Morgunblaðið - 08.11.2004, Síða 27

Morgunblaðið - 08.11.2004, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 27 MINNINGAR ‚Það var ekki bara Garðar Hólm sem leitaði að frægð- inni í útlöndum. Þessi leit er klassísk og stendur enn yfir!‘M A T T H Í A S J O H A N N E S S E N Á M I Ð S Í Ð U Á M O R G U N á morgun ✝ Stefán Aðal-steinsson fæddist á Halldórsstöðum í Reykjadal 14. sept- ember 1933. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 1. nóvember síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Aðalsteins Jónsson- ar, f. 26. maí 1904, d. 25. október 1986, og Aðalbjargar Stefáns- dóttur, f. 8. febrúar 1906, d. 25. apríl 1993, sem bjuggu á Halldórsstöðum en síðar á Ökr- um í Reykjadal og í Kristnesi í Eyjafirði. Systkini Stefáns eru Jón, f. 20. apríl 1932, Þór, f. 20. janúar 1941, og Rósa, f. 16. ágúst 1943. Hinn 17. desember 1961 kvænt- ist Stefán Maríu Sigurbjörnsdótt- ur, f. 20. sept 1942. Foreldrar hennar voru Sigurbjörn Tryggvason, f. 31. mars, d. 4. sept 1984, og kona hans Jónanna Jónsdóttir, f. 23. janúar 1904, d. 14. ágúst 1969. Þau bjuggu á Þröm og síðar í Grófargili í Skagafirði en síðast á Akureyri. Synir Maríu og Stefáns eru: 1) Steinþór, f. 10. nóv. 1961, d. 28. mars 1988. Hann eignaðist soninn Ás- þór Tryggva, f. 2. janúar 1988, með sambýliskonu sinni Þuríði Þórðardótt- ur, f. 22. nóv 1965. 2) Stefán Þór, f. 1. ágúst 1979, kona hans er Guðrún Betsy Árnadóttir, f. 22. ágúst 1983, og eiga þau soninn Steinþór Kristin, f. 14. apríl 2004. Stefán varð stúdent frá MA 1956 og lauk kennaraprófi frá KÍ 1957. Einnig lauk hann prófi í útvegstækni frá Tækniskóla Ís- lands 1979. Auk þessa sótti Stef- án námskeið heima og erlendis. Hann starfaði síðan við kennslu, einkum á Akureyri og í Eyjafirði, en auk þess stundaði hann sjó- mennsku um árabil. Útför Stefáns fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Hvort það hefur verið á syðsta odda Bretlandseyja eða Írlands, sem við norsku ribbaldarnir hrifs- uðum með okkur viðkvæma ætt manna, suma þeirra rauðhærða, og dæmdum þá til að djöflast með okkur hér í myrkrinu, nú í meira en þúsund ár, veit ég ekki. Hitt veit ég að þar hefur sumarið verið bjartara, lengra og hlýrra, og menn kunnað að vera betri hver við annan. Þar hefur vinnutími ver- ið hæfilegur. Fólk svo sest saman í ró eftir vinnu, horft á sólina setj- ast, sagt hvert öðru spaugilegar sögur, fræðst og stundum leikið á eitthvert hljóðfæri, áður en gengið var til náða. Af þessari ætt var Stefán Að- alsteinsson, mágur minn. Hann var hávaxinn, sterkbyggður maður, með mikið fallegt hár og fríður sýnum, en tókst samt að láta ekki mikið fyrir sér fara innan um okk- ur hin. Feiminn heldur, stundum þurr í framkomu og hafði sig sjald- an í frammi á mannamótum, en á góðri stundu í þröngum hópi gat hann orðið upplyftur einsog það fólk sem hann sleit með barns- skónum í Þingeyjarsýslu, þá kom í ljós rík kímnigáfa og að hann var brunnur fróðleiks um margvísleg efni. Hjálpsamur var hann og þau María, kona hans, miklar rausn- armanneskjur líkt og ýmsir þeir er hirða ekki um að sanka að sér ver- aldlegum gæðum um ævina. Þau voru ærið oft mætt þegar aðrir voru hvergi og fyrir það vil ég þakka á þessari kveðjustundu. Þau hjón urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa annan sona sinna sem ekki hafði náð þrítugsaldri. Í skugga þeirrar sorgar lifði Stefán æ síðan. Megi hann nú vera á þeim stað þar sem engar eru sorgir og veður góð. María Kristjánsdóttir. Við höfðum tekið upp þann sið fullorðnir mennirnir, Stefán og undirritaður, hin síðari ár að gá til veðurs um helgar og taka okkur af því tilefni morgungönguferð í Kjarnaskógi eða á öðrum greiðfær- um slóðum. Einnig þurfti að ráða til lykta ýmsum þeim málum sem að steðj- uðu þjóðinni og einstökum per- sónum. Þetta gerðum við líka á göngunni og ég held við höfum fundið lausn á flestu því sem aflaga fór. Af eðlislægri hógværð fannst okkur óþarfi að aðrir deildu þess- um lausnum með okkur og þær fóru því ekki lengra. Þess vegna er nú ástandið eins og það er. Stefáni kynntist ég fyrst í MA forðum. Við vorum í stúdentahópn- um 1956. Mér finnst þegar ég hugsa þang- að að Stefán hafi notið þeirra ára og lifað þau eins og átti að gera. Hann var ljúfur og hlýr í viðmóti og hæglát kímni hans og skopskyn svoleiðis að magnaði glaðværðina sem var aðal þessara uppátækja- sömu ára. Hann söng í skólakórnum og lék með endurreistu leikfélagi MA og var góður liðsmaður á báðum stöð- um. Dagleg framganga hans ein- kenndist af hógværð og drengskap og þannig minnist ég hans frá þessum sólbjörtu dögum. Svo kemur millikaflinn þegar skóla lýkur og hópurinn dreifist og allir hafa nóg að hugsa og snúast um sig og sína, það er stundum kölluð lífsbarátta og er háð á ýms- um vígstöðvum. Margir sigrar unn- ir en einstaka orrusta tapast líka. Sorgir og gleði, þung högg stund- um en líka sólskinsblettir í heiði. Stefán fékk sinn skerf af öllu þessu. Stefán var kennari að mennt og vann lengst við kennslu, var líka á sjó um árabil auk annarra starfa er til féllu. Síðustu árin kenndi hann við Brekkuskóla á Akureyri. Það er ekki tilefni þessa stíls að rekja starfsferil Stefáns að öðru leyti. Mig langar hins vegar að minn- ast og þakka hin síðari ár. Ég var svo heppinn að þegar ég kom aftur heim til Akureyrar eftir nokkra fjarvist að hitta þá Stefán fyrir aft- ur. Eðlislægir þættir í skapi og framgöngu óbreyttir, kankvís og góður félagi sem fyrr. Sem fyrst sagði urðu gönguferð- ir fastir liðir í samskiptum okkar. Við þóttumst rölta þetta í heilsu- bótarskyni en vorum þó hvorugur djúpt hugsi yfir líkamlegri velferð okkar. Við vorum að spjalla saman, rifja upp gamla daga með skyld- ugri nostalgíu, fárast yfir samtím- anum og segja hvor öðrum almælt tíðindi og var þó hvorugur mjög kunnugur því sem fram fór í kring- um okkur. Stefán var mér miklu fremri í þátttöku í menningarlífinu. Var virkur félagi í Freyvangsleikhús- inu, fór á námskeið sem buðust um Íslendingasögur og sótti menning- arviðburði af ýmsu tæi af meiri dugnaði en ég. Einhverju sinni tók hann að sér að fara með mig um sveitina sína, Eyjafjörðinn, að rifja upp sögu- staði Víga-Glúms sögu. Bæirnir voru á sínum stað en hvar gætum við stikað út akurinn Vitazgjafa eða vígvöllinn Hrísateig þar sem húsfrú Halldóra tók upp á því að binda sár þeirra manna er lífvænir voru úr hvorra liði sem voru? Hún fékk fyrir það litlar þakki frá Glúmi manni sínum. Hún hafði hins vegar að þessu leyti hugarfar þeirra sem löngu síðar urðu til þess að stofna Rauða krossinn og önnur líknarfélög. til hjálpar stríðshrjáðum. Svona er margt merkilegt í Eyjafjarðarsveit og líka það sem seinna varð og er enn. Um þetta var Stefán að reyna að uppfræða mig og mennta allt til hins síðasta. Það bar til eitthvert haustið að Stefán fór með bílinn sinn á verk- stæði að láta festa undir hann hjól með nagladekkjum. Að þeirri að- gerð lokinni ekur hann af stað en verður, þegar hann er skammt kominn, dálítið hissa þegar hann sér skyndilega að fram úr honum fer bílhjól eitt og sér. Bíllinn hans tekur þá niðri og í stans, enda und- ir honum bara þrjú hjól vegna þess að hið fjórða hafði tekið á sjálf- stæða rás þar sem gleymst hafði að festa mutteringarnar á verk- stæðinu, hélt sínu striki upp Tryggvabrautina, hjólið, en eftir sat Stefán í þríhjólabíl. Þetta fannst honum skemmtileg saga svona eftir á. Svo kostulegt sem það nú er kom mér þessi saga í hug þegar ég frétti lát vinar míns. Ég hafði verið hjá honum á sjúkrahúsinu nokkr- um dögum fyrr og þá þóttu góðar vonir að með viðeigandi þjálfun mundi hann ná vopnum sínum á ný, að hluta a.m.k., og við jafnvel geta staulast saman enn um sinn. En svo allt í einu er hann bara kominn fram úr mér, farinn, og ég sit eftir og dálítið ráðvilltur eins og hann sjálfur forðum í bílnum góða. Síst mátti heimurinn við því að við hættum morgungöngum og leystum aðkallandi vanda. Það verður ekki björgulegt ástandið. Ég kveð Stefán Aðalsteinsson með miklum söknuði, þakka honum vináttuna og tryggðina, skemmt- unina og fróðleikinn. María kona Stefáns á aðdáun mína, henni, syninum Stefáni Þór, tengdadóttur og barnabörnum sendi ég samúðarkveðjur og fjöl- skyldunni allri. Kristinn G. Jóhannsson. STEFÁN AÐALSTEINSSON Elsku mamma mín. Ég talaði við þig fimmtudaginn 21. októ- ber. Það var svo gaman að heyra í þér. Þú varst svo glöð og ánægð að heyra í mér og ég bað þig bara að láta þér batna svo ég gæti heimsótt þig í nýja heimilið þitt á Þingeyri. Ásta systir mín hringdi í mig á mánudagsmorguninn og sagði að mamma væri dáin en ég bara trúði því ekki. Ég sagði bara nei, nei í símann, því ég var svo nýlega búin að tala við þig. Það var ekki langt á milli ykkar pabba, það var ekki nema eitt ár, einn mánuður og fjórir dagar. LÍNA ÞÓRA GESTSDÓTTIR ✝ Lína Þóra Gests-dóttir fæddist á Ísafirði 9. ágúst 1937. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsi Ísafjarðar 25. október síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Ísafjarðar- kirkju 6. nóvember. Elsku mamma mín. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, passað strákana mína í öllum mínum veikindum. Strákarnir mínir hlökk- uðu svo til. Þú varst búin að lofa þeim því að koma og vera hjá þeim um jólin og fram í janúar. Ég ætla að geyma all- ar góðu minningarnar um þig í hjarta mínu. Við elskum þig og söknum þín sárlega. Ástarkveðja. Inga. Jæja, kæra tengdamóðir. Þá ert þú horfin á braut. Við söknum þín mikið. Það var mikið áfall fyrir okkur öll að missa ykkur bæði, fyrst tengdapabba og þig nú. Elsku Lína, þú varst mér móðir í þrjú falleg ár. Kveðja. Per. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.