Morgunblaðið - 29.12.2004, Síða 4

Morgunblaðið - 29.12.2004, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR RAFORKUVERÐ til almennings hækkar um áramótin umfram verðlagsbreytingar þegar flutn- ingsgjaldskrá Landsnets, nýs flutningsfyrirtækis raforku, tekur gildi í tilefni nýrra raforkulaga. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti er flutningskostnaður raforkunnar um 15% af heildarraf- magnsreikningum heimilanna. Þannig megi vænta þess að ef flutningskostnaður myndi hækka um 10% þá myndi raforkureikn- ingurinn hækka um því sem næst 1,5%. Orkustofnun ákvarðar hversu miklar tekjur Landsnet má inn- heimta vegna flutnings raforku. Við ákvörðun tekjuramma fyrir- tækisins fyrir árið 2005 miðaði Orkustofnun við raunverulegan kostnað forvera Landsnets, flutn- ingssviðs Landsvirkjunar, af þess- ari þjónustu á árunum 2002 og 2003, framreiknaðan miðað við verðlagsbreytingar. Gerir Orku- stofnun ráð fyrir að beinn kostn- aður vegna breytinga á skipan raf- orkumála verði 100 milljónir króna á árinu 2005. Kostnaðaraukinn jafngildir um fjórum aurum á hverja kílówattstund af for- gangsraforku sem Landsnet mun flytja til dreifiveitna á komandi ári. Hagræðing til að ná kostn- aðarhækkunum til baka Með aukinni arðsemiskröfu bæt- ast svo við fimm aurar á kWst þannig að hlutur flutningsþjónustu í hækkun á raforkuverði til neyt- enda, umfram verðlagsbreytingar, takmarkast að meðaltali við níu aura á kWst. Hækkunin er þó hærri á suðvesturhorni landsins en minni annars staðar á landinu. Í tilkynningu Landsnets segir að þótt hækkun verði á raforkuverði við upphaf nýs rekstrarumhverfis þá vonist fyrirtækið til þess að um tímabundið ástand sé að ræða. Landsnet muni leggja hart að sér á komandi árum við frekari hag- ræðingu í starfseminni, til að ná kostnaðarhækkunum til baka. Landsvirkjun gerir ekki ráð fyr- ir að heildsöluverð raforku frá fyr- irtækinu hækki að raungildi á næsta ári. Heildsöluverð gefi því ekki tilefni til verðhækkana á raf- magni í smásölu umfram verðlags- breytingar. Þetta kemur fram í svari Frið- riks Sophussonar, forstjóra Lands- virkjunar, við fyrirspurn Neyt- endasamtakanna um raforkuverð. Rafmagnið gæti hækkað um 1,5% að meðaltali Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Miklar breytingar verða á raforkumarkaðnum um áramótin og ljóst að rafmagnsreikningar margra landsmanna munu hækka, einkum á suðvesturhorni landsins. Stefnt er að hagræðingu til að ná kostnaðarhækkunum til baka. TVEIR sautján ára piltar brutust inn í líkamsræktarstöðina Olympus á Hvolsvelli aðfaranótt mánudags og stálu þaðan fæðubótarefnum. Upphaflega ætluðu þeir aðeins að príla upp á þak hússins en þegar þangað var komið fengu þeir þá hugdettu að brjótast inn. Lögreglan á Hvolsvelli fékk upp- lýsingar um innbrotið meðan það stóð yfir en þegar hana bar að garði voru piltarnir á bak og burt. Vitað var hverjir voru þar á ferð og gat lögregla því einfaldlega hringt í þá og í kjölfarið gáfu þeir sig báðir fram. Piltarnir skiluðu þýfinu og í fyrradag hittu þeir eiganda líkams- ræktarstöðvarinnar, báðu hann af- sökunar og gerðu við skemmdir á glugganum sem þeir fóru inn um. Ætluðu upp á þak en enduðu inni Á HLUTHAFAFUNDI hjá Samkaupum hf. hinn 30. des- ember verður fjallað um tillögu að lækkun hlutafjár úr 500 milljónum í 390 milljónir í tengslum við samruna félagsins við Sparkaup ehf. um áramótin. Engar breytingar verða á rekstri félaganna vegna þessa, að sögn Guðjóns Stefánssonar framkvæmdastjóra Samkaupa hf. Fleiri tímamót verða hjá Samkaupum um áramótin því þá sameinast félagið og KB Borgarnesi ehf. Samkaup reka verslanir undir nöfnunum Nettó, Kaskó, Samkaup-Úrval og Samkaup-Strax. Guðjón Stefánsson segir að samruni Samkaupa við Spar- kaup sé fyrst og fremst tækni- legs eðlis enda séu félögin í eigu sama aðila, Kaupfélags Suður- nesja. Samkaup hafi á sínum tíma sameinast Matbæ ehf. á Akureyri sem átti gömlu KEA- verslanirnar, m.a. Nettó. Á árinu 2003 hafi Sparkaup, dótt- urfélag Kaupfélags Suður- nesja, keypt hlut norðanmanna í félaginu. Þetta félag sé nú að sameinast Samkaupum. Sparkaup renna saman við Samkaup VEÐURSTOFA Íslands spáir suð- lægum áttum víða 13–18 m/s og slyddu eða snjókomu, einkum sunn- an- og vestantil á gamlársdag. Held- ur hægari suðvestanátt og él undir kvöld. Hiti verður í kringum frost- mark. Að sögn veðurfræðings kemur lægð úr Grænlandshafi yfir landið fyrri hluta gamlársdags með tilheyr- andi sunnanátt og slyddu eða snjó- komu. Enn er þó óljóst hvort að vind komi til með að lægja seinni part dags með suðvestanátt og éljagangi, að sögn veðurfræðings. Hann segir að það muni hlýna í veðri þegar skil- in ganga yfir landið fyrri part dags en svo muni að öllum líkindum kólna aftur um kvöldið og þá verði hiti í kringum frostmark. Hiti við frostmark á gamlárskvöld STJÓRN Eftirlaunasjóðs félags ís- lenskra atvinnuflugmanna hefur lækkað vextina í 4,14% fyrir sjóðs- félaga, en þeir verða óbreyttir fyrir aðra eða 4,9%. Almennt eru lífeyr- issjóðirnir að bjóða 4,15% vexti. Breytingin tekur gildi 1. janúar nk. Enginn lántökukostnaður er af lánum EFÍA og enginn kostnaður á inheimtu greiðsluseðla. Veðhlutfall er 55% af markaðsvirði en stefnt er að því að breyta samþykktunum þannig að 65% verði þau mörk sem lög um lífeyrissjóði leyfa. EFÍA býður 4,14% vexti VÆRI öllum 22 þúsund eintökum bókarinnar Kleifarvatn eftir Arn- ald Indriðason staflað upp myndi staflinn verða 660 metra hár. Hvert eintak er um þriggja sentímetra þykkt og samkvæmt upplýsingum Kristjáns B. Jónassonar, hjá Eddu- útgáfu, yrði staflinn því rúmlega 9 Hallgrímskirkjuturnar að hæð en turninn er um 72 metra hár. Prent- uð voru 22 þúsund eintök af bókinni og var hún uppseld hjá útgefanda 22. desember. 660 metra bókastafli NÝTT leiðarkerfi Strætó bs. verður tekið í notkun 19. júní 2005, en vinna við endurskoðun kerfisins hef- ur verið í gangi á árinu. Nokkrar tafir hafa orðið á því að leiðarkerfið verði tekið í notkun, að mestu vegna þess að tryggt þarf að vera að fram- kvæmdum við skiptistöðvar verði lokið. Ásgeir Eiríksson, framkvæmda- stjóri Strætó bs., segir að nú sé ljóst að framkvæmdum við Hlemm og nýja skiptistöð á mótum Vestur- landsvegar og Breiðhöfða verði lok- ið á tilsettum tíma og því hafi verið hægt að ákveða dagsetninguna. Kostir og gallar við allar dagsetningar Hann segir kosti og galla við allar dagsetningar. Þó sé margt sem mæli með þessari dagsetningu, júní sé rólegasti mánuður ársins, öllum skólum sé lokið og ekki margir ferðamenn komnir. Einnig sé hentugt að fara í vinnu við að setja upp merkingar á bið- stöðvum, færa einhver biðskýli og annað sem fylgi þessum breytingum um sumar. Á móti kemur að ein- hverjir af fastráðnum bílstjórum verða komnir í sumarleyfi og því þarf að gæta þess að þeir kynnist kerfinu áður en þeir snúa aftur til starfa að loknu fríi. Ásgeir segir það einnig kost að hægt verði að nota sumarið til þess að fínstilla kerfið og sníða af því agnúa sem kunna að koma í ljós þegar verður farið að keyra eftir nýja kerfinu. Þá verði allt komið á hreint áður en skólar hefjast í ágúst og fólk búið að fá tækifæri til að venjast kerfinu. Nýtt leiðarkerfi Strætó tekið í notkun í júní Tafir vegna fram- kvæmda við Hlemm Morgunblaðið/Árni Torfason Taka átti nýtt leiðarkerfi Strætó í gagnið í ágúst sl. en nú hefur verið ákveðið að byrja að keyra eftir nýja kerfinu 19. júní 2005. BÆJARRÁÐ Grindavíkur mun í dag ræða ástandið sem varð í bæn- um á jóladag þegar hópur ung- menna kveikti í áramótabrennu bæjarins, í bálkesti í sólarvéinu og reyndu að kveikja í brennu við Salt- fisksetrið. Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri segir að bæjarráð muni m.a. ræða um hvernig bregðast eigi við þessu og hvað bæjarfélagið geti lagt af mörkum til að koma í veg fyrir að svipaðir atburðir gerist á næsta ári. „Annars get ég voðalega lítið sagt um þetta, ég lít nú bara á þetta sem lögreglumál í augnablikinu,“ segir hann. Verið er að safna efni í nýja brennu og segir Ólafur Örn að margir hafi boðið fram aðstoð sína við það. „Við ætlum að hafa brennu fyrir okkar fólk eins og vanalega.“ Brennufár rætt í bæjarráði STJÓRN Hitaveitu Suðurnesja ákvað í gær breytingar á gjald- skrám fyrir raforkuverð frá og með áramótum. Almennt raf- orkuverð hækkar á flestum veitu- svæðum um 4,86% en verðið lækk- ar í Vestmannaeyjum og Árborg um 3,58%. Hins vegar hækkar fastagjald rafmagnsreikninga um 300 krónur á öllum veitusvæðum Hitaveitu Suðurnesja. Orkuveita Reykjavíkur hefur ekki ákveðið breytingar á gjaldskrám sínum um áramótin. Hitaveita Suðurnesja breytir gjaldskrám

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.