24 stundir - 16.11.2007, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@24stundir.is
„Við erum með jólaferðir til
fjölda borga og það er mikið
bókað hjá okkur,“ segir Helga
Eysteinsdóttir hjá Iceland Ex-
press. „Þessar ferðir rjúka út.
Þetta hefst upp úr miðjum nóv-
ember og stendur fram í desem-
ber.
Svo er alltaf aukning á versl-
unarferðunum, fólk fer mikið til
bæði London og Kaupmanna-
hafnar til að versla. Það er bæði
mikið um það að saumaklúbbar
taki sig saman í þessar ferðir og
makarnir fá oft að fljóta með.
Svo eru pör líka að fara saman,
þannig að það er allur gangur á
þessu.“
Hópar fara saman
„Það eru margir sem fara í
október og nóvember sérstaklega
til Ameríku og svo er auðvitað
eitthvað í desember,“ segir Kári
Gunnlaugsson, aðaldeildarstjóri
tollgæslunnar á Suðurnesjum.
„Fólk er mikið að fara í hópum
og saumaklúbbar og vinnustaðir
taka sig saman. Það er misjafnt
hversu mikinn farangur fólk
kemur með heim. Það eru auð-
vitað einhverjir sem versla mikið
þegar þeir fara til útlanda en
þetta er alls ekkert meiri jóla-
verslun en það hefur verið síð-
ustu ár. Mér finnst það frekar
minna núna ef eitthvað er. Að
vísu er dollarinn mjög hagstæður
núna þannig að maður verður
meira var við að það sé verið að
fara í stuttar ferðir til Ameríku
en það er þá bæði til að hafa það
huggulegt og versla. Að stórum
hluta er fólk bara að lyfta sér að-
eins upp en Íslendingar versla
auðvitað alltaf eitthvað líka. Ég
get ekki séð að fólk sé að kaupa
eitthvað sérstakt erlendis, ekki
nema kannski föt og leikföng fyr-
ir jólin.“
Lítið vandamál
Ekki er meira um að áfengi sé
keypt í Fríhöfninni á þessum
tíma en öðrum að sögn Kára.
„Fólk reynir almennt ekki að
kaupa meira en leyfilegt er. Það
veit hvað má kaupa og það er
mjög sjaldgæft að það sé að
brjóta þær reglur.“
Kári segir ekki mikið vandamál
skapast í kringum jólakaup Ís-
lendinga í útlöndum. „Við erum
nú ekkert mjög uppteknir við
það á þessum tíma að stöðva fólk
sem hefur keypt of mikið. Við
tökum auðvitað stikkprufur en
við erum ekki með neinar rassíur
enda eru önnur og mikilvægari
mál sem þarf að fylgjast með.“
24 stundir/Júlíus
Jólaferðir Fjöldi Íslendinga fer til útlanda fyrir jólin.
Margir halda utan til þess að fá jólagjafir á góðu verði
Fjöldi Íslendinga versl-
ar erlendis fyrir jólin
Íslendingar ferðast mikið
fyrir jól og er þá helst far-
ið í stuttar borgarferðir
þar sem upplyftingu og
jólaverslun er slegið sam-
an. Sumir gera öll sín inn-
kaup fyrir jólin úti en aðr-
ir fara frekar til að njóta
jólastemningarinnar.
Á mörgum heimilum þarf að
pakka inn fjölda gjafa fyrir að-
fangadagskvöld og þykir mörgum
það yfirþyrmandi verkefni að
koma öllum gjöfunum í gjafa-
umbúðir. Þá er annað hvort að
láta pakka inn fyrir sig í þeim
verslunum sem upp á það bjóða
eða að gera gjafapökkun að
skemmtilegum hluta af und-
irbúningi jólanna og leyfa börn-
unum að hjálpa til.
Kaupið fallegan pappír og
skrautlega borða og dundið ykk-
ur við að pakka inn.
Að pakka inn fyrir jólin
Yndisleg saga um
sannan anda jólanna
Júlíus Júlíusson (www.julli.is)
eftir Júlíus Júlíusson
Gallerí Fold · Rauðarárstíg og KringlunniRau›arárstígur 14, sími 551 0400 · Kringlan, sími 568 0400 · www.myndlist.is
Íslensk list er góð gjöf
Opið í Galleríi Fold á Rauðarárstíg
laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16
· · ·
Næsta listmunauppboð
2. desember
Erum að taka á móti verkum núna
Kristín Jónsdóttir
Haraldur BilsonGunnella
Án skaðlegra efna • Fitu- og kýsilleysandi
Húðvænt • Náttúrulegt • Mjög drjúgt
Hentar vel til þrifa á blöndunartækjum, vöskum,
ryðfríu stáli, áli, kopar, messing, gleri, plasti,
lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulíni ofl. ofl.
Fix töframassinn
Hreinsar, fægir og verndar samtímis.
Svampur
fylgir með
Ótrúlegur
árangur
Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Tengi - Melabúðin - Verkfæralagerinn - Eyjatölvur -
Miðstöðin Vestmannaeyjum - Pottar og prik Akureyri - Rafsjá Sauðárkróki - Áfangar Keflavík -
Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Verslanir Rönning -
Litabúðin Ólafsvík - Tengi - Byggt og búið - SR byggingavörur Siglufirði - Núpur Ísafirði.
Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir