24 stundir - 16.11.2007, Qupperneq 30
Ívar Örn Sverrisson leikari
viðurkennir fúslega að kona
hans sé duglegri að baka en seg-
ist þó vera sérfræðingur í amer-
ískum pönnukökum. „Mér
finnst rosalega gott að gera
pönnukökur með jarðarberjum,
banana, kíví og hlynsírópi á
morgnana. Svo er hægt að gera
þetta smá jólalegt með því að
strá flórsykri yfir. Mér finnst
gaman að gera mér dagamun
stundum og bjóða fjölskyldunni
upp á nýbakaðar pönnukökur á
morgnana,“ segir Ívar sem vill
alltaf hafa huggulegt í jólamán-
uðinum. „Ég er duglegur að
borða kökur í desembermánuði,
að minnsta kosti duglegri en
aðra mánuði. Reyndar er ég með
frekar einfaldan smekk og finnst
sörur og súkkulaðibitakökur
bestar.“ Hér að neðan er upp-
skrift Ívars að pönnukökunum
góðu en uppskriftin er hæfileg
fyrir tvo fullorðna.
2 bollar hveiti
½ bolli sykur, rúmlega
1 tsk. lyftuduft
½ tsk. salt
hnífsoddur af matarsóda
1 egg
2 dropar vanilludropar
Hráefnunum er blandað sam-
an með mjólk en varist að gera
deigið of þunnt. Panna er hituð
upp. Notið ekki mikla olíu á
pönnuna, best er að hafa hana
þurra. Hellið hálfri ausu af deigi
á miðju pönnunnar. Um leið og
loftbólur hafa myndast í pönnu-
kökunni má snúa henni við.
Uppáhaldsjólakakan mín?
Pönnukökur á morgnana
Ívar Örn Sverrisson:
„Reyndar er ég með frekar ein-
faldan smekk og finnst sörur og
súkkulaðibitakökur bestar.“
30 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Aðventukransar eru ómissandi
hluti af jólahaldinu og í hvert sinn
sem kveikt er á nýju kerti er biðin
eftir jólunum styttri. Hilda Allans-
dóttir, blómaskreytir hjá Blóma-
vali, segir að það hafi minnkað að
fólk geri sjálft aðventukransa.
„Það er mjög mikið um að fólk
kaupi tilbúna aðventukransa þar
sem fólk hefur ekki þann tíma
sem það hafði áður í einhvers
konar föndur. Vissulega er alltaf
eitthvað um að fólk versli til að
búa til kransa og það er hægt að
búa til aðventukrans á einfaldan
hátt.“
Svart ennþá vinsælt
Jóhanna Margrét Hilmarsdóttir,
deildarstjóri blómadeildar Garð-
heima, tekur undir orð Hildu og
segir að ef fólk sjái einfaldar hug-
myndir að aðventukrönsum sé
efni keypt en annars séu helst
keyptir tilbúnir kransar. „Þessir
hefðbundnu þungu kransar hafa
verið á undanhaldi og það eina
sem þarf í rauninni er diskur, kerti
og eitthvert skraut í kring. Köngl-
arnir eru vinsælir í ár en þeir hafa
lítið verið notaðir undanfarin ár.
Það er kannski ekki síst vegna þess
að brúni liturinn er vinsæll í
skreytingum í ár ásamt hvítu,
gylltu, fjólubláu og svörtu. Svartur
var mjög vinsæll í fyrra og er það
ennþá enda hentar hann vel inn á
stílhrein heimili.“ Hilda tekur
undir að svartur sé ennþá vinsæll
en segir það sérstaklega vera hjá
yngri kynslóðinni – hinum eldri
finnist svartur oft óhugnanlegur
jólalitur. Erna Hrönn Herberts-
dóttir hjá IKEA segir að oftast geti
fólk notað það sem til er heima í
gerð aðventukransa. „Oft er nóg
að bæta við kertum og greni og
nota ímyndunaraflið.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ikea
Fjólublár og gylllt eru aðallitirnir í þessum jólalega krans.
Fljótlegur og fallegur aðventukrans
Þungir aðventukransar
á undanhaldi
Það líður að því að lands-
menn setji upp aðventu-
kransa enda aðventan á
næsta leiti. Þótt krans-
arnir séu veglegir er
sjaldan margra klukku-
stunda vinna á bak við
þá, eins og var áður fyrr.
24 Stundir/Kristinn Ingvarsson
Blómaval
Rauður jólakrans þar sem grænt greni er áberandi.
24 Stundir/Kristinn Ingvarsson
Blómaverkstæði Binna
Hefðbundinn krans þar sem fjólublár ræður ríkjum
24stundir/Ómar
Garðheimar
Fallegur rauður krans með könglum og seríu.
Yndislegar og
notarlegar vörur
Frábærar jólagjafir
Lavenderbaðið og
húðolían hefur róandi og
slakandi áhrif.
Cítrusbaðið
og húðolía
hefur frískandi
og örvandi áhrif
Villirósarsturtusápa og
húðmjólk hefur róandi og
rómantísk áhrif
Útsölustaðir Weleda:
Heilsuhúsin, Fræið
Fjarðarkaupum,
Maður lifandi, Heilsuhornið
Akureyri, Blómaval, Lyfja
og Apótekið, Lyf og heilsa
og Apótekarinn, Apótek
Vesturlands, Sólarsport
Ólafsvík, Femin.is,
Kaup.is, Hagkaup, Lyfjaval,
Barnaverslanir og sjálfstætt
starfandi apótek um allt land.
www.weleda.is
GLÆSIBÆ S: 553 7060
MJÓDDINNI S: 557 1291
www.xena.is
Stærðir yfir kálfa: S-M-L-XL-XXL
F
rá
b
æ
rt
ú
rv
a
l
a
f
s
k
ó
m
&
t
ö
s
k
u
m
Mjóddinni & Glæsibæ
Sérverslun með
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir
stundir