24 stundir - 16.11.2007, Page 16
Kaupþing banki óvinsælastur
Viðskiptavinir Kaupþings
banka, stærsta fyrirtækis landsins,
eru samkvæmt ánægjuvoginni
óánægðustu viðskiptavinirnir á ís-
lenska bankamarkaðnum.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Ánægja viðskiptavina banka hefur
farið minnkandi hér á landi, sér í
lagi miðað við viðskiptavini annars
staðar á Norðurlöndum, sam-
kvæmt samnorrænni rannsókn
sem Capacent Gallup stendur að
fyrir íslensku ánægjuvogina.
Fyrir aldamótin voru íslenskir
bankaviðskiptavinir með þeim
ánægðustu, en síðan hefur dregið
jafnt og þétt úr ánægjunni og voru
íslenskir bankar með lægstu
ánægjuvogina, eins og það er kall-
að, árið 2006.
Sérstaklega virðist hafa dregið úr
ánægju með íslensku bankana árin
eftir 2003 - árið sem einkavæðing
ríkisbankanna gekk í gegn, en nú
hefur ánægja aftur aukist á milli
ára í fyrsta sinn í þrjú ár, án þess þó
að hafa náð jafn hátt á ánægjuvog-
inni og árið 2003.
Ánægja með Símann hefur held-
ur aukist síðan hann var einka-
væddur, eða um tæp fimm prósent
samkvæmt nýlegri ánægjuvog
Capacent Gallup.
Ekki endilega verri þjónusta
Þóranna Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá
Veritas Capital, segir að minni
ánægja með bankana þurfi ekki
endilega að endurspegla verri þjón-
ustu þeirra við viðskiptavini þeirra.
„Við einkavæðingu bankanna jókst
samkeppnin og keppni um hylli við-
skiptavina til muna. Þar með urðu
loforðin fegurri en áður og vænt-
ingar viðskiptavina jukust. Það getur
verið að fólk sé að upplifa það núna
að minni munur sé á bönkunum en
þeir hafa sjálfir gefið til kynna.“
Þóranna segir að sú staðreynd að
bankarnir séu orðnir mun stærri
en áður geti einnig haft sitt að segja
hvað varðar ánægju íslenskra við-
skiptavina. „Að vissu leyti hafa
bankarnir færst fjær kúnnunum og
áhersla þeirra hefur breyst. Það
getur verið að fólki finnist sam-
band sitt við bankann sinn ekki
vera jafn persónulegt og áður.“
Viðskiptavinir Sparisjóðsins eru
hins vegar ánægðustu viðskipta-
vinirnir, og kemur SPRON næst á
eftir.
Kaupþing banki (áður Búnaðar-
banki) tók töluverða dýfu á
ánægjuvoginni árin 2004 til 2006,
og hefur ekki enn náð þeim vin-
sældum sem Búnaðarbankinn naut
áður en einkavæðingin gekk í gegn,
þótt ánægja með hann hafi nú auk-
ist frá síðasta ári. Landsbankinn
virðist hins vegar ekki hafa glatað
vinsældum við einkavæðinguna,
en hann nýtur í dag svipaðra vin-
sælda og Glitnir.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða sendu
póst á vidskipti@24stundir.is
Minni ánægja
með bankana
Viðskiptavinir Kaupþings eru óánægðastir með bankann sinn
Ánægð með tón-
leikana Þrátt fyrir að
hafa haldið risatónleika í
sumar er Kaupþing óvin-
sælasti bankinn.
➤ 1999 voru Íslendingaránægðastir bankavið-
skiptavina á Norðurlöndum
með 76,7 stig.
➤ Í ár eru Íslendingar á miðjumlista yfir ánægðustu banka-
viðskiptavini á Norð-
urlöndum með 72,6 stig, en
Finnar ánægðastir með 78,2
stig.
ÁNÆGJUVOGIN
16 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
Swopper
vinnustóllinn
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Ánægja við leik og störf
• Fæst í ýmsum litum
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Það getur verið að fólki finnist sam-
band sitt við bankann sinn ekki vera
jafn persónulegt og áður.
MARKAÐURINN Í GÆR
! "##$
!
" #$
$$ "
#
#%%"
"% "
"$$"!
$ %
%$%"
"##!
$$#!$
%%! #
""%%#
"%!!!!
%##% "$
"! $
#!!!
!$$
!!!!
"!
%!%$"
! $$
!"#!!!!!
#%
!&$!
%&!!
%&"!
&!
&%!
$#&
&
% #&!!
$%&!
&
"&#
!&!!
&
"&"
#!!&!!
"!&!!
&
%#&!!
&!
%"&$!
$&!
& !
$!&!!
!&$
%& !
%& !
&
&%
$%&!!
&$
%#$&!!
$%&"
&!
"&"
!&!
&
"&$$
#"!&!!
"!&!!
&
!$&!!
&
% &!
$& !
&#
&!!
$&!!
&!!
"&
'()
!
$"
!
$
#
$
#
!
$
#
$
*
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
!!
"!!!
#!!
!!
!!
!!
+
, -.
/
), -.
01-.
'2, -.
,
-.
.03
.45 67 , -.
8
-.
2
5 -.
3 /9'(9. -.
:3-.
;-.
$"-.
+.7-.
+ 7< 3<='
0
/
', -.
'> :/
67 7, -.
?-.
@A-(-.
<BC@
: 3) -.
D ) -.
!
E :+3 3E
/, -.
3( -.
● Mest viðskipti í kauphöll OMX
í gær voru með bréf Teymis, fyrir
um 1,7 milljarða króna. Næstmest
viðskipti voru með bréf Kaup-
þings, fyrir 1,6 milljarða.
● Mesta hækkunin var á bréfum
365, eða 1,61%. Bréf Icelandair
Group hækkuðu um 0,21%.
● Mesta lækkunin var á bréfum
Føroya Banka, eða 2,93%. Bréf
Atorku lækkuðu um 2,65%.
● Úrvalsvísitalan lækkaði um
1,53% í gær og stóð í 7.326 stig-
um í lok dags.
● Íslenska krónan veiktist um
0,60% í gær.
● Samnorræna OMX40-
vísitalan lækkaði um 1,50% í
gær. Breska FTSE-vísitalan lækk-
aði um 1,1% og þýska DAX-
vísitalan um 1,5%.
Lánleysi íslenskra keppenda á
mjólkurvörusýningunni í Herning
í Danmörku var algert. Tæplega
200 mjólkurvörutegundir voru
stoppaðar af í sænska tollinum og
þeim ekki hleypt áfram til Dan-
merkur.
„Því miður virðist hafa átt sér stað
röð mistaka þarna og sænskir toll-
verðir unnu óskaplega mikið eftir
bókinni. Við merkjum ekki þessar vörur með Evrópumerkingum og
það er sennilega skýringin. Við lærum af þessu og vonandi gerist þetta
ekki aftur. Þetta er auðvitað mjög leiðinlegt gagnvart sýningunni
sjálfri líka. Þessar vörur áttu að vera stór hluti af sýningunni,“ sagði
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri MS, Mjólkursamsölunnar.
Spurður hvort hann teldi að fjarvera íslenskra vara á sýningunni hefði
mögulega áhrif á markaðsstöðu íslenskra mjólkurvara erlendis svaraði
Guðbrandur að áhrifin yrðu engin. fr
Mjólkurvörur stoppaðar
Smásala í Bretlandi dróst saman
um 0,1 prósent á milli mánaða í
október samkvæmt tölum sem
Hagstofa Bretlands birti í gær.
Búist hafði verið við óbreyttri
smásölu milli mánaða og er þetta
í fyrsta skipti frá því í janúar sem
smásala dregst saman. Í Morg-
unkorni Glitnis kemur fram að
samdráttinn í október megi rekja
til minni sölu á fatnaði og skóm
og virðist nú loks vera farið að
hægja á einkaneyslu
Samdráttur í smásölu í október
hefur ýtt enn frekar undir vænt-
ingar um að stýrivextir í Bret-
landi verði lækkaðir á komandi
mánuðum eftir birtingu nýrrar
þjóðhags- og verðbólguspár Eng-
landsbanka. mbl.is
Bresk smásala
dregst saman
Northern Travel Holding hf. hef-
ur keypt allt hlutafé í félaginu
Astraeus Limited. Fyrir kaupin
átti Northern Travel Holding
51% af hlutafé félagsins. Astraeus
sinnir verkefnum í leiguflugi og
áætlanaflugi og gerir út starfsemi
sína frá London Gatwick. Nort-
hern Travel Holding hf. er ís-
lenskt eignarhaldsfélag í eigu
Fons, FL Group og Sund. mbl.is
Northern Travel
Holding stækkar
Stjórn Skipta hefur farið þess á leit við íslenska ríkið að skilyrði um
skráningu verði rýmkuð þannig að Skipti verði skráð á markað á fyrsta
ársfjórðungi 2008, þegar komið verður í ljós hvort Skipti kaupi hlut í
slóvenska símanum, Telekom Slovenije.
Í tilkynningu frá Skiptum segir: „Fyrir liggur að vegna ákvæða í sam-
komulagi við slóvenska ríkið er Skiptum hf. og ráðgjöfum þess óheim-
ilt að upplýsa um hvaðeina sem varðar möguleg kaup á Telekom Slove-
nije þ.m.t. nánari upplýsingar úr rekstri félagsins sem ekki hafa þegar
verið gerðar opinberar. Skipti hf. eru þeirrar skoðunar að það sé baga-
legt fyrir fjárfesta sem hyggjast leggja mat á verðmæti hlutabréfa í fé-
laginu að ekki sé unnt að upplýsa um þær mikilvægu upplýsingar sem
hér um ræðir og hafa jafn mikil áhrif á Skipti og starfsemi þess og raun
ber vitni ef af kaupunum verður.“ mbl.is
Vilja rýmri skilyrði um skráningu
Tólf mánaða verðbólga í þeim 13
ríkjum sem mynda mynt-
bandalag Evrópu mældist 2,6% í
október og hefur ekki verið meiri
í tvö ár. Tólf mánaða verðbólga í
ríkjum Evrópusambandsins
mældist 2,7% í október. mbl.is
Aukin verðbólga