Morgunblaðið - 08.11.2004, Side 22

Morgunblaðið - 08.11.2004, Side 22
22 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Það er gaman að eyða peningum en það er líka gaman að spara Sá sem gerir hvort tveggja hefur tvöfalda ánægju af peningunum.. FjÁRMÁL HEIMILANNA . . . . - Ný hugsun í heimilisrekstri " Auka frjálsar ráðstöfunartekjur heimilisins " Greiða hratt niður skuldir " Fjárfesta í sparnaði óháð skuldastöðu " Meta áhrif viðhorfa og hegðunar á fjármálin Námskeið þar sem kennt verður að: Námskeiðsgögn, 12 mánaða frí áskrift að heimilisbókhaldi og veltukerfi sem er fljótvirk aðferð til að greiða niður skuldir. Aðgangur að læstri spjallrás um fjármál heimilisins og upprifjunarnámskeið eftir sex mánuði. Innifalið í námskeiðinu er: Næsta námskeið: 19. og 21. janúar frá 18:00 - 21:00 Skráning: www.fjarmalafrelsi.is eða í síma 587 2580 Leiðbeinandi: Ingólfur H. Ingólfsson, félagsfræðingur Skoðaðu heimasíðuna www.fjarmalafrelsi.is Það borgar sig ! ÞúÞ átt nóg af peningum. Finndu þá! Pílutjöld ehf Faxafeni 12 108 Reykjavík s. 553 0095 www.pilu.is • Gardínustangir • Felligardínur • Bambusgardínur • Sólskyggni Smíðum og saumum eftir máli. Allt fyrir gluggann Stuttur afgreiðslutími Skipholti 33 • 105 Reykjavík • Sími 553 5600 • www.rafsol.is • rafsol@rafsol.is Dyrasímar fyrir heimili og fyrirtæki Eigum fyrirliggjandi dyrasíma fyrir einbýlishús, fjölbýlishús og fyrirtæki. Ýmsar lausnir í boði. Upplýsingar í síma 553 5600 E IN N , T V E IR O G Þ R ÍR 2 66 .0 05 HÚS & HEIMILI Í GREIN þeirra Helga Gests- sonar og Trausta Þorsteinssonar þ. 1. nóv. sl. hnaut ég um allsendis ný- stárlega merkingu orðanna „huglægt“ og „óbeint“. Fyrir liggur að með því að leggja niður stöðugildi til að ná fram sparnaði í launakostnaði falla nið- ur útsvarstekjur þar á móti. Ef launagjöld eru bein og hlutlæg, hvern- ig geta álögur eins og útsvar, sem ævinlega eru fastur fylgifiskur launa, kallast óbein og huglæg, eins og þeir fé- lagar gera í grein sinni? Hagkvæmniúttekt þeirra vegna hugsanlegrar lokunar Húsa- bakkaskóla tekur fullt tillit til lækk- unar launakostnaðar, en þeir skirr- ast þó ekki við að undanskilja þá staðreynd að um leið lækka einnig útsvarstekjur til bæjarins, og gera þeir það án allra útskýringa í skýrslum sínum. Síðan segja þeir í þessari grein sinni að þetta hafi „óbein“ áhrif á bæjarsjóð, og kalla þetta „huglægar“ forsendur! Hefur þá kannski launasparnaðurinn líka „óbein“ áhrif á bæjarsjóð? Þeir segja að það „... verður ekki séð hvort og hversu mikil lækkun útsvarstekna verður. Þá gætu einnig á grundvelli sparnaðar vegna breytinganna skap- ast ný störf í sveitarfélaginu fyrir þetta „fólk“. Hef ég kannski mis- skilið eitthvað? Á ekki einn helsti sparnaðurinn sem af þessu hlýst fyr- ir Dalvíkurbyggð að felast í því að bæjarsjóður losnar við að þurfa að borga þessu fólki laun? Það er heldur ekkert „hugsanlegt“ við það að störf muni hverfa, eins og Helgi og Trausti segja einnig í grein sinni, og það sem verra er, hér er þannig at- vinnuástand að mikill fjöldi fólks hef- ur á þessu ári flust brott úr þessu bæjarfélagi. Það kemur fram í máli þeirra að þeir sem missa munu vinnu sína vegna þessa noti væntanlega rétt sinn til atvinnuleysisbóta, og svo ganga þeir út frá að þetta fólk sitji sem fastast og uni sér við þessar bætur. Það kemst ekki enn að hjá þeim lagsmönnum sá möguleiki að þetta valdi enn frekari brott- flutningi af svæðinu en orðið er. Þó hefur þrá- sinnis verið bent á að ákveðinn hópur af fólki hefur sagst ætla að flytja annað komi til lokunar Húsabakka- skóla, og er þar bæði um að ræða starfsfólk við skólann og barna- fjölskyldur sem skólinn hefur að undanförnu laðað hingað í byggðina, fólk sem ekki þarf að binda búsetu sína við starf sitt. Verður ekki ein- mitt að telja þetta líklegri framvindu mála miðað við atvinnuþróunina hér undanfarið, og sé ennfremur tekið mið af því að það var Húsabakka- skóli (en ekki Dalvíkurskóli) sem gerði það að verkum að mun fleira fólk byggir Svarfaðardal í dag en bændur og búalið? Burt séð frá því að þetta er nú haft eftir fólkinu sjálfu? Hér er um að ræða þónokkuð fleira fólk en átta manns, þeim fylgja jú t.d. makar í nokkrum tilfellum. Um leið og skýrsluhöfundarnir und- anskilja þennan þátt í útreikningum sínum, láta þeir einnig hjá líða að skoða neikvæð áhrif þessa á versl- unar- og þjónustufyrirtæki hér í bænum, og þó er þar ekki um að ræða neina smástærð í þessum út- reikningum. Ég sagði í síðustu grein minni hér að langt væri seilst af þeim Helga og Trausta til að sýna há- markssparnað af lokun Húsabakka- skóla og stend enn við það. Benda má á mörg dæmi þessa þó ekki rúm- ist það hér, en ég bendi í þessu sam- bandi á erindi til fræðsluráðs Dalvík- urbyggðar frá foreldrafélagi skólans, og opið bréf frá starfsfólki skólans, sem finna má á heimasíðu Húsa- bakkaskóla. Eitt veigamikið atriði vil ég þó nefna hér, og það er skorturinn á að gert sé ráð fyrir óvissuþáttum, t.d. hvað varðar fullyrðingar skýrslu- höfunda um stöðugildi kennara og stuðningskennslu, skólaakstur o.fl. Enginn má efast um að fullyrðingar þeirra gangi eftir að fullu! Frávik frá mögulegum hámarkssparnaði þeirra félaga rúmast bara alls ekki í skýrslum þeirra. Í niðurlagi mbl.- greinar sinnar saka þeir mig síðan um að falla í þá gryfju að telja aðeins það sem mínum málstað er til fram- dráttar. Ég segi nú bara þetta: það var ykkar hlutverk að telja það sem er mínum málstað (sem foreldris barna við skólann) til framdráttar, til jafns við málstað bæjaryfirvalda, þegar þið tókuð að ykkur þessa skýrslugerð fyrir opinbert fé (úr bæjarsjóði Dalvíkur), því ekki vænti ég að verkbeiðni bæjarins hafi hljóð- að upp á að niðurstaðan skyldi vera neitt annað en hlutlaus með tilliti til hinna ýmsu hagsmuna í þessu sam- bandi. Þessu hlutverki hafið þið al- gerlega brugðist. Er til of mikils ætl- ast að þið klárið þetta verk ykkar og takið nú inn í reikninginn neikvæð áhrif þess að Húsabakkaskóla verði lokað (jafnvel líka þessa “óbeinu og „huglægu“ þætti), og sýnið okkur þannig fram á hver gæti orðið lág- markssparnaður af lokun skólans? Enn um skólamál í Dalvíkurbyggð Þorkell Ásgeir Jóhannsson svarar Helga Gestssyni og Trausta Þorsteinssyni ’Frávik frá mögulegumhámarkssparnaði þeirra félaga rúmast bara alls ekki í skýrslum þeirra.‘ Þorkell Á. Jóhannsson Höfundur er foreldri barna í Húsabakkaskóla á Dalvík. Á ÍSLANDI hafa pólitísk uppskipti á öll- um arðvænlegum at- vinnurekstri verið við lýði frá bernskuminni miðaldra manna og jafnvel þeirra elstu. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur skiptu á milli sín allri verktakastarfsemi fyrir varnarliðið, innflutningi og sölu á olíu, trygg- ingastarfsemi, bönkum og jafnvel verslun. Út- gerðin kom þar einnig við sögu á árum áður. Íslenska þjóðin hefur vitað þetta og rætt um áratuga skeið. En það var ekki fyrr en frelsi í viðskiptum fór að aukast og löggjafinn setti vinnureglur í viðskiptum, að gamla einokunarskipulagið fór að láta undan síga og leiðir að opnast inn fyrir múrana. Í framhaldinu kom skýrsla Samkeppnisstofnunar. Fyrst varð þjóðin undrandi á staðfestingu vitn- eskju sinnar, síðan sár og svo bálreið. Hverjir báru ábyrgð á óþarfa auka- kostnaði heimilanna, hækkun á fram- færsluvísitölu, byggingavísitölu og nær öllum útgjaldaliðum einstaklinga og fyrirtækja? Og jafnvel hækkun á verðbólgustigi? Hverjir stjórnuðust af þessari græðgi? Hroki vex þá hækkar í pyngju. Forráðamenn olíufélaganna sóru af sér áburð um samráð og óeðli- legan hagnað og urðu hneykslaðir í framan. Gagnrýnendur komust hvorki lönd né strönd. Kannski hafa stjórn- endur olíufélaganna treyst á þá gömlu kenningu, að þegar peningarnir tali þá sé sannleikurinn mállaus. En fjölmiðlarnir fundu þann, sem ábyrgðina bar, borgarstjórann í Reykjavík, fyrrverandi millistjórn- anda hjá einu olíufélaganna. Hann fékk ekki um frjálst höfuð strokið, um- setinn og eltur. Þess var krafist að hann segði af sér. Enginn dregur í efa ábyrgð þessa manns, sem hann hefur kannast við. En nú spyr ég: 1. Hver er ábyrgð stjórnvalda, fram- kvæmda- og löggjaf- arvalds, að líða einokun og verðsamráð á tímum mesta viðskiptafrelsis, sem ríkt hefur í vestræn- um heimi? 2. Hver er ábyrgð stjórnarformanna olíufé- laganna? 3. Hver er ábyrgð stjórnarmanna? 4. Hver er ábyrgð for- stjóranna? Ég spyr ennfremur: Hver er ábyrgð fjöl- miðlanna? Þeir hafa dreg- ið upp mynd af olíu- málinu, sem mög er einlit. En fyrst tók steininn úr, þegar spyrjendur Íslands í dag á Stöð 2 yfirheyrðu borgarstjóra. Annar spyrjandinn var óhæfur vegna tengsla sinna við borgarstjórn og hefði átt að víkja, ef Stöð 2 hefði viljað halda hlut- lægni í heiðri í þessu máli. Það var þó lakara að spyrlarnir tóku nánast að sér hlutverk ákæruvaldsins og kröfð- ust þess að borgarstjóri segði af sér. Og verst þótti þeim að geta ekki spilað á allan tilfinningaskala borgarstjórans og fengið hann til að gráta í beinni. Það hefði orðið „sensasjón“. Annar spyrillinn komst ekki lengra á þeim vettvangi en að spyrja „Ertu klökk- ur?“ Til er orð um fréttamennsku af þessu tagi. Læt það bíða. Ég treysti og vona að íslenskir fjöl- miðlar geti litið á olíumálið frá svo háum kögunarhóli að þeir geti skoðað það í heild og áttað sig á því, að með skýrslunni um olíufélögin hafa orðið mikilsverð tímamót í umræðu um gamalt og úrelt spillingarkerfi stjórn- mála, einokunar og samráðs. Þessi umræða og niðurstaða málsins verða væntanlega til þess, að lög, reglur og vinnubrögð viðskiptalífsins færist hraðar inn í nútímann, auki traust, grandvarleika og siðræn gildi. „Ertu klökkur?“ Árni Gunnarsson fjallar um Þórólf Árnason borgar- stjóra Árni Gunnarsson ’Forráðamennolíufélaganna sóru af sér áburð um sam- ráð og óeðlileg- an hagnað.‘ Höfundur er fyrrverandi fréttamaður og alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.