24 stundir - 16.11.2007, Blaðsíða 38
Húsgagnaverslunin Línan
flutti nýlega í nýtt húsnæði og er
nú til húsa í Bæjarlind 6 í Kópa-
vogi.
„Línan er flutt á nýjan stað og
höfum við breytt áherslunum
aðeins,“ segir Hrund Kristjáns-
dóttir, eigandi verslunarinnar.
„Við erum ekki lengur með rúm
og barnahúsgögn þannig að það
er meira pláss fyrir sófa og borð-
stofuhúsgögn.“
Búðu til þinn eigin sófa
Í Línunni er mikið úrval af
húsgögnum fyrir heimilið sem
og púðar, rúmteppi og speglar
svo eitthvað sé nefnt.
„Við höfum tekið inn nýj-
ungar frá þessum fyrirtækjum
sem við höfum verið með og er-
um með mikið og gott úrval. Svo
koma inn einhver ný fyrirtæki
fyrir jólin.
Viðskiptavinir okkar geta
hannað sinn eigin sófa. Þá eru
valdar ákveðnar einingar sem
passa best í það rými sem sófinn
á að standa í og svo er áklæðið
valið sem og armar og fætur
þannig að útkoman getur verið
mjög misjöfn eftir því og allir
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Enda hefur þetta verið rosalega
vinsælt og mikið pantað af sóf-
um sem eru þá sérsmíðaðir er-
lendis.
Hnotan vinsælust
Að sögn Hrundar er mikið
tekið af borðstofuborðum. „Það
er gjarnan þannig fyrir jólin, fólk
vill aðeins breyta til. Við erum
líka með mikið úrval af borð-
stofustólum sem við setjum fram
á skemmtilegan hátt í búðinni.
Hnotan hefur verið mjög sterk
í borðunum og mikið tekið af
stækkanlegum borðum úr þeim
viði og svo hefur verið mikið tek-
ið af leðurklæddum stólum,
stóllinn er þá allur leðurklædd-
ur. Mest er tekið af brúnu og
svörtu.
Þannig að það er nóg að gera
fyrir jólin. Við erum með góðan
sýningarsal hér í Bæjarlindinni
og allt sem er hér í búðinni fyrir
utan sérsmíðuðu sófana eru
vörur sem fólk getur fengið af-
hent með dags fyrirvara eða
samdægurs.
Mikið tekið af borðstofuborðum fyrir jólin
Sérhannaðir sófar vinsælir á heimilið
»KYNNING
38 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
um bréfum sem sett eru í öll
kort. Segið hvað hefur drifið á
daga fjölskyldunnar í stuttu
máli.
Bakað í rólegheitum
Smákökubakstur er hluti af
jólahaldi margra en enginn ætti
þó að að stressa sig á því að
baka fjölda sorta enda hægt að
fá fyrirtaks kökur í flestum versl-
unum, en þó er alltaf gaman að
baka eitthvað fyrir jólin þó það
sé ekki nema til þess að fá smá-
kökuilminn á heimilið.
Nú er líka tími til þess að setj-
ast niður og ákveða hvaða sort
verður bökuð þetta árið og eins
er tilvalið að setjast niður með
kaffibolla við kertaljós og fletta
matreiðslubókum og prófa jafn-
vel einhverjar nýjar og spenn-
andi sortir. Smákökudeig geym-
ist vel í frysti og því er um að
gera að skella í eins og eina sort
þegar tími gefst og frysta deigið.
Hvetjið fjölskyldumeðlimi til
þess að taka þátt í bakstrinum
enda verður verkið mun auð-
veldara fyrir vikið.
Um þetta leyti er einnig ráð
að panta jólaklippinguna ef ekki
er búið að því .
Ekki láta jólagjafakaupin bíða
fram á síðasta dag. Það er ekki
aðeins hrikalega þreytandi að
hlaupa á milli verslana á Þor-
láksmessu heldur vega slík út-
gjöld þungt í pyngju margra á
einum og sama mánuðinum.
Það er aldrei of snemmt að hefja jólaundirbúninginn
Vertu tímanlega fyrir jólin
➤ Útdeildu verkefnum á allafjölskyldumeðlimi, þá verða
jólaverkin auðveldari.
➤ Ekki stressa þig á því semskiptir ekki máli. Það breytir
engu þó að allir skápar séu
ekki hreinir.
➤ Ekki gleyma þér í stressinu ogtaktu tíma f́rá til þess að
slappa af.
JÓLAUNDIRBÚNINGUR
Jólamánuðurinn á að
vera tími friðar og há-
tíðleika en hjá alltof
mörgum einkennist
hann að þreytu og
basli. Flestir vilja ekki
hefjast handa fyrir jólin
of snemma og lenda
þess vegna í tímaþröng
í desember.
Nú er aðventan á næsta leiti
og margir farnir að huga að
jólaundirbúningi, enda betra að
vera tímanlega svo að jólamán-
uðurinn fari ekki í streitu og
þreytu.
Mörgum þykir of snemmt að
taka upp jólaskrautið í nóv-
ember en hins vegar er ýmislegt
sem má taka sér fyrir hendur.
Þeir sem hafa mikla ánægju af
því að skreyta heimili sitt en
hafa takmarkaðan tíma í desem-
ber ættu að byrja núna og njóta
þess að eiga desember út af fyrir
sig í annars konar jólastússi,
enda nóg að gera á flestum
heimilum.
Að hefjast handa
Jólaseríur má til dæmis fara
að hengja á trén í garðinum eða
í þakskeggið þó að ekki sé kveikt
á þeim fyrr en á aðventunni. Á
mörgum heimilum eru seríur
einnig settar í gluggana og því er
ekkert til fyrirstöðu að koma
þeim upp líka. Enda getur tekið
sinn tíma að koma þeim al-
mennilega fyrir.
Eins er hægt að taka sér tíma
og búa til jólakrans á útidyra-
hurðina. Kaupið greni eða annan
efnivið sem þið ætlið að nota í
kransinn og takið eitt kvöld frá
fyrir það föndur. Þeir sem ætla
að senda jólakort ættu að fara að
huga að því, til dæmis með því
að finna heimilisföng allra þeirra
sem fá kort í ár og svo er ekki
verra að vera búinn að mynda
börnin ef slíkt fylgir með kort-
unum. Nú gefst tími til þess að
skrifa eitthvað persónulegt í
kortin og eru margir farnir að
bregða á það ráð að stikla á
stóru og rekja líðandi ár fyrir
vinum og vandamönnum í stutt-
Mikid úrval af módelum, myndum og pússluspilum.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
Ódyrar og gódar jólag jafir
Tvær frábærar!
holar@simnet.is
Ótrúlega fyndin
og kemur öllum í gott skap
Bráðsmellin og reynir
á hugmyndaflugið
M
bl
92
62
42
ÞÚ ERT FRÁBÆR - bók sem byggir upp sjálfstraust barna - og allra hinna
Bókaútgáfan Hólar - holar@simnet.is
FJÖLSKYLDUBÓKIN Í ÁR!
Skeifan 8 - s. 568 2200
Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Jólagjafir
fyrir yngstu
börnin
stundir