24 stundir - 16.11.2007, Page 10
24 stundir/Brynar Gauti
Verðlaun Forseti Íslands veitti verð-
launin. Hreinn var ekki á staðnum.
Hreinn Friðfinnsson myndlist-
armaður hlaut heiðursverðlaun
Myndstefs, eina milljón króna, sem
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, afhenti í Listasafni Íslands í
gær.
Viðurkenninguna hlýtur Hreinn
fyrir einstakt framlag sitt til ís-
lenskrar myndlistar en hluta þess
getur nú að líta á yfirlitssýningu í
Listasafni Reykjavíkur.
Sex voru tilnefndir til verð-
launanna, þeirra á meðal var Hall-
dór Baldursson sem teiknar fyrir
24 stundir. mbl.is
Hreinn Friðfinnsson
fær heiðursverðlaun
10 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Vegna umfjöllunar á BBC um
rannsókn dr. Williams Pelhams
sem 24 stundir sögðu frá í vikunni,
mun barónessa Susan Greenfield
taugasérfræðingur ávarpa lávarða-
deild breska þingsins á miðvikudag
og spyrjast fyrir um hvernig grein-
ingu og meðferð í sambandi við at-
hyglisbrest með ofvirkni (ADHD)
sé háttað þar í landi.
„Auk þess að meta ADHD-lyfin
sjálf er mjög mikilvægt að komast
að því hvers vegna börnum sem
greinast með ADHD hefur fjölgað
svo mjög undanfarin ár,“ segir
Greenfield í samtali við BBC og
veltir fyrir sér hvort breyttur lífsstíll
fólks geti haft áhrif.
„Auðvitað er frumforsenda þess
að einstaklingar greinist með
ADHD sú að þekking sé til staðar.
Hún hefur stóraukist og er hlut-
fallsleg fjölgun einstaklinga sem
greindir eru með ADHD þar með
að nokkru leyti skýrð,“ segir Gylfi
Jón Gylfason, yfirsálfræðingur á
fræðslusviði Reykjanesbæjar. Að-
spurður um greiningarferlið segir
hann greininguna vera mjög fag-
lega sé hún rétt gerð.
„Fyrst eru gerð próf til þess að
útiloka aðrar skýringar. Síðan eru
fengnar upplýsingar um hegðun
barnsins bæði í skóla og heima en
þær þurfa að vera í samræmi, fyrir
greininguna. Að lokum er grein-
ingarviðtal sem er alþjóðlegur
staðlaður spurningalisti. Honum
er ætlað að útiloka endanlega aðrar
mögulegar orsakir hegðunar-
truflunarinnar.“
Skiptar skoðanir eru á því hvort
barnageðlæknar einir eigi að mega
greina ADHD eða hvort heimilis-
læknar ættu að fá að gera slíkar
greiningar. Gylfi Jón segir að aðal-
atriðið sé að greiningaraðili hafi
fullnægjandi þekkingu á málefninu
en starfstitill skipti minna máli.
Aðspurður um hvort tilfelli
þekkist þar sem börn eru sett á of-
virknilyf án greiningar segist hann
ekki hafa orðið var við slíkt á sín-
um ferli en þó gæti það hafa gerst.
„Ef svona tilfelli hefur komið
upp er það grafalvarlegt mál.“
Ekki lyf án greiningar
Fólki sem greinist með ofvirkni með athyglisbresti fjölgar vegna aukinnar þekkingar
Yfirsálfræðingur í Reykjanesbæ veit ekki til að þar í bæ hafi verið gefin lyf ángreiningar
Gylfi Jón Jónsson Seg-
ir þekkingu greining-
araðila lykilatriði. ➤ ADHD-einkenni geta veriðmisalvarleg, frá vægum ein-
beitingarskorti upp í óstjórn-
leg skapofsaköst.
➤ Biðtími eftir greiningu geturverið allt að fjórir mánuðir.
➤ Greiningu ætti að vera lokið áþremur mánuðum eftir að
hún hefst.
➤ Eftir greiningu er leitað úr-lausna en þær eru t.d. atferl-
ismótandi meðferð, lyf eða
ADHD-markþjálfun (ADHD
coaching).
NOKKRAR STAÐREYNDIR
Hæstiréttur dæmdi í gær erlend-
an ríkisborgara sem dvalið hefur
hér á landi vegna atvinnu sinnar í
farbann til 12. desember næstkom-
andi og stytti þar með dóm Hér-
aðsdóms Reykjaness sem dæmt
hafði manninn í farbann til 21.
desember.
Manninum er gert að sök að
hafa sært meðleigjanda sinn á hálsi
með brotinni bjórflösku þegar
mennirnir tveir áttu í átökum á
heimili sínu. Meðleigjandi ákærða
hlaut töluvert sár á hálsi. Tveir
meðleigjendur mannanna tveggja
urðu vitni að átökunum og
hringdu á lögreglu. Þegar hún kom
á vettvang hafði maðurinn misst
mikið blóð og var fluttur með
sjúkrabíl á sjúkrahús.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
fór fram á farbann vegna þess að
nauðsynlegt væri að tryggja nær-
veru ákærða á landinu þar til rann-
sókn máls hans lyki.
Hæstiréttur stytti farbannið þar
sem hann taldi að rannsókn lög-
reglunnar miðaði vel og nægur
tími væri til að ljúka henni fyrir 12.
desember. elias@24stundir.is
Hæstiréttur Maður
særði félaga sinn á hálsi
með brotinni flösku.
Hæstiréttur styttir farbann
Telur lögreglu
hafa nægan tíma
Við eigum að geta stundað íþróttir
og önnur áhugamál án þess að þurfa
alltaf að vera að taka þátt í keppnum.
Borgarráð frestaði á fundi í gær
að afgreiða tillögu frá Degi B.
Eggertssyni borgarstjóra um að
hann fái umboð til að staðfesta
ákvarðanir stjórnar Orkuveit-
unnar frá 2. nóvember. Meðal
þeirra er að falla frá staðfestingu
á samruna Reykjavik Energy In-
vest og Geysir Green Energy.
Í tillögunni er einnig lagt til að
leitað verði sátta í dómsmáli
Orkuveitu Reykjavíkur og Svan-
dísar Svavarsdóttur þar sem
málsaðilar hafi ekki hagsmuni af
niðurstöðu slíks máls. mbl.is
Dagur fær ekki
umboðið strax
Hæstiréttur hefur
dæmt karlmann í
tveggja mánaða
skilorðsbundið
fangelsi fyrir að
ryðjast tvívegis
inn í íbúð fyrr-
verandi eig-
inkonu sinnar.
Maðurinn var einnig ákærður
fyrir að hafa ráðist tvívegis á kon-
una, í fyrra skiptið á meðan þau
voru í sambúð og það síðara eftir
að þau höfðu gift sig en Hæsti-
réttur komst að þeirri niðurstöðu
að sök vegna árásanna hefði verið
fyrnd þegar rannsókn lögreglu á
þeim hófst. mbl.is
Ekki hægt að
dæma höggin
Bæjarráð Kópavogs samþykkti í
gær sértækar aðgerðir í starfs-
mannamálum hjá Kópavogsbæ.
Tilgangurinn er að auka stöð-
ugleika í starfsmannahaldi,
bregðast við samkeppni á vinnu-
markaði og laða starfsfólk að
lausum stöðum hjá bænum. Sér-
stakt framlag vegna aðgerðanna
nemur ríflega 150 milljónum
króna á árinu 2008.
Segjast bæjaryfirvöld í Kópavogi
telja, að þessar aðgerðir samrým-
ist samþykktum launanefndar
sveitarfélaganna og kjarasamn-
ingum. mbl.is
Laða starfsfólk
að Kópavogi
„Það er bara svo mikið jákvætt við þetta, gef-
ur þér færi á að taka þátt í samfélaginu yf-
irhöfuð,“ segir Kristjana B. Svansdóttir um
reynslu sína af lyfjatöku við ofvirkni og at-
hyglisbresti (ADHD). Hún er að ljúka-
fjarnámi í ADHD-markþjálfun og á tvö börn
með ADHD auk þess að vera með það sjálf.
„Núna næ ég að skipuleggja mig, get mætt á
fundi, haldið utan um fjármálin og heimilið
sem svo minnkar kvíða og depurð. Að auki
eykst sjálfstraustið. Ég sé þetta líka hjá börn-
unum mínum sem standa mun betur fé-
lagslega núna, á lyfjum, en þau gerðu. Heim-
ilislífið væri mun erfiðara án lyfjanna.“
Hún segir vandann vera þann að oft taki
tíma að finna réttan lyfjaskammt. „Stundum
þarf að auka skammtinn og stundum að
minnka en þegar rétt magn hefur fundist er
þetta algjörlega þess virði,“ segir hún.
„Mér finnst óþolandi hvað fólk hefur miklar
skoðanir á ADHD og lyfjagjöf án þess að vita
neitt um málið. Þó þekkingin hafi aukist
töluvert þá er enn langt í land. Fólk ætti að
kynna sér málin áður en það gagnrýnir því
öll þessi neikvæða umræða hefur slæm áhrif
á þau börn sem greind eru með ADHD og
eru á lyfjum.“
Kristjana sá um ADHD-daga í Reykjanesbæ í
lok október síðastliðins en segir að mætingin
hefði mátt vera meiri. „Umræða um þessi mál
þarf að vera upplýstari. Ég held bara ADHD-
daga aftur að ári.“ thorakristin@24stundir.is
Kristjana B. Svansdóttir og börn hennar eru með ofvirkni og athyglisbrest - Hún lærir nú ADHD markþjálfun
Vill upplýstari umræðu um lyfjagjöf
Vill upplýstari umfjöllun Kristjana B. Svansdóttir
fjarnemi í ADHD markþjálfun. Myndina tók Sara Ross.