24 stundir - 16.11.2007, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
Hreinn Friðfinnsson myndlist-
armaður hlaut heiðursverðlaun
Myndstefs, Myndhöfundasjóðs
Íslands, árið 2007 en það var
forseti Íslands sem afhenti þau í
Listasafni Íslands við hátíðlega
athöfn í gær. Viðurkenninguna
hlaut Hreinn fyrir framlag sitt til
íslenskrar myndlistar en hluta
þess gefur nú að líta á yfirlits-
sýningu í Listasafni Reykjavíkur
sem upphaflega var sett upp í
Serpentine Gallery í Lundúnum í
sumar.
Í rökstuðningi dómnefndar fyrir
valinu segir meðal annars: „Verk
Hreins eru hrífandi og einföld,
full af ljóðrænum vísunum og
heimspekilegum vangaveltum.
Ásýnd hlutanna skiptir ekki höf-
uðmáli heldur andinn og hin
tæra hugsun enda snúast verkin
gjarnan um eitthvað loftkennt og
ósnertanlegt einsog ljósið, vind-
inn eða það sem ekki er. Þrátt
fyrir – og kannski einmitt fyrir
þessa ákveðnu naumhyggju –
búa þau yfir einstökum þokka
og fegurð.“
Að sögn Knúts Bruun, stjórn-
arformanns Myndstefs, er veit-
ing heiðursverðlaunanna til-
raunaverkefni til þriggja ára þar
sem Myndstef veitir helming
verðlaunafjárins og Landsbanki
Íslands hinn helminginn, sam-
tals eina milljón króna. Þetta er í
þriðja sinn sem verðlaunin eru
afhent en Gabríela Friðriksdóttir
og Valgerður Bergsdóttir hlutu
þau áður. En þótt tilraunaverk-
efninu sé lokið er stefnt að því
að festa verðlaunaafhendinguna í
sessi. „Við hjá Myndstefi ætlum
að setjast niður og finna leiðir til
að halda þessu góða verkefni
gangandi. Ef til vill fáum við það
góða fólk hjá Landsbankanum til
að halda áfram með okkur í því,
eða aðra aðila,“ segir hann.
Hreinn hlaut heiðurs-
verðlaunin í ár
Afhending Hér tekur Edda Jónsdóttir
við verðlaununum úr hendi forsetans, en
Hreinn er erlendis.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
„Myndirnar eru málaðar eftir ljós-
myndum af sigurvegurum Ungfrú
heimur-keppninnar frá því að hún
hóf göngu sína árið 1951,“ segir
myndlistarmaðurinn Birgir Snæ-
björn Birgisson sem opnar sýn-
inguna Ljóshærð ungfrú heimur
1951- á Kjarvalsstöðum á morgun.
„Þetta eru ekki eiginlegar portrett-
myndir heldur eru þær málaðar eft-
ir pressumyndum sem margar
hverjar eru í frekar slæmri upp-
lausn, og svo er ég búinn að breyta
öllum í ljóskur og mála þær í afar
daufum litum. Þannig mást öll
þjóðareinkenni út og myndirnar
snúast alls ekki um persónurnar
sjálfar sem eru á þeim. Ég er meira
að fjalla um staðalímynd kvenna
sem hafa stimpil upp á fegurð. Það
er því með vilja gert sem mynd-
unum er ekki raðað upp eftir tíma-
röð og eru ómerktar.“
Hugmyndin að sýningunni
kviknaði þegar Birgir rakst á bók
um keppnina Ungfrú heimur í
Góða hirðinum fyrir tveimur árum
og keypti hana. Aftast í bókinni er
myndaröð af sigurvegurum keppn-
innar. „Þessi bók var að þvælast á
vinnustofunni minni um tíma án
þess að það væri einhver sérstakur
tilgangur með því. Svo ákvað ég að
mála nokkrar svona myndir og svo
vatt þetta upp á sig. Fyrstu fimmtán
myndirnar fóru á sýningu í Gauta-
borg síðasta sumar og svo fékk
Listasafn Reykjavíkur mig til að
sýna þær allar hér á Kjarvalsstöð-
um. Nú eru ákveðnar viðræður í
gangi um að hún fari til London á
næsta ári og jafnvel á fleiri staði. Ég
vonast til að hún nái að fara sem
víðast og held hún hafi alla burði til
þess, enda er þetta alþjóðlegt þema
ef svo má segja,“ segir hann. Þegar
sýningin fór til Gautaborgar voru
Svíar nýlega búnir að neita að senda
sinn fulltrúa í keppnina Miss Uni-
verse og umræðan um fegurðar-
samkeppnir stóð sem hæst þar.
Birgir segir það því hafa verið afar
spennandi að gefa Svíum ákveðinn
forsmekk að þessari sýningu, og
líka af því að fyrstu tveir sigurveg-
arar keppninnar Miss World voru
sænskir. Með verkunum sé hann þó
ekki að fella neina dóma eða deila á
fegurðarsamkeppnir. „Ég þekki
engan sem hefur ekki skoðun á feg-
urðarsamkeppnum og það hafa líka
mjög margir skoðun á ljósku-
ímyndinni svokölluðu. En tilgangur
minn með sýningunni er að opna
grundvöll fyrir krítíska umræðu en
ekki koma sjálfur með einhverja
dóma. Ég hef því lagt mig í líma við
að gæta hlutleysis. Áhorfandinn á
að klára verkið,“ segir hann.
En fylgistu mikið með fegurðar-
samkeppnum?
„Mér finnst þær áhugavert fyr-
irbæri og ætla til að mynda að halda
áfram að mála sigurvegara Miss
World. En ég er þó ekki þessi nörd
sem veit nöfn allra sigurvegaranna
og á sennilega ekki eftir að vera
fenginn í dómnefnd,“ segir hann að
lokum og hlær.
Sýning með myndum af ljóshærðum fegurðardrottningum á Kjarvalsstöðum
Áhorfandi klárar verkið
Sýning með málverkum
af 56 ljóshærðum fegurð-
ardrottningum verður
opnuð á Kjarvalsstöðum
á morgun. Um er að ræða
verk eftir myndlist-
armanninn Birgi Snæ-
björn Birgisson og var
kveikjan að sýningunni
bók sem hann keypti í
Góða hirðinum.
Ég vil frekar opna umræðu
en fella dóma Birgir Snæ-
björn í sýningarsalnum.
➤ Birgir hefur áður unnið meðljóskuþemað, þegar hann
málaði myndir af ljóshærðum
hjúkrunarfræðingum. Hug-
myndina fékk hann þegar
bresk þingkona sagði op-
inberlega að of mikið væri af
ljóshærðum hjúkrunarfræð-
ingum á breskum spítölum.
SÝNINGIN
24stundir/RAX
MENNING
menning@24stundir.is a
Þannig mást öll þjóðareinkenni út og mynd-
irnar snúast alls ekki um persónurnar sjálfar
sem eru á þeim. Ég er meira að fjalla um staðal-
ímynd kvenna sem hafa stimpil upp á fegurð.
Finnski rithöfundurinn, fyr-
irlesarinn og gagnrýnandinn
Mikka Hannula er sýning-
arstjóri sýningarinnar „Ljós-
hærð ungfrú heimur 1951-“.
Hann starfar nú sem prófess-
or í listrannsóknum í mynd-
lista- og hönnunardeild Há-
skólans í Gautaborg en hefur
unnið með Birgi Snæbirni að
nokkrum verkefnum frá árinu
2002 og skrifaði grein í sýn-
ingarskrána. „Þessi verk eru
mjög áhrifarík á marga vegu,“
segir hann. „Í fyrsta lagi eru
þessar myndir mjög fallegar á
að líta og hálfgert augnakon-
fekt. En um leið krefjast þær
þess að áhorfandinn komist
að þeim, færi sig nær, skipti
um sjónarhorn og stellingu.“
Þrátt fyrir að myndefnið sé
kunnuglegt og líkist mörgu af
því sem má sífellt sjá á öldum
ljósvakans eru málverk Birgis
þó um leið í mótsögn við það
að sögn Mika „Þessar myndir
sýna minna og listamaðurinn
dregur úr í stað þess að ýkja.
Þannig er ekki nóg að sjá bara
myndirnar heldur verður
áhorfandinn að sækja þær
sjálfur,“ bendir hann á.
Mika Hannula ætlar að ræða
við Birgi Snæbjörn á ensku
um sýninguna á Kjarvals-
stöðum á sunnudaginn klukk-
an 15.
Verk sem
krefjast mikils
MATUR
Matur 20. november
Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni
Serblad 24 stunda
Auglysingasimi
Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is
KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is