Morgunblaðið - 08.11.2004, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 08.11.2004, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 39 DAGBÓK ÓL í Istanbúl. Norður ♠62 ♥– V/Allir ♦7654 ♣ÁDG8654 Vestur Austur ♠83 ♠K754 ♥KDG764 ♥932 ♦D109 ♦KG8 ♣32 ♣K97 Suður ♠ÁDG109 ♥Á1085 ♦Á32 ♣10 Ítalir unnu 15 IMPa í þessu spili, sem er úr annarri lotunni í leiknum við Kínverja í undanúrslitum: Vestur Norður Austur Suður Duboin Li Bocchi Sun 2 hjörtu Pass Pass 2 spaðar Pass 3 lauf Pass 3 grönd Pass Pass Pass Sagnir eru skiljanlegar, en niður- staðan afleit eigi að síður, því lauflitur blinds kemur að engum notum vegna innkomuleysis. Sun fékk sjö slagi: 200 í AV. Á hinu borðinu hafði Fantoni í norð- ur meiri trú á spilum sínum í tromp- samningi en grandi: Vestur Norður Austur Suður Dai Fantoni Yang Nunes 2 hjörtu 3 lauf Pass 3 grönd Pass 5 lauf Dobl Allir pass Útspilið var smátt hjarta. Fantoni tók með ás og henti tígli heima. Hleypti svo lauftíu og fékk að eiga þann slag. Hann stakk þá hjarta, tók laufásinn og svínaði í spaðanum. Hann hafði nú tíma til að svína aftur í spaða og fría þann fimmta með trompun, svo vörnin fékk aðeins einn slag á laufkóng: 950 í NS. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Hereford-steikhús frábært ÉG hef oft keyrt niður Laugaveg og horft á þessar stóru tröppur sem liggja upp í veitingasal Hereford- steikhúss og hugsað að þarna eigi ég aldrei eftir að borða, því ég er fötluð. En viti menn, mér var boðið þang- að um daginn og þá kom í ljós að þarna rétt hjá tröppunum er þessi fína lyfta. Þarna var alveg frábært að vera, góður matur, fín þjónusta og flott umhverfi. Þetta minnti mig á Spán því þarna var mikið af fjöl- skyldufólki og börnin skoppandi ánægð um gólf. Ég naut þess að eyða þessu kveldi í góðra vina hópi á frábærum stað. Á matseðlinum er kort sem maður get- ur rifið úr og sent vinum og húsið sér um að senda kortið. Það var komið til Akureyrar eftir einn dag. Takk fyrir að bjóða mér og munið að þarna er aðgengi fyrir alla. Ingibjörg. Bræðraborgarstígur 20 101 REYKJAVÍK. Er timburhús byggt árið 1905. Vegna endurbóta er óskað eftir upplýsingum og myndum af húsinu. Ef einhver hefur upplýs- ingar væru þær vel þegnar. Vinsam- legast hafið samband í síma 869 7448 eða á netfangið ernajons@hi.is. Óróinn hverfur SEM bjartsýnn sjálfstæður maður veit ég að allur órói hverfur frá okk- ur þegnum Reykjavíkurborgar við næstu sveitarstjórnarkosningar. Þórólfur gegnir sínu hlutverki vel. Hverjir köstuðu fyrsta steininum? Firrum okkur af villum vinstri slag- síðu bæði á þingi sem í borgarstjórn. Allir eiga fortíð og ég tel Þórólf góð- an. Hver hefur ekki þolað löðrung hingað til. Betri maður á eftir. Með vinsemd og virðingu. Helgi Steingríms. Gullhálsmen týndist GULLHÁLSMEN með stórum svörtum steini týndist líklega í eða við Fossvogskirkju, Loftleiðahótel eða Borgarspítala. Skilvís finnandi hafi samband í síma 553 3595. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.isFélagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, bútasaumur, samverustund. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag- blöð. Kl. 10–10.45 leikfimi. Kl. 11.15– 12.15 matur. Kl. 13–16 brids. Kl. 15– 15.45 kaffi. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13. Kaffitár með ívafi kl. 13.30. Línudanskennsla byrjendur kl. 18. Samkvæmisdans framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11. Bókband kl. 10, ullarþæfing kl. 13 og spænska kl. 14. Í Garðbergi er spilað brids og pílukast kl. 13. Í Garðaskóla eru tölvur kl. 17. Bingókvöld í Holtsbúð kl. 19. Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun, keramik, perlusaumur og kortagerð, kl. 10 fótaaðgerð, bænastund, kl. 12 hádegismatur, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58, | Opin vinnustofa, kl. 9–16, jóga kl. 9–11. Frjáls spila- mennska kl. 13–16. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir. Kl. 9–16.30. Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf kl. 9–16, listasmiðja, handavinna, kl. 9–16, leikfimi kl. 10–11, aðstoð við böðun kl. 9–12, félagsvist kl. 13.30. Skráning stendur yfir í menningarferð í Borg- arleikhúsið kl. 14 á morgun. Hádeg- ismatur og síðdegiskaffi. S. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, þriðjudag, sundleikfimi í Grafarvogs- laug kl. 9.30. Norðurbrún 1, | Kl. 9 smiði, kl. 10 ganga, kl. 13–16.30 opin vinnustofa. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30 handa- vinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 9.30–11.30 skrautskrift. Kl. 11–12 leikfimi. Kl. 11.45– 12.45 hádegisverður. Kl. 13–16 kóræf- ing. Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, bókband, myndlist. Hárgreiðsla kl. 9, morgunstund og fótsnyrting kl. 9.30, almenn handavinna, glerbræðsla og frjáls spil kl. 13. Jólamarkaður fimmtudaginn 11. nóvember. Þórðarsveigur 3 | Vídeó kl. 13.30. Kirkjustarf Breiðholtskirkja | Barnakórinn æfir alla mánudaga. Yngri kórinn 7–9 ára æfir kl. 15.30 og 10–12 ára æfa kl. 16.30. Áhugasamir geta haft samband við Ástu Bryndísi í síma 864- 1659. Grafarvogs- kirkja | K.F.U.K. í Graf- arvogskirkju kl. 17.30– 18.30 fyrir stúlkur 9–12 ára. Kirkju- krakkar í Engjaskóla kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9 ára. Grensáskirkja | Fundur kvenfélags Grensássóknar verður kl. 20. Allar konur velkomnar!. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 2 og unglinga Alfa kl. 19. Langholtskirkja | Kirkjuprakkarar, starf fyrir 7–9 ára börn, er kl. 15.30– 16.30. Allir krakkar á þessum aldri vel- komnir. Leikir og spjall. Laugarneskirkja | Kl. 18 opinn 12 sporafundur í safnaðarheimilinu. Vinir í bata. Kl. 20 tólf spora hópar koma saman í Laugarneskirkju. Umsjón hafa Guðlaugur Ólafsson og Hafdís M. Ein- arsdóttir. Lágafellskirkja | Foreldramorgnar Lágafellskirkju, samvera er á mánu- dagsmorgnum kl. 10 12 í safn- aðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Þetta eru stundir fyrir foreldra sem vilja koma saman og ræða málin. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.