Morgunblaðið - 29.12.2004, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FLUGVÉL Loftleiða Icelandic lagði
af stað klukkan 22 í gærkvöldi
áleiðis til eyjunnar Phuket á Taí-
landi til að sækja farþega að beiðni
sænskra stjórnvalda. Átti hún að
sækja um 200 Svía og er von á þeim
til Stokkhólms snemma að morgni
gamlársdags.
Íslenskum stjórnvöldum var boð-
ið að nýta ferðina austur og var síð-
degis í gær verið að kanna hvort
sent yrði drykkjarvatn eða önnur
hjálpargögn með vélinni. Að sögn
Péturs Ásgeirssonar, skrif-
stofustjóra í utanríkisráðuneytinu,
ákvað Ölgerðin Egill Skalla-
grímsson að gefa 10 tonn af vatni
sem send voru með vélinni.
Pétur segir að Flugleiðir hafi
haft samband við ráðuneytið í gær
vegna ferðarinnar. Mjög stuttur
fyrirvari var til fyrirspurna en Öl-
gerðin hafi brugðið skjótt við.
Íslensk flugvél sækir Svía til Taílands
Ljósmynd/Víkurfréttir, Atli Már
Ölgerðin Egill
Skallagrímsson gaf
10 tonn af vatni til
bágstaddra
STJÓRN Pokasjóðs verslunar-
innar ákvað að veita fimm millj-
ónum króna til hjálparstarfs
vegna flóðanna sem urðu í kjöl-
far jarðskjálftanna í Indlands-
hafi annan í jólum. Var framlag
sjóðsins afhent Rauða krossi
Íslands.
Undantekning er að veitt sé
úr Pokasjóði til verkefna er-
lendis en sérstök ástæða þótti
til að leggja fram fé úr sjóðnum
í þessu tilfelli vegna umfangs
hörmunganna.
Í tilkynningu frá RKÍ kemur
fram að féð bætist við um níu
milljónir sem um 7.000 einstak-
lingar höfðu lagt fram með því
að hringja í söfnunarsíma RKÍ
og fimm milljónir sem stjórn-
völd hafi lofað. Samtals sé því
almenningur á Íslandi með ein-
um eða öðrum hætti búinn að
gefa tæplega tuttugu milljónir
króna til hjálparstarfsins.
Hægt er að gefa með því að
hringja í 907 2020 og skuldfær-
ast þá eitt þúsund krónur á
símreikning.
RKÍ vill taka sérstaklega
fram að hvatning til almenn-
ings um að kaupa ekki flugelda
fyrir áramót séu ekki komnar
frá félaginu. Þvert á móti vilji
RKÍ minna á að flugeldasala sé
ein af fjáröflunarleiðum Lands-
bjargar, sem ásamt Rauða
krossinum gegni lykilhlutverki
við hjálparstarf þegar bregðast
þarf við vá hér á landi.
Tæpar
20 millj-
ónir frá
Íslandi
Pokasjóður veitir
fimm milljónir til
hjálparstarfs
VARARÆÐISMAÐUR Íslands í
Taílandi kom til eyjarinnar Phuket í
fyrradag. Hann heimsótti danska
áfallamiðstöð sem þar er, auk þess
sem hann heimsótti spítala á eyjunni
og fullvissaði sig um að enginn Ís-
lendingur væri á meðal slasaðra.
Að sögn Pouls Webers, ræðis-
manns Íslands í Taílandi, sem stadd-
ur er í Bangkok, hefur hann reynt að
aðstoða fólk við að finna þá sem eru
týndir en hann hefur aðsetur í
danska sendiráðinu. Að sögn Web-
ers er ennþá mjög erfitt að greina
frá hjálparstarfi í S-Taílandi, fjar-
skipti séu mjög erfið.
„Ég get þó sagt frá því að stjórn-
völd í Taílandi hafa búið svo um að
allir sem vilja koma til Bangkok, fólk
sem er sjúkt eða slasað, fær ókeypis
flug frá Phuket og gistingu í Bang-
kok og spítalavist.“
Að sögn hans er áætlað að um 5–6
þúsund Danir og 10–15 þúsund Svíar
séu í Phuket og nágrenni og er ekki
vitað um afdrif allra þeirra. Alls er
talið að um 2.000 manns, hugsanlega
enn fleiri, hafi týnt lífi á hamfara-
svæðum í Taílandi, að sögn Webers.
Að sögn hans mun vararæðismað-
ur Íslands dvelja áfram í Phuket þar
til ástandið verður skýrara. Danski
sendiherrann sé einnig staddur þar
um þessar mundir og sömuleiðis son-
ur Webers, sem starfar fyrir danskt
ferðatryggingafyrirtæki.
Enginn
Íslending-
ur meðal
slasaðra
Vararæðismaður Ís-
lands í Taílandi í Phuket
EKKERT hefur spurst til ellefu Ís-
lendinga sem talið er að séu í Suður-
Asíu á svipuðum slóðum og flóð-
bylgjurnar dundu yfir í byrjun vik-
unnar. Að sögn Péturs Ásgeirs-
sonar, skrifstofustjóra í utanríkis-
ráðuneytinu, er talið að sex
Íslendingar séu á ferðamannastaðn-
um Pattaya á Taílandi, þar af ein
þriggja manna fjölskylda, og fimm
manna fjölskylda á Balí í Indónesíu;
hjón með þrjú börn. Þessir staðir
urðu ekki fyrir barðinu á flóðbylgj-
um og að sögn Péturs gengur ráðu-
neytið út frá því að Íslendingarnir
hafi haldið sig þar.
Síðast náðist samband við íslensk-
an kafara í gærkvöldi, sem hafði ver-
ið staddur í Suður-Taílandi og að-
standendur voru farnir að óttast um.
Hópur Íslendinga á Phuket-eyju
hefur óskað eftir aðstoð utanríkis-
ráðuneytisins við að yfirgefa eyjuna
og komast til Bangkok. Pétur segir
ræðismann Íslands í Taílandi vera í
sambandi við hópinn og líklega kom-
ist hann frá eyjunni á næstu dögum.
Ekki sé litið svo á að sá hópur sé í
einhverri hættu.
Um 130 Íslendingar á listanum
Að sögn Péturs er heildarfjöldi Ís-
lendinga á nafnalista utanríkisráðu-
neytisins um 130. Þriðja í jólum voru
55 manns á listanum en þeim fjölg-
aði ört. Síðan þá hafi fólk ýmist sett
sig í samband við ráðuneytið eða
ættingja sína eða tekist hefur að
hafa uppi á fólki með öðrum hætti.
Margir Íslendingar hafa vetursetu á
Taílandi og aðrir eru í styttri fríum.
Að sögn Péturs hefur ennþá ekk-
ert komið fram sem bendir til að Ís-
lendingar hafi farist eða lent í slys-
um. „Með tilliti til aðstæðna er hins
vegar ekki hægt að fullyrða um það,
að það sé allt í lagi með þetta fólk en
það er ekkert sem bendir til að Ís-
lendingar hafi lent í slysum eða
slíku,“ segir hann.
Stutt er frá Pattaya yfir á hættu-
svæði og segir Pétur að ekki sé vitað
hvort einhverjir Íslendingar hafi
verið á ferðalögum þegar ósköpin
dundu yfir. Að sögn hans hefur fólk-
ið, sem hefur haft samband við ráðu-
neytið frá í fyrradag, ekki verið á
svonefndum hættusvæðum.
Um 4–5 starfsmenn utanríkis-
ráðuneytisins hafa síðustu daga unn-
ið við að svara símtölum frá ætt-
ingjum og reynt að hafa uppi á
Íslendingum sem enn er saknað.
Sólarhringsvakt er alla daga ársins í
ráðuneytinu. Þá hefur utanríkis-
ráðuneytið boðið fram aðstoð ræð-
ismanna Íslands á hamfaraslóðunum
en Rauði krossinn hefur aðstoðað
fólk hér á landi við að hafa uppi á er-
lendum ríkisborgurum á hamfara-
slóðunum.
Ekki vitað um ferðir ellefu
Íslendinga á flóðasvæðum
„Ekki hægt að fullyrða að það sé allt í lagi með þetta fólk“
dæla upp úr kjallaranum síðast þeg-
ar ég vissi og enn þá að bera út lík,“
segir Friðrik.
Um daginn örlagaríka, sl. sunnu-
dag, segir hann: „Við vissum raunar
ekkert hvað var í gangi af því að
rafmagnið fór af mjög fljótt þannig
að það var ekkert sjónvarpssam-
band.“
Fyrsta daginn héldu allir hótel-
gestir kyrru fyrir á hótelinu. „Þetta
var tólf tíma „stopp“ án rafmagns,
við máttum ekki fara út, áttum helst
að vera við svalir til að geta hlaupið
út, og vorum alltaf að bíða eftir eft-
irskjálfta og flóði sem kom sem bet-
ur fer ekki. Þegar fór að líða á dag-
inn fengum við SMS skilaboð að
heiman um hvað í rauninni var að
gerast. Við vorum ótrúlega heppin.“
Að sögn Friðriks hækkar tala lát-
FRIÐRIK Árnason prentsmiður er
í hópi átta Íslendinga á Patong-
strönd á Phuket-eyju á Taílandi
sem varð illa úti í flóðbylgjunni á
sunnudagsmorgun. Fram kom í
Mbl. á mánudag að það varð þeim til
happs að þau sváfu lengur þann
morgun og voru ekki komin niður á
strönd þegar flóðbylgjan reið yfir
og skolaði öllu í burtu sem fyrir
varð.
Að sögn Friðriks er hótelið þar
sem þau dvelja í eins kílómetra fjar-
lægð frá ströndinni, en svo mikill
var kraftur flóðbylgjunnar að hún
„staðnæmdist við anddyri hótelsins“
eins og Friðrik lýsir því. Að sögn
hans hefur hópurinn það ágætt eftir
atvikum.
Ennþá að bera út lík
„Við fórum [í fyrradag] að skoða
ströndina, öll strandgatan og
ströndin sjálf eru bara gjörsamlega
farnar. Við horfðum á þar sem verið
var að dæla vatni út úr kjallara stór-
markaðar á ströndinni, sólarhring
eftir flóðið, og líkin voru borin út og
upp á pallbíla. Þeir voru enn þá að
inna stöðugt á Phuket-eyju og enn
þá er unnið að því að dæla vatni úr
kjöllurum húsa.
Landbrúin umflotin vatni
Íslenski hópurinn á bókað flug frá
Phuket til Bangkok 6. janúar en
ætlar að freista þess að komast það-
an fyrr. Þaðan halda þau áfram
ferðalaginu en þau áforma að koma
til Íslands 15. janúar.
Um 13 tíma akstur er til Bangkok
frá Phuket-eyju. Að sögn Friðriks
höfðu þær fréttir hins vegar borist
að landbrúin til Pukhet sé umflotin
vatni og þarf því að stóla á flug-
samgöngur sem hafa gengið úr
skorðum.
Íslendingarnir notuðu gærdaginn
til að skoða sig um á helstu ferða-
mannastöðum á Phuket-eyju en að
öðru leyti er lítið um að vera, að
sögn Friðriks.
Hann segir flesta hótelgestina
þar sem þau dvelja hafa skilað sér
aftur en um tíma var óttast um af-
drif einhverra. Verst úti urðu hótel
niðri við ströndina og þar er mann-
tjónið mest.
Báru lík úr stórmark-
aði upp á pallbíla
Átta Íslendingar
á Phuket-eyju
bíða þess að kom-
ast þaðan burtu
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
hefur í sérstakri tilkynningu
varað við ferðalögum til suðvest-
urhluta Taílands, Norður-Súm-
ötru í Indónesíu, suðaustur-
strandar Indlands, Sri Lanka og
Maldíveyja. Á þessum svæðum
er ástandið verst eftir að flóð-
bylgja reið þar yfir á sunnudag.
Á Taílandi nær viðvörunin til
eyjarinnar Phuket, Krabi, Phi
Phi-eyju og annarra eyja í ná-
grenninu. Ferðalöngum til ann-
arra svæða í Taílandi er ráðlagt
að kynna sér vel aðstæður, m.a.
með því að hafa samband við
ferðaskrifstofur og hótel, sem
og að afla sér með öðrum hætti
nákvæmra upplýsinga um hvort
öruggt sé að ferðast til viðkom-
andi áfangastaðar.
Þá varar utanríkisráðuneytið
við ferðalögum til Norður-Súm-
ötru, og þá sérstaklega til Aceh-
héraðs. Ferðalöngum til ann-
arra svæða í Indónesíu er ráð-
lagt að kynna sér rækilega
aðstæður og ráðleggingar þar-
lendra stjórnvalda.
Varað
við ferða-
lögum