24 stundir - 16.11.2007, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Tíu keppendur af átján hlutu verðlaun, þar
af fjögur gullverðlaun, auk þess sem Helgi
Rafn Guðmundsson var valinn maður mótsins
þrátt fyrir að lenda í öðru sæti í fullorðinsflokki.
Algjör draumur! Hef beð-ið eftir þessu alla ævi!Stoltasta andartak fer-
ilsins! Þetta er
meðal þess sem
hrýtur gjarnan
af vörum
knattspyrnu-
manna erlendis
þegar kallið
kemur í lands-
liðið. Ein slík yfirlýsing kom frá
hinum 28 ára gamla Abel hjá
Sporting Lissabon sem fékk sitt
fyrsta kall í vikunni og hélt
varla vatni. Hann fær reyndar
aðeins eina tilraun til að vekja
traust því fastamenn landsliðs-
ins í hans stöðu, Luis Miguel
og Ricardo Carvalho, eru báðir
frá vegna meiðsla.
Allt er vitlaust í herbúðumReal Madrid yfir stuldiLiverpool á næstu stór-
stjörnu liðsins,
hinum argen-
tínska Gerardo
Bruna, og
gengur hver
stjarnan fram á
fætur annarri
og fretar yfir Rafa Benítez,
stjóra þeirra ensku. Bruna er
einn af 20 argentínskum leik-
mönnum sem kallaðir hafa ver-
ið hinn nýi Leo Messi og það
þó Messi sjálfur sé nýfermdur
að heita má. Ekki fór hins vegar
mikið fyrir fretunum í þau tug-
þúsund skipti sem Real Madrid
hefur „stolið“ ungstjörnum frá
öðrum liðum.
Líkt og aðrir erlendir þjálf-arar í Englandi þurftiekki margar vikur áður
en Juande Ra-
mos, stjóri
Tottenham,
áttaði sig á að
þar í landi er
enginn spenn-
andi knatt-
spyrnumaður
til þess fallinn að bæta lið hans.
Og dýrasti enski liðsmaður
Tottenham, Paul Robinson
markvörður, er með allt niður
um sig leik eftir leik. Ramos
hefur því gert formlega tilboð í
Iker Casillas, markvörð Real
Madrid, en slík sala er afar
langsótt nema Casillas sjálfur sé
orðinn leiður á Spáni.
Ramos þarf kannski ekkiað leita langt að góðummarkverði. Daninn
Thomas
Sörensen hjá
Aston Villa er
fjúkandi reiður
yfir að komast
ekki aftur í lið-
ið eftir meiðsli
og virðist alveg
yfirsjást að Scott Carson hefur
staðið sig mætavel milli stang-
anna í fjarveru hans. En Dan-
inn er af norrænu bergi brotinn
og sættir sig ekkert við neitt
rugl frá Martin Ó Neill þjálfara
og mun að líkindum fara um
jólin.
Og Jose Mourinho,jamms, þessi atvinnu-lausi, fullyrðir að
enskir leik-
menn hafi ver-
ið í forgangi
hjá sér hjá
Chelsea í því
skyni að styðja
við þarlendan
bolta.
Það er ekki á hverjum degi sem
hópur íslenskra íþróttamanna á
öllum aldri og á eigin vegum kem-
ur heim á ný með heil tólf verðlaun
frá sterku Norðurlandamóti. Það
var hins vegar raunin nú í vikunni
þegar keppendur í taekwondo
komu heim frá Danmörku með yf-
irvigt af verðlaunum.
Tíu keppendur af átján hlutu
verðlaun, þar af fern gullverðlaun,
auk þess sem Helgi Rafn Guð-
mundsson var valinn maður móts-
ins þrátt fyrir að lenda í öðru sæti í
fullorðinsflokki. Svona eiga víking-
ar að vera.
Einbeittur vilji Taekwondo
gengur mikið út á að bera virð-
ingu fyrir andstæðingi sínum.
Með yfirvigt
af verðlaunum
Magnaður árangur íslenskra keppenda á sterku Norðurlanda-
móti í taekwondo Tíu keppendur af átján hlutu verðlaun
Ýmislegt má lesa úr tölfræði
sem misfróðir menn halda
saman. Nú hafa NBA-
spekingar reiknað út að lík-
urnar á að Boston Celtic vinni
titilinn þetta árið hafi minnk-
að til muna. Skiptir engu að
þeir eru besta liðið eins og er
heldur að Kevin Garnett er að
stúta allri samkeppni um
MVP, eða besta leikmann
mótsins, og sagan sýnir að að-
eins tveir sem hlotið hafa
þann heiður síðustu tíu árin
hafa farið alla leið í úrslit og
unnið dollu.
Álög í Boston
Næstsíðasti leggur heims-
meistarakeppninnar í rall-
akstri hófst óformlega í gær-
kvöldi á götum Belfast á
N-Írlandi en sjálf keppnin
hefst í dag hinum megin á
landinu græna. Niðurstaða
þessa móts getur ráðið úrslit-
um um hvort Sebastien Loeb
eða Marcus Grönholm hampa
titlinum en að þessari keppni
lokinni er aðeins einn leggur
eftir í Bretlandi eftir tvær vik-
ur.
Bróðurlegt
Það eru fleiri en hinn íslenski
herra Seðlan í útrás í veröld-
inni. Yfirstjórn Formúlu 1
hefur tekið ákvörðun um að
keppt verði á indverskri
grundu frá og með árinu 2010
og verður keppt á braut í Nýju
Delí. Hefur alveg áreiðanlega
ekkert með það að gera að
einn indverskur mill-
jarðamæringur fjárfesti nýlega
í einu keppnisliðanna.
Útrás F1
Tjaldið að falla
Um helgina er síðasti mögu-
leiki stórstjörnunnar Anniku
Sörenstam að vinna mót á
kvennamótaröðinni banda-
rísku þetta árið en lokamót
ársins fer fram í Flórída. 69
sigrar síðustu árin en ekki
einn árið 2007 ef hún stendur
sig ekki nú.
Tjaldið fellur
SKEYTIN INN
Þrír skollar á fyrri níu
eyðilögðu annars ágæt-
an dag hjá Birgi Leif
Hafþórssyni kylfingi
sem nú stendur í
ströngu á úrtökumóti
til að komast aftur inn
á Evrópumótaröðina á
næstu vertíð.
Leiknir eru sex hringir
alls á mótinu en 30
efstu menn hljóta eftirsóttan keppnisréttinn. Var
Birgir Leifur í 32. sæti af 154 keppendum eftir fyrsta
daginn á 71 höggi og þarf að gera betur. Er hann þó
nokkuð öruggur um að komast gegnum niðurskurð-
inn að því gefnu að hann spili áfram þétt golf en
merkilegt nokk hefur hann spilað miklu betur nú
undanfarið en hann gerði síðustu mánuðina á móta-
röðinni sjálfri.
Birgir Leifur í ágætum
málum eftir fyrsta dag
Fundarhöld stóðu langt
fram á kvöld hjá Al-
þjóða akstursíþrótta-
sambandinu, FIA, en
lögfræðingar þess og
spekingar aðrir tóku þá
fyrir kæru McLaren-
liðsins á hendur BMW
og Sauber vegna notk-
unar rangs eldsneyt-
isgjafa í kappakstrinum
í Brasilíu. Verði krafan
tekin til greina verður Lewis Hamilton krýndur
heimsmeistari í stað Kimi Raikkonen enda fengju
fyrrnefnd lið engin stig fyrir þátttöku sína og Ha-
milton færðist því ofar, úr sjöunda sæti í það fjórða.
Úrskurður lá ekki fyrir þegar 24 stundir fóru í
prentun en talsmaður FIA sagði ákvörðunar ekki að
vænta fyrr en í dag.
Dóms að vænta í dag í
klögumáli McLaren
Nýr búnaður virkaði ekki sem skyldi Fannst mörgum súrt að keppa
með rafrænar hlífar sem svo virkuðu illa eða alls ekki þegar til kom.
Peppið Auk þjálfara og liðsstjóra fóru allnokkrir foreldrar
með í ferðina og vantaði ekkert upp á stuðning.
Fyrsta ferð Miðað við að ferðin var sú fyrsta fyrir fjöl-
marga keppendur er árangurinn enn glæsilegri.