24 stundir - 16.11.2007, Page 55
AUGLÝSING
UM SKIPULAGSMÁL Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU
Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi,
Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi
Samkvæmt 1.mgr 21.gr. skipulags-og byggingar-
laga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugas-
emdum við eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar:
1 Skálabrekka í Bláskógabyggð. Landbúnaðar-
svæði í stað frístundabyggðar.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Þingvallasveitar
2004-2016 í landi Skálabrekku. Í breytingunni felst
að um 4 ha svæði sem liggur upp að þjóðvegi breytist
úr svæði fyrir frístundabyggð í landbúnaðarsvæði. Á
umræddu svæði er í gildi deiliskipulag fyrir frístund-
abyggð og er tillaga að breytingu á því auglýst
samhliða.
2 Ásólfsstaðir 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Svæði fyrir frístundabyggð og opið svæði til
sérstakra nota.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og
Gnúpverjahrepps í landi Ásólfsstaða 2. Í breytingunni
felst að á um 56 ha svæði í landi Ásólfsstaða 2
breytist landnotkun úr landbúnaðarsvæði í blandaða
landnotkun svæðis fyrir frístundabyggð og opins
svæðis til sérstakra nota. Á svæðinu er gert ráð fyrir
skógrækt auk þess sem fyrir liggur að skilgreindar
verði um 8 frístundahúsalóðir á svæðinu.
Samkvæmt 1.mgr. 25.gr. skipulags-og bygg-
ingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir
athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulags-
tillögur:
3 Bergsstaðir í Bláskógabyggð. Deiliskipulag 3
frístundahúsalóða við Bergás.
Tillaga að deiliskipulagi 3 frístundalóða við Bergás,
spildu (landr. 167203) úr landi Bergsstaða í Biskups-
tungum. Gert er ráð fyrir þremur 5.000 fm lóðum, þar
af er ein utan um þegar byggt hús. Heimilt verður að
reisa allt að 150 fm frístundahús og allt að 25 fm
aukahús á hverri lóð.
4 Birtingaholt í Hrunamannahreppi. Deiliskipulag
bæjartorfu.
Tillaga að deiliskipulagi umhverfis bæjartorfu Birt-
ingarholts. Skipulagssvæðið er um 6,3 ha og nær yfir
íbúðarhús og útihús. Samkvæmt tillögunni er gert ráð
fyrir byggingarreit fyrir allt að 1.200 fm véla- og
verkfærageymslu (reitur A), fyrir allt að 100 fm starfs-
mannahús (reitur B), fyrir bílskúr við íbúðarhús (reitur
C) og fyrir sólstofu við íbúðarhús (reitur D).
Samkvæmt 1.mgr. 26.gr. skipulags-og bygg
ingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir
athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulags-
breytingar:
5 Helludalur í Bláskógabyggð. Fjölgun frístun-
dahúsalóða.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístunda-
byggðar í landi Helludals í Bláskógabyggð. Í
breytingunni felst að 13 lóðir bætast við á tveimur
svæðum. Annarsvegar er gert ráð fyrir 9 lóðum við
götu sem kallast Engjagil og hinsvegar verða til 4
lóðir við götu sem kallast Giljastígur.
Hámarksstærð húsa má vera 100 fm.
6 Úthlíð í Bláskógabyggð. Nýjar frístun-
dahúsalóðir við Vörðuás.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístunda-
byggðar í landi Úthlíðar. Í breytingunni felst að gert
er ráð 10 nýjum frístundahúsalóðum á bilinu 1,6 til
1,8 ha við Vörðuás í framhaldi af þeim lóðum sem
fyrir eru við götuna. Þá er gert ráð fyrir að á þessu
svæði verði heimilt að reisa allt að 450 fm frí-
stundahús og allt að 30 fm aukahús, en nýtingar-
hlutfalla má þó ekki vera hærra en 0.03.
7 Úthlíð í Bláskógabyggð. Breyting á
afmörkun og stærð nokkurra frí-
stundahúsalóða.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístunda-
byggðar í landi Úthlíðar. Um er að ræða breytingar
á afmörkun og stærð lóða við Mosaskyggni 6,
Skútaveg 2-4 og Skútahvammi 1. Ekki eru gerðar
breytingar á skilmálum, eingöngu afmörkun og
stærð lóða.
8 Skálabrekka í Bláskógabyggð. Breyting á
deiliskipulagi frístundabyggðar.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístunda-
byggðar í landi Skálabrekku í Þingvallasveit,
Bláskógabyggð. Breytingin nær til lóða 1a og 3 við
Skálabrekkugötu og er gert ráð fyrir að þær verði
skilgreindar sem landbúnaðarlóðir í stað frí-
stundahúsalóða. Þegar hafa verið byggð hús á
lóðunum og verða þau nú skilgreind sem íbúðar-
hús í stað frístundahúsa. Þá er gert ráð fyrir að
heimilt verði að reisa allt að 200 fm skemmu á
hvorri lóð auk þess sem aðkoma að lóð 1a breytist
frá því sem nú er. Breyting á aðalskipulagi svæði-
sins er auglýst samhliða.
9 Ásgarður í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Breyting á skilmálum íbúðarsvæðisins Ásbor-
gir.
Tillaga að að breytingu á deiliskipulagi íbúðar-
svæðisins Ásborgir í landi Ásgarðs. Í breytingunni
felst að leyfilegur þakhalli íbúðarhúsa verður 0-45
gráður í stað 14-45 gráður.
10 Vaðnes í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Stækkun frístundahúsalóðar við Mosabraut.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga
frístundabyggðar í landi Vaðness í Grímsnesi. Í
breytingunni felst að lóð nr. 11 við Mosabraut stæk-
kar úr 7.421 í 10.591 fm á kostnað leik- og útivistars-
væðis.
11 Nesjar í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Frístundabyggð í Nesjaskógi.
Tillaga að breytingu á skilmálum frístundabyggðar í
Nesjaskógi landi Nesja í Grafningi. Í breytingunni
felst að heimilt verður að byggja allt að 250 fm
frístundahús á hverri lóð í stað 40 til 60 fm auk þess
sem hámarks mænishæð frá aðalgólfi verður 6 m í
stað 4,5 m. Eins og áður verður heimilt að vera með
steyptan kjallara / jarðhæð en hámarks mænishæð
frá jörðu má ekki vera meiri en 7 m. Upphaflegum
skilmálum hefur þegar verið breytt fyrir þrjár lóðir á
svæðinu, en gert er ráð fyrir að nýjir skilmálar nái
einnig yfir þær.
12 Nesjavellir í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Nesjavallavirkjun, jarðstrengur og svæði fyrir
niðurrennslisholu.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæði-
sins á Nesjavöllum. Í breytingunni felst að gert er ráð
fyrir nýjum jarðstreng sem mun liggja frá stöðvarhúsi
upp með Nesjavallaæð og þaðan meðfram Nesja-
vallavegi að mörkum deiliskipulagssvæðisins. Þá er
gert ráð fyrir viðbótarsvæði fyrir niðurrennslisholur
sunnan aðkomuvegar að starfsmannahúsi og
vestan aðkomuvegar að stöðvarhúsi. Tillagan er í
samræmi við áður auglýsta breytingu á Aðal-
skipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2002-
2014.
Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu
viðkomandi sveitarfélags og hjá embætti skipu-
lagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12,
Laugarvatni á skrifstofutíma frá 16. nóvember til 14.
desember 2007. Að auki er hægt að nálgast
tillögurnar á vefslóðinni
http://www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar/
Athugasemdum við skipulagstillöguna skulu berast
til skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta
lagi 28. desember 2007 og skulu þær vera skrifle-
gar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við
tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur
henni.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
BLAU ÐIÐINNATVINNUBL
AÐIÐ
atvinna@24stundir.is