Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 11 FRÉTTIR Verið er að taka í notkunnýjar höfuðstöðvar Sam-skipa hf. við Kjalarvog íReykjavík og verður nú öll starfsemi félagsins, Landflutn- inga og Jóna Transport ehf., með yfir 400 starfsmönnum í Reykjavík af 950 starfsmönnum fyrirtækisins um allan heim, undir sama þaki á um 28 þúsund fermetrum. Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, segir í samtali við Morgunblaðið að starfsemin hafi áður verið á 5 stöð- um og verði nú hægt að veita við- skiptavinum betri þjónustu auk þess sem sparnaður verður að því að hafa allt á sama stað. Fyrsta skóflustungan var tekin í ágúst í fyrra og 13 mánuðum síðar flutti Vörumiðstöð Samskipa í hús- ið. Var fyrsta vörusendingin af- greidd þaðan í október þegar form- legur flutningur í nýja húsið hófst. Verið er að flytja aðalskrifstofuna um þessar mundir og starfsmenn hverrar deildarinnar á fætur ann- arri óðum að koma sér fyrir. Land- flutningar-Samskip flytja í húsið á morgun og Jónar Transport ehf., sem er í eigu Samskipa, flytja 13. janúar. Halda á vígsluhátíð 15. jan- úar. Húsið hannað um leið og það var reist Arkitekt hússins er Arkís og Ís- tak annaðist framkvæmdir eftir alútboð. Knútur segir að for- ráðamenn Samskipa hafi lagt fram ákveðnar forsendur vegna hönn- unar og síðan hafi Ístak tekið við og nánast hannað húsið um leið og það reis. Þannig var t.d. ákveðið eftir að framkvæmdir hófust að hafa allt húsið jafnhátt og fá þannig meira pláss fyrir skrifstofur. Verkfræðileg ráðgjöf og eftirlit var hjá Línuhönn- un, Lagnatækni og Raftæknistof- unni. Byggingarkostnaður er áætl- aður um 2,1 milljarður króna og sér Íslandsbanki um fjármögnun. Húsið er sem fyrr segir 28 þús- und fermetrar og grunnflöturinn 17.500 fermetrar. Lengd hússins er 240 metrar, breidd 70 m og mesta lofthæð 17 m. Á jarðhæð eru mót- taka og Vörumiðstöðin með tilheyr- andi skrifstofum og aðstöðu fyrir tollgæslu, á annarri hæð, sem er lít- il vegna mikillar lofthæðar Vöru- miðstöðvarinnar, eru skrifstofur Jóna Transport og fleira og á þeirri þriðju skrifstofur Samskipa og smá- vöruloft. Stærsti hluti hússins fer undir starfsemi Vörumiðstöðvarinnar en undir hana falla inn- og útflutn- ingur, tollvörugeymsla, vöruhýsing og birgðahald fyrir um 100 fyr- irtæki, einkum matvöruverslanir, flugflutningar, afgreiðsla Land- flutninga-Samskipa og móttaka bú- slóða. Knútur G. Hauksson segir að þróað hafi verið mjög fullkomið tölvukerfi til að stýra vöruflæðinu um húsið og var það prófað áður ít- arlega á gamla staðnum til að ná úr því byrjunarörðugleikum. „Við getum sinnt hér á einum stað allri vöruafgreiðslu, frá því varan kemur úr skipi, geymt hana við réttar aðstæður og rétt hitastig, afgreitt í gegnum toll og síðan tínt til sendingar í verslanir sem eru í viðskiptum við Vörumiðstöðina,“ segir Knútur. Verslanir panta vör- urnar eigi síðar en kl. 15 og eftir það eru sendingar teknar saman fram á kvöld og nótt og sendar þeim morguninn eftir. Sami bíll færir verslunum vöru frá mörgum aðilum sem Knútur segir að sé mun þægilegra fyrir þær í stað þess að þurfa að taka á móti mörgum bílum á degi hverjum. Um 20 manns starfa á næturvöktum og 10 á dag- inn við að taka saman sendingar úr Vörumiðstöðinni. Þá segir Knútur að sjálfvirknin nái út fyrir húsið þar sem bílar sem sækja eiga vörur tilkynna sig í mót- tökukassa á hliðhúsi svæðisins þeg- ar þeir aka inn á svæðið og fá þá af- greiðslunúmer sem birtist á viðkomandi vöruhurð. Þurfi þeir að bíða geta bílstjórar t.d. nýtt sér þvottastöð á meðan eða tekið elds- neyti. Sófaherbergi og barnaherbergi Starfsmenn á skrifstofu Sam- skipta voru í óða önn að koma sér fyrir í gær og verða að því fram eft- ir vikunni eftir því sem iðn- aðarmenn ljúka frágangi innrétt- inga. Segir Knútur að menn hafi lagt nótt við dag síðustu daga og að- eins gert hlé á aðfangadag og jóla- dag. Á skrifstofuhæðinni er góð að- staða fyrir alla starfsmenn, aðstaða til að stunda heilsurækt, nokkur svokölluð sófaherbergi sem notuð verða fyrir minni fundi, mötuneyti og kennslusalur. Þá er barna- herbergi á hæðinni sem Knútur segir ætlað börnum starfsmanna sem þeir geti þurft að taka með sér tímabundið í vinnuna. Alls munu um 400 manns starfa í húsinu eða hafa aðstöðu sína þar, um 100 starfa í Vörumiðstöðinni, 70 á skrifstofu Samskipa, 30 hjá Jón- um Transport, um 100 manns á gámavellinum og við akstur sem að meðtöldum Landflutningum- Samskipum gerir um 400 manns. Í lokin ítrekar Knútur G. Hauks- son ánægju sína með að fá nú alla starfsemina undir eitt þak. „Þetta býður uppá meiri samnýtingu á vinnukraftinum, við losnum alveg við snatt og snúninga á bílum milli vinnustaða okkar eins og hefur ver- ið, hér er tölvu- og samskiptatækni notuð til hins ítrasta og hér eru góðar vinnuaðstæður fyrir allar deildir. Þannig ætlum við að bæta þjónustu okkar enn frekar og ég vonast til að viðskiptavinirnir eigi eftir að verða vel varir við það.“ Nýjar höfuðstöðvar Samskipa við Kjalarvog í Reykjavík teknar í notkun Öll starfsemin í 28 þúsund fermetra húsi Morgunblaðið/RAX Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, Anna Guðný Aradóttir markaðsstjóri og Halldóra Káradóttir, deildar- stjóri vöruhúsadeildar, í Vörumiðstöðinni. Þar innandyra er að finna alls níu kílómetra af hillum. Starfsmennirnir koma sér fyrir á aðalskrifstofunni glaðir í bragði. Tölvur eru á hverjum lyftara. Í Vörumiðstöðinni er unnt að geyma matvæli við sjö mismunandi hitastig auk þess sem þar eru frystigeymsla, olíu- og efnavörugeymsla og þurrvörugeymsla. Allt er þar af nýjustu gerð. Nærri 7 þúsund rúmmetrar af steypu og 515 tonn af stáli fóru í nýjar höfuðstöðvar Samskipa og gler í húsinu þekur um 800 fermetra. Þá eru í Vörumiðstöðinni 23.400 brettapláss og 9 kílómetrar af hillum. „ÞETTA er af- skaplega stór stund og mikill áfangi í rekstri okkar,“ sagði Ólafur Ólafsson, stjórnarformað- ur Samskipa, í samtali við Morg- unblaðið. Ólafur sagði hinar nýju aðalstöðvar fyr- irtækisins miklu meira en bara vöruhús, þar væri aðsetur alls þess fjölþætta reksturs sem Samskip stæðu fyrir. Ólafur sagði að með tilkomu nýrra skipa félagsins á nýju ári hefði allt fyrirtækið verið end- urnýjað, skip, gámaflotinn, hús- næði og búnaður allur. Fyrirtækið yrði sýnilegra og mönnum yrði nú betur ljóst hversu umfangsmikill og fjölþættur reksturinn væri. Ólafur sagði aðspurður fjárfestinguna ekki meiri en það fé sem legið hefði í húsnæðiskostnaði fyrirtækisins fram til þessa. Mikill áfangi HJÁ samgönguráðuneytinu hefur verið unnið að frumvarpi til laga um skipan ferðamála. Ráðuneytið óskar nú eftir umsögnum almenn- ings og þeirra sem telja sig málið varða. Megintilgangur frumvarpsins er tvíþættur, annars vegar breyting- ar varðandi stjórnsýslu þessara mála með stofnun sérstakrar stofnunar og færa þangað leyfis- veitingar og annað sem þeim teng- ist og hins vegar að einfalda leyf- isveitingar og tryggingamál ferðaskrifstofa. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sameinaðar verði núgildandi reglur um skipan ferðamála og al- ferðir í einn lagabálk og er gert ráð fyrir sérstakri reglugerðar- heimild um skyldur og ábyrgð þeirra sem selja alferðir, þar sem meginefni núgildandi alferðalaga verði tekin upp. Leyfishafar skyldaðir til að hafa starfsábyrgðartryggingu Breytingar frá núgildandi lög- um eru m.a. stofnun Ferðamála- stofu sem fer með framkvæmd ferðamála, breytt hlutverk Ferða- málaráðs og aðskilnaður milli ráðsins og Ferðamálastofu, breytingar á fyrirkomulagi leyf- isveitinga og skilyrðum fyrir leyfi í þeim tilgangi að gera ferlið skýrara og einfaldara og mál- skotsréttur vegna stjórnsýslu- ákvarðana á grundvelli laganna. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að leyfishafar verði skyldaðir til að hafa starfs- ábyrgðartryggingu, sem jafn- framt því að vera gjaldþrota- trygging eins og núverandi lög mæla fyrir um, bætir viðskipta- vinum almennt fjártjón vegna vanefnda á samningi. Drög að frumvarpinu og nánari skýringar er að finna á heimasíðu samgönguráðuneytisins. Leyfisveitingar til sérstakrar stofnunar KVEIKT verður í sautjánbrennum á gamlársdag á höfuðborgarsvæðinu, sam- kvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins. Stærstu brennurnar verða að venju á Ægisíðu, á Geirsnefi, í Gufunesi, á Arn- arneshæð og á Fylkisvelli. Stórar brennur verða á Geirsnefi, í landi Gufuness á gömlu ruslahaugunum, við Ægisíðu, á Fylkisvelli á brennuhól og á Arn- arneshæð sunnan Arnarnesvegar. Einnig verða brennur við Íþrótta- miðstöðina á Varmá í Mosfellsbæ, við Leirubakka við Breiðholtsbraut, við Suðurfell, gegnt Skildinganesi, við Suðurhlíðar neðan Fossvogs- kirkjugarðs, vestan Laugarásvegar Sautján áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Alfons móts við Valbjarnarvöll, í landi Úlf- arsfells, á Valhúsahæð á Seltjarnar- nesi, við Fólkvang á Kjalarnesi, Dalsmára við Fífuhvammsveg, á Ás- völlum í Hafnarfirði og á bökkunum sunnan við Gestshús í Bessastaða- hreppi. Kveikt verður í flestum brenn- unum á tímabilinu frá klukkan 20 til 21 á gamlárskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.