24 stundir - 16.11.2007, Page 62
62 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
Hreinasta snilld
www.irobot.is
JÓLAGJÖF ÁRSINS!
Fæst hjá iRobot Hólshrauni 7 –sími 555 2585
Byko – Max – Ljósgafanum –
Ormsson verslunum – Byggt og búið
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Jú. Við erum súrir og
vörurnar líka!
Er málið ekki frekar súrt í broti
Magnús Ólafsson er aðstoðarforstjóri Mjólkursamsöl-
unnar, sem sendi mjólkurvörur sínar á mjólkursýningu í
Danmörku, með millilendingu í Svíþjóð. Þar voru vörurnar
þó stöðvaðar og komust ekki í gegnum tollinn.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
1 5 9 6 8 3 2 7 4
6 2 7 4 5 1 3 8 9
8 3 4 2 7 9 1 5 6
9 6 3 8 1 7 4 2 5
2 4 8 5 3 6 9 1 7
5 7 1 9 2 4 6 3 8
7 8 6 1 4 2 5 9 3
3 9 2 7 6 5 8 4 1
4 1 5 3 9 8 7 6 2
Hart í bak?
Geturðu ekki talað íslensku maður?
„Á vinnustað mínum er komin
fram krafa um að hengja upp
jólaljós. Æðstráðandi er mótfall-
inn því og ég tek undir af því að
ég vil ekki hengja upp jólaljós
fyrr 20. desember og ég vil taka
þau niður 2. janúar.[…] Maður
gæti líka komist í gott skap ef þau
héngju uppi of lengi.“
Björgvin Valur
eyjan.is/goto/bjorgvin
„Brúðkaup aldarinnar“ – hvað á
að gefa fólki sem á allt?
1. Sérsmíðaðan, gullhúðaðan
iPod, 2. Segl fyrir lystisnekkju.
3. Gjafabréf í Nóatúni.
4. Fjarðarkaup. (Kaupa versl-
unina, setja bleikan borða utan
um hana og gefa þeim hana) “
Friðrik Skúlason
blogg.gattin.net
„Ég vann smá monns um síðustu
helgi og […]ákvað ég að kaupa
mér eitthvað fallegt en ekki týna
aurunum í einhverri every day-
neyslu. Ég skoðaði í allar fínustu
búðirnar og endaði með að kaupa
mér ó svo fínan kjól í tríló-
gíu … nú vantar mig bara tæki-
færi til að notann! “
Katrín Atladóttir
katrin.is
BLOGGARINN
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Mér finnst mjög ólíklegt að hann
hafi vitað af okkur. Við reyndum
að halda verkefninu leyndu svo að
stóru leikhúsin myndu ekki
stökkva til og setja þetta upp,“ seg-
ir Ívar Örn Sverrisson, leikari, en
hann ætlar í félagi við aðra að setja
upp leikritið Óþelló eftir Shake-
speare á næsta ári. Undirbúningur
hefur staðið í rúmt ár.
Tilviljun ein réð því að Baltasar
Kormákur ætlar að setja upp sama
verk í London og á Íslandi árið
2009, en þar fer Óskars-
verðlaunahafinn Forest Whita-
ker með aðalhlutverkið ásamt
Ingvari E. Sigurðssyni.
Síðast fyrir 15 árum
„Við vorum frekar varir um
okkar, þannig að ég held að
þetta sé tilviljun,“ segir Ívar.
„Það er kominn tími á að
setja verkið upp. Það er
alveg magnað.“
Óþelló var síðast
sett upp á Íslandi
af Nemenda-
leikhúsinu
fyrir 15 árum. Þá fóru hinir ungu
og upprennandi Baltasar Kormák-
ur og Ingvar E. Sigurðsson með
hlutverk í leikritinu.
„Baltasar fer
aðra leið en við.
Hann er að
tefla fram
tveimur
stjörnum,“ seg-
ir Ívar. „Við ætl-
um ekki að fara
þá leið. Við verð-
um með prufur í
mars þar sem eng-
in hlutverk eru fyr-
irfram ákveðin,
það hafa allir
jafnt tækifæri
til að sanna
sig.“
Baltasar Kormákur hafði ekki
heyrt um uppsetningu Ívars og fé-
laga þegar 24 stundir náðu í hann í
gær.
„Þú ert að segja mér fréttir, þetta
er í fyrsta skipti sem ég heyri um
þetta,“ sagði hann. „Þetta er búið
að standa til svolítið lengi hjá mér.
Við byrjuðum að ræða þetta stuttu
eftir að hann [Forest Whitaker]
fékk Óskarinn.“
Meira gaman
Baltasar segir verkið sér hug-
leikið þar sem hann hafi leikið í því
á seinni hluta níunda áratugarins.
Spurður hvort hann sé hissa á því
hvernig þetta hittist á segir hann
svo ekki vera. „Er þetta ekki bara
skemmtilegt? Verður þetta ekki
bara meira gaman?“
Ívar Örn Sverrisson og Baltasar Kormákur setja báðir upp sama verk
Ívar og Balti setja
báðir upp Óþelló
Tilviljun ein réð því að
tveir aðilar hyggjast setja
upp Óþelló eftir Shake-
speare á næsta og þar
næsta ári. Allir fá tæki-
færi hjá Ívari, en Baltasar
er búinn að ráða Ósk-
arsverðlaunahafa.
Ívar Örn Ætlar að setja upp
Óþelló á næsta ári.
Baltastar Kormákur Setur
upp Óþelló árið 2009.
HEYRST HEFUR …
Vinsældir Björgvins Halldórssonar eru með ólík-
indum. Nú er uppselt á þrenna jólatónleika hans í
Laugardalshöll. 9.000 miðar hafa selst til samans, en
karlinn er að endurtaka leikinn frá því fyrra og hef-
ur því selt samtals 18.000 miða í Laugardalshöll
rúmu ári. Árangurinn þykir sérstaklega magnaður í
ljósi þess að erlendir listamenn eiga oft í miklum
vandræðum með að fylla höllina einu sinni. afb
Bubbi Morthens lætur ekki sitt eftir liggja og
hyggst koma fram í Laugardalshöll 5. janúar. Tón-
leikarnir verða sérstakir því lög Bubba verða útsett
fyrir Stórsveit Reykjavíkur og kóngurinn hyggst
koma fram í smóking. Bubbi má ekki vera minni
maður en Bó og samkvæmt heimildum 24 stunda
eru skipuleggjendur tilbúnir að bóka Höllina undir
fleiri tónleika kóngsins verði uppselt á þá fyrstu. afb
Margir hafa áhyggjur af tónleikahaldi á Íslandi og
telja að stórfyrirtæki hirði bestu miðana áður en al-
múginn fær tækifæri til að kaupa. Áhyggjurnar
virðast ekki vera á rökum reistar, miðað við tón-
leika Bós í Höllinni. Ísleifur Þórhallsson hjá Con-
cert fullyrðir að rétt rúmir 1.500 miðar af 9.000 hafi
farið í hendur stórfyrirtækja og að almúginn fái
ætíð tækifæri til að kaupa miða á fremsta bekk. afb
Það hefur varla farið fram hjá
neinum að kvikmyndin Foreldrar
sópaði að sér verðlaununum á ný-
liðinni Edduhátíð. Kvikmyndin
Foreldrar hlaut flest Edduverðlaun
á verðlaunahátíð Íslensku
kvikmynda- og sjónvarps-
akademíunnar eða sex talsins.
Myndin var valin kvikmynd ársins,
Ragnar Bragason leikstjóri ársins,
Nanna Kristín Magnúsdóttir leik-
kona ársins og Ingvar E. Sigurðs-
son leikari ársins.
Handrit myndarinnar Foreldrar
var valið handrit ársins og Berg-
steinn Björgúlfsson hlaut Edduna
fyrir kvikmyndun á Foreldrum.
Vegna fjölda áskorana hefur kvik-
myndin nú verið tekin aftur til
sýninga hjá SAM-bíóunum.
Alfreð Ásberg Árnason, fram-
kvæmdastjóri SAM-bíóanna, sagði
að sér fyndist frábært hvað íslensk-
ar myndir væru að verða betri og
betri með árunum, og sjálfur sagð-
ist hann að sjálfsögðu vera búinn
að sjá Foreldra og líkaði hún mjög
vel.
Fyrsta endursýning á Foreldrum
var síðasta miðvikudag og fór hún
fremur hægt af stað en búist er við
að fjöldi manns skelli sér á hana nú
um helgina. Alfreð sagði að á þess-
um tíma árs væri helgaraðsókn í
kvikmyndahús iðulega mun meiri
en á sumrin væri þessu öfugt farið
og aðsókn í kvikmyndahús jafnari
yfir alla vikuna.
Um það bil 8000 manns höfðu
séð myndina Foreldra áður en hún
var tekin til sýninga að nýju en
hún var frumsýnd þann 19. janúar
síðastliðinn og sýnd í um einn og
hálfan mánuð. Kvikmyndin Börn
fékk töluvert meiri aðsókn. Mynd-
in Foreldrar er sýnd í SAM-
bíóunum í Reykjavík og Akureyri
og sýningafjöldi er takmarkaður.
heida@24stundir.is
Vegna fjölda áskorana
Foreldrar teknir
aftur til sýninga
24 stundir/G.Rúnar