Morgunblaðið - 29.12.2004, Page 8

Morgunblaðið - 29.12.2004, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Munið að slökkva á kertunum ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins ❄ ❄ ❄ Ekki setja kerti ofan í hvað sem er, falleg glös geta hitnað og sprungið. ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ Árið sem er að líðaverður metár hjáKauphöll Íslands en allt útlit er fyrir að velt- an verði um 2.200 milljarð- ar. Árið 2003 var veltan 1.577 milljarðar þannig að aukningin í veltu er nálægt 40% og raunar slagar veltuaukningin á milli ára hátt upp í veltuna sem var á árinu 2001 sem sýnir hversu mikill kraftur hefur verið í markaðinum. Lík- lega verður þessa árs þó einkum minnst fyrir mikla útrás íslenskra fyrirtækja á erlendum mörkuðum, ekki síst banka og fjár- málafyrirtækja. Fyrirtækin sóttu sér 180 milljarða á markaðinum Og árið var óvenju gott og eitt hið allra besta þegar horft er til verðþróunar á hlutabréfamark- aðinum: Í upphafi ársins stóð úr- valsvísitalan í 2.114 stigum en var í upphafi þessarar viku komin í um 3.355 stig og hefur því hækkað um 59% það sem af er árinu. Eini geir- inn sem segja má að hafi setið eftir er sjávarútvegurinn en vægi sjávar- útvegsfyrirtækjanna á hluta- bréfamarkaðinum hefur farið hrað- minnkandi á undanförnum árum. Útrásarfyrirtækin hafa nýtt sér byrinn á markaði og sótt sér fjár- magn á markaðinum eða um 180 milljarða sem er um 16% af mark- aðsvirði fyrirtækja á hlutabréfa- markaðinum sem er hlutfallslega miklum mun meira en þekkist á mörkuðunum í kringum okkur. Sem dæmi má nefna að hlutabréfa- markaðurinn hér hefur skilað fyr- irtækjum sami fjármagni og allur danski markaðurinn. „Þetta er besta ár Kauphallar- innar frá upphafi, eiginlega sama á hvaða mælikvarða er litið,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands. Hann segir út- rás íslenskra fyrirtækja hafa sett gríðarlega mikið mark á þróunina á markaði og undir það taka for- svarsmenn greiningardeilda bank- anna og talsmenn verðbréfafyrir- tækja. Forstjóri Kauphallarinnar bendir á að markaðsvirði útrásar- fyrirtækjanna hafi aukist um 400 til 500 milljarða frá árinu 2000 en sú upphæð svari til um helmings landsframleiðslunnar. Vart finnist dæmi um svo hraða útrás fyrir- tækja, eins og hér, í nokkru þróuðu hagkerfi annars staðar. Menn eru almennt sammála um að það sé út- rásin sem standi upp úr þegar litið sé um öxl og það hvernig íslensk fyrirtæki hafi verið að eflast og stækka og ná í fjármagn á markaði. Heimildarmenn í greiningar- deildum bankanna og hjá fjármála- fyrirtækjum sem Morgunblaðið ræddi við töldu flestir að ekki væri séð fyrir endann á þeirri þróun, fastlega mætti gera ráð fyrir að hún myndi halda áfram á næsta ári og sterk króna ýtti undir erlendar fjárfestingar. Sumir ganga svo langt að segja að útrásin sé rétt ný- hafin, íslensku fyrirtækin eigi enn töluvert inni og muni kaupa eða sameinast erlendum fyrirtækjum enn frekar en orðið er. Umsvif ís- lensku fyrirtækjanna hafa vakið athygli erlendis og sumir telja að erlend fyrirtæki muni horfa meira á íslenska hlutabréfamarkaðinum með hugsanleg kaup á fyrirtækj- um í huga. Reyndar er það út af fyrir sig mjög athyglisvert að þetta hafi ekki gerst í neinum verulegum mæli með auknu frelsi á fjár- magnsmarkaði samhliða þátttöku okkar í EES. Reglan hefur verið sú að þegar minni lönd gerast aðilar að svo stórum markaði hafa erlend félög keypt þar fyrirtæki og gert að útibúum. Hér hefur þróunin verið þveröfug, útrás í stað innrás- ar. Eftir að sjá hvernig fjárfest- ingar erlendis munu skila sér En þótt fjármálafyrirtækin hafi verið áberandi eru það ekki bara þau sem hafa verið að sækja fram, benda má á fyrirtæki eins og Bakkavör, SÍF, SH o.fl. Í raun er staðan sú að útrásarfyrirtækin vega nú meira en 50% í úrvalsvísi- tölunni og verðþróun á hlutabréfa- markaðinum ræðst því að verulegu leyti af því hvernig þessar miklu fjárfestingar munu skila sér á næstu misserum. Um þetta eru nær allir eru sammála. Aftur á móti benda menn á að ekki megi gleyma að það sé rífandi gangur í hagkerfinu og hagvöxtur mjög mikill og mun meiri en í lönd- unum í kringum okkur. Í reynd séum við stödd á öðrum stað í hag- sveiflunni en önnur vestræn ríki og reikna megi með að svo verði a.m.k. næstu tvö árin. Í annan stað benda menn á að fyrirtækin hafi verið að sýna góða afkomu og horf- ur séu ágætar. Flestir virðast vera bjartsýnir um þróunina á hlutabréfamarkaði á næsta ári þó ekki sé ástæða til að gera ráð fyrir viðlíka hækkunum og menn hafa séð í ár. Markaður- inn sé nú væntanlega frekar hátt verðlagður án þess þó að hægt sé að tala um verðbólu í því sambandi; lækki verð hlutabréfa muni ekki líða á löngu þar til markaðurinn muni rétta úr kútnum. Almennt búast menn við frekar „rólegum“ hækkunum, að minnsta kosti fyrstu mánuði næsta árs og að fjár- festar muni bíða eftir ársuppgjör- um félaganna á hlutabréfamark- aðinum og sjá hvernig árið hefur komið út. Fréttaskýring | Hlutabréfamarkaðurinn Met slegin á ári útrásar Úrvalsvísitalan hefur hækkað um nær 60% og veltan aukist um hátt í 40% Hækkun hlutabréfa einkennir árið. Útrásarfyrirtækin hafa sótt sér 180 milljarða  Markaðsvirði íslensku útrás- arfyrirtækjanna hefur aukist um 400 til 500 milljarða frá árinu 2000 en sú upphæð svarar til um helmings landsframleiðslunnar. Vart finnast dæmi um svo hraða útrás fyrirtækja, eins og hér, í nokkru þróuðu hagkerfi annars staðar. Sem dæmi um kraftinn í íslenska markaðinum má nefna að hann hefur skilað fyrirtækj- unum sama fjármagni og allur danski markaðurinn. arnorg@mbl.is VEÐURBLÍÐA var í Öræfasveit yfir jólahátíðina, eins og gjarnan í norðanátt þegar stórhríð og ófærð hrjá- ir oft aðra landsmenn. Hátíðarguðsþjónusta var í litlu torfkirkjunni á Hofi á jóladag. Séra Einar Jónsson á Kálfafellsstað mess- aði. Á myndinni sjást kirkjugestir spjalla saman í blíð- unni eftir messu og ekki bærist hár á höfði. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Messað í torfkirkjunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.