24 stundir - 16.11.2007, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Einstaklingur! vertu nú
hraustur .
Jónas Hallgrímsson
verði háð? Er það nóg að taka
lífið eins og það er og setja það
Leikhópnum Sokkabandinu er
mikið niðri fyrir á Litla sviði
Borgarleikhússins um þessar
mundir. Þar hefur hann sett upp
mikið karnival sem sækir inn-
blástur sinn í íslenska fjölmiðla-
sirkusinn. Leikararnir hrista á sér
brjóstin, dilla sér og jafnvel æla í
beinni á meðan hrópuð eru slag-
orð sem gætu verið ættuð úr
glanstímaritinu Séð & heyrt –
„Hetja!“ „Pabbi gaf jeppa!“ „Sex-
tíu milljónir!“ Eitt aðalsöng-
númer sýningarinnar snýst um –
hvern annan? – hundspottið
Lúkas.
Hversu mikið þarf að matreiða
raunveruleikann þannig að hann
upp á svið til þess að í því sé
broddur? Leikhópurinn Sokka-
bandið svarar þeirri spurningu
játandi með Hér & nú. Und-
irrituð er ekki jafnsannfærð. Þeg-
ar ádeilan á froðu fjölmiðlanna
felst í því að fylla stórt svið af
sápufroðu er eins og eitthvað
vanti.
Spjótin fljúga í allar áttir. Bæði
að yfirborðsmennskunni í fjöl-
miðlum, en ekki síður að því
sem mætti kalla fjölmiðlaein-
lægni. Þau hæðast að blogginu,
þau hæðast að sjúklingum sem
koma í sjónvarpið og segja sögu
sína, þau hæðast að konunni sem
er yfir snyrtivörudeild Hagkaupa
í Njarðvík og finnst gaman í
vinnunni. Skilaboðin eru: þið er-
uð öll lúðar.
Engu að síður náði leikhóp-
urinn öðru hverju að fanga ein-
hvern tíðaranda þannig að áhorf-
endur brosa út í annað og kinka
kolli – einmitt svona er heim-
urinn. Það eiga allir að vera
hressir, það eiga allir að vera sól-
brúnir og sætir. Gerum lífið
skemmtilegra!
Hér og nú gefur áhorfendum
leyfi – ætlast raunar til þess – að
þeir hlæi að krabbameinssjúka
fólkinu sem nágrannar þeirra
gráta yfir í sjónvarpinu. Svo
skulu áhorfendur klappa í takt
við söng um að þeir séu vitleys-
ingar. Ég veit ekki hversu ágætt
það er. Líklega er það tilraun af
hálfu leikhópsins um hvað er
hægt að teyma fólk út í, sem
þeim finnst eflaust heppnast með
miklum ágætum.
Revían getur verið ágætur spé-
spegill og það er góðra gjalda
vert að ætla að spegla nútímann í
leikhúsunum – en speglun Hér &
nú er bara ekki nægilega skörp
til að vekja áhuga eða kátínu.
Í HNOTSKURN
Tveggja tíma löng síbylja um það
hvað allur þorri almennings er
vitlaus.
Allt í beinni
Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson
Tónlistarstjóri: Hallur Ingólfsson
Leikmynd: Kristján Björn Þórðarson
Búningar: Rannveig Kristjánsdóttir
Ljósahönnun: Halldór Örn
Óskarsson og Kári Gíslason
Leikarar: Arndís Hrönn Eg-
ilsdóttir, Elma Lísa Gunnars-
dóttir, Hjálmar Hjálmarsson,
María Heba Þorkelsdóttir
og Stefán Hallur
Stefánsson
Hér og nú
Sokkabandið í Borgarleikhúsinu
Eft ir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@24stundir.is
LEIKLIST
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
Í dag eru 200 ár liðin frá fæðingu
Jónasar Hallgrímssonar. Páll Vals-
son er höfundur stórgóðrar ævi-
sögu um Jónas sem hlaut á sínum
tíma Íslensku bókmenntaverð-
launin. Ævisagan er nú komin út í
kilju. En af hverju er Jónas svo ást-
sælt skáld? „Einfaldasta svarið er af
því hann var svo gott skáld!“ segir
Páll Valsson. „En ég held að Jónas
njóti þess líka í okkar huga að hann
er ekki bara fjölhæft skáld með
marga strengi á sinni hörpu heldur
er hann líka svo margbrotinn og
spennandi maður; frumlegur hug-
sjóna- og framfaramaður sem læt-
ur mikið til sín taka en er jafnframt
breyskur og glímir við sína djöfla –
með öðrum orðum mannlegur.
Hann verður mjög fljótt eins konar
táknmynd hins góða og fagra í
bókmenntum okkar og menningu
– sem hefur farið illa með margt
skáldið. Um leið og þau eru sett á
stall fara af stað ýmsir kraftar að
mola það niður, en Jónas lifir þetta
allt af, bæði lof og last. Sem er langt
í frá sjálfsagt og það eru ekki öll
svokölluð þjóðskáld sem lifa jafn-
góðu lífi og Jónas. Langflest hinna
norrænu stórskálda sem hyllt voru
á dögum Jónasar eru til dæmis lítið
sem ekkert lesin í dag. Og þetta er
af því Jónas er svo gott skáld og
minning hans okkur hugþekk. Ein-
hver sagði að dálæti íslensku þjóð-
arinnar á Jónasi Hallgrímssyni væri
eitt það fallegasta við þjóðina og
sýndi að hún væri ekki dauð úr öll-
um æðum.“
Mikill húmoristi
Hvað einkennir skáldskap hans?
„Frábær tök á formi, óviðjafn-
anleg orðsnilld og svo orti hann
jöfnum höndum frá hjartanu og
heilanum. Það er mjög sjaldgæft að
þetta fari allt saman.“ Nú skrifaðir
þú verðlaunaævisögu um hann,
sem komin er út í kilju. Hvernig
maður var hann? Var hann eins
ógæfusamur og stundum er látið í
veðri vaka?
„Þetta ógæfutal byrjar strax eftir
slysalegt fráfall hans, sem var auð-
vitað mikil ógæfa. Grímur Thom-
sen, sem þekkti hann vel, kallar
hann „óskabarn Íslands“ í minn-
ingarkvæði ári eftir andlátið, en
segir hann líka hafa verið „út á lífs-
ins eyðihjarn/ örlagasvipum rek-
inn“. Jóhann Sigurjónsson bætir
svo um betur og kallar hann „óska-
barn ógæfunnar“ sem er ansi
dramatískt og auðvitað skáldaleyfi.
Auðvitað er ýmislegt til í þessu, og
þarna eru menn mikið að harma
tjón Íslands, en ég held að Jónas
hafi um margt verið gæfumaður.
Þótt hann berjist í bökkum lengi
vel, fátækur og heilsuveill, þá lifir
hann auðugu innra lífi og bréf hans
og skrif votta ótvírætt um mikla og
sanna gleði enda var Jónas mikill
húmoristi.“
Á alltaf erindi
Á Jónas eitthvert sérstakt erindi
við okkur í dag?
„Hann á alltaf erindi því Jónas er
á svo margan hátt samtímamaður
okkar. Glíma hans við veröldina er
að svo mörgu leyti hliðstæð helstu
viðfangsefnum sem við stöndum
frammi fyrir og erum að brjóta
heilann um. Jónas var til dæmis í
senn mikill vísindahyggjumaður
og svo innblásinn af þjóðernis-
hyggju og ættjarðarást. Lungann af
sinni stuttu ævi situr hann yfir því
verkefni að reyna að flétta saman,
bæði í skáldskap og öðrum skrif-
um, ást á náttúru Íslands, sem
hann þekkti betur en nokkur sam-
tíðarmaður, og svo þá hugsjón sína
að stuðla að framförum á Íslandi
með hjálp vísindanna. Hann vill í
krafti vísindanna efla framfarir á
öllum sviðum þjóðlífsins, en jafn-
framt að menn gefi gaum fegurð
náttúrunnar, njóti hennar og láti
hana auðga líf sitt. Þetta er í raun
nákvæmlega sama glíman og við
Íslendingar erum að fást við núna;
eigum við að vernda náttúruna eða
virkja?
Ég hef haldið því fram að þessi
meginhugsjón Jónasar Hallgríms-
sonar sé eitt brýnasta viðfangsefni
samtímans.“
Tvö hundruð ár frá fæðingu listaskáldsins góða
Táknmynd hins
góða og fagra
„Frábær tök á formi,
óviðjafnanleg orðsnilld
og svo orti hann jöfnum
höndum frá hjartanu og
heilanum,“ segir Páll
Valsson, ævisagnahöf-
undur Jónasar, um helstu
einkenni á skáldskap
skáldsins.
Páll Valsson. „Einhver sagði að dá-
læti íslensku þjóðarinnar á Jónasi
Hallgrímssyni væri eitt það falleg-
asta við þjóðina og sýndi að hún
væri ekki dauð úr öllum æðum.“
➤ Jónas Hallgrímsson fæddist áHrauni í Öxnadal árið 1807 og
lést á sjúkrahúsi í Kaup-
mannahöfn árið 1845, aðeins
38 ára gamall.
➤ Um hann sagði Halldór Lax-ness: „Það er skoðun mín að
vér Íslendingar höfum aldrei
átt skáld betra en Jónas Hall-
grímsson.“
MAÐURINN
Í dag, föstudag, verður haldin
hátíðarsamkoma í Þjóðleik-
húsinu undir heitinu „Þar
sem háir hólar“. Í dagskrá há-
tíðarsamkomunnar verða flutt
verk Jónasar Hallgrímssonar í
bundnu máli og lausu og tón-
list tengd kvæðum hans, og
minning hans heiðruð með
ýmsum hætti af fjölmörgum
listamönnum.
Samantekt og leikstjórn er í
höndum Sveins Einarssonar,
en umgjörð hátíðarinnar
skapar Vignir Jóhannsson.
Menntamálaráðherra Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
flytur ávarp og afhendir verð-
laun Jónasar Hallgrímssonar á
degi íslenskrar tungu.
Til heiðurs
Jónasi
AFMÆLI Í DAG
Tíberíus keisari í Róm,
42. f. Kr.
Paul Hindemith
tónskáld, 1895
Dagskrá með lögum Atla
Heimis Sveinssonar við ljóð
Jónasar Hallgrímssonar verð-
ur á laugardaginn 17. nóv-
ember í Salnum klukkan
17.00. Fífilbrekkuhópurinn
flytur.
Hópinn skipa: Hulda Björk
Garðarsdóttir sópran, Eyjólf-
ur Eyjólfsson tenór, Sigrún
Eðvaldsdóttir, fiðla, Sigurður
Ingvi Snorrason, klarínetta,
Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, píanó og Hávarður
Tryggvason, kontrabassi.
Sögumaður er Arnar Jónsson
leikari.
Fífilbrekka
gróin grund …