24 stundir - 16.11.2007, Síða 8
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Stéttarfélög í Frakklandi funduðu í
gær um hvort rétt væri að binda
enda á verkfall starfsmanna í al-
menningssamgöngum, sem hefur
lamað franskt samfélag frá því á
þriðjudagskvöld.
Milljónir Frakka áttu í vandræð-
um með að komast til vinnu, þrátt
fyrir að fleiri lestir hafi gengið í
gær, samanborið við á miðviku-
daginn. Fjöldi ferða neðanjarðar-
lesta og strætisvagna í Parísarborg
var þrjátíu prósent miðað við
venjulega, og einungis 150 af um
700 hraðlestum gengu.
Rúmlega fimmtíu þúsund
manns komu saman á götum Par-
ísarborgar í gær til að mótmæla
fyrirhuguðum breytingum Nicolas
Sarkozy Frakklandsforseta á lífeyr-
isréttindakerfinu. Hann vill skerða
lífeyri opinberra starfsmanna, sem
geta upp til hópa farið á full eft-
irlaun fimmtugir að aldri.
Ólíklegt er að Sarkozy hviki frá
breytingunum sem hann boðaði í
aðdraganda forsetakosninganna síð-
asta vor. „Franska þjóðin samþykkti
þessar umbætur. Ég greindi henni
frá þeim fyrir kosningarnar, til þess
að ég gæti gert það sem nauðsynlegt
væri að kosningunum loknum.“
Talsmaður Frakklandsstjórnar
sagði fyrr í vikunni að öðrum um-
bótamálum yrði stefnt í hættu, yrði
horfið frá breytingunum á lífeyr-
iskerfinu.
Mótmælamenning Frakka
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Frakkar beita verkfallsvopninu til
að mótmæla fyrirætlunum stjórn-
valda. Síðast þegar stjórnvöld
reyndu að gera breytingar á lífeyr-
isréttindakerfinu, árið 1995, tókst
stéttarfélögum að lama franskt
samfélag í heilar þrjár vikur. Verk-
fallinu lauk fyrst þegar horfið var
frá tillögum um breytingar.
Sarkozy segir að það sé Frakklandi
nauðsynlegt að breytast og að ekkert
muni fá hann til að hverfa frá um-
bótatillögum sínum. Fréttaritari
breska ríkisútvarpsins segir þó að
forsetinn hafi lært af reynslunni af
verkfallinu 1995 og sé því varkárari í
orðum en hann hefði annars kosið
að vera. Sarkozy stefnir einnig að því
að breyta reglum um vinnutíma, en
segir hátt hlutfall atvinnuleysis að
miklu leyti reglum um 35 stunda
vinnuviku að kenna.
Maður breytinga
Frakkar kusu Sarkozy þar sem
þeir vildu sjá gerðar breytingar á
þjóðfélaginu, eftir tólf ára valdatíð
Jacques Chirac, sem einkenndist að
miklu leyti af kyrrstöðu og að-
gerðaleysi. Hins vegar má vera að
allar þær umbætur sem Sarkozy
hyggst ráðast í gætu einfaldlega
reynst of miklar fyrir þol Frakka.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Frakkar beita enn
og aftur verkfalli
Verkföll hafa skilað Frökkum miklu í baráttu þeirra gegn lagabreytingum stjórnvalda
Mannþröng Fólk safn-
ast saman á brautarpall-
inum á Chatelet-stöðinni
í París til að bíða eftir
neðanjarðarlestinni.
➤ 2006: Ný áætlun um atvinnu-réttindi ungmenna er sett of-
an í skúffu.
➤ 2005: Stjórnvöld hætta viðbreytingar á skólakerfinu.
➤ 2000: Verkföll almenningsleiða til tilslökunar á elds-
neytissköttum.
➤ 1995: Hætt við breytingar álífeyrisréttindakerfi starfs-
manna.
➤ 1993: Hætt við skipulags-breytingar hjá franska flug-
félaginu Air France.
KRAFTUR VERKFALLA
Noregur
Ný skýrsla breskra heilbrigðisstofnana
8 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
STUTT
● Eftirskjálfti Harður eft-
irskjálfti, 6,8 á Richterskvarða,
reið yfir norðurhluta Chile í
gær. Tvær konur létust í 7,7
stiga jarðskjálfta miðvikudags-
ins og þúsundir misstu heimili
sín.
● Alnæmi Sænskur dómstóll
sakfelldi í gær 32 ára gamlan
Breta fyrir að hafa smitað
tvær ungar sænskar konur
með HIV-veirunni og sett
þrettán aðrar stúlkur í hættu.
● Forseti Pervez Musharraf,
forseti Pakistans, hefur sagt að
hann muni láta af störfum sem
yfirmaður hersins fyrir 1. des-
ember næstkomandi.
● Fimmburar 29 ára rúss-
neskri konu heilsast vel eftir
að hún fæddi fimmbura á
sjúkrahúsi í Bretlandi um síð-
ustu helgi. Nýburarnir eru all-
ir stúlkubörn.
Hækka ætti skatta á áfengi og
herða reglur um áfengisauglýsing-
ar, segir í nýrri sameiginlegri
skýrslu 24 breskra heilbrigðisstofn-
ana. Samtökin Health Alcohol Alli-
ance segja að þrettán börn séu að
meðaltali lögð inn á sjúkrahús á
hverjum degi vegna aukinnar mis-
notkunar Breta á áfengi.
Samtökin vilja að áfengisauglýs-
ingar í sjónvarpi verði bannaðar
fyrir klukkan níu á kvöldin og að
gert verði skylt að setja harðorðari
viðvaranir um mögulegan heilsu-
skaða í áfengisauglýsingar. Með því
að hækka skatta á áfengi um 10%
myndi dauðsföllum, sem rakin eru
til áfengisneyslu, fækka um tíu til
þrjátíu prósent að mati samtak-
anna. Áfengisskattar í Bretlandi eru
nú þeir næsthæstu í álfunni. aí
Áfengisgjaldið hækki og
hertar auglýsingareglur
Drykkja Dauðsföllum af völdum
áfengisneyslu hefur fjölgað um
helming á síðustu árum.
Fjármagnið í hinum svokallaða
olíusjóði Norðmanna fór yfir tvö
þúsund milljarða norskra króna
markið í síðasta mánuði, eða
jafnvirði 22.300 milljarða ís-
lenskra króna.
Um síðustu mán-
aðamót var upp-
hæðin komin í
2.007 milljarða
norskra króna og
jafngildir það
tæplega fimm
milljónum ís-
lenskra króna á hvern Norð-
mann. Sjóðurinn var stofnaður
árið 1990 og er einn af stærstu
fjárfestingarsjóðum í heimi.
Tekjur Norðmanna af olíu- og
gasvinnslu eru í gegnum olíu-
sjóðinn nýttar til fjárfestinga og
til að tryggja lífeyri Norðmanna í
framtíðinni. aí
Olíusjóðurinn
blæs út
VIÐ LEGGJUM
AÐ FÓTUM ÞÉR
Krókhálsi 4 • 110 Reykjavík • Sími 567 1010 • www.parket.is
Í landsins stærsta sýningarsal á gólfefnum
höfum við hjá Harðviðarvali
sett upp glæsilega sýningu
á flísum og innihurðum,
að ógleymdu parketi og viðargólfefnum í ótrúlegu úrvali.
Þegar þú vilt móta umhverfi þitt að þér,
þá kemur þú í Harðviðarval
og möguleikarnir verða nær óendanlegir.
X
E
IN
N
H
A
07
1
1
00
3
Nýja flísadeildiní Harðviðarvali býður
SÉRTILBOÐ
Á FLÍSUM