Morgunblaðið - 08.11.2004, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 08.11.2004, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 41 Rakarinn morðóði Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Miðasala á Netinu: www.opera.is Fös. 12. nóv. kl. 20 - sun. 14. nóv. kl. 20 - fös. 19. nóv. kl. 20 sun. 21. nóv. kl. 20 - lau. 27. nóv. kl. 20 - Allra síðasta sýning lau. 4. des. kl. 20 Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst. Litla stúlkan með eldspýturnar lau. 13. nóv. kl. 14 - sun. 14. nóv. kl. 14 - lau. 20. nóv. kl. 14 sun. 21. nóv. kl. 14 - lau. 27. nóv. kl. 14 - sun. 28. nóv. kl.14 Misstu ekki af SWEENEY TODD! Einhver magnaðasta sýning sem sést hefur á íslensku leiksviði Aðeins ÖRFÁAR sýningar eftir! CHICAGO Missið ekki af vinsælustu sýningu ársins Stóra svið Nýja svið og Litla svið BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Su 21/11 kl 20, Su 28/11 kl 20 Aðeins þessar sýningar GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA? eftir Edward Albee Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20, Síðustu sýningar HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20 NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA HEFST Í BORGARLEIKHÚSINU 11. NÓVEMBER Kennarar: Böðvar Guðmundsson, Gísli Sigurðsson, Helga Ögmundardóttir, Viðar Hreinsson Skráning hjá Mími - Símenntun á mimir.is eða í síma 580 1800 Híbýli vindanna - frumsýning 7. janúar 2005 CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse Tvenn Grímuverðlaun: Vinsælasta sýningin og bestu búningarnir. Lau 13/11 kl 20, Lau 20/11 kl 20, Lau 27/11 kl 20 Síðustu sýningar SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Fö 12/11 kl 20, -UPPSELT Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20 Su 21/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20, Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 14/11 kl 14, Su 21/11 kl 14, Su 28/11 kl 14, Su 5/12 kl 14 Su 2/1 2005 kl 14 ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN: SCREENSAVER eftir Rami Be'er 5. syning fö 12/11 kl 20 - Blá kort Su 21/11 kl 20 AÐEINS ÞESSAR SÝNINGA 15:15 TÓNLEIKAR Caput/Vox Academica, Ný endurreisn. Lau 13/11 kl 15:15 NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA Fi 11/11 kl 20 - Böðvar Guðmundsson Þri 16/11 kl 20 - Viðar Hreinsson Fi 18/11 kl 20 - Helga Ögmundardóttir Þri 23/11 kl 20 - Gísli Sigurðsson ☎ 552 3000 eftir LEE HALL sem gengur upp að öllu leyti. Leikararnir fara á kostum” SS Rás 2 Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is SÍÐUSTU SÝNINGAR! • Föstudag 12/11 kl 23 LAUS SÆTI • Fimmtudag 25/11 kl 20 LAUS SÆTI • Sunnudag 26/12 kl 20 JÓLASÝNING “EINSTÖK SÝNING 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími Ausa og Stólarnir Fim 11/11 kl 20 Frums. UPPSELT Fös 12/11 kl 20 2.kortas. Örfá sæti laus Lau 13/11 kl 20 3.kortas. Örfá sæti laus Mán 15/11 kl 20 UPPSELT Þri 16/11 kl 20 UPPSELT Mið 17/11 kl 20 UPPSELT Fim 18/11 kl 20 UPPSELT Fös 19/11 kl 20 4.kortas. Nokkur sæti laus Forsala á Oliver! hefst 18. nóvember Ausa og stólarnir Frumsýning F im. 11 .11 20 .00 LAUS SÆTI Lau . 13 .11 20 .00 ÖRFÁ SÆTI Fös . 19 .11 20 .00 LAUS SÆTI Fös . 26 .11 20 .00 LAUS SÆTI Lau . 27 .11 20 .00 LAUS SÆTI SÝNINGUM LÝKUR Í DESEMBER Þú veist hverni g þetta er Pöntunarsími 659 3483 studentaleikhusid@hotmail.com þri. 9. nóv. fim. 11. nóv. fös. 12. nóv. lau. 13. nóv. Sýningar hefjast kl. 20 leikstjóri Jón Páll Eyjólfsson Sýnt í TÞM, Hólmaslóð 2 sýnir EINS og þeir vita sem lesið hafa Da Vinci-lykilinn er að finna allskonar tákn í dómkirkjum fyrri alda. Þetta táknmál er ekki einskorðað við bygg- ingarlist og trúarleg málverk, heldur kemur fyrir í barokktónlist líka. Talnaspeki gegnir þar mikilvægu hlutverki, fjöldi tiltekinna skraut- nótna hefur t.d. ákveðna merk- ingu og laglínur eru ekkert síður hugsaðar út frá táknrænum sjón- armiðum en fag- urfræðilegum. Eyþór Ingi Jóns- son organisti minntist aðeins á þetta á tónleikum i Dómkirkjunni á föstu- dagskvöldið, en þar lék hann barokk- tónlist eftir Lübeck, Couperin og Böhm. Því miður fengu áheyrendur ekki að vita neitt meira og skora ég á Eyþór að halda fyrirlestur með tón- dæmum um þetta efni hið bráðasta. Tónleikarnir byrjuðu og enduðu á prelúdíum eftir Lübeck, en þær voru báðar vel ígrundaðar og tignarlegar í meðförum organistans. Sömu sögu er að segja um tvo sálmaforleiki eftir Böhm og einnig nokkur smástykki úr safnbókinni The Fitzwilliam Virginal Book. Fyrir þá sem ekki vita er virg- inal, eða virgínall, kassalaga semball sem var algengur í heimahúsum fyrr á öldum. Þrátt fyrir nafn bókarinnar eru sum verkanna greinilega samin fyrir orgel. Eitt magnaðasta atriði tónleikanna var Gloria úr Messe pour les Paroiss- es eftir Francois Couperin, en þar var raddval organistans svo fjölskrúðugt, en að sama skapi svo smekklegt og sannfærandi að unaðslegt var á að hlýða. Tæknilega séð var leikurinn vandaður og skýr (ef frá er talið örlít- ið ónákvæm „punkteruð“ hrynjandi hér og þar) og var túlkunin svo þrungin andakt að maður gersamlega gleymdi stað og stund. Ekki er oft sem manni líður eins og á himnum á tónleikum, en það gerðist hér. Þetta var dásamleg kvöldstund og ég vona að ég fái að heyra Eyþór leika sem oftast í framtíðinni. TÓNLIST Dómkirkjan Eyþór Ingi Jónsson organisti lék barokk- tónlist á Tónlistardögum Dómkirkjunnar. Föstudagur 5. nóvember. Orgeltónleikar Um næstu helgi, eða hinn 12.nóvember, verður opnuð íListasafni Íslands sýningin Listin undir fertugu. Þar verða viðfangsefni yngstu kynslóðar- innar í íslenskri myndlist til sýnis – eða þeirra sem eru fæddir eftir 1964. Sýning á borð við þessa heyrir til nokkurra tíðinda í Listasafninu, sem fram að þessu hefur einkum einbeitt sér að því að koma arf- inum til skila – stundum þó einnig sam- tímalist, en í þeim tilfellum einkum þeirra listamanna sem þegar hafa haslað sér völl með afgerandi hætti. Sýn- ing á verkum yngstu kynslóð- arinnar er þó í rökréttu framhaldi af því sem Listasafnið hefur lagt áherslu á á undanförnum miss- erum, þ.e.a.s. að sýna fram á sam- hengið í hræringum myndlist- arheimsins á síðustu öld, sem voru auðvitað hugmyndafræðilegur for- smekkur að því sem nú er að ger- ast. Má þar nefna sýningu með þýskri Flúxuslist, aðra helgaða ís- lenskum Flúxustengingum og síð- ast en ekki síst margumtalaða sýningu á verkum bandarískra samtímalistamanna, Í nærmynd, sem opnuð var í tengslum við Listahátíð í Reykjavík í vor. Það er því væntanlega til marks um vilja Listasafnsins til að láta í auknum mæli að sér kveða í nú- inu að það skuli ríða á vaðið með fyrstu sýningu sína af þessu tagi í ár. Vonandi má svo í kjölfarið eiga von á fleiri sýningum undir áþekkum formerkjum, því, eins og Ólafur Kvaran, forstöðumaður safnsins, benti á í viðtali í Morgun- blaðinu nýverið, er hlutverk safns- ins „ekki einungis að safna heldur einnig að miðla og gera menning- ararfinn virkan“. Og það verður ekki gert nema safninu takist að eiga orðastað við sitt nánasta umhverfi í tíma og rúmi.    Sýning af þessu tagi hefur þóekki einungis vægi fyrir hinn almenna sýningargest eða áhuga- mann um myndlist. Hún er ekki síður mikilvæg fyrir sjálfan mynd- listarheiminn. Myndlistarmönnum, rétt eins og öðrum sem stunda listsköpun, reynist fátt erfiðara en að stunda vinnu sína í tómarúmi. Staðreyndin er sú að jafnvel þótt hér gefist ungu fólki ágæt tæki- færi til að sýna í tilraunarýmum af ýmsu tagi er ekki hægt að horfa fram hjá því að opinberir máttarstólpar hinnar eiginlegu „myndlistarstofnunar“ – í sama skilningi og hugtakið „bókmennta- stofnun“ – eru fáir hér á landi. Tækifærin til að vinna innan þess kerfis sem starfar á fullkomlega faglegum grundvelli og fylgir sýn- ingarhaldinu eftir með viðeigandi kynningu, rannsóknum, útgáfu á sýningarskrá og öðru ítarefni eru þar af leiðandi ekki mörg. Reynsla af þátttöku í slíkum sýningum er þó afar mikilvægt veganesti fyrir myndlistarmenn til að hafa í far- teskinu – veganesti sem iðulega skilur á milli þess hvort sýning eða verk nær flugi sem vel útfærð og fullunnin listsköpun eða mis- heppnast af því ekki er um að ræða fullburða verk – jafnvel þó grunnhugmynd sé góð.    Í kynningu Listasafns Íslands ásýningunni er spurt hvert sé viðfangsefni yngstu kynslóð- arinnar, hver sé upplifun hennar á umhverfinu og hvernig hún end- urspeglist í listinni. Því svarar Úlfhildur Dagsdóttir að nokkur leyti í texta sínum um sýninguna, þar sem hún vísar til „algleymis annarlegs hversdagsleika“; „[…] hlutverk listarinnar er sem fyrr, og mögulega sem aldrei fyrr, að gera tilraunir með daglegt um- hverfi sitt: hversdaginn, veru- leikann, manneskju og ímyndir. Tilraunir sem hafa það hlutverk að velta upp nýjum hliðum, skapa nýja skynjun, móta nýjan hvers- dag, veruleika, manneskju og ímynd. Til þess þarf listin að ná til áhorfandans og kalla hann til sam- ábyrgðar og þátttöku, snerta á eða endurspegla fyrirbæri sem til- heyra hans reynsluheimi“. Vonandi verða þeir sem flestir, áhorfendurnir, sem vilja taka þátt í þeirri forvitnilegu tilraun sem fram undan er í Listasafni Íslands. Listin undir fertugu fram undan ’Staðreyndin er sú aðjafnvel þótt hér gefist ungu fólki ágæt tækifæri til að sýna í tilrauna- rýmum af ýmsu tagi er ekki hægt að horfa fram hjá því að opinberir máttarstólpar hinnar eiginlegu „myndlist- arstofnunar“ – í sama skilningi og hugtakið „bókmenntastofnun“ – eru fáir hér á landi.‘ AF LISTUM Fríða Björk Ingvarsdóttir fbi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Margrét H. Blöndal er einn tuttugu listamanna sem sýna munu á sýning- unni Listin undir fertugu, sem verð- ur brátt opnuð í Listasafni Íslands. Á TÓNLEIKUM á Nýja sviði Borg- arleikhússins sat gítarleikari sem var þráfaldlega truflaður af hópi skvaldrandi túrista í skræpóttum fötum. Túristarnir þrömmuðu yfir sviðið aftur og aftur og gat gítarleik- arinn ekki lokið við að spila fyrr en síðar. Eins og nærri má geta var hér um gjörning að ræða; þetta voru meðlimir Rómeó og Júlíu kórsins frá Dramaten-leikhúsinu í Stokkhólmi, en kórinn er þekktur fyrir að leggja áherslu á hið sjónræna í tónlistar- flutningi sínum. Allskonar furðulegar atburðir áttu sér stað á tónleikunum. Í einu atrið- inu æddu syngjandi konurnar að áheyrendapöllunum og hrifsuðu handtöskur af tónleikagestum, en á eftir baðst einn karlanna afsökunar og fullyrti, niðurlútur á svipinn, að þetta myndi ekki koma fyrir aftur. Í öðru tónlistaratriðinu fóru kórmeð- limir smátt og smátt að rífast og end- aði það með öskrum og hávaða. Voru flest atriðin verulega fyndin, enda veinuðu áheyrendur af hlátri og var undirritaður þar á meðal. Gallinn við tónleikana var sjálfur söngurinn, en hann var í það heila ekki góður. Innkomur voru klaufa- legar, styrkleikajafnvægi á milli mis- munandi radda var ómarkvisst og kórinn almennt mjóróma og hljóm- laus. Verri var samt tónlistarflutn- ingurinn þegar Vox academica bætt- ist í hópinn, en þá var útkoman eins og veislusöngur í venjulegu sjötugs- afmæli, pínlega ónákvæmur og við- vaningslegur. Þrátt fyrir þetta voru tónleikarnir ekki slæmir; það er hægt að fyrir- gefa ýmislegt þegar menn eru fyndnir og hið leikræna var a.m.k. í fremstu röð. Án efa voru þetta ein- hverjir óvanalegustu kórtónleikar sem hér hafa verið haldnir – og það er nú þó nokkuð. TÓNLIST Nýja svið Borgarleikhússins Rómeó og Júlía kórinn frá Dramaten leik- húsinu í Stokkhólmi flutti aðallega end- urreisnartónlist. Einnig kom fram kórinn Vox academica. Laugardagur 6. nóv- ember. Kórtónleikar á vegum Caputhópsins Eyþór Ingi Jónsson Jónas Sen Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.