24 stundir - 16.11.2007, Síða 36

24 stundir - 16.11.2007, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@24stundir.is Leifur Kolbeinsson, matreiðslu- maður og eigandi La Primavera, skrifar bókina Ítalskir réttir Hag- kaupa. Í bókinni eru um tvö hundr- uð uppskriftir og Leifur segir að bókin sé byggð upp á einföldum ítölskum mat. „Þetta er einföld matargerð sem nánast hver sem er getur gert. Réttirnir í bókinni eru réttir sem við höfum verið með á La Primavera í gegnum tíðina og þeir kúnnar sem hafa verið hjá okkur ættu því að þekkja einhverja rétti,“ segir Leifur og viðurkennir að vissulega leynist einhver leyndarmál í bókinni. „Það er nauðsynlegt að gefa líka en ekki bara þiggja.“ Heilög stund Leifur segist eiga í erfiðleikum með að velja sína uppáhalds- uppskrift úr bókinni, enda séu þær allar mjög góðar. „Það sem er eft- irsóknarvert við ítalska matargerð er fyrst og fremst hugsjónin, að matseldin sjálf sé heilög stund. Auk þess byggja Ítalir fyrst og fremst á því að vera með ferskt hráefni og einfaldan mat. Þeir eru því ekki að blanda of mörgu saman.“ Hráefni frá Ítalíu Leifur bíður spenntur eftir að sjá hvort Ítalskir réttir eigi eftir að verða metsölubók, eins og fyrri Hagkaupabækur. „Það á eftir að koma í ljós. Hagkaup leggja orðið mikla áherslu á hráefni frá Ítalíu og margt af því er hin besta vara. Í bókinni nota ég ekki eingöngu hrá- efni frá Hagkaupum en þó með,“ segir Leifur sem byrjaði að læra kokkinn sextán ára gamall. „Ég hef lengi haft áhuga á matseld og alltaf þótt gott að borða. Sumir hafa ekki lyst á matnum þegar þeir eru búnir að standa lengi við eldamennsku en það er ekki þannig með mig.“ Leif- ur lætur fylgja með eina ljúffenga uppskrift úr bókinni. Ofnbakaður skötuselur með chili og parmesanosti  800 g skötuselur 120 g parmesanostur 2 stk. rauður chili-pipar ólífuolía Maldon-salt pipar safi úr einni sítrónu Stillið ofninn á 220 gráður, hreinsið skötuselinn og skerið í um 100 g steikur. Rífið parmesanostinn fínt, fræ- hreinsið og saxið chili-piparinn. Blandið parmesanosti og chili sam- an í skál. Steikið fiskinn í ólífuolíu á teflonhúðaðri pönnu við frekar mikinn hita en einungis í mjög stuttan tíma, um eina mínútu á hvorri hlið. Kryddið með salti og pipar og kreistið sítrónusafa yfir. Veltið fiskinum upp úr ostablönd- unni og setjið í eldfast mót. Eldið fiskinn í ofni í 3-5 mín. eða þar til hann er orðinn fallega gyllt- ur. Eigandi La Primavera skrifar bók um ítalska rétti Einfaldir ítalskir réttir ➤ La Primavera er ítalskur veit-ingastaður í miðbæ Reykja- víkur. ➤ La Primavera hefur verið ímiðbænum í ellefu ár. ➤ La Primavera er nútímalegurveitingastaður sem sameinar matreiðsluhefðir. LA PRIMAVERA Matreiðslubækur Hag- kaupa hafa verið á met- sölulista fyrir jólin und- anfarin ár. Það verður varla undantekning á því í ár en þá kemur út bókin Ítalskir réttir Hagkaupa. Leifur Kolbeinsson „Það sem er eftirsókn- arvert við ítalska mat- argerð er fyrst og fremst hugsjónin, matseldin sjálf er heilög stund.“ 24stundir/Golli Evu Dögg Sigurgeirsdóttur, markaðsstjóra Smáralindar, finnst ómissandi að baka piparkökur og skreyta í jólaundirbúningnum. „Ég er reyndar mjög sniðug og kaupi svona Kötluduft. Mér finnst piparkökur ekkert sér- staklega góðar en aðalatriðið er að setjast niður og skreyta þær með krökkunum,“ segir Eva Dögg sem er byrjuð á jólaund- irbúningnum. „Ég er næstum því búin að kaupa allar jólagjafir. Ég hef alltaf verið að ljúka und- irbúningnum korter í jól en ég hugsa þetta öðruvísi núna og vil bara ljúka þessu sem fyrst. Það er gott að geta notið síðustu dag- anna fyrir jól í faðmi fjölskyld- unnar,“ segir Eva Dögg sem er algjört jólabarn. „Ég hef bæði búið í Bandaríkjunum og Bret- landi og finnst því afar mikilvægt að baka amerískar smákökur fyr- ir jól og helst enska jólaköku, þótt ég svindli nú stundum á ensku jólakökunni og kaupi hana.“ Amerískar smákökur 1 bolli smjörlíki 1 bolli sykur 1 bolli púðursykur 2 egg 1 tsk. vanillusykur 2 bollar hveiti 2½ bolli haframjöl ½ tsk. salt 2 tsk. lyftiduft 1 tsk. matarsódi 1 bolli muldar valhnetur (ekki of smátt) ½ bolli kókosmjöl 200 g brytjað Síríus-súkkulaði (ekki of smátt) Þeytið saman smjörlíki, sykur og púðursykur. Setjið síðan eitt og eitt egg í einu út í. Blandið þurrefnum saman og setjið smám saman út í hræruna og að lokum súkkulaði, kókosmjöl og hnetur. Setjið með teskeið á ofn- plötu klædda smjörpappír. Bakið við 190°C í 10 mín. í miðjum ofni. Uppáhaldsjólakakan mín? Jólalegt að skreyta piparkökur Jólabarnið Eva Dögg Sigurgeirs- dóttir. Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni Auglysingasimi Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is konan 27.nov S er b la d 2 4 s tu nd a

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.