24 stundir - 16.11.2007, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
www.rainbow.is
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@24stundir.is
„Ég kunni vel við mig í sólinni og
hitanum um jólin. Þetta er auðvit-
að allt öðruvísi en hér heima, við
höfðum líka jólin með bandarísku
sniði þannig að við opnuðum
pakkana á jóladagsmorgun,“ segir
Halla. „Tengdafjölskylda mín leigði
hús á Flórída en þangað komum
við rétt fyrir jól og vorum fram yfir
áramót.“
Ekki mjög hátíðlegt
„Jólahaldið úti fannst mér mjög
ólíkt því sem er heima. Á að-
fangadag var fólk í búðum þannig
að það var ekkert sérstaklega hátíð-
legt, við fórum til dæmis í stóra
verslunarmiðstöð þann dag. Það
var kannski helst að finna fyrir há-
tíðleikanum á jóladagsmorgun
þegar við opnuðum pakkana. Það
er auðvitað aðaldagurinn hjá
Bandaríkjamönnum. Á jóladag
borðuðum við svo kalkún í hádeg-
inu og vorum með allt meðlæti að
bandarískum sið eins og sætar
kartöflur og trönuberjasósu. Það
var æðislega gott.“
Gamlársdagur í sundlauginni
Halla eyddi gamlársdegi í vatns-
rennibrautagarði. „Sá dagur var
auðvitað ólíkur öllu því sem ég er
vön að heiman. Það er heldur ekki
mikið um flugelda á gamlárskvöld
en við gátum keypt einhvers konar
flugelda, á okkar mælikvarða voru
þetta nú bara blys. Ég held líka að
það sé bannað að vera með flug-
elda þarna úti. Það er allt svo þurrt
og því mikil eldhætta.
Ég saknaði þess þó ekki mikið að
vera ekki heima á Íslandi. Það sem
ég saknaði kannski helst var að
vera ekki með foreldrum mínum
og fjölskyldu þessi jól en það var
engu að síður mjög skemmtilegt og
ég ætla að fara aftur næstu jól.“
Góð hvíld að komast burtu
Aðspurð segir Halla ferðina hafa
verið góða hvíld frá jólastressinu.
„Ég gat farið út og hvílt mig eftir
mikla törn hérna heima þannig að
þetta ferðalag var kærkomið. Það
felast líka ákveðin þægindi í því að
ráða tíma sínum sjálf og vera ekki
bundin af því að mæta í jólaboð þó
að það geti að sjálfsögðu verið
gaman. En um jólin langar mann
líka til þess að slappa af og það er
ekkert alltaf hægt heima.
Þannig að ég get vel hugsað mér
að fara af og til og dvelja erlendis
um jólin, ekkert endilega þó í sól-
inni. Ég held að það sé líka mjög
huggulegt að fara á skíði um jólin.
Þá er maður líka kominn í um-
hverfi sem er líkara því sem er
heima og kannski aðeins jólalegra
en að vera í sól og miklum hita á
aðfangadagskvöld.“
Jólahald að bandarískum sið á Flórída
Kunni vel við sig á
sólarströnd um jólin
➤ Flórídaferðir eru vinsælar hjáÍslendingum en eins hafa
skíðaferðir um jólin færst í
aukana.
➤ Í fyrra dvöldust um 3.000 Ís-lendingar á Kanaríeyjum um
jólin.
➤ Jólahald erlendis hefur aukistenda á fjöldi Íslendinga íbúð-
ir á Spáni eða Flórída.
ERLENDIS UM JÓLINFjöldi Íslendinga dvelur
erlendis um jólin og hef-
ur hingað til verið vinsæl-
ast að fara í sólina og
flatmaga á ströndinni.
Halla Katrín Kristjáns-
dóttir dvaldi á Flórída um
jólin og snæddi kalkún á
jóladagsmorgun.
Halla Katrín Kristjánsdóttir Eyddi
jólunum í Flórída og segir ekki hafa ver-
ið mjög hátíðlegt á aðfangadag þar
sem flestir eyddu tímanum í versl-
unarmiðstöðvum.
24 stundir/
Piparkökubakstur og pipar-
kökuskreytingar eru fastir liðir í
jólaundirbúningi margra fjöl-
skyldna.
Oftast er þetta sérstaklega gert
fyrir börnin en staðreyndin er sú
að fæst börn hafa næga þol-
inmæði til þess að halda út allan
þann tíma sem baksturinn getur
tekið. Þá er jafnvel sniðugra að
kaupa tilbúnar piparkökur og
leyfa börnunum að mála þær í
skemmtilegum litum. Sumum
finnst nauðsynlegt að baka pip-
arkökurnar sjálfir fyrir jólin en
þá er hægt að gera litla skammta
eða frysta hluta af deiginu og
baka aðeins litla skammta í einu.
Skreytið svo kökurnar með
flórsykri sem blandaður er með
matarlit og búið til litríkar kök-
ur.
Keyptar og skreyttar kökur
Ný sending af glæsilegum
undirfatnaði frá Vanity
Fair fyrir allar konur
Verð á haldara 4.990
Verð á buxum 1.990
dÚtsölustaðir: Esar Húsavík, Snyrtivöruverslunin Nana Hólagarði, Heimahornið Stykkishólmi,
Smart Vestmannaeyjum, Efnalaugin Vopnafirði, Pex Reyðarfirði
Opnunartími - Mán–fös 11-18 -Lau 11-14
Hamraborg 7 Kópavogi Sími 544 4088 www.ynja.is
Jón Halldór Bjarnason Gullsmíðameistari
Opið Mán - fös 09-18 • lau 11-14 • Strandgötu 37 - 220 Hfj
Sími 565 4040 nonni1949@simnet.is
www.lovedsign.is • www.nonnigull.is
Mikið úrval af glæsilegum trúlofunarhringum