Morgunblaðið - 08.11.2004, Page 18

Morgunblaðið - 08.11.2004, Page 18
Litrík og lífsglöð í gömlum fötum Þrjú lakkrísbindi: Jónas var alveg heillaður í Rauðakrossbúðinni. Prakkarar komnir í flott skólaföt frá Rauðakrossbúðinni: Peysan sem Jónas er í kostar 1.200 kr., skyrtan kostar 500 kr. og hálsklúturinn 300 kr. Pilsið sem Melkorka er í kostar 500 kr., bleiki bolurinn með föstum ermum kostar 300 kr., ullarhosur 800 kr., trefill 500 kr., vettlingar 500 kr. og húfa 500 kr. „FLOTT föt“ er afstætt hugtak. Þau fást ekki endilega bara í dýru búðunum. Svo segja þeir sem grafa upp flottar flíkur fyrir lítinn pen- ing í verslunum sem selja notuð föt og styrkja í leiðinni gott málefni. Framhaldsskólanemarnir Mel- korka Rut Bjarnadóttir og Jónas Ingólfsson fóru á stúfana og könn- uðu skrautleg klæði í tveimur verslunum sem selja notuð föt fyrir ótrúlega lágt verð. Þau smeygðu sér fyrst inn í Rauðakrossbúðina við Laugaveg 12 sem heitir Fötin þín og er ekki aðeins full af fjöl- breyttum fötum frá ýmsum tímum, heldur er líka einstök stemning innandyra. Tvær fullorðnar konur starfa í búðinni og taka á móti við- skiptavinum eins og bestu gestum og láta fara vel um sig í gömlu sófasetti og leysa saman kross- gátur á meðan gestirnir gramsa í fötunum. Þær segja alls konar fólk á öllum aldri koma og versla hjá þeim, bæði útlendinga og Íslend- inga. Þær fá fatasendingar í hverri viku frá Sorpu en þar standa Rauðakrossgámar þar sem tekið er á móti notuðum fötum. Meiri hlut- inn af þeim fer til bágstaddra í út- löndum. Ágóðinn af sölu fatanna fer til Rauða krossins. Þegar Melkorka og Jónas höfðu sprellað nægilega á Laugaveginum fóru þau í Hjálpræðishersbúðina sem stendur við Garðastræti 6. Þar var hin norska Anne Marie á fullu við að raða fötum í hillur og hún sagði alltaf vera nóg að gera. Verðið á fötunum er ekki endilega fast, flest fæst fyrir nokkur hundr- uð krónur en það er breytilegt eft- ir aldri og ástandi fatanna. Einnig bjóða þau stundum upp á svokölluð pokatilboð þar sem viðskiptavin- urinn getur fyllt poka af fötum og borgað þúsund krónur fyrir og þá er hægt að gera reifarakaup. Allur ágóði af fatasölunni renn- ur í rekstrarsjóð Hjálpræðishersins sem frægur er fyrir að leggja lít- ilmagnanum hjálparhönd. Anne Marie sagði hinn almenna borgara vera viljugan að færa Hjálpræðis- hernum notuð föt til að selja svo hægt sé að safna fé til góðgerð- armála. Þau föt sem ekki seljast í búðinni, sendir Hjálpræðisherinn til Hollands þar sem þau nýtast öðrum.  TÍSKA | Notuð föt eru líka flott Melkorka í bláum sparikjól verður vandræðaleg þegar kínverskir ferðamenn hópast að henni á Laugaveginum: Kjóllinn kostar 2.000 kr. Svöl í kvöldrökkrinu: Melkorka í skvísufötum frá Rauðakrossbúðinni. Gula vestið kostar 100 kr. og gallabuxurnar kosta 200 kr. Virðulegur í meira lagi: Jónas kominn í sallafín jakkaföt frá Rauðakrossbúðinni. Þau kosta 2.000 kr., skyrtan 500 kr. og klúturinn 300 kr. Tvö í letikasti í fötum frá Hjálpræðishersbúðinni: Jónas í Adidaspeysu sem kostar 500 kr. Melkorka í peysu sem kostar 500 kr. og kjól sem kostar 1.000 kr. Handskjól frá Rauðakrossbúðinni: Kostar 500 kr. Lítil taska frá Hjálpræðishers- búðinni: Kostar 100 kr. Morgunblaðið/Þorkell khk@mbl.is 18 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.