Morgunblaðið - 08.11.2004, Side 26

Morgunblaðið - 08.11.2004, Side 26
26 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frá bölmóði til bjartsýni GOSIÐ í Grímsvötnum verður efni myndakvölds hjá Ferðafélagi Íslands nk. miðvikudagskvöld. Þar munu Einar Falur Ingólfsson og Ragnar Axelsson, báðir ljósmyndarar hjá Morgunblaðinu, sýna myndir af gos- inu sem staðið hefur yfir í Gríms- vötnum síðustu daga. Magnús Tumi Guðmundsson prófessor rekur sögu gosa í Grímsvötnum og skýrir ham- farirnar á svæðinu. Myndakvöldið verður í sam- komusal Ferðafélags Íslands í Mörk- inni 6, hinn 10. nóvember kl. 20. Að- gangseyrir er 600 krónur og eru kaffiveitingar innifaldar. Grímsvatnagos á myndakvöldi FÍ Morgunblaðið/RAX sameiginlega til húsnæði, HÍ ann- ast milligöngu við nemendur í framhaldsnámi sem stunda rann- sóknir á þessu sviði og Sjónarhóll leggur til þekkingu og stuðning við rannsóknarvinnuna. Þegar hafa þrír nemendur í framhaldsnámi í fötlunarfræði við Háskóla Íslands óskað eftir að fá afnot af aðstöðunni hjá Sjónar- hóli. Verkefnin sem þessir nem- endur vinna að í námi sínu snúast um atvinnumál fatlaðra, þjónustu við fjölskyldur fatlaðra barna og lífsstíl og heilsu kvenna með þroskaröskun. SJÓNARHÓLL – ráðgjafarmið- stöð, Verslunarráð Íslands og fé- lagsvísindadeild Háskóla Íslands hafa gert með sér samning um rannsóknaraðstöðu í hinu nýja húsnæði Sjónarhóls að Háaleit- isbraut í Reykjavík. Hugmyndin er að rannsóknar- aðstaða hjá Sjónarhóli nýtist fyr- ir rannsóknir sem varða fjöl- skyldur barna með sérþarfir hvort sem er á sviði fötlunar- fræða, uppeldisfræði, heilbrigðis- vísinda, félagsfræði, stjórnmála- fræði, stjórnsýslufræða, lögfræði, markaðsfræði, hagfræði eða viðskiptafræði eða annarra fræði- greina þar sem áhugi er fyrir að skapa þekkingu um þennan mála- flokk. Stuðla að rannsóknum sem þætti í framþróun Með rannsóknaraðstöðu hjá Sjónarhóli er stefnt að því að stuðla að rannsóknum á lífi, að- stæðum og aðbúnaði fjölskyldna barna með sérþarfir sem þætti í framþróun og stefnumörkun í málefnum þessara fjölskyldna. Í samningnum felst að Versl- unarráð og Sjónarhóll leggja Rannsóknarsamn- ingur í þágu sér- stakra barna Í Morgunblaðinu í gær birtist röng mynd af Gunnari Sig- urðssyni leik- stjóra og eru hlutaðeigendur beðnir velvirð- ingar á því. Rétt mynd birtist hér. LEIÐRÉTT Röng mynd Gunnar Sigurðsson LIONSKLÚBBURINN Víðarr í Reykjavík, ásamt 18 öðrum Lions- klúbbum á landinu, hefur fært Land- spítala – háskólasjúkrahúsi að gjöf rafleiðnigreini (mapping system) sem er tæki til kortlagningar á leiðslukerfi hjartans. Alþjóðahjálp- arsjóður Lions lagði einnig fram fé, svo og Landssamtök hjartasjúklinga og Vátryggingafélag Íslands. Verð- mæti tækisins nemur um 15 millj- ónum króna. Það er frá Biosense Webster en móðurfyrirtæki þess er Johnson & Johnson og Austurbakki hf. umboðsaðili hér á landi. Á undanförnum áratug hafa þróast svokallaðar brennsluaðgerðir til að lækna hluta vissra hraðslátt- artruflana. Þetta hafa fyrst og fremst verið aðgerðir á aukaleiðslu- böndum og á leiðslukerfi hjartans. Nýlega hafa komið fram aðferðir til að lagfæra erfiðar raftruflanir í gátta- og slegilsvef hjartans. Þær þarfnast hins vegar miklu víðtækari kortlagningar á rafleiðni í hjartanu. Forsenda fyrir árangri við þessa nýju meðferð er rafleiðnigreinir með flóknum tölvubúnaði til að kort- leggja rafleiðni í hólfum hjartans. Með því móti má staðsetja brennslu miklu markvissar en áður hefur ver- ið unnt og meðhöndla erfiðari tilfelli, t.d. slegilstruflanir hjá sjúklingum sem fengið hafa hjartastopp og trufl- anir í kjölfar hjartaaðgerða. Tveir íslenskir sérfræðingar hafa nauðsynlega menntun og þjálfun til flókinnar og sérhæfðrar meðferðar við hjartsláttartruflunum. Meðferð- in er veitt á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi og er öllu landinu þjónað. Talið er að 2.000–3.000 manns þjá- ist af hjartsláttartruflunum á Ís- landi, bæði börn og fullorðnir. Fjölg- un aðgerða er fyrirsjáanleg með nýjum meðferðarúrræðum. Þurft hefur að senda sjúklinga með erfiðar truflanir í skyndi til annarra landa, oft mjög veika. Slíkir flutningar eru mjög óhentugir og erfiðir og stund- um hættulegir fyrir sjúklinginn. Gera má ráð fyrir því að þessar ferð- ir leggist að mestu af. Lionsmenn gefa rafleiðni- greini til hjartalækninga Ásgeir Þorvarðarson, formaður Víðars, og Pétur Már Jónsson af- hentu gjöfina sem Jóhannes M. Gunnarsson forstjóri tók við.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.