Morgunblaðið - 13.11.2004, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2004 9
FRÉTTIR
Álfhólsvegi 67, 200 Kópavogi, sími 554 5820.
Opið kl. 16-18 þri., mið., fim. •
www.silfurhudun.is
Jólin nálgast
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Jólafötin komin
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af peysum og buxum
Síðasti tilboðsdagur
Bankastræti 9, sími 511 1135
www.paulshark.is - paulshark.it
Full búð af nýjum vörum
Glæsilegar jólagjafir
Jólafötin
komin
Gott úrval
Laugavegi 51, sími 552 2201
Rými ehf
Háteigsvegi 7
Reykjavík
Sími 511 1100
Bréfsími 511 1110
LOK
AD
AG
UR
ÚTS
ÖLU
NN
AR
Ef þú ert mikill aðdá-
andi hreingerninga þá
biðjumst við velvirðing-
ar á því að valda þér
vonbrigðum.
Með Pergo gólfefni
verður þú að finna þér
eitthvað annað að gera
í frítímanum þínum.
Stórútsala á
Pergo parketi
Ótrúlegt verð
Ekki missa
af gólfefnaútsölu
ársins
opið í dag
10-14
DILBERT
mbl.is
FULLTRÚAR Olíufélagsins hf. og
Samkeppnisstofnunar gerðu með sér
samkomulag um að félagið myndi
vinna með stofnuninni að því að upp-
lýsa um meint ólöglegt samráð olíufé-
laganna sem m.a. fólst í því að ekki
yrðu gerðar breytingar á starfsemi
Olíudreifingar hf.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins kom Kristján Loftsson,
stjórnarformaður Olíufélagsins, til yf-
irheyrslu hjá Ríkislögreglustjóra-
embættinu sem vitni 7. nóvember á sl.
ári. Í skýrslu um yfirheyrsluna kemur
m.a. fram að Kristján hafi m.a. upp-
lýst að hann, Kristinn Hallgrímsson,
lögmaður félagsins og Ólafur Ólafs-
son stjórnarmaður hafi farið á fund
Samkeppnisstofnunar í mars 2002 og
rætt málin varðandi samvinnu.
Ákveðið hafi verið að hefja samstarf
við Samkeppnisstofnun. Í því sam-
komulagi fólst m.a. „afsláttur á sekt-
um samkeppnisstofnunar, ef til kæmi,
og það yrði ekki ráðskast með rekstur
Olíudreifingar sem er sameignar-
félags Olíufélagsins og Olíuverslunar
Íslands og eins að samkeppnisstofnun
færi ekki að eigin frumkvæði til lög-
reglu með málið.“
Í viðtali við Morgunblaðið sl. mið-
vikudag sagði Kristinn Björnsson að
það hefði vakið athygli að í úrskurð-
arorðum með skýrslu samkeppnis-
ráðs legði stofnunin blessun sína yfir
áframhaldandi starfsemi Olíudreif-
ingar og ekki væru gerðar kröfur um
að henni yrði skipt upp eins og eðli-
legast væri. „Ég geri ráð fyrir því að
ástæða þess sé sú að á sínum tíma
þegar Olíufélagið fór og lýsti sig
reiðubúið að aðstoða Samkeppnis-
stofnun við rannsókn þessa máls, sem
hófst með húsleitinni hjá félögunum
1991, þá var sú aðstoð boðin að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum. Ég held
að á meðal skilyrðanna hafi verið að
ODR fengi að starfa áfram. Ég held
einnig að með stofnun ODR hafi skap-
ast, með blessun Samkeppnisstofnun-
ar, kjöraðstæður fyrir þessi tvö félög,
Esso og Olís, til víðtækrar samvinnu.“
Í frétt í Morgunblaðinu 26. nóvem-
ber í fyrra er fjallað um þennan
óformlega fund forsvarsmanna Olíu-
félagsins með Guðmundi Sigurðssyni
í marsbyrjun sem fór fram á Grand
hóteli í Reykjavík og komið hefur
fram að skilgreindur var sem „non-
meeting“. Þar staðfestir Guðmundur
að boðið hafi verið upp á slíkt sam-
starf af hálfu Samkeppnisstofnunar
með þeim fyrirvörum að þetta sam-
starf leiddi til þess að málið upplýstist
fyrr og betur en ella en vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um önnur atrið er
lytu að forlegri hlið málsins. Í frétt-
inni segir hins vegar að yfirmenn
Olíufélagsins hafi viljað umrætt sam-
starf til að slá skjaldborg um starfs-
fólk sem vann hjá fyrirtækinu þegar
meint brot á samkeppnislögum voru
framin. Ljóst sé að yfirmenn Sam-
keppnisstofnunar hafi ekki getað
undanskilið einstaklinga refsiábyrgð
samkvæmt íslenskum lögum enda
slík lagaheimild ekki til. Í fréttinni
segir ennfremur að samkvæmt heim-
ildum blaðsins hafi forystumenn Olíu-
félagsins ekki heldur lagt þann skiln-
ing í orð Guðmundar Sigurðssonar á
fundinum heldur að stofnunin hefði
ekki frumkvæði að því að hefja lög-
reglurannsókn.
Þeir Georg Ólafsson, forstjóri Sam-
keppnisstofnunar, og Ásgeir Einars-
son, lögfræðingur hjá stofnuninni,
gengu hins vegar á fund Þóris Odds-
sonar vararíkislögreglustjóra hinn 16.
júní á síðasta ári og í grein í Morg-
unblaðinu 5. ágúst í fyrra vitnar Þórir
í minnisblað sitt af fundinum þar sem
segir:
„GÓ og ÁE sögðust vilja vekja at-
hygli RLS á máli þessu þar sem ekki
væri beinlínis í samkeppnislögum
kveðið á um það með hvaða hætti
gera ætti rannsóknar- og ákæruvaldi
grein fyrir stöðu máls þegar svo stæði
á að til álita væri að vísa máli til op-
inberrar meðferðar, þótt sektir væru
lagðar á félögin. Fram kom í máli
þeirra GÓ og ÁE að rannsókn málsins
væri alls ekki lokið og reiknuðu þeir
með því að e.t.v. lyki henni fyrir árs-
lok. Þeir væru að leita viðhorfa RLS
til þess hvort hagfelldara væri að
RLS fylgdist með rannsókninni og
gæti þá myndað sér skoðun á því
hvort líklegt væri að málið kæmi til
kasta lögreglu eða hvort RLS vildi
bíða þar til rannsókn Samkeppnis-
stofnunar lyki.“
Sagði Þórir í grein sinni að af þessu
mætti ráða að Samkeppnisstofnun
hefði ekki á þessum fundi verið að
vísa máli til opinberrar meðferðar
lögreglu, en talsverðar deilur urðu,
m.a. milli embættanna sem kunnugt
er, með hvaða hætti það skyldi gerast.
Formleg lögreglurannsókn hófst
síðan í október á síðasta ári.
Samkomulag Olíufélagsins við Samkeppnisstofnun um umbun fyrir samstarf
Hefði ekki frum-
kvæði að lög-
reglurannsókn