24 stundir - 16.11.2007, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
MENNINGBÆKUR
menning@24stundir.is a
Það eru enn ótrúlega
margir ormar þarna úti
sem lesa alveg eins og þeim
sé borgað fyrir það.
Nonni og Selma
– Fjör í fyrsta
bekk er þriðja
skáldsaga Bryn-
hildar Þórarins-
dóttur. Fyrsta
skóladaginn
vakna Nonni og
Selma með fiðr-
ildahóp í mag-
anum. Þau þekkjast ekkert ennþá
og vita því ekki þá hvað þau eiga
margt sameiginlegt eða hvaða
ævintýrum þau eiga eftir lenda
saman í.
Nonni og Selma
Svona eiga
prinsessur
að vera er
bók fyrir
stelpur
sem
dreyma um
að verða
prinsessur. Petra prinsessa kennir
ungum stelpum allt sem þær
þurfa að vita til þess að verða
prinsessur. Til þessa fær hún að-
stoð Prinsessufélagsins sem er
ákaflega fínt félag sem prinsessur
á borð við Rapunzel og Ösku-
busku eru í.
Prinsessu-
draumur
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heidabjork@24stundir.is
Kristín Helga segir markað barna-
bóka hér á landi vera mjög blóm-
legan en vill sjá fleiri skrifa barna-
bækur. Henni finnst þróunin á
síðustu tveimur áratugum í barna-
bókmenntum á Íslandi vera já-
kvæð. Segist hún þó finna fyrir því
að það er á brattann að sækja varð-
andi lestur barna.
,,Þetta er ósköp eðlileg þróun,“
segir Kristín. ,,Börn nú til dags lifa í
allt annarri veröld heldur en til
dæmis kynslóðin fyrir tíu árum.
Það er svo margt sem glepur. Bæði
er tæknivæðingin ekki alveg bók-
inni í vil og svo tímaleysi foreldra
og lífsgæðakapphlaupið stóra.“
Bækurnar úr kjallaranum
Kristín segir að það sé nauðsyn-
legt að sporna við þeirri þróun sem
á sér stað og hvetja börn meira til
að lesa.
,,Það er vísindalega sannað að
þrátt fyrir alla þessa tæknivæðingu
undanfarinna ára er ennþá ekkert
sem kemur í stað bóklesturs hvað
varðar þroska barna. Það er stund-
um eins og við gleymum því sem
foreldrar. Við verðum öll að leggj-
ast á eitt því það verður enginn að
lesa fullorðinsbækur eftir tíu ár ef
við tökum okkur ekki á. Sums
staðar eru til dæmis barnabækur
settar í sérstaka barnakjallara í
bókaverslunum. Hvað er það? Eig-
um við ekki að detta um barna-
bækurnar þegar við komum inn í
verslanirnar?“
Dótaþjóðin Ísland
Draumur Kristínar er að það
myndist jafn langar biðraðir fyrir
utan bókabúðir eins og þegar dóta-
búðirnar tvær voru opnaðar fyrir
skömmu:
,,Mikið óskaplega vildi ég óska
þess að ég sæi svona biðraðir for-
eldra með börn á handleggnum
þegar nýr titill kemur. Ég var mjög
neikvæð þegar ég var að horfa upp
á þessar dótaraðir og hugsaði með
mér: ,,Guð minn góður, þetta er
ekki bókaþjóð heldur dótaþjóð.“
Við höfum reyndar fengið Harry
Potter-raðir en það væri svo
dásamlegt ef það væri oftar.“
Fullt af ormum
Kristín segist alltaf fyllast mikilli
bjartsýni þegar hún heimsækir
grunnskólana.
,,Krakkarnir þyrpast að okkur og
ræða bækur og persónur og hafa
miklar skoðanir. Það eru enn ótrú-
lega margir ormar þarna úti sem
lesa alveg eins og þeim sé borgað
fyrir það. Það er stóra gleðin.“
Kristín Helga vill sjá
fleiri barnabókahöfunda.
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Ekkert kemur í stað bóklesturs
Kristín Helga Gunn-
arsdóttir rithöfundur hef-
ur áhyggjur af minnkandi
lestri barna. Hennar
draumur er að biðraðir
fyrir utan bókabúðir
verði jafnlangar og fyrir
utan dótabúðir.
➤ Kristín Helga fæddist 24. nóv-ember 1963
➤ Hefur skrifað m.a. bækurnarMói hrekkjusvín, Fíasól í fín-
um málum og Strandanornir
➤ Nýjasta bók Kristínar heitirDraugaslóð.
KRISTÍN HELGA
Síðasta Harry Potter-bókin kom
út á íslensku í gær, mörgum aðdá-
endum eflaust til ómældrar gleði.
Svanborg Sigurðardóttir, versl-
unarstjóri Eymundsson í Austur-
stræti, segir að það kæmi sér ekki á
óvart ef Harry Potter og dauða-
djásnin, eins og hún heitir á ís-
lensku, verður komin í fyrsta sætið
yfir mest seldu bækurnar strax eftir
helgi.
Svanborg segir að til að byrja
með hafi yngstu krakkarnir sótt
mest í Harry Potter-bækurnar á ís-
lensku og þeir eldri á ensku. Yngri
krakkarnir séu hins vegar nú farnir í
auknum mæli að sækja í bækurnar
á ensku:
,,Það eru alltaf yngri og yngri
krakkar að lesa á ensku. Foreldrar
eru oft að segja manni frá því og eru
hissa á því hvað þau leggja mikið á
sig til að lesa bækurnar. Þetta er oft
mikið púl hjá þeim en löngunin er
svo mikil að þau láta sig hafa það.“
Þegar nýjasta Harry Potter-bókin
kom út á ensku í sumar setti Ey-
mundsson Harry Potter-glósur á
vefsíðu sína til að auðvelda krökk-
unum lesturinn. Svanborg efast
ekki um að það hafi komið mörg-
um að góðum notum.
Svanborg segir að Harry Potter
og dauðadjásnin á ensku sé mest
selda Harry Potter-bókin. Vinsældir
hinna bókanna virðast þó síður en
svo vera að dvína því bókabúðin er
enn að panta alla seríuna á ensku,
allan ársins hring.
heidabjork@24stundir.is
Harry Potter á íslensku
Bókin Skoppa og Skrítla læra um
tölur og dýr eftir Hrefnu Hall-
grímsdóttur er komin út. Í bók-
inni kenna Skoppa og Skrítla
börnum allt um íslensku hús-
dýrin og tölustafina, en með
henni fylgir hljóðdiskur. Á diskn-
um er leiklestur á bókinni og
fróðleikur en einnig taka Skoppa
og Skrítla nokkur lög um dýrin.
Skoppa
og Skrítla
Í bókinni Sjó-
ræningjafræði, í
þýðingu Þor-
gerðar Öglu
Magnúsdóttur,
er Lubber skip-
stjóri á hæl-
unum á sjóræn-
ingjanum
Arabellu Drummond og ein-
kennilegum félögum hennar.
Bókin er uppfull af fjársjóð-
skortum og upplýsingum um
hafið, sem er nauðsynlegt fyrir
upprennandi skipstjóra og sjó-
ræningja.
Sjóræningja-
fræði
MATUR
Matur 20. november
Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni
Serblad 24 stunda
Auglysingasimi
Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is
KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir