24 stundir - 16.11.2007, Page 12

24 stundir - 16.11.2007, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir Eftir Björgu Evu Erlendsdóttir 24stundir.is „Breytingar á þingskaparlögum hljóta að ráðast af því hve fúsir menn eru til að vinna saman,“ seg- ir Katrín Jakobsdóttir, starfandi þingflokksformaður vinstri grænna. Sturla Böðvarsson forseti Al- þingis leggur nú til ýmsar breyt- ingar til að efla og styrkja starfsemi Alþingis. Ekki er vanþörf á ef marka má skýrslu umboðsmanns Alþingis sem rædd var þar í gær. Í henni kemur fram að hlutfall gall- aðra laga sé óvenjuhátt á Íslandi, miðað við önnur Norðurlönd. Björninn ekki unninn Sturla er vongóður um sam- stöðu og frumvarp á þessu þingi. Samkvæmt heimildum 24 stunda taka bæði Samfylking og Fram- sóknarflokkur vel í tillögurnar. Frjálslyndir hugsa en VG gerir at- hugasemdir og vilja að þingið verði sterkara gagnvart framkvæmda- valdinu. „Við erum opin fyrir við- ræðum en ekki kynningu á fyrir- fram ákveðinni niðurstöðu,“ segir Katrín. Formenn úr stjórnarandstöðu Styttri ræðutími er alltaf til um- ræðu þegar auka á skilvirkni Al- þingis. Stjórnarandstæðingar, eink- um VG, líta á tímann í ræðustól sem sitt eina vopn á ögurstundu deilumála. Þeir eru ekki fúsir að af- vopnast nema valdamynstri í starf- semi þingsins verði breytt. Þannig endurspeglist styrkur flokkanna, en ekki vald ríkisstjórnar í nefnd- unum og þá gæti stjórnarandstað- an átt formenn í nefndum. Kvöldfundur eftir átta Sturla er gagnrýndur fyrir gam- aldags áherslur um fundartíma. Sólveig Pétursdóttir fyrrverandi forseti vildi gera hann fjölskyldu- vænni. Sturla vill ljúka fundum fyrir átta, en einn kvöldfund í viku ef þarf. „Það er varla mikil bót að því fyrir fjölskyldufólk að fundir séu bara til átta,“ segir Katrín. Kvöldfundur Tómur salur, lúnir þingmenn og ómarkvissar umræður sæta gagnrýni. Alþingi vinni vinnuna sína  Vinstri græn gera athugasemdir við tillögur um ný þing- skaparlög  Fundir fram á kvöld ekki sagðir fjölskylduvænir ➤ Sturla Böðvarsson er forsetiAlþingis frá í haust. Sólveig Pétursdóttir forveri hans vildi breyta starfsháttum Alþingis úr vertíðarlotum í vinnustað sem hæfir fjölskyldum. ➤ Gallar í lagasetningu, seintframkomin mál, ómarkvissar umræður og fjarvera bæði ráðherra og þingmanna úr sal er sígilt umkvörtunarefni þeirra sem vilja bæta stöðu þingsins. STARFSHÆTTIR ALÞINGIS 24 stundir/Júlíus Íslensk erfðagreining gæti hæg- lega sinnt DNA-rannsóknum fyrir lögregluna. Þetta segir Berglind Rán Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar. „Við búum bæði yfir mannskap, þekkingu og tækjum sem réði við rannsóknir af þessu tagi. Það hefur hins vegar ekki verið leitað til okk- ar um slíkt.“ Getum gert þetta hratt og vel Spurð hvort fyrirtækið gæti hugsað sér að veita slíka þjónustu ef eftir því yrði leitað svaraði Berg- lind því játandi. „Það gæti alveg verið möguleiki. Dómsmálaráðuneytinu var á ákveðnum tíma boðið upp á að við sæjum um svona próf fyrir þá en það var ekki áhugi á því þá. Við er- um að vinna með þá tækni sem er notuð í þetta dagsdaglega og gæt- um gert þessi próf mjög vel og á mjög stuttum tíma.“ Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala - háskólasjúkrahúsi væri hægt að taka að sér ákveðna þætti rannsókna af þessu tagi þar. Hins vegar sé staðan sú að til að slíkt standist fyrir rétti þurfi ákveðnar vottanir og þær séu ekki fyrir hendi hér. Ekki óþekkt að leita annað Því hefur verið velt upp hvort eðlilegt sé að það taki um mánuð að fá niðurstöður úr prófum á DNA. Rannsóknarstofa í lyfja- og eiturefnafræði hefur séð um grein- ingu á styrk eiturlyfja fyrir lögreglu hér á landi meðal annars. Það er því ekki óþekkt að utanaðkomandi aðilar sjái um slíkar rannsóknir. freyr@24stundir.is Þarf ekki að senda sýni út Hægt að gera DNA- rannsóknir hér á landi vandræðalítið Frá 1999 hefur Rannsóknarnefnd umferðarslysa rannsakað 13 dauðsföll í umferðinni þar sem veikindi ökumanna eru greind sem meginorsök slyss. Telur rannsóknarnefndin brýnt að umferðarlögin verði endur- skoðuð með áherslu á viðbrögð við aðstæðum, þegar sjúkdómar, nauðsynleg lyfjanotkun og öldr- un hafa sannanlega áhrif á öku- hæfni einstaklinga í umferðinni. Segir í tilkynningu að það grein- ingarkerfi sem nú er notað til að meta ökuhæfni ökumanna sé ófullnægjandi. mbl.is Veikindi orsök umferðarslysa„Náttúran og umhverfið er okk- ar spa,“ segir Jenný Jensdóttir sem vill að byggt verði 28 til 30 her- bergja lúxushótel á Drangsnesi á Ströndum. „Við þurfum ekki að byggja rosalega íþróttaaðstöðu eða slíkt, hafandi þetta umhverfi.“ Hugmyndin varð til á námskeið- inu Vaxtarsprotar sem Iðntækni- stofnun hélt ásamt Bændasamtök- unum en Jenný vann hana þar ásamt Jóni Herði Elíassyni. Jenný segir þau hafa vitað um lóð með fallegu útsýni og þar vilji þau láta byggja lúxushótel. Hún segir vanta gistirými á Ströndum, sérstaklega yfir sumartímann. Þá hafi kröfur fólks til gististaða breyst gífurlega síðustu ár og fólk vilji meiri þjónustu. Þannig taki svona hótel ekki af þeim sem fyrir eru. Minnsta sjávarþorp í heimi „Við lögðum upp með það að vera minnsta sjávarþorp í heimi,“ segir Jenný. Öll þjónusta sé hins vegar fyrir hendi á Drangsnesi. Jenný segir hugmyndina ekki komna á það stig að þau séu farin að leita að fjárfestum því að verk- efnið sé dýrt, áætlunin hljóði upp á 250-300 milljónir. En hún segir öll- um velkomið að nota hugmyndina, hún sé tilbúin. aak Drangsnes Heitir pottar í fjöru- borðinu njóta mikilla vinsælda í ́ bænum. Hugmyndir um lúxushótel á Drangsnesi Náttúran og um- hverfið okkar spa 4stundir/Golli Aðalsamninganefnd Starfs- greinasambandsins hefur ekki tekist að ljúka kröfugerð fyrir komandi kjarasaminga, en stefnir að því í næstu viku. Aðalkrafan er hvellskýr að sögn sambandsins. Hún er mannsæmandi lágmarkslaun sem ekki eru íslensku sam- félagi til skammar, tilkynnir SGS. Flest félög krefjast þess að lágmarkslaun fari úr 125 þúsund í 170 og hefur for- maður Verkalýðsfélags Akra- ness lýst yfir að þar verði ekki hvikað frá kröfunni, en um hana verði að ríkja algjör sam- staða, annars verði róðurinn þungur. „Sýnum tennurnar,“ segja samtökin. bee 170 þúsund krónur SGS sýnir tennurnar Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína, hélt inn á Gasasvæðið í gær. Hann hefur undanfarna daga freistað þess að komast þangað. Sveinn Rúnar hefur verið á Vest- urbakkanum frá því í lok sept- ember. Sveinn Rúnar áformar m.a. að heimsækja Ahli Arab- sjúkrahúsið, sem rekið er af ensku biskupakirkjunni í Gasaborg. mbl.is Læknir á ferðalagi Sveinn Rúnar á Gaza-svæðið www.nora.is Dalvegi 16a Kóp opið: má-fö. 11-18, laugard. 11-16 Auglýsingasíminn er 510 3744 stundir

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.