24 stundir - 16.11.2007, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@24stundir.is a
Toyota í Evrópu er búin að margprófa
bílinn á 15 tommu felgunum eftir
stöðluðu elgsprófi og þar ná menn aldrei að
láta hann haga sér eins og í sænska prófinu.
Eftir Einar Elí Magnússon
einareli@24stundir.is
Toyota í Danmörku hefur gefið út
yfirlýsingu þess efnis að breiðum
dekkjum hafi verið um að kenna
þegar Hilux-bíll var nærri oltinn í
sænsku elgsprófi fyrir skömmu.
Sá bíll var á 16 tommu felgum
en er seldur hér á landi, eins og í
Danmörku, á 15 tommu felgum og
mjórri dekkjum.
Þó að íslenskir jeppamenn telji
flestir að breiðari dekk séu stöðugri
er málið ekki alveg svo einfalt.
Vandamál tengt hreyfihegðun
„Þó að það sé ekki almenn regla
að bílar verði óstöðugri á breiðari
dekkjum þá er það möguleiki. Í
þessu tilfelli sýnist mér að um sé að
ræða vandamál tengt hreyfihegðun
bílsins, en ekki „statískt“ vanda-
mál,“ segir Hinrik Jóhannsson,
þróunarstjóri hjá Arctic Trucks, og
vísar þá til þess að bílar þola til
dæmis meiri hliðarhalla á breiðum
dekkjum en mjóum.
„Ef það hefði verið rosalega lítið
grip á afturdekkjunum hefði bíll-
inn ekki náð að beygja svona hratt
til vinstri þegar hann tekur beygj-
una, heldur skransað að aftan og þá
er hugsanlega minni hætta á að
hann velti, rétt eins og í hálku, af
því að bíllinn rennur bara út á hlið.
Því er ekki ólíklegt að það væri
betra fyrir bílinn að vera á öðrum
dekkjum.“
Hinrik segir einnig að þessar
niðurstöður þýði ekki að breyttir
jeppar, á enn breiðari dekkjum,
kæmu verr út úr prófinu, breyt-
urnar sem hafa áhrif á niðurstöð-
urnar séu einfaldlega of margar til
að hægt sé að fullyrða um það.
„Það eina sem hægt er að full-
yrða er að önnur dekk gefa aðrar
niðurstöður. Miðað við það sem ég
hef séð er líka gengið lengra í þessu
prófi en þeim stöðluðu prófum
sem notuð eru í dag.“
Íslenskur Hilux elgsheldur
Kristinn G. Bjarnason, markaðs-
stjóri hjá Toyota á Íslandi, segir Hi-
lux seldan á 15 tommu dekkjunum
hér á landi. Standi til að jeppa-
breyta bílnum séu gjarnan keyptar
16 tommu felgur en þá eru dekkin
líka önnur.
„Toyota í Evrópu er búið að
margprófa bílinn á 15 tommu felg-
unum eftir stöðluðu elgsprófi og
þar ná menn aldrei að láta hann
haga sér eins og í sænska prófinu,
heldur sýndi hann sömu viðbrögð
og í öðrum prófum til þessa.
Aukinheldur hafa engar fréttir
borist af neinum markaði Toyota
um að þessi kynslóð af Hilux sem
kom á markað 2005 sýni merki um
óstöðugleika.
Opinber staða Toyota í Evrópu
og á Íslandi er sú að akstursöryggi
bílsins sé gott og það sé engin
ástæða til að ætla að bíllinn muni
haga sér óeðlilega við eðlilegar
akstursaðstæður.
Sérstakur hópur frá Toyota Mot-
or Corporation og Toyota í Evrópu
er enn við prófanir á bílnum og
þegar niðurstöður liggja fyrir mun-
um við tilkynna þær,“ segir Krist-
inn að lokum.
Slæm frammistaða á elgsprófi hefur ekki áhrif á bíla selda á Íslandi
Íslenskur Hilux
veltur ekki
Toyota Hilux er fimmti
mest seldi bíllinn á Ís-
landi á þessu ári. Toyota í
Danmörku segir það
breiðum dekkjum að
kenna að bíllinn féll á
elgsprófi. Framleiðand-
inn rannsakar málið.
Sænskir blaðamenn segja
aðgerðaleysi sýna kæru-
leysi um líf viðskiptavina.
Stöðugur á Fróni Þrátt fyrir úthrópanir
sænskra blaðamanna hefur ekki tekist að
velta Hilux eins og hann er seldur á Íslandi.
➤ Hefur lengi verið einn allravinsælasti jeppinn á Íslandi.
➤ Það sem af er ári hafa 489 Hi-lux-bílar selst hérlendis.
➤ Toyota Hilux er því fimmtimest seldi bíllinn á Íslandi á
þessu ári.
➤ Stór hluti Hilux-bíla á Íslandier jeppabreyttur.
TOYOTA HILUX
Úr elgsprófinu Hilux valt nærri því
í prófunum sænsks bílatímarits.
Dekkjum er kennt um.
Félagsmenn fá ókeypis starthjálp, ókeypis aðstoð við
dekkjaskipti og ókeypis flutning einu sinni á ári innan
þjónustusvæða FÍB Aðstoðar Sjá nánar á www.fib.is
Hvað gerir þú ef bíllinn þinn fer ekki í gang á köldum morgni,
hann bilar eða verður eldsneytislaus ?
5-112-112
fyrir fólkið í bílnum
Sími 414 9999
Bílasmiðurinn hf • Bíldshöfða 16 • 110 reykjavík • sími: 567 2330
bílasmidurinn @ bilasmidurinn.is
Bílasmiðurinn HF
Sætishitari í
bílinn þinn!
2 hitastillingar sem halda stöðugum hita.
Passar á allar sætisgerðir
Láttu ekki kuldan gera þér gramt í geði
Lífstíðarábyrgð
SÍMAR:
AX:
Alhliða bi
réttingar
GRÆNUMÝRI 3 - SÍMI 587 7659 - WWW.BILAPARTAR.IS
BÍLAPARTAR
VIÐ HÖFUM ÞAÐ SEM ÞÚ LEITAR AÐ
Heilsársdekk
vetrardekk
Öryggi bílsins
byggist
á góðum
hjólbörðum
Gúmmívinnustofan
SP dekk - Skipholti 35 -105 R
Sími: 553 1055
www.gummivinnustofan.is
RAFGEYMAR
:
. .