Morgunblaðið - 29.12.2004, Page 15

Morgunblaðið - 29.12.2004, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 15 ÚR VERINU SAMKEPPNI Á RAFORKUMARKAÐI Fylgjumst með raforkuverði og stuðlum að virkri samkeppni á raforkumarkaði. Um áramótin hefst samkeppni á íslenskum raforkumarkaði þegar skilið verður á milli framleiðslu, flutnings, dreifingar og sölu á raforku. Flutningur og dreifing verða áfram háð einkaleyfi en framleiðsla og sala munu lúta lögmálum frjálsrar samkeppni. Þann 1. janúar 2005 geta þeir sem nota 100 kW eða meira valið af hverjum þeir kaupa rafmagn. þann 1. janúar 2006 geta allir keypt rafmagn af þeim sem þeir kjósa. Flutningur og dreifing verður áfram háð einkaleyfi og verðeftirliti sem starfsmenn Orkustofnunar hafa umsjón með. Framleiðsla og sala munu lúta lögmálum frjálsrar samkeppni sem Samkeppnisstofnun hefur eftirlit með. NORSKI sjávarútvegsráðherrann, Svein Ludvigsen, hefur gefið út reglugerð þess efnis að norsk fiski- skip megi veiða 400.000 tonn af norsk-íslenzku síldinni á fyrri helmingi þessa árs. Ekki liggur ljóst fyrir hve mikið Norðmenn ætli sér að veiða seinni hluta ársins, því ekkert samkomulag er á milli Fær- eyja, Evrópusambandsins, Íslands, Noregs og Rússlands, um skiptingu veiðanna fyrir árið 2005. Óformlegt samkomulag var um að ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknar- áðsins (ICES) um leyfilegan há- marksafla, 890 þúsund tonn, yrði höfð að leiðarljósi. Samkomulag strandar fyrst og fremst á því að haustið 2002 lögðu Norðmenn fram kröfur um aðra skiptingu aflaheim- ilda úr norsk-íslenska síldarstofn- inum en kveðið er á um í samningi strandríkjanna frá árinu1996. Í honum er kveðið á um að 57% kvót- ans komi í hlut Noregs, 15,54% í hlut Íslands, 13,62% í hlut Rúss- lands, 8,34% í hlut Evrópusam- bandsins og 5,46% í hlut Færey- inga. Norðmenn vilja auka sinn hlut í 70%, hlutur Rússa yrði óbreyttur eða 13,62%, hlutur Íslendinga færi í 8,66%, hlutur Færeyinga í 3,04% og hlutur Evrópusambandsins í 4,67%. Ekkert hinna aðildarríkja samningsins hefur viljað fallast á kröfur Norðmanna, heldur viljað halda samninginn sem gerður var 1996. Sé litið á skiptinguna eins og hún varð, yrði hlutur Norðmanna úr 890.000 tonna kvóta 507.700 og Ís- lendinga 138.300. Ná Norðmenn hins vegar fram sínum ýtrustu kröfum verður hlutur þeirra 623.000 tonn, en hlutur Íslands félli niður í 77.000 tonn. Reyndar er tal- að um það í norska sjávarútvegs- blaðinu Fiskaren að hlutdeild Norðmanna gæti orðið 61% eða 542.900 tonn. Það er sama hlutdeild og þeir höfðu árið 2003, þegar Ís- lendingar og Færeyingar gáfu eftir af sínum heimildum í stað þess að fá aðgang að norsku lögsögunni til veiða. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir að í raun sé ekkert að gerast í þessum mál- um. Síðasti fundur hafi verið alveg árangurslaus, en felist engin samn- ingsgrundvöllur í kröfum Norð- manna. Gert er ráð fyrir því að næsti fundur verði fljótlega á næsta ári. Norðmenn gefa út síldarkvóta Aðrar aðildarþjóðir fallast ekki á auknar kröfur Norðmanna Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason Síldveiðar Vilhelm Þorsteinsson EA var mjög afkastamikill við veið- ar á norsk-íslenzku síldinni í sumar, einkum inni á fiskverndarsvæðinu við Svalbarða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.