24 stundir


24 stundir - 16.11.2007, Qupperneq 58

24 stundir - 16.11.2007, Qupperneq 58
Playstation 3-eigendur ættu að geta glaðst yfir því að nú hafa náðst samningar á milli Sony- og DivX-fyrirtækisins þess efnis að tölvan styðji DivX-myndstað- alinn. Það mun auðvelda PS3- eigendum til muna að nota tölv- una til að spila alls konar mynd- bönd. vij DivX loksins á Playstation 3 58 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir Misty, Laugavegi 178, Sími 551 3366 Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf www.misty.is Alveg splúnkunýr í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.990,- Ungur og flottur í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.990,- 20% afsláttur af öllum jökkum og úlpum Opið í dag 13-18 og laugardag 10-14 GreenHouse, Rauðagerði 26, S 588 1259 • Íslensk hönnun • Fyrir 2ja–6 ára • Frábær jólagjöf Sólskinsbarn www.solskinsbarn.is 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Ég var að panta dansskó frá Frakklandi. Það er fáránlegt hvað þeir hafa mikil áhrif á hvernig ég hreyfi mig. Íbúar Singapúr munu ekki fá að spila leikinn Mass Effect þar sem stjórnvöld þar í landi hafa bann- að leikinn. Ástæðan mun vera sú staðreynd að kynlíf milli tveggja kvenkyns persóna kemur fyrir í leiknum. Forsætisráðherra Singa- púr sagði við bann leiksins að ríkið ætti að halda í sín íhalds- sömu gildi og ekki veita samkyn- hneigðum nein sérstök réttindi. vij Ótti við lesbíur „Þú ert að fara að sjá þrjú af ferskari poppböndum landsins saman í fyrsta og eina skiptið. Það er ákveðið. Þetta er bara one time only,“ segir Birgir Ísleifur Gunn- arsson, hinn stimamjúki söngvari hljómsveitarinnar Motion Boys, um tónleika kvöldsins. Sprengjuhöllin, Jeff Who? og Motion Boys koma fram á Nasa í kvöld og Birgir lofar mikilli keppni milli hljómsveita. „Það er gaman fyrir fólk að mæta til að geta gert upp við sig hvaða band er það besta af þessum þremur,“ segir Birgir í laufléttum dúr. „Það er rosalega mikil keppni á milli okkar. Við tölumst ekkert við.“ Sprengjuhöllin, Jeff Who? og Motion Boys eru gríðarlega áber- andi í poppheimi Íslands um þess- ar mundir, en þessi heilaga þrenn- ing er tvímænalaust ein sú heilagasta síðan Ný dönsk, Síðan skein sól og Sálin hans Jóns míns voru upp á sitt besta á síðari hluta níunda áratugarins. Ætla að fylla Nasa „Við ætlum að reyna að fylla Nasa og búa til rosa stuð,“ segir Birgir. „Þetta verður algjört partí- kvöld. Tónleikarnir byrja ekki fyrr en hálftólf þannig að fólk fær sér einn kokteil heima, skellir sér í lakkskóna og svo kíkir það út og dansar.“ Birgir Ísleifur hefur farið mikinn undanfarna mánuði sem hinn skeleggi forsprakki Motion Boys og ætlar hann að vígja nýja dansskó í kvöld. „Ég var að panta dansskó frá Frakklandi. Það er fáránlegt hvað þeir hafa mikil áhrif á hvernig ég hreyfi mig,“ segir Birgir að lokum. „Þetta eru skór sem ég ætla að vígja í kvöld.“ atli@24stundir.is Motion Boys, Sprengjuhöllin og Jeff Who? koma fram á Nasa Birgir vígir franska dansskó 24stundir/SverrirStimamjúkir Motion Boys ætla að gera allt vitlaust í kvöld. Leikkonan Salma Hayek hefur viðurkennt að hafa beðið til Guðs á unglingsárunum með það fyrir augum að öðlast stærri brjóst. Salma, sem reyndar er þekkt fyrir allt annað en lítinn barm, segist hafa stoppað í kirkjum á ferða- lögum með móður sinni til þess að biðja fyrir breytingum á barm- inum og vill hún meina að óskin hafi ræst á endanum. hþ Bað Guð um stærri brjóst Sunnudaginn 18. nóvember verða tvær síðustu sýningar á barnaleikritinu Abbababb!, sú fyrri klukkan 14.00 og sú síðari klukkan 17.00. Mikið er selt af miðum á sýningarnar og ef menn vilja ekki láta þetta leikrit fram hjá sér fara er vert að drífa sig. Abbababb! er söngleikur sem skrifaður var af Dr. Gunna og frumsýndur í febrúar á þessu ári. Sýningin hlaut Grímuna sem barnasýning ársins 2007. Verkið er sett upp af leikhópnum Á senunni í samstarfi við Hafnarfjarðarleik- húsið. Leikstjóri er María Reyndal. Sýningar verða alls 33 og gestir rúmlega 7000. Jóhann G. Jóhannsson, einn leikara í sýningunni, segir að það sé tregi í leikarahópnum að komið sé að lokum, því þetta hafi verið svo gaman. Ekki sé þó búið að senda út boð um að henda bún- ingunum og leikmyndinni enn, og því sé ekki öll nótt úti um að leik- ritið verði tekið upp að nýju á komandi leikári. „Undanfarið hef- ur verið leikið fyrir troðfullu húsi og færri komist að en hafa viljað, og því er verið að skoða þetta mál aðeins.“ En er nokkuð verið að spá í hringferðalag eða jafnvel útrás Abbababb!? „Ja, þú segir nokkuð, og hvernig myndi Abbababb! þá útleggjast á ensku?“ spyr Jóhann. „Annars verð ég að segja að það er ekki alltaf skemmtilegt að fara í sveittan búning klukkan 2 á sunnudögum, og ég hef nú leikið í nokkrum barnaleikritum, en það er alltaf gaman að fara í búninginn fyrir Abbababb! og leika þá sýn- ingu.“ Miðasalan er opin í Hafnarfirð- inum virka daga frá 3-6 en einnig er hægt að nálgast miða á www.midi.is. heida@24stundir.is Síðasti séns á Abbababb! Ljósmynd/Árni Torfason Abbababb! Leikritið er sýnt í Hafn- arfjarðarleikhúsinu. Nokia N95 er einmitt sími sem gerir bókstaflega allt. Nokia gengur meira að segja það langt að halda því fram að N95 sé ekki sími held- ur margmiðlunartölva. Satt best að segja er það fulllangt gengið. N95 er bara sími, sem er drekkhlaðinn af fídusum en sími engu að síður. Það má í raun fullyrða að eng- inn sími á markaðnum státi af jafn mörgum eiginleikum og N95, fimm megapixla myndavél og meira að segja GPS-tæki og svo er þetta auðvitað 3G-sími líka, svo það er hægt að hringja myndsímtöl og þykjast vera Júdas. N95 er svokallaður sleðasími (slider) en takkaborðið rennur undir símann þegar það er ekki í notkun. N95 er nokkuð óvenju- legur að því leyti að sleðinn rennur í tvær áttir, hægt er að renna skján- um niður og þá koma takkar fyrir ofan skjáinn, sem gegna því eina hlutverki að stjórna tónlistinni. Þetta litla takkaborð er í raun ein- staklega hentugt ekki síst vegna þess að tónlistarspilarinn í N95 er sérlega góður. En þrátt fyrir snið- uga hönnun er síminn hálf- klunnalegur, hann virkar stærri en hann í raun er og oft hálf klunna- legt að nota hann. Síminn er með með þó nokkuð góða myndavél, litlir fimm mega- pixlar. Eini síminn sem státar af svo mörgum megapixlum að und- anskildum Sony Ericsson K850. Myndvélin er mjög góð miðað við myndavél í síma og rétt eins og K850 skilar síminn myndum sem eru fullkomlega prenthæfar. Það verður þó seint sagt að símar geti komið í staðinn fyrir venjulegar myndavélar enn sem komið er. Helsti galli símans fyrir utan að vera klunnalegur er að hann getur verið flókinn, aragrúi af tökkum er framan á honum og oft leiðinlegt að finna einfaldar aðgerðir. En þeir sem kaupa þennan síma eru líklega tæknisinnaðir og því er það ekki stórt vandamál, hins vegar er það vandamál að vinnsluminni símans er ekki jafn mikið og það þarf að vera. Maður lendir þó nokkuð oft í að þurfa að loka forriti vegna þess að minnið er búið. Það er þó rétt að taka fram að Nokia eru komnir með nýja útgáfu af símanum sem lagar þennan tiltekna galla. Litla tækniundrið Nokia N95 Með öllu nema örbylgjuofni Erfitt að týnast N95 er með innbyggðu GPS-tæki Munurinn á tölvu og síma er sífellt að minnka, gemsar nú til dags fara á Netið, spila tónlist, sýna vídeó og geta meira að segja lesið og skrifað word-skjöl. NordicPhoto/Getty Nokia N95 Eftir Elías R. Ragnarsson elli@24stundir.is GRÆJUR PLÚS MÍNUS Með gjörsamlega öllum fídusunum Klunnalegur, skortir vinnsluminni Græjusjúklinginn sem ratar lítið FYRIR HVERN?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.