24 stundir - 16.11.2007, Page 59
24stundir FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 59
Hljómsveitarmeðlimir rokk-
hljómsveitarinnar Babyshambles
eru miður sín eftir að myndband
náðist af Pete Doherty, for-
sprakka sveitarinnar, sprauta sig
með heróíni. Pete hafði nýlokið
við meðferð vegna fíknarinnar,
sem fór greinilega ekki betur en
svo að hann kolféll um leið og
hann slapp aftur út á lífið.
,,Ég varð algjörlega miður mín
þegar ég sá þetta. Hann er ennþá
meira en líklegur til að ná sér
hreinum og hann er á besta stað
sem hann hefur verið á í langan
tíma,“ sagði bassaleikarinn Drew
McConnell, sem segir aðra með-
limi sveitarinnar einnig furðu
lostna. ,,En Pete skammast sín
mikið fyrir þetta og myndbandið
hefur komið honum úr jafn-
vægi.“ hþ
Hljómsveitin miður sín
Aðdáendur Ghostbusters-
kvikmyndanna ættu innan tíðar
að geta endurnýjað kynnin við
hina hressu draugabana þar sem
verið er að vinna að framhaldi af
myndunum tveimur um þessar
mundir. Þetta framhald verður
þó ekki í kvikmyndaformi heldur
í formi tölvuleiks. Harold Ramis
og Dan Aykroyd eru að semja
handritið fyrir leikinn en allir að-
alleikarar myndanna munu birt-
ast í leiknum. vij
Draugar ekki
lengur óhultir
Celine Dion gerir því nú skóna að
fyrirhuguð tónleikaferð hennar
um heiminn komi til með að
verða hennar síðasta. Ástæðan ku
vera sú að Celine vill einblína á
móðurhlutverkið og sniðganga
það álag sem fylgir endalausum
ferðalögum. Söngkonan, sem fyr-
ir á 6 ára dóttur, hyggst eignast
fleiri börn, en segist þó vilja bíða
þar til fyrirhuguð tónleikaferð
hennar er yfirstaðin.
,,Ef ég myndi eignast barn núna
myndi ég aldrei fara aftur að í
svona ferðir,“ sagði söngkonan.
hþ
Síðasta tón-
leikaferð Dion?
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Breska söngkonan Amy Wine-
house skaust hratt upp á stjörnu-
himininn árið 2003 þegar plata
hennar Frank sló í gegn. Amy er
þekkt fyrir einstaka sálar- og djass-
tónlistarhæfileika, en fröken Wine-
house virðist helst komast á síður
slúðurblaðanna fyrir eitthvað allt
annað en tónlist sína.
Á leið til glötunar
Nú er svo komið að óheilbrigt
líferni hennar er farið að hafa áhrif
á tónlistarferilinn, því áhorfendur
bauluðu á hana á nýhafinni tón-
leikaferð hennar, sem hófst í Birm-
ingham. Þá hafa framleiðendur
James Bond-kvikmyndanna end-
anlega strikað hana út af lista sín-
um sem flytjanda nýja Bond-
lagsins, en það þykir mikill heiður
að komast á þann lista.
Stuttur ferill Winehouse er þó
ansi skrykkjóttur, þegar horft er á
hrakfarir hennar í einkalífinu og er
árið 2007 ekki alveg hennar ár.
Hún giftist Blake-Fielder-Civil í
óvæntu skyndibrúðkaupi í Miami,
en parið hafði slitið samskiptum
tveimur árum áður, sem gaf Wine-
house innblástur fyrir lög á plöt-
unni Back to Black. Í ágúst fóru
skötuhjúin í meðferð en entust að-
eins í fimm daga, þangað til þau
stungu af. Í kjölfarið af-
lýsti hún fjölda tón-
leika í Bretlandi
og á meg-
inlandinu og
sagði ástæðuna
vera heilsufars-
legs eðlis. Í októ-
ber voru Wine-
house og maðurinn
hennar handtekin í
Noregi fyrir að bera
fíkniefni á sér.
Stuttu síðar náðust ljós-
myndir af turtildúfunum,
alblóðugum og tuskulegum
á götum Lundúna, eftir að
hafa slegist á hótelherbergi í
borginni. Áttu upptökin að hafa
verið þau, að eiginmaður Amy
hefði séð hana neyta eiturlyfja með
vændiskonu og orðið afbrýði-
samur. Hann situr nú í varðhaldi
fyrir knæpuslagsmál, en merkilegt
nokk kom Amy hvergi þar nálægt.
Fjölskyldan áhyggjufull
Foreldrar Amy eru í öngum sín-
um yfir örlögum dóttur sinnar og
hafa sagst ætla að grípa til ör-
þrifaráða komi til þess. Einnig hafa
tengdaforeldar hennar gripið í
taumana og hvatt aðdáendur Amy
til að sniðganga plötur hennar í til-
raun til þess að hægja á falli hennar
með minnkandi innkomu.
Óttast fjölskyldan að Amy og
Blake séu svo samrýnd, að ákveði
annað þeirra að taka eigið líf, fylgi
hitt í kjölfarið. „Hún stefnir
hraðbyri í átt að ræsinu. Það
sem meira er, hún gerir það
fyrir framan allan heiminn.
Það sem hún þarf er heit
kjúklingasúpa og góð rass-
skelling,“ sagði einn
aðdáandi Amy á tón-
leikunum í Birm-
ingham.
Sjúskuð Amy verður
seint talin til fegurstu
fljóða.
Breska söngkonan Amy Winehouse ræður ekki við frægðina
Stefnir hraðbyri
í átt að ræsinu
Amy Winehouse fellur
hratt af stjörnuhimninum
en stuttur ferill hennar
hefur einkennst af vanda-
málum í einkalífinu.
Aðdáendur baula nú á
hana á tónleikum.
➤ Amy er 24 ára gömul ogfæddist í Southgate, London.
➤ Hún er af gyðingaættum meðlanga tónlistarsögu.
➤ Hún hefur hlotið 4 Brit-verðlaun, 6 MTV-verðlaun og
12 önnur verðlaun fyrir tón-
list sína.
AMY WINEHOUSE
Það allra vinsælasta í dag eru
endurkomur frægra hljómsveita
sem sumar hverjar hafa verið hætt-
ar svo áratugum skiptir. Frægasta
endurkoman er eflaust Led Zep-
pelin sem kemur saman á einum
tónleikum þann 10. desember í
London. Hljómsveitin Breeders
hefur tilkynnt um endurkomu-
tónleika þann 4. desember í Chi-
cago og nú ætlar My Bloody Val-
entine að spila á sínum fyrstu
tónleikum í 16 ár. Tónleikarnir
verða þrennir á næsta ári: Þann 20.
júní í London, 28.júní í Manchest-
er og 2. júlí í Glasgow. Miðasalan
hefst í dag, 16.nóvember. re
Allar komu þær aftur og engin þeirra dó
ljósmynd/gettyimages
Vígalegir Svona litu Led Zeppelin út er þeir stóðu við einkaþotuna sína í
janúar árið 1975
Margar hljómsveitir
að koma saman aftur
Hasarhetjan Rambo, í túlkun Syl-
vester Stallone, er aftur á leiðinni
á hvíta tjaldið. Þetta verður
fjórða myndin um stríðshetjuna
en að þessu sinni er Rambo að
bjarga trúboðum í Myanmar frá
morðóðum skæruliðum. vij
Aldrei of gamall
fyrir blóðbað
Nú er enn farið að gaspra um
kvikmyndun tölvuleiksins Kane
& Lynch: Dead Men. Fregnir í
Hollywood herma að Bruce Will-
is og Billy Bob Thornton séu orð-
aðir við hlutverk hins siðblinda
og morðóða tvíeykis. vij
Siðblindir og
morðóðir gaurar