24 stundir - 16.11.2007, Qupperneq 22
arnir, samkvæmt úttekt Efnahags-
og framfarastofnunarinnar
(OECD). Samt ríkir fákeppni á
fjarskiptamarkaðinum og minni
leikendur á honum ásaka stóru
fyrirtækin um vítaverðar sam-
keppnishömlur. 24 stundir skoða
fjarskiptamarkaðinn á Íslandi í
fimmtu grein sinni um neytenda-
markaðinn.
Fleiri númer en íbúar
Þann 5. ágúst 2005 seldi ís-
lenska ríkið 98,8 prósenta hlut
sinn í Símanum og lauk þar með
öllum afskiptum ríkisins af sam-
keppnisrekstri á fjarskiptamark-
aði.
Það sama ár voru Íslendingar
295.864 talsins. Virk farsímanúm-
er hérlendis voru skráð alls
304.001 og því ljóst að Ísland er
með farsímavæddustu þjóðfélög-
um í heimi. Einkafyrirtæki höfðu
komið inn á farsímamarkaðinn
nokkru fyrr til að keppa við Sím-
ann. Þau helstu voru Tal, Íslands-
Íslendingar eru með netvædd-
ustu þjóðum í heimi. Heilu sveit-
arfélögin bjóða upp á svokallaða
heita reiti og þau eru ekki mörg
heimilin á landinu sem ekki eru
nettengd. Þá er Ísland eitt fjórtán
landa í heiminum þar sem virkar
farsímaáskriftir eru fleiri en íbú-
sími og Halló, sem síðan samein-
uðust öll undir merkjum
Vodafone í apríl 2003.
Ráðandi með 61 prósents hlut
Samkvæmt upplýsingum frá
Póst- og fjarskiptastofnun var
markaðshlutdeild ráðandi aðila á
GSM-farsímamarkaði á Íslandi 61
prósent í lok júní á þessu ári.
Sami aðili er með 78 prósenta
markaðshlutdeild í innanlands-
símtölum og 67,6 prósenta hlut í
millilandasímtölum. Þá er hann
með 100 prósenta markaðshlut-
deild í NMT-kerfinu og er eini að-
ilinn hérlendis sem hefur tekið í
notkun þriðju kynslóðar farsíma-
kerfið 3-G. Þessi aðili er Síminn.
Teymi á Vodafone og Sko
Sem stendur keppa tvö önnur
farsímafélög við Símann um hylli
farsímanotenda. Þau heita Voda-
fone og Sko og eru bæði í eigu
sama aðila, Teymis. Stærsti eig-
andi Teymis er Baugur Group sem
á meðal annars Senu, stærsta út-
gefanda innlendrar og erlendrar
tónlistar á Íslandi, en mjög vin-
sælt er að vera með þekkt dæg-
urlög sem símhringingar í símum.
Dægurlögin eru þá í formi MP3-
hringitóna. Í skýrslu samkeppn-
iseftirlitsins vegna samruna Senu
og Dagsbrúnar í fyrra kemur fram
að „Vodafone hafi einstakan að-
gang að íslenskum MP3-hringi-
tónum í samvinnu við D3.“
D3 er í eigu Senu, sem er í eigu
Baugs Group. Eftir að D3 og
Vodafone gerðu með sér sam-
starfssamning um að veita
skemmti- og afþreyingarefni (m.a.
tónlist, kvikmyndum og hring-
itónum) um stafræn dreifikerfi
Vodafone árið 2005 jókst sala á
MP3-hringitónum um 208 pró-
sent.
Þá sýna nýjustu tölur úr
ánægjuvog farsímafyrirtækja að
ánægja viðskiptavina bæði Símans
og Vodafone fari minnkandi.
Samanlögð ánægja þeirra með
farsímafyrirtækin var 66,4 stig ár-
ið 2000. Í ár mælist hún hins veg-
ar 64,2 stig, eða 2,2 stigum lægri
en fyrir sjö árum.
Hægt, dýrt og takmarkað
Í áðurnefndri skýrslu OECD
kemur fram að Ísland sé meðal
þeirra landa sem hafi flestar
breiðbandstengingar við internet
á hverja hundrað íbúa. Gæði
tenginganna eru hins vegar með
því minnsta sem þekkist á meðal
OECD-ríkjanna. Þá er breið-
bandsþjónusta hérlendis sú sjötta
dýrasta innan OECD.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
Póst- og fjarskiptastofnunar, sagði
í 24 stundum 8.nóvember síðast-
liðinn: „Það sem aðgreinir ís-
lenska markaðinn frá flestum öðr-
um í þessari úttekt er að það er
nánast einungis veitt þjónusta á
DSL en ekki með öðrum hætti, til
dæmis ljósleiðara, eins og í flest-
um öðrum löndum.“ Nær allar
tengingar á Íslandi eru DSL-teng-
ingar. Þeim er veitt í gegnum kop-
arlínur sem eru alla jafna í eigu
gamla rótgróna símafyrirtækisins.
Síminn markaðsráðandi
Samkvæmt upplýsingum frá
Póst- og fjarskiptastofnun voru
DSL-tengingarnar á Íslandi
85.280 í lok árs 2006. Þrír aðilar
berjast um hylli neytenda á int-
ernettengingamarkaðinum; Sím-
inn, Vodafone og Hive. Sko hóf
reyndar nýverið sókn inn á þenn-
an markað en engar tölur liggja
fyrir um árangur í þeim efnum.
Þá er Sko sem fyrr segir í eigu
sömu aðila og Vodafone.
Markaðshlutdeild þessara
þriggja aðila liggur ekki nákvæm-
lega fyrir. Í tölum frá Póst- og
fjarskiptastofnun frá árslokum
2006 kemur þó fram að Síminn sé
með yfir 50 prósenta hlutdeild á
þessum markaði og Vodafone og
Hive með undir 30 prósenta hlut.
Samkvæmt upplýsingum frá Hive
er hlutdeild þeirra um 20 prósent
og því má ætla að Vodafone sé
með að hámarki 30 prósenta hlut.
Nákvæmar tölur í desember
Nákvæmar tölur um markaðs-
hlutdeild á fjarskiptamarkaði hafa
til þessa ekki verið birtar. Það
stendur þó til að bæta úr því þar
sem Póst- og fjarskiptastofnun
setti nýverið á fót greiningarsvið
sem er meðal annars ætlað að taka
saman tölur um skiptingu mark-
aðshlutdeildar fyrirtækja á þess-
um markaði og birta með gegn-
sæjum og skýrum hætti. Stefnt er
að því að slíkt verði gert í fyrsta
sinn í desember næstkomandi.
HEFUR ÞÚ ÁBENDINGU?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Síminn og Vodafone
með algjöra yfirburði
Stóru leikendurnir á fjarskiptamarkaði nánast einráðir Fimmta grein 24 stunda um neytendamarkaðinn
Gamli heimasíminn hefur vikið
fyrir nýjum fjarskiptaleiðum.
FRÉTTASKÝRING
Þórður Snær Júlíusson
thordur@24stundir.is
MARKAÐSHLUTDEILD Á GSM-FARSÍMAMARKAÐI
Vodafone/Sko*
39%
Síminn
61%
*Félögin eru bæði í eigu sama aðila. Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun.
Í júní 2007
„Þeir kjósa kyrrstöðu. Kyrrstöðu í
verðlagningu, þjónustu og hraða.
Það er ekki fyrir það að þeim sé
ógnað af aðilum eins og okkur að
þeir bregðast við,“ segir Einar
Kristinn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hive, um keppinauta sína
um hylli íslenskra inter-
netnotenda, Símann og Vodafone.
Klárt samráð í gangi
Einar segir samkeppnis-
umhverfið einkennast af mikilli
fákeppni og tveimur markaðs-
ráðandi fyrirtækjum sem standi
saman gegn því að nýir aðilar
komist inn á markaðinn. Hann er
sannfærður um að samráð eigi
sér stað milli fyrirtækjanna.
„Fyrir það fyrsta þá kemst ekki
hnífurinn á milli þeirra í verð-
lagningu. Þeir fylgjast alltaf að í
verðbreytingum. Það getur varla
verið tilviljun. Þeir eiga síðan
saman HÍN, Hið íslenska núm-
eraflutningsfélag, sem er núm-
eraflutningagagnagrunnur fyrir
allt Ísland. Það þýðir að ef önnur
fyrirtæki en þessi tvö þurfa að fá
númeraflutning eða betur stað-
sett símanúmer þá þarf að sækja
þau í þennan grunn. Það kostar
fjarskiptastofnun hefur verið að
vinna mjög góða vinnu. Eftirlitið
er mun virkara en það var áður
og það er skjótar brugðist við. Við
erum því ánægðir með stofn-
unina sem slíka. Við fylgjumst
með hvernig fjarskiptamarkaðir
þróast erlendis. Þar erum við að
sjá svolítið sömu mynstrin. Í
þeim löndum þar sem gömul fjar-
skiptafyrirtæki sem voru áður í
ríkiseigu eru á markaðinum, og
jafnvel eitt annað stórt til við-
bótar, er eins og að fákeppni ríki.
Þau vilja halda í einhverja þæg-
indastöðu og bjóða ekki mark-
aðinum upp á meira en hentar
þeim.“
uði, hraðinn hefur aukist allt að
þrefalt og það er hægt að fá ótak-
markað niðurhal. Fljótlega eftir
að Hive byrjaði og við fórum að
bjóða upp á ótakmarkað niðurhal
þá voru viðbrögð beggja keppi-
nauta okkar þau að þetta væri
ekki hægt. Það var haft eftir yf-
irmanni annars þeirra í dagblaði
á þeim tíma að þetta væru bara
gylliboð án innihalds. Þeir sögðu
að það væri ekki hægt að bjóða
upp á ótakmarkað niðurhal.“
Sjáum sömu mynstrin erlendis
Einar er mjög ánægður með
opinbert eftirlit með fjar-
skiptamarkaðinum. „Það verður
að segjast eins og er að Póst- og
skiptastofnun ræki hann, enda
opinber eftirlitsaðili. Þetta er
verulega samkeppnishindrandi
atriði. En það er víst af mörgum
slíkum að taka.“
Ætla á farsímamarkaðinn
Einar segir ekki langt að bíða
þess að Hive verði komið inn á
farsímamarkaðinn. „Við erum að
vinna að því og munum ná því.
Síminn hefur verið að beita sam-
keppnishindrandi aðgerðum gegn
því að aðrir aðilar noti far-
símakerfi hans, þótt búið sé að
úrskurða hann skuldbundinn til
að leyfa það vegna markaðs-
ráðandi stöðu fyrirtækisins. En
Síminn beitir alls kyns tækni-
legum hindrunum til að tefja
málin og drepa þeim á dreif. Við
munum hins vegar koma með
GSM-þjónustu hvort sem Síman-
um líkar það betur eða verr.“
Hive hefur skilað miklu
Einar Kristinn er sannfærður
um að innkoma Hive á mark-
aðinn hafi skilað neytendum
mjög miklu. „Internetkostnaður-
inn hefur lækkað að raungildi um
tvö til þrjú þúsund krónur á mán-
peninga. Okkur hefur ekki gefist
kostur á því að gerast aðili að
þessum grunni nema gegn yf-
irverði sem er ekki nokkur rök-
stuðningur fyrir,“ segir Einar
Kristinn.
Hann segir að ekki eigi að reka
grunninn í hagnaðarskyni. „Samt
er verið að krefja okkur um sér-
stakar greiðslur til að komast inn
í hann. Það eru greiðslur sem
Síminn og Vodafone fá. Okkur
finnst það mjög óeðlilegt að tvö
fyrirtæki á fjarskiptamarkaði eigi
þennan grunn og hleypi að hon-
um eftir hentugleika. Okkur þætti
miklu nær að Póst- og fjar-
MARKAÐSHLUTDEILD
eftir fjölda Internettenginga
Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun
Síminn yfir 50%
Vodafone undir 30%
Hive undir 30%
Vodafone og Síminn kjósa
kyrrstöðuna á markaðinum
Einar Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri Hive á Íslandi
22 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir