Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 21
UMRÆÐAN
RAFSTÖÐVAR
ALL-KEEP
m/DIESLMÓTOR
og rafstarti
2,7 kvA kr. 59.750
3,75 kvA kr. 92.000
5,0 kvA kr. 110.000
5 kvA kr.165.000
8 kvA kr.235.000
m/HONDA MÓTOR
Léttöl
Í VIÐSKIPTALEIKREGLUM
fortíðarinnar gilti sú meginregla að
kaupandinn ætti að gæta að sér og
seljandinn kæmist upp með hvað
sem væri. Þá voru ekki samkeppn-
isreglur eða frjáls markaðs-
starfsemi. Kyrrstaða og stöðnun ein-
kenndi slík þjóðfélög. Fyrir rúmum
áratug var ákveðið að Ísland yrði
fært inn í nútímann í viðskiptalegu
tilliti. Samkeppnislög voru sett þar
sem miðað er við að frjáls samkeppni
tryggi einstaklingum og þjóðfélag-
inu sem mesta hagsæld. Kerfi verð-
lagshafta og opinberra verðákvarð-
anna var að mestu lagt niður. Ísland
ákvað að verða nútímaþjóðfélag í
viðskiptalegu tilliti. Viðskiptalífið og
þjóðin hafa notið þess að búa við
breyttar aðstæður. Hagsældin sem
við búum við er ekki síst vegna þess-
ara breytinga í viðskiptaumhverfinu.
Útrás íslenskra fyrirtækja á erlenda
markaði er ekki síst vegna þess að
þau hafa þurft að berjast við eðlileg-
ar markaðsaðstæður og staðið sig.
Gömul kona var að horfa á fót-
boltaleik í fyrsta skipti og spurði
hvað eru þessir menn eiginlega að
gera? Sá sem sat næstur henni sagði
þá vera að reyna að koma boltanum í
mark. Gamla konan sat hugsi og
sagði svo. Það mundi ganga betur ef
þeir væru ekki að flækjast hver fyrir
öðrum. Samkvæmt niðurstöðu Sam-
keppnisstofnunar hugsuðu olíufélög-
in eins og gamla konan á fótbolta-
vellinum. En þetta er ekki svona
hvorki á fótboltavellinum né í við-
skiptalífinu. Sé ekki farið að leik-
reglum þá verður enginn leikur. Þá
gilda engar reglur og sá sterkari
nýtir sér þá yfirburðastöðu eins og
olíufélögin hafa gert og skaðað hvert
heimili í landinu um hálfa milljón.
Samsæri olíufélaganna gegn hags-
munum almennings liggur fyrir eins
og lögmaður olíufélagsins Esso
orðar það. „Að sjálfsögðu eru olíufé-
lögin sek.“ Þá er spurningin hvernig
bregðast menn við? Er hægt að gera
minni kröfur en þær að olíufélögun-
um verði gert að skila öllum ráns-
fengnum? Er ásættanlegt að þeir
sem tekið hafa þátt í þessari aðför að
hagsmunum almennings gegni
áfram pólitískum trúnaðarstöðum?
Í grein sem ég skrifaði fyrir rétt-
um 10 árum hélt ég því fram að eng-
in samkeppni væri milli olíufélag-
anna eða eins og segir í greininni:
„Allt er ákveðið fyrirfram.“ Borg-
arstjórinn í Reykjavík, sem þá var
markaðsstjóri olíufélagsins Esso,
varð til andsvara og sagði grein mína
byggða á misskilningi og rakti síðan
hvernig verðmyndun
væri á þessum markaði.
Á sama tíma og mark-
aðsstjórinn þáverandi
skrifaði greinina um
skilningsleysi undirrit-
aðs á markaðs-
aðstæðum var hann á
bólakafi ásamt hinum
olíufurstunum á beit í
buddunni þinni. Hann
var upptekinn við að
hafa rangt við og vinna
gegn hagsmunum al-
mennings og þeim
ávinningi sem almenningur hefur af
frjálsri markaðsstarfsemi.
Er ásættanlegt að
slíkur maður sitji í
einu valdamesta emb-
ætti þjóðfélagsins? Er
það til marks um póli-
tískt siðferði þeirra
flokka sem standa að
R-listanum að ætla
sér að slá skjaldborg
um mann sem hefur
orðið ber af samsæri
gegn almenningi?
Sýnir það eðlilega sið-
ferðilega dómgreind
Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur að ákveða að borgar-
stjórinn taki við embætti hennar
þrátt fyrir að hún hafi verið upplýst
um að hann hafi tekið þátt í samsæri
gegn hagsmunum almennings?
Eins má spyrja hvort Sjálf-
stæðisflokkurinn telji það fært að
eiginkona konsertmeistara sam-
særisins gegn almenningi verði for-
seti Alþingis og formaður utanrík-
ismálanefndar. Verður ekki að gera
strangari kröfur um pólitískt sið-
ferði en ákvæði refsilaga gera um
refsingar? Er það í samræmi við sið-
ferðismat þjóðarinnar að eðlilegt
geti talist að konsertmeistarinn
komi í framtíðinni fram ásamt konu
sinni við móttöku erlendra gesta og
aðrar opinberar athafnir?
Sjálfstæðisflokkurinn verður að
svara því.
Leikreglur fortíðarinnar
Jón Magnússon fjallar um
brot olíufélaganna á sam-
keppnislögum ’Á sama tíma og mark-aðsstjórinn þáverandi
skrifaði greinina um
skilningsleysi undirritaðs
á markaðsaðstæðum var
hann á bólakafi ásamt
hinum olíufurstunum á
beit í buddunni þinni.‘ Jón Magnússon
Höfundur er hrl. og formaður
Lýðræðisflokksins Nýtt afl.