Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 7
FRÉTTIR
ACTAVIS hefur undirritað samning
um kaup á pólska lyfjafyrirtækinu
Biovena. Sigurður Óli Ólafsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækjaþróun-
ar Actavis, segir að kaupin flýti inn-
komu fyrirtækisins inn á markaðinn
í Póllandi miðað við það sem áður var
stefnt að.
Biovena einbeitir sér einkum að
sölu lyfja við þvagfæra-, geð- og
taugasjúkdómum. Í tilkynningu frá
Actavis segir að fyrirtækið hafi yfir
að ráða góðu úrvali lyfja og hafi
tryggt sér markaðsleyfi fyrir átta lyf
og sé auk þess með átta ný lyf í
skráningu sem búist sé við að verði
sett á markað á næsta ári.
Haft er eftir Róbert Wessman,
forstjóra Actavis, að kaupin séu í
samræmi við stefnu félagsins um
uppbyggingu þess í Mið-Evrópu.
„Með kaupunum erum við komin
með beinan aðgang að pólska mark-
aðnum. Við getum í framhaldi skráð
og selt okkar eigin lyf þar en í því
sjáum við ákveðna samlegð.“
Kaupverð Actavis á Biovena er
ekki gefið upp en í tilkynningunni
segir að ekki sé gert ráð fyrir að þau
hafi veruleg áhrif á afkomu Actavis.
Biovena var stofnað árið 2000 og
hefur aðallega lagt áherslu á sölu og
markaðssetningu á samheitalyfjum í
Póllandi. Hjá fyrirtækinu starfa 40
manns og eru höfuðstöðvar þess í
Varsjá.
Actavis
kaupir
pólskt lyfja-
fyrirtæki
Flýtir innkomu
á pólska markaðinn
BARNAHEIMILI sem íslensku
hjálparsamtökin ABC-barnahjálp
reka á suðausturströnd Indlands
sluppu við tjón í náttúruhamför-
unum á sunnudag sem kostuðu tugi
þúsunda manna lífið í a.m.k. níu
löndum við Indlandshaf. Ekki mátti
þó miklu muna á El Shaddai-
barnaheimilinu sem rekið er fyrir
íslenskt styrktarfé nálægt borginni
Madras í Tamil Adu-héraði.
„Þær fréttir voru að berast að
það var hreint kraftaverk að El
Shaddai-heimilið slapp algerlega.
Einni mílu [1,6 km] frá olli flóð-
bylgjan miklum usla og einhverju
manntjóni,“ sagði Guðrún Hrólfs-
dóttir, starfsmaður ABC-barna-
hjálpar, í samtali við Morgunblaðið
síðdegis í gær.
Mikið hringt á skrifstofuna
El Shaddai er í um 50 km fjar-
lægð frá Madras og búa þar 174
börn í nýlegu húsi sem byggt var að
mestu leyti fyrir íslenskt söfn-
unarfé. 1.700 indversk börn búa enn
fremur á heimili sem ABC-barna-
hjálp rekur í Gannavaram sem er í
um 20 km fjarlægð frá borginni
Vijayawada í Andhra Pradesh á
suðausturströnd Indlands. Þar bját-
aði ekkert á.
Börnin á El Shaddai-barnaheim-
ilinu eru öll studd af Íslendingum og
sagði Guðrún að mikið hefði verið
hringt á skrifstofuna í Sóltúni í gær.
Hefði þar verið um að ræða Íslend-
inga sem áhyggjur höfðu af af-
drifum fósturbarnanna sinna.
ABC-hjálparstarf var stofnað árið
1988 sem íslenskt, samkirkjulegt
hjálparstarf. Tilgangurinn með
stofnun þess var að veita nauð-
stöddum börnum varanlega hjálp
og vera farvegur fyrir framlög gjaf-
mildra Íslendinga sem skila sér
óskert til umkomulausra barna í fá-
tækari löndum. ABC-barnahjálp sér
nú fyrir um 4.000 börnum með hjálp
íslenskra fósturforeldra, aðallega á
Indlandi, Úganda og Filippseyjum.
Nokkur börn sem notið hafa stuðnings Íslendinga á El Shaddai-heimilinu.
Barnaheimili ABC-
barnahjálpar sluppu
HÁTT í þrjátíu Íslendingar á svo-
nefndri veraldarvakt RKÍ, hafa lýst
sig reiðubúna að halda til starfa á
hamfarasvæðunum við Indlandshaf
með skömmum fyrirvara, skv. upp-
lýsingum frá RKÍ. Einn sendifulltrúi
RKÍ er á leiðinni til Sri Lanka þar
sem hann mun taka þátt í hjálpar-
starfi á vegum Alþjóða Rauða kross-
ins.
Að sögn Sigrúnar Árnadóttur,
framkvæmdastjóra Rauða kross Ís-
lands, eru yfir 100 manns á skrá sem
eiga sammerkt að hafa farið í gegn-
um tiltekna þjálfun; hjúkrunarfræð-
ingar, fólk sem starfar að upplýs-
ingamálum, sálfræðingar, fólk sem
getur annast matvæladreifingu, fjar-
skipti og fjármál, svo fátt eitt sé
nefnt.
Mest er þörfin á Sri Lanka eins og
sakir standa og hefur indverski
Rauði krossinn t.d. ekki óskað eftir
aðstoð hjálparstarfsmanna. Að sögn
Sigrúnar er stöðugt unnið að því að
endurmeta þörfina fyrir alþjóðlega
aðstoð.
Rauða krossinum hefur borist
talsvert af fyrirspurnum frá fólki á
Íslandi sem óskar aðstoðar við að
hafa uppi á erlendum ríkisborgurum
á hamfarasvæðunum. Að sögn Sig-
rúnar er um að ræða nánustu ætt-
ingja fólks sem búsettir eru á flóða-
svæðunum. Stuðst er við upplýsinga-
net Rauða krossins og utanríkis-
ráðuneytisins.
Samkvæmt upplýsingum frá Hag-
stofunni eru 213 manns, sem búsett-
ir eru hér á landi, frá Indlandi, 86 eru
frá Indónesíu, 132 frá Sri Lanka og
751 frá Taílandi.
Þeir sem óttast um afdrif ættingja
sinna sem eru erlendir ríkisborgarar
er bent á að hringja í síma 1717 eða
beint til Rauða krossins.
Hátt í 30 sér-
fræðingar reiðu-
búnir að aðstoða
ÞEIR sem vilja styðja við bakið á
hjálparstarfi í S-Asíu í kjölfar
náttúruhamfaranna geta hringt í
söfnunarsíma Rauða krossins,
907-2020, og þá gjaldfærast 1.000
kr. af símreikningi viðkomandi.
Einnig er hægt að styðja hjálp-
arstarfið með því að leggja inn á
reikning 1151-26-12, kennitala
530269-2649, og með greiðslu af
kreditkorti með því að fara inn á
vef RKÍ, www.redcross.is.
Þá tekur Hjálparstarf kirkj-
unnar við framlögum til neyðarað-
stoðar í síma 907-2002 og á reikn-
ingsnúmerið 1150-26-21000.
Stuðningur við
hjálparstarfið í S-Asíu