Morgunblaðið - 29.12.2004, Síða 25

Morgunblaðið - 29.12.2004, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 25 gri strandlengju á austan- en þar í landi er talið að hafi farist. Þar varð tjónið num Tamil Nadu, Andra rala og varð borgin Madras varð mikið tjón í borginni Pondicherry. Líkin eru brennd við fyrsta tækifæri til að reyna að minnka hættuna á farsóttum og í einu tilfelli voru lík um 100 fórnarlamba brennd saman, meðal þeirra voru mörg börn. Upptök jarðhræringanna voru nálægt eyjaklösunum Andaman og Nicobar. Vitað er að þar fórust þúsundir manna en end- anleg tala er óljós vegna þess hve illa gengur að fá traustar upplýsingar. Ekki er vitað hve margir sjómenn voru á hafinu þegar hamfarirnar riðu yfir. Talið er að allt að 2.000 manns hafi látið lífið í Taílandi, margir þeirra erlendir ferðamenn. Mikið eignatjón varð auk þess á ferðamannastöðum eins og Phuket og Phi Phi. Víða hreif flóðbylgjan með sér fólk sem var í sólbaði á ströndinni eða við köfun rétt undan henni, að sögn frétta- vefjar BBC. Breskur ferðalangur, Kevin Aldrich, vaknaði með andfælum. „Ég vaknaði og hélt að einhver hefði bankað á dyrnar – þær opnuðust með hvelli og vatnsflóðið reif okkur út úr rúminu. Vatnið braut rúðurnar bakatil og við flutum út um gluggann. Við skriðum upp á veggi og þök en vatnið hækkaði enn og við vorum ekki komin nógu hátt. Húsin umhverfis mig hrundu og ég skall niður í flauminn. Þegar ég kom aftur upp greip ég dauðahaldi í trjágrein,“ sagði Aldrich. nn hreif með Sri Lanka AP a sem fórst á sunnudag. Tugir líka voru á götum borgarinnar Banda Aceh í gær en hermenn og óbreyttir borg- lóðbylgjuna. Lögð er áhersla á að grafa lík manna sem fyrst til að sporna við hættunni á farsóttum. AP ílenskur drengur, Watanyu Pa-opas, sem fannst á lífi í tré í gær í aði í Taílandi, um 50 stundum eftir hamfarirnar miklu. AP Ung stúlka og aldraður maður í Kosgada á Sri Lanka safna vatni í pönnu til matar- gerðar innan um rústirnar í gær. Mikið manntjón varð á Sri Lanka. síu  Hungrað fólk rænir verslanir í Aceh sagði frá tveggja barna Sveindal, sem náði að ja ára dóttur sinni en ex ára syni sínum berast á öldunni sem steyptist yfir ar sem hún sat að snæð- dina í Phuket. Lík drengs- ð í gær. Eiginmaður henn- a og liggur á sjúkrahúsi. ú engill á himnum“ einnig vitað um átta mán- norskan dreng sem týndi nna fjölskylda hafði leigt nærri Phuket. Drengur- eldri bróður sínum og föð- ur í íbúðinni þegar flóðaldan steyptist yfir bygginguna. Húsið jafnaðist við jörðu og segir móðirin að hún hefði ekki trúað því að nokkur hefði komist lífs af. Faðirinn sem er 39 ára gamall segir í samtali við Aftenposten að hann hafi séð flóðbylgjuna koma og þeir hafi reynt að forða sér út úr íbúðinni. Sjórinn steypt- ist yfir þá. Faðirinn neyddist til að sleppa takinu af syni sínum, hinum átta mánaða gamla Ara, og þeyttist faðirinn um 100 metra á land upp. Eldri sonur hans bjargaði sér á sundi. „Við áttum þrjá yndislega syni. Nú eigum við aftur tvo. Báðir eru þeir hetjur. Við höfum sagt þeim að litli bróðir þeirra, Ari, sem þeir elskuðu svo heitt og öfunduðust aldrei út í vegna þeirrar athygli sem hann fékk, sé nú engill á himnum. Við segjum þeim að mamma og pabbi séu nú sorgmædd en að við séum heppin að hafa fengið að hafa hann í átta mánuði,“ segir móðirin, Tuula, við Aftenposten. Lík sonar hennar hefur ekki fundist. Tveggja norskra bræðra 11 og 15 ára var saknað eftir að flóðbylgjan hreif þá með sér við Phuket. Þess yngra er enn saknað en eldri drengurinn kom í gær fram í Bangkok í meira en 100 kíló- metra fjarlægð. Mun herþyrla hafa fundið hann eftir að hann hafði borist þrjá kílómetra inn í land. við foreldra sína TALIÐ er að um 15 þúsund Svíar og um sex þúsund Danir hafi verið á ferðalagi á þeim slóðum sem urðu fyrir flóðbylgj- unni undan ströndum Súmötru. Í gær var um 1.500 Svía enn saknað og um 200 Dana. Enn hafði ekki verið staðfest að fleiri en sex Svíar hefðu látist og þrír Danir. Óttast er að tala látinna muni margfaldast en flestra er saknað í Taí- landi og á Sri Lanka. Khao Lak er sumarleyfisstaður í Taí- landi, rétt norðan við Phuket, en stað- urinn hefur undanfarin ár verið vinsæll áfangastaður Svía. Flatlent er á þessum slóðum og hótel og gististaðir margir al- veg við ströndina. A.m.k. helmingur þeirra Svía sem saknað er, var í fríi á þessum slóðum. Aðkoman er sögð hrikaleg og svæðið eins og vígvöllur eft- ir að flóðbylgjan jafnaði hús og hótel við jörðu. Sænskur hóteleigandi í Khao Lak sem rætt var við í fréttum sænska ríkissjón- varpsins SVT sagðist halda að nokkur hundruð Svíar hlytu að hafa slasast al- varlega eða farist því hótelið sem flestir sænsku ferðamannanna á þessum slóð- um gistu á hefði að mestu þurrkast út af völdum flóðbylgjunnar. Í gær höfðu þúsund lík fundist í Khao Lak og talið að um 700 væru af vestrænum ferðamönn- um. Um 20 sænsk börn slösuðust eða hurfu Í Khao Lak voru margir á vegum ferðaskrifstofunnar Fritidsresor og á hennar vegum er rekinn svokallaður Bangsaklúbbur fyrir börnin á hótelinu Blue Village sem er rétt við ströndina. Um tuttugu börn voru á leiksvæðinu þegar flóðbylgjan skall yfir og slösuðust eða hurfu með henni, að því er m.a. er greint frá í Dagens Nyheter. Talið er að þriðjungur til helmingur fórnarlamba flóðbylgjunnar hafi verið börn. Einnig hafa mörg börn misst foreldra sína. Klaustur í Khao Lak er nú orðið lík- hús til bráðabirgða og þar liggja lík sveipuð í lök eða mottur. Fólk gengur á milli og leitar ættingja sinna og allir halda fyrir vitin þar sem nályktin er far- in að segja til sín, að því er m.a. er greint frá í Svenska Dagbladet. Fréttaritari blaðsins á staðnum segir að Vestur- landabúar séu margir á meðal fórnar- lambanna á þessum stað en fáir á meðal þeirra sem leita. Í gær komu nokkrar flugvélar frá hörmungarsvæðunum til Svíþjóðar og Danmerkur og fluttu heim fólk í mis- jöfnu ástandi. Áfallahjálparteymi og læknar tóku á móti fólkinu. Margir voru lítillega slasaðir, enn fleiri afar illa klæddir og enginn með vegabréf eða flugmiða. Í hópi farþega voru börn sem ferðuðust ein þar sem foreldrar þeirra höfðu ekki fundist á hamfarasvæðinu en ættingjar tóku á móti þeim við komuna til Svíþjóðar og Danmerkur. Sænska dagblaðið Expressen sagðist í gær hafa heimildir fyrir því að yfir 200 Svíar hefðu látist í hamförunum en sænska utanríkisráðuneytið staðfestir ekkert slíkt. Leila Freivalds, utanríkis- ráðherra Svíþjóðar, lagði af stað til Taí- lands í gærkvöldi og á blaðamannafundi í gær sagðist hún myndu beita sér fyrir loftbrú á milli Norðurlandanna og ham- farasvæðisins þannig að fólk kæmist heim sem fyrst. Ákall sænskra lækna Tveir sænskir læknar sem voru í fríi í Khao Lak hafa sent neyðarkall til sænskra fjölmiðla og biðja um neyðar- flutninga á Norðurlandabúum til heima- slóðanna. Margir þeirra séu alvarlega slasaðir og í lífshættu verði þeim ekki komið undir læknishendur á Norður- löndunum. Aðbúnaðurinn á taílensku sjúkrahúsunum sé slæmur, hitinn yfir 30 gráður og engin loftræsting. Sýking- arhætta sé því mikil. „Við vitum ekki hversu margir þessara slösuðu Skandin- ava munu deyja á sjúkrahúsinu á næstu dögum ef þeir verða ekki fluttir heim. Ríkisstjórnir Norðurlandanna verða að sameinast um að senda neyðarhjálp…“ segja þau Patrik Brundin og Lena Brundin-Larsson í ákallinu. Margir hafa misst börn, maka eða for- eldra í hamförunum. Einn af þeim sem missti ættingja annan jóladag var Stig Verkelin sem hefur farið í frí til Taí- lands á hverju ári í mörg ár ásamt fjöl- skyldu sinni. Tuttugu mínútum áður en flóðbylgjan skall á kom fjölskyldan til Khao Lak og var að koma sér fyrir í kofa á ströndinni. Bylgjan hreif Ulriku, konu Stigs, með sér og syni þeirra tvo, fjögurra og fimm ára, að því er Afton- bladet greinir frá. Daginn eftir fann Stig sjálfur konu sína látna uppi í tré við ströndina. Í gær hafði enn ekkert spurst til sonanna tveggja. Leita í örvæntingu maka sinna og barna Óttast að fjöldi sænskra ferðamanna hafi farist Gautaborg. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.