Morgunblaðið - 29.12.2004, Page 22

Morgunblaðið - 29.12.2004, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI LANDIÐ Hveragerði | Hjálparsveit skáta hér í Hveragerði hefur haft í nógu að snúast frá því um hátíðirnar. Að sögn Lárusar Guðmundssonar, for- manns sveitarinnar, sinna þeir með- al annars Hellisheiðinni, sem er fjall- vegur, eins og allir vita en gleymist þó oft. Eru þeir ófáir dagarnir yfir veturinn sem félagar úr hjálpar- sveitinni eyða á heiðinni. Þótt veðrið hér á Suðurlandi hafi ekki verið neitt í líkingu við veðurofsann fyrir norð- an fengu sumir sinn skammt. Á jóla- nótt um klukkan tvö eftir miðnætti kom neyðarkall ofan af heiði, þar sem fólk var í vanda. Úrkoma var engin að sögn, en rokið fór upp í 27 metra á sekúndu. Það var varla stætt, segja hjálparsveitarmenn. Þriðja í jólum gerði vonskuveður með hávaðaroki og blindum éljum, þeim degi eyddu menn sveitarinnar að mestu uppi á heiði við að aðstoða fólk. Þegar mesti hamurinn var rok- in úr veðrinu og menn að koma ofan af heiði, var útkall. Í þetta sinn hafði ungur maður verið á jólaballi, en eitthvað hefur þeim stutta leiðst því hann gerði sér lítið fyrir og yfirgaf staðinn án foreldra sinna. Þá var strax hafin leit og fannst hann, þar sem hann gekk um ganga verslunar- miðstöðvarinnar við Sunnumörk og litaðist um. Það fór því allt vel. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Brugðið á leik Þótt hjálparsveitarmennirnir úr Hveragerði séu orðnir vanir að ýta bílum á Hellisheiðinni geta þeir ekki bifað vegheflinum. Hjálparsveitin eyðir mörgum dögum á heiðinni Vestmannaeyjar | Sigmar Gíslason, stýrimaður í Vestmannaeyjum, stendur fyrir gerð heimildarmyndar um afa sinn, Benóný Friðriksson, sem betur er þekktur sem Binni í Gröf. Kvikmyndin hlaut ásamt nokkrum öðrum verkefnum styrk úr Styrktar- og menningarsjóði Spari- sjóðs Vestmannaeyja. Binni var ár- um saman aflakóngur Eyjamanna á báti sínum Gullborgu og þjóðsagna- persóna í lifanda lífi. Sú hefð hefur skapast að Spari- sjóður Vestmannaeyja afhendir styrki úr styrktar- og menning- arsjóði sínum á Þorláksmessu en sjóðurinn var stofnaður til minn- ingar um Þorstein Þ. Víglundsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Fjórir aðilar fengu styrk að þessu sinni. Litla lúðrasveitin sem stofnuð var 1978 og er skipuð nemendum Tónlistarskóla Vestmannaeyja fékk styrk úr sjóðnum vegna fyrirhug- aðrar ferðar til Færeyja. Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyja- bæjar fékk styrk til að bæta til muna skiltakost bæjarins. Næsta sumar verður komið fyrir upplýs- ingaskiltum víðs vegar á Heimaey með fróðleik fyrir gesti og gangandi um landshætti, sögu og náttúru Eyjanna. Útgáfustjórn sögu Knatt- spyrnufélagsins Týs var styrkt en á döfinni er að gefa út sögu félagsins. Þá er ótalinn styrkur til Sigmars Gíslasonar vegar heimildarmynd- arinnar um Binna í Gröf. Benóný Friðriksson lést árið 1972 en 7. janúar á þessu ári voru liðin 100 ár frá fæðingu hans og af því til- efni ákvað Sigmar að gera kvikmynd um kappann. Sigmar sagði að það hefði tekið mun lengri tíma en hann ætlaði að útbúa myndina sem hann gerði í samvinnu við Tefra Film. Jón Hermannsson kvikmyndagerðar- maður sá um klippingu og aðstoðaði við handritsgerð en Sigmar sá að mestu um fjáröflun og öflun efnis fyrir verkið. Myndin verður sýnd í Sjónvarpinu á nýju ári en ekki liggur fyrir hvenær. Sigmar sankaði að sér rúmlega ellefu klukkustunda efni sem tengist Binna í Gröf á einn eða annan hátt. Þegar upp var staðið eftir klippi- vinnuna var myndin rétt rúmlega hálftími að lengd. Sigmar leitaði víða að styrkjum og framlögum fyrir myndina og segir að styrkur Sparisjóðsins komi sér einkar vel. Það sama megi segja um aðra styrktaraðila, svo sem menn- ingarsjóð Sjóvár-Almennra og Ís- landsbanka og útgerðarmenn í Eyj- um. „Þetta ýtti myndinni af stað og þá sáu aðrir að þetta væri alvöru- verkefni og voru jákvæðari í að leggja fjármagn í það,“ segir Sig- mar. Sigmar var við vinnu sína um borð í Herjólfi þegar styrkurinn var af- hentur og tók dóttir hans, Ágústa Dröfn, við honum fyrir hans hönd. Barnabarn Binna í Gröf gerir heimildarmynd um aflakónginn Ellefu klukkustunda efni varð að hálftíma mynd Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Styrkir afhentir Fulltrúar styrkþega ásamt Sparisjóðsmönnum, f.v. Hjálmar Guðnason, Ágústa Sigmarsdóttir, Rútur Snorrason, Sigurgeir Jónsson, Þór Vilhjálmsson og Ólafur Elísson. ERINDI frá eftirlitsnefnd með fjár- málum sveitarfélaga var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar nýlega þar sem fram kemur að sam- kvæmt endurskoðaðri fjárhags- áætlun fyrir árið 2004 er áætluð rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs nei- kvæð um 108 milljónir króna. Halli á rekstri sveitarsjóðs nær tvöfaldast frá árinu 2003 og með sama áfram- haldi stefnir rekstur sveitarfélagsins í þrot og eigið fé sveitarsjóðs verður uppurið innan tveggja ára. Að mati nefndarinnar er afar brýnt að sveit- arstjórn nái tökum á útgjöldum og skuldaaukningu sveitarfélagsins og leiti leiða til að afgreiða fjárhags- áætlun fyrir árið 2005 með jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Í ljósi fjárhagsstöðunnar mun nefndin hafa fjármál sveitarfélags- ins áfram til skoðunar. Nefndin ítrekar beiðni um að henni verði gerð grein fyrir því hvernig sveitar- stjórn hyggst bregðast við fjárhags- vandanum og væntir viðbragða sveitarstjórnar innan eins mánaðar. Hallinn hefur tvöfaldast Blús og djass | Blús- og djass- kvöld verður á Græna hattinum ann- að kvöld, fimmtudagskvöldið 30. desember. Þar koma fram Blús- kompaní Magnúsar Eiríkssonar og Park Projekt Pálma Gunnarssonar og Kristjáns Edelsteins. Blúskomp- aníið skipa ásamt Magnúsi og Pálma þeir Benedikt Brynleifsson trommu- leikari, Agnar Már Agnarsson hljómborðsleikari og sérstakur gest- ur kompanísins verður Kristján Edelstein gítarleikari. Þeir Pálmi og Kristján leika nokkur lög, nýtt efni sem þeir eru að hljóðrita þessa dag- ana áður en Blúskompaníið stígur á svið. Tónleikarnir hefjast kl. 21. SKÍÐASVÆÐIÐ í Hlíðarfjalli var opnað í gær, þriðjudag, og verður opið nú milli hátíða frá kl. 11 til 16 og á gamlársdag verður opið frá 11 til 14. Tvær lyftur eru í gangi fyrsta kastið, Fjarkinn og Hólabraut. „Það mætti alveg vera aðeins meiri snjór, en hann er samt nægur til að fólk geti rennt sér og við stefnum að því að opna smám sam- an fleiri leiðir,“ sagði Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíð- arfjalli. „Við vonumst svo auðvitað eftir því að fá meiri snjó næstu daga.“ Hann sagði að í raun væri meiri snjór í bænum en í fjallinu, þar hefði verið talsverður skaf- renningur og hann því fokið burt, enda ekkert skjól þar efra til að stoppa hann af. „Við höfum snjó- girðingar hér og þær hafa gert sitt gagn.“ Fyrsti dagurinn var sérlega góð- ur að sögn Guðmundar Karls. Hann vitnaði í Hörð Sverrisson sem starfað hefur sem lyftuvörður í Hlíðarfjalli í 35 ár, en hann kvaðst aldrei hafa upplifað eins góðan „opnunardag“. Veðrið var eins og best verður á kosið, færið gott og mikið fjölmenni saman komið í há- tíðarskapi. „Hingað kom fjöldi fólks á öllum aldri, unglingar á snjóbrettum eru auðvitað stærsti hópurinn, en það var líka mikið um fullorðið fólk, sennilega taka marg- ir sér frí milli jóla og nýárs og finnst upplagt að bregða sér á skíði fyrst tækifæri gefst,“ sagði Guð- mundur Karl. Fjölmenni á skíðum í góðu veðri Morgunblaðið/Kristján SLÖKKVIÐLIÐ Ólafsfjarðar af- henti fyrir skömmu hjónunum Ás- grími Pálmasyni og Kristínu Kára- dóttur eldvarnarbúnað í húsið sem þau hafa endurreist síðustu þrjá mánuði. Íbúðarhús þeirra við Hlíð- arveg í Ólafsfirði brann 21. ágúst síð- astliðinn og var nánast ónýtt. Þau hjónin voru fjarverandi með börnin sín þegar eldurinn braust út. Í þessum eldvarnarbúnaði eru meðal annars eldvarnarteppi, slökkvitæki og reykskynjarar. Það voru félagar í Slökkviliðinu sem gáfu þennan eldvarnarbúnað, en Slökkvilið Ólafsfjarðar fer á hverju ári í sérhvert hús í bænum til að selja rafhlöður í reykaskynjarana og bjóðast þeir ennfremur til að yf- irfara slík tæki ef fólk vill. Þeim telst til að í Ólafsfirði séu um það bil 1.300 reykskynjarar í 350 húsum. Ekki er vitað til að önnur slökkvilið á landinu geri slíkt hið sama. Um 1.300 reykskynjara er að finna í 350 húsum Fengu eldvarnarbúnað Morgunblaðið/Helgi Jónsson Félagar í slökkviliðinu ásamt eigendum hússins: Halldór Guðmundsson, Gunnlaugur J. Magnússon, Anton Konráðsson, Kristín Káradóttir, Ásgrím- ur Pálmason, Eggert Friðriksson og Jóhann Jóhannsson. ÁTAK – heilsurækt, á Akureyri var opnuð síðastliðið haust. Viðtökur hafa verið einkar góðar og aðsókn að líkamsræktarstöðinni farið fram út vonum eigenda, Átaks-heilsuræktar ehf, Guðrúnar Gísladóttur. Í ljósi þessa var ákveðið að kaupa húsnæði Átaks - heilsuræktar, sem staðsett er á uppfyllingunni við Strandgötu, af World Class á Íslandi sem áður rak líkamsræktarstöð á sama stað. Gengið var frá kaupunum fyrir skemmstu. Við sama tækifæri var gengið frá samkomulagi um að viðskiptavinir Átaks - heilsuræktar fái áfram frían aðgang að líkams- ræktarstöðvum World Class í ferð- um sínum til Reykjavíkur og öfugt. Húsnæði Átaks - heilsuræktar er í tæplega 500 fermetra húsnæði á góðum stað í bænum, alsett glugg- um og því bjart og útsýni gott til allra átta.    Handsala samninginn Björn Leifs- son hjá World Class og Guðrún Gísladóttir hjá Átaki – heilsurækt. Átak — heilsurækt kaupir húsnæði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.