamann hafi flykkst í raðir repúblikana. En demókratar sitji uppi með vand- ræðalegt bandalag annars vegar menntamanna, þar sem fáeinir milljarðamæringar séu að vísu með í fylkingunni og hins vegar ýmsir minnihlutahópar samfélagsins. Demókratar eigi eftir að finna leið til að ná aftur tengslum við þjóð sem sé almennt íhaldssöm í menn- ingarlegum efnum. Hillary Rodham Clinton sé ef til vill ekki besti kandidatinn til að rétta hlut demókrata en hún sé mun hæfari til þess en vinstrimenn í anda Michaels Moore sem njóti svo mikillar hylli í háskólaborgunum. Auk þess er hún agaðri en eig- inmaðurinn og hefur einstakan hæfileika til að kalla fram verstu hliðar andstæðinga sinna, segir The Economist. Margir telja að Hillary Rodham Clinton eigi mesta möguleika á að verða for- setaefni demókrata í næstu kosningum Hillary Rodham Clinton Með pálmann í höndunum 2008? ÞÁTTTAKANDI í mótmælum vegna flutninga á kjarnorkuúrgangi frá Frakklandi til Þýskalands lést í gær er ekki tókst að stöðva járn- brautarlest í tæka tíð. Maðurinn er sagður hafa verið 21 árs gamall. Atburðurinn varð síðdegis í borg- inni Avricourt í norðaustanverðu Frakklandi. Átta manns höfðu hlekkjað sig við brautarteinana en von var á flutningalest með úrgang frá La Hague í Norður-Frakklandi og átti hún að flytja efnið til Dannen- berg í Þýskalandi. Þaðan er ætlunin að flytja úrganginn í þýska endur- vinnslustöð í Gorleben. Lögreglu hafði tekist að losa fólkið úr hlekkjunum og fór það allt af tein- unum að umræddum manni undan- skildum. Bráðaliðar veittu mannin- um, sem hafði misst annan fótinn, þegar aðstoð en hann dó á leiðinni á sjúkrahús. Talsmenn mótmælend- anna segja að farist hafi fyrir að láta stjórnendur lestarinnar vita af mót- mælunum og þeir hörmuðu slysið. Fórst í mótmælum Strassborg. AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.