Morgunblaðið - 29.12.2004, Side 21

Morgunblaðið - 29.12.2004, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 21 MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ SUÐURNES Suðurströnd | Vegagerðin hefur boðið út lagningu nýs vegarkafla á Suðurstrandarvegi, milli Hrauns og Ísólfsskála við Grindavík. Er það vegurinn um Festarfjall sem verið hefur farartálmi á þessari leið. Umræddur vegarkafli er tæplega 6 km að lengd. Verkið á að vinna á næsta og þarnæsta ári og ljúka að fullu vorið 2006. Á samgönguáætlun voru áætlað- ar 500 milljónir í lagfæringar á Suðurstrandarvegi. Nú er búið að færa 140 milljónir af fjárveiting- unni upp á Hellisheiði, til að standa undir kostnaði við mislæg vegamót á Þrengslavegamótum. Áætlað er að um 200 milljónir fari í veginn um Festarfjall og það sem þá er eftir af fjárveitingunni verður not- að til að bæta tengingu Suður- strandarvegar við Þorlákshöfn, að sögn Jónasar Snæbjörnssonar, um- dæmisstjóra Vegagerðarinnar. Ósabotnavegur boðinn út Á næstunni, væntanlega í janúar eða febrúar, verður boðinn út hluti nýs Ósabotnavegar, kaflinn frá Hafnavegi og að vegi varnarliðsins að sorphaugunum. Vegurinn er nauðsynlegur til að Suðurnesja- menn geti tekið í notkun nýtt urð- unarsvæði á Stafnesi, bæði flutt þangað ösku og óbrennanlegt sorp og möl til að fergja það. Aðeins þarf að leggja um 2,5 km kafla til að komast inn á góðan veg sem varnarliðið lagði að öskuhaugunum á sínum tíma. Fyrirhugað er að leggja veg Sandgerðismegin út á sorpurðunar- svæðið en þar vantar aðeins 2,5 km upp á en að sögn Jónasar er ekki til fjárveiting til þess verks að sinni. Þegar sá kafli bætist við opn- ast ný hringleið á Suðurnesjum og áhugaverðir staðir komast í vega- samband eins og til dæmis Bás- endar. Nýr vegur lagð- ur um Festarfjall Sveigt til strandar Nýi vegurinn endar við Ísólfsskála en þar mun hann síðar sveigja til strandar, eins og sést á þessari tölvumynd úr umhverfis- matsskýrslu. Gamli vegurinn sést til vinstri. Álftanes | Farið verður í form- legar viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um lagningu ljósleiðarakerfis í hvert hús á Álftanesi strax eftir áramót, og er markmiðið að Álftanes verði eitt af leiðandi sveitarfélögum landsins í notkun ljósleiðarakerfisins á næstu árum. „Við teljum að í samfélagi fram- tíðarinnar muni þetta vera ein af kröfum sem íbúarnir gera til síns sveitarfélags, að hafa aðgang að þessu eins og að hafa aðgang að út- varpi og síma,“ segir Gunnar Valur Gíslason, bæjarstjóri á Álftanesi. „Við getum búið íbúunum miklu betri sambandsskilyrði við Inter- netið, og með því skapast mögu- leikar til þess að fólk geti í auknum mæli farið að vinna heima, þegar menn eru komnir með almenni- legar tengingar og flutningsgetan orðin næg,“ segir Gunnar. Í dag er hefur ljósleiðari verið lagður í nýj- ustu göturnar á Álftanesi, og því þarf einungis að leggja í vinnu við að koma ljósleiðara í eldri götur bæjarins. Viðræður um lagningu kerfisins hefjast milli sveitarfélagins og OR í byrjun næsta árs, en þar með er ekki loku fyrir það skotið að mati Gunnars að verkefnið verði boðið út. „Við viljum ræða við Orkuveit- una fyrst því við höfum verið í ýms- um góðum samskiptum við hana undanfarin ár, bæði með hitaveitu og nú seinast með vatnsveitumál.“ Vilja fá ljósleiðara- kerfi í hvert hús Sandgerði | Bæjarstjórn Sandgerð- isbæjar hefur samþykkt að kaupa Garðveg 3b, Gamla Langahúsið. Húsið er sambyggt Fræðasetrinu í Sandgerði og er ætlunin að nýta það fyrir það og Náttúrustofu Reykjaness, meðal annars til auk- inna rannsókna. Gamla Langahús er gömul fisk- verkun og hefur verið notuð til flokkunar á fiski. Húsið var í eigu Atvinnuþróunarsjóðs og annaðist Byggðastofnun sölu á því. Söluverð er liðlega 3,8 milljónir kr.    Bærinn kaupir Gamla Langahús Úthluta byggðakvóta | Sand- gerði fékk 145 þorskígildistonn í sinn hlut við úthlutun sjávarútvegs- ráðuneytisins á byggðakvóta fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Bæjar- stjórn hefur hug á að úthluta kvót- anum til fiskiskipa og fiskvinnslufyr- irtækja í Sandgerði samkvæmt sömu reglum og undanfarin ár. Er þá miðað við að viðtakendur kvótans bæti við kvótann á móti byggðakvót- anum. Í samþykkt bæjarstjórnar um málið kemur fram að óskað verður eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi úthlutun síðasta árs. ALLS hafa verið gefin út leyfi fyrir 17 áramótabrennum á höf- uðborgarsvæðinu í ár, 10 í Reykjavík og einni í hverjum af hinum sveitarfélögunum, auk brennu á Kjalarnesi. Í gær fóru þeir sem ætla að hlaða stærstu brennurnar að hugsa sér til hreyfings og á næstu dögum verða stórvirkar vinnuvélar tekn- ar til handargagns við að hlaða bálkestina. Ekki virðist vera mikill breyti- leiki í brennuhaldi milli ára, og samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru það sömu 17 aðilarnir og stóðu fyrir áramótabrennunum á síðasta ári sem standa fyrir brennunum í ár. Ein af stóru brennunum í Reykjavík verður við Ægisíðu, og segir Jón Bergvinsson ábyrgðar- maður brennunnar vissa eftirsjá að þeim tímum þegar íbúar hverfanna voru virkari í því að hjálpa til við að gera brennurnar sem flottastar með því að leggja til eldsmat og hjálpa til við að hlaða. Slökkt í brennunum Í dag eru ákveðnar reglur um hvað má fara á áramótabrennuna, þar má bara brenna hreinu og óvörðu timbri. Samkvæmt upplýs- ingum frá slökkviliði eru brennur almennt flokkaðar í stórar og litl- ar brennur, og mega stórar brennur ekki vera stærri en 450 rúmmetrar, en þær minni ekki stærri en 200 rúmmetrar. Að auki er slökkt í brennunum á nýárs- nótt, í Reykjavík fara starfsmenn Gatnamálastjóra af stað um kl. 2 eftir miðnætti og hefjast handa við að slökkva í brennunum. Byrjað að hlaða áramótabrennur Morgunblaðið/RAX Við Ægisíðu Þótt það sé að mestu liðin tíð að íbúar safni í brennur voru þó einhverjir sem lögðu timbur á bálköst- inn við Ægisíðu í gær og er trúlega enn skemmtilegra að horfa á brennuna fyrir þá sem leggja sitt af mörkum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.