24 stundir - 16.11.2007, Qupperneq 1
24stundirföstudagur16. nóvember 2007220. tölublað 3. árgangur
Gæða sængur og heilsukoddar.
www.lystadun.is
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík:Mörkin 4, s: 5333500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 4623504
Jólatilboð 15% afsláttur
Engin fasteignasala í heimi selur fleiri fasteignir en RE/MAX
Dorothea E.
Jóhannsdóttir
Sölufulltrúi
898 3326
dorothea@remax.is
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur Fasteigna
fyrirtækja og skipasali
Ertu að spá í að selja?
Frítt söluverðmat
FRAMÚRSKARANDI SÖLUFULLTRÚAR FRAMÚRSKARANDI ÁRANGUR
Leifur Kolbeinsson, mat-
reiðslumeistari á La Primavera, er
að gefa út Ítalska rétti sem margir
unnendur ítalskrar matargerðar
munu vafalaust fagna.
Alvöru ítalskir réttir
JÓLIN»36
Sýning með málverkum af 56 ljós-
hærðum fegurðardrottningum verður
opnuð á Kjarvalsstöðum á morgun.
Um er að ræða verk eftir myndlist-
armanninn Birgi Snæbjörn Birgisson.
56 ljóshærðar
MENNING»44
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
„Ég býð erótískt nudd, mjög góða þjónustu sem
kostar 20 þúsund. Ef þú vilt eitthvað meira þá er
það í boði, en kostar meira,“ segir „nuddkona“
sem auglýsti þjónustu í Fréttablaðinu. Sam-
kvæmt upplýsingum 24 stunda leggur konan
stund á vændi í fjölbýlishúsi í Reykjavík.
Lítið hægt að gera
Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu, segir auglýsinguna ekkert einsdæmi og í
raun geti hver sem er fundið vændi hafi hann
áhuga. „Við fáum ábendingar öðru hverju,“ segir
hann aðspurður hvort hann verði mikið var við
vændi. Hann segir deildina reyna að kanna flest
mál sem henni er bent á en það geti verið erfitt.
Lögin gera lögreglu erfitt fyrir
„Það segir sig sjálft að vegna þess að vændi er
refsilaust þá gerir það okkur erfiðara fyrir að
nálgast þetta,“ segir Björgvin. Hann segir að lög-
reglan hafi haft afskipti af nokkrum vændiskon-
um sem hafi komið hingað erlendis frá og spurt
á hvers vegum þær hafi komið til landsins. „Það
hefur ekki leitt til þess að þriðji aðili hafi komið
fram,“ segir Björgvin sem staðfestir að fleiri
ábendingar um vændi varði erlendar konur.
„Þær koma hingað með þá vitneskju að hér sé
leyfilegt að stunda vændi svo framarlega sem
þær séu einar um það.“
Gölluð löggjöf
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, seg-
ir mjög líklegt að um mansal sé að ræða þegar
vændiskonur frá fátækari ríkjum Evrópu komi
hingað. „Konur sem hingað koma eru kannski
með umboðsmenn erlendis og liggja undir hót-
unum í garð fjölskyldu sinnar og barna,“ segir
hann. Hann segir úrræðaleysi lögreglunnar sýna
að lögin séu gölluð.
Þeir sem áhuga hafa
geta fundið vændi
Kynlífsþjónusta auglýst í dagblöðum „Nuddkona“ stundar vændi í blokk í Reykjavík
➤ Hvorki kaup né sala vændis er refsivert at-hæfi eftir lagabreytingu síðastliðið vor.
➤ Einungis er refsivert fyrir þriðja aðila aðhagnast á vændi annarra.
LÖGGJÖF UM VÆNDI
Starfsfólk Máls og menningar á Laugavegi brá á leik í gær og setti á sig trefil og gleraugu, í tilefni þess að sala hófst
á íslensku þýðingunni af síðustu Harry Potter bókinni, Harry Potter og dauðadjásnin. „Það er alltaf rífandi
stemning í kringum Harry og við tökum þátt í henni,“ segir starfsmaður. 15.000 eintök voru prentuð af bókinni
og búist er við að hún verði ofarlega á metsölulista um jólin. Potter-æðinu lýkur senn, vafalaust með
tilheyrandi söknuði þeirra fjölmörgu lesenda sem fylgt hafa Harry í gegnum hættuleg ævintýri hans.
Potter mætir í síðasta sinn
24 stundir/Frikki
„Alltaf rífandi stemning í kringum Harry“
»46
Verð á lýsingu leiða er ólíkt og
munar þar um 5000 krónum.
Greiðsluseðlar frá Rafþjónustunni
Ljós berast nú þeim sem eiga ást-
vini sem hvíla í Gufu-
neskirkjugarði.
Verð á lýsingu leiða
ólíkt milli garða
»6
Toyota Hilux-jeppi var nærri olt-
inn í sænsku „elgsprófi“ fyrir
skömmu og er breiðum dekkjum
kennt um. Sams konar jeppar í
sölu á Íslandi eiga að
vera öruggir.
Íslenskur Hilux
veltur ekki
»42
Rússar bíða
dómsdags
9
8
7
5 9
GENGI GJALDMIÐLA
GENGISVÍSITALA 117,53
ÚRVALSVÍSITALA 7325,52
SALA %
USD 60,70 1,27
GBP 124,17 0,25
DKK 11,91 0,76
JPY 0,55 2,09
EUR 88,77 0,75
0,77
-1,5
NÁNAR 4
VEÐRIÐ Í DAG
14
78% munur á
dömuklippingu
NEYTENDAVAKTIN
Rúmlega þrjátíu meðlimir
rússnesks sértrúarsafnaðar
hafa króað sig af í afskekktum
helli og bíða nú dómsdags.
Þeir hafa hótað sjálfsvígi með
því að sprengja gastank, geri
lögregla sig líklega til að grípa
til aðgerða. Hellirinn er í
snævi þöktu fjalllendi í Penza-
héraði. Að sögn lögreglu er
þetta hópur kristinna, 29 full-
orðnir og fjögur börn. „Þeir
segja kirkjuna ekki standa sig,
að það styttist í endalok al-
heimsins og að þau séu með
þessu að bjarga sjálfum sér.“ aí