Morgunblaðið - 08.11.2004, Page 25

Morgunblaðið - 08.11.2004, Page 25
Morgunblaðið/Sverrir Oddfellowa þar sem hugmyndir að breyttu aðalskipulagi fyrir Urriðaholt í Garðabæ búum á fimmtudagskvöldið kemur kl. 20 í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. alla seg- verið að ar sem inn á saman í sjón- an jafn- sameig- greint hóf hóp- í sam- sfræð- inga og bandaríska arkitekta, að vinna úr framkomnum hug- myndum fundargesta þegar í gær og stendur sú vinna fram á fimmtudag, en þá um kvöldið kl. 20 verður niðurstaða hópsins kynnt í máli og myndum í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. „Ég vil hvetja alla þá sem komu á fundinn nú á laugardag og aðra þá sem höfðu ekki tök á að koma og finnst áhugavert að sjá hvað kemur út úr þessu samráði, til að mæta á fimmtudagskvöldið kemur þegar afrakstur samráðsfundarins verður kynntur.“ Að sögn Ásdísar Höllu verður nýja hugmyndin að aðalskipulagi að öllum líkindum send til umfjöllunar í skipulags- nefnd Garðabæjar nk. föstudag. Aðspurð segist Ásdís Halla eiga von á því að skipulagsnefnd Garðabæjar geti sent fyrstu til- lögur sínar til umfjöllunar í bæj- arstjórn Garðabæjar strax í ann- arri viku. mótun hverfis MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 25 Björk sýnd á skjáum og í nýrri íþrótta- vöruverslun fyrir hlaupara, er 90 íslenskum hlaupurum, sem mættir eru til að hlaupa í mara- þonhlaupi New York daginn eftir, boðið uppá veglegan afslátt sérstaklega fyrir Íslendinga. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaief, heimsækja verslunarmiðstöð- ina og er fylgt eftir af fjölda bandarískra örygg- isvarða. Þeim er sýnd byggingin og lítið er inní ýmsar verslanir, auk þess að fara upp á 78. hæð byggingarinnar, þar sem forsetahjónunum er sýnd einhver dýrasta íbúð sem er til sölu í borg- inni, með útsýni yfir alla Manhattan. Þá fara þau í Whole Foods Market og ræða við mat- reiðslumeistarana. Dorrit bregður sér í hlutverk þeirra um tíma, sneiðir niður lambalæri og býð- ur fólki að bragða. Þegar forsetahjónin halda upp stigann úr versluninni, eru meðlimir Óperukórsins og Karlakórsins Þrasta, um 120 söngvarar, búnir að raða sér kringum torgið í byggingunni og syngja svo undir tekur í bygg- ingunni. Forsetinn ávarpaði mannfjöldann og ræddi um hreinleika íslenska lambsins og vatnsins, auk þess að vekja athygli á þessum mikla fjölda ís- lenskra maraþonhlaupara. Þetta hlyti að vera langstærsti hópur erlendra þátttakenda í hlaup- inu, ef miðað væri við höfðatölu, sagði hann. Og benti viðstöddum á að ímynda sér hvernig ástandið yrði ef sama hlutfall kínverskra hlaup- ara mætti til leiks. Að loknu ávarpi forsetans sungu kórarnir að nýju og alls komu þeir fjórum sinnum fram í byggingunni á laugardag, við góð- ar undirtektir. Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri Áforms, átaks Bændasamtakanna um lambakjötssölu, er maðurinn bakvið skipulagningu þessarar Ís- landskynningar. Hann segir árangurinn hafa farið framúr björtustu vonum. Gestir voru afar ánægðir með þá vöru sem var á boðstólum og umsjónarmenn Time-Warner Center hafa þegar boðist til að halda stærri Íslandshátíð á sama tíma að ári og á hún að standa í þrjá daga. Morgunblaðið/Einar Falur Hilmar B. Jónsson, sem annaðist matreiðslu og kynningu á íslenska lambakjötinu í Whole Foods Market, gefur gestum að bragða. efi@mbl.is Rætt var hvort lengja bærifund leiðtoga risaveld-anna í Reykjavík haust-ið 1986 um einn dag en fallið var frá því vegna andstöðu Ronalds Reagans Bandaríkjafor- seta. Reagan saknaði eiginkonu sinnar í Reykjavík og það voru mistök að hún skyldi ekki vera með honum í för. Þetta kemur fram í nýrri bók eftir Jack F. Matlock, sem var helsti ráðgjafi Reagans forseta í málefnum Sovétríkjanna og Evr- ópu og síðar sendiherra Banda- ríkjanna í Moskvu. Bókin nefnist „Reagan And Gorbachev – How The Cold War Ended“. Matlock tók þátt í Reykja- víkurfundi þeirra Reagans og Míkhaíls S. Gorbatsjovs, leiðtoga Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, haustið 1986. Í bók sinni segir Matlock að hann hafi lagt það til er fundurinn var undirbúinn í Reykjavík að Nancy, eiginkona Reagans for- seta, yrði ekki með í för. Það hafi verið mistök og hann hafi átt eftir að iðrast þeirrar ráðgjafar. Gorbatsjov hafði lagt til að fund- urinn í Reykjavík yrði eingöngu vinnufundur. Matlock kveðst hafa gengið að því sem vísu að Gorb- atsjov myndi gera slíkt hið sama skýrðu Bandaríkjamenn frá því að Nancy Reagan myndi ekki fylgja eiginmanni sínum til Íslands. „Reagan forseti fór að ráði mínu en tilgáta mín reyndist röng þegar Raísa Gorbatsjova skaut upp koll- inum í Reykjavík og tók þátt í ýmsum atburðum sem ítarlega var fjallað um í fjölmiðlum,“ segir Matlock. Nancy Reagan var ekki ánægð með þessa stöðu mála og eiginmaður hennar var mjög óánægður, að sögn Matlocks. Ráðfærði sig jafnan við Raísu Matlock hefur eftir ónefndum, háttsettum, sovéskum embættis- manni að þar á bæ hafi menn einn- ig verið undrandi á því að Raísa Gorbatsjova skyldi fylgja manni sínum til Reykjavíkur. Þegar utanríkisráðuneytið sovéska sendi Gorbatsjov drög að dagskrá hans á Íslandi án þess að Raísa væri þar nefnd á nafn sagði Gorbatsjov: „Þið hafið engan tíma tekið frá fyrir mig til að ráðgast við konu mína.“ Hefur Matlock eftir emb- ættismanni þessum að Gorbatsjov hafi verið „ófær um að taka ákvörðun án þess að ráðfæra sig við hana“. Matlock greinir frá því að til tals hafi komið að lengja Reykja- víkurfund leiðtoganna um einn dag til að gera sendinefndum kleift að ganga frá ýmsum textum. Þá hafi menn og horft til þess að þeir Reagan og Gorbatsjov væru sýnilega þreyttir. Reagan tók þessari hugmynd þunglega og kveðst Matlock þá hafa iðrast ráð- gjafar sinnar. Hann telur að Reag- an hefði líklega fallist á að lengja fundinn um einn dag hefði Nancy verið með honum á Íslandi. „Gorbatsjov var ekki eini leiðtog- inn sem virtist hálf áttavilltur án eiginkonu sinnar,“ segir Matlock. Raunar kemur fram í þessum kafla bókarinnar að ýmsir banda- rískir sérfræðingar hafi verið efins um réttmæti þess að lengja fund- inn. Þáttaskil í Reykjavík Matlock telur að fundurinn í Reykjavík hafi markað þáttaskil í samskiptum austurs og vesturs. Hins vegar hafi nokkrir mánuðir þurft að líða áður en menn höfðu náð að róa taugar sínar eftir spennuþrungna daga í Reykjavík. Gorbatsjov hafi síðar hrint um- bótaáformum sínum í framkvæmd og bandarískir og sovéskir emb- ættismenn tekið að ræða sam- skipti austurs og vesturs á nýjan og skapandi hátt. Matlock kveðst þeirrar hyggju að hefði fyrirstað- an sem var fyrir hendi í samninga- viðræðum risaveldanna ekki verið leidd í ljós á fundinum í Reykjavík hefði kalda stríðinu lokið síðar en raun varð á. Reuters Reagan-hjónin voru ákaflega samrýmd í löngu hjónabandi. Mistök að Nancy Reag- an skyldi sitja heima Fyrrum ráðgjafi Reagans forseta segir frá Reykja- víkurfundinum í nýrri bók

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.