Morgunblaðið - 29.12.2004, Page 26

Morgunblaðið - 29.12.2004, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í DAG, 29. desember, fer fram kjör íþróttamanns ársins 2004, einnig fer fram kjör á íþróttakonu og íþróttamanni ársins í sér- greinum íþrótta. Þetta er í tíunda sinn sem Samtök íþróttafréttamanna og Íþrótta- og ólympíu- samband Íslands standa sameiginlega að þessu hófi fyrir íþróttafólk og íþrótta- forystu. Það er mikil viðurkenning fyrir störf sérsambandanna að sjá íþróttafólk sitt hljóta viðurkenningar frá Íþrótta- og ólymp- íusambands Íslands þennan dag og rifja upp árangur þess á liðnu ári. Mikil umræða hefur átt sér stað meðal forystumanna sérsamband- anna, að rekstrargrundvöllur þeirra sé ekki nógu traustur, koma þurfi til árlegur styrkur frá ríkis- valdinu. Slíkur styrkur mun treysta undirstöður þess og gera þeim kleift að einbeita sér enn frekar að hlutverki sínu. Störf sér- sambandanna eru á engan hátt metin að verðleikum. Því er öfug- snúið að þegar sérsamband stend- ur frammi fyrir að eiga afreksfólk sem náð hefur þátttöku á stórmót- unum þá leggjast þungar byrðar á sambandið, því meiri árangur því dýrara verður það fyrir sérsam- bandið. Allir sem til þekkja vita hversu mikið starf er unnið innan sérsam- bandanna, m.a. halda þau úti öfl- ugu íþróttastarfi hvert í sinni sérgrein, sjá um mótahald og senda landsliðsfólk til keppni um allan heim. Öll vitum við hversu mikil landkynning það er að eiga íþróttafólk meðal þeirra bestu. Það ætti að vera sam- eiginlegt verkefni stjórnvalda og sér- sambanda að greiða fyrir kostnað landsliða í stórmótum. En hvað þarf til að ná inn á stórmótin? Íþrótta- maðurinn, landsliðið þarf að ná þátttökurétti. Á bak við þátt- tökuréttinn liggur þrotlaus vinna íþróttafólksins og sérsamband- anna. Því fagna ég samþykkt Sjálf- stæðisflokksins á síðasta lands- fundi í mars 2003 þar sem eftirfar- andi ályktun var samþykkt: „Landsfundur fagnar framtaki ráðherra flokksins í eflingu afreks- íþrótta, m.a. með skipan sérstakrar nefndar um afreksíþróttir, nýjum styrk fyrir hópíþróttir og góðum fjárhagsstuðningi við Afrekssjóð ÍSÍ. Þátttaka Íslands í alþjóðlegum stórmótum er mikil landkynning á erlendri grund og því eðlilegt að ríkið taki myndarlega þátt í þeim verkefnum. Því hvetur landsfundur til þess að styrkveitingar til af- reksíþrótta verði auknar enn frek- ar. Jafnframt hvetur landsfundur til aukins stuðnings við ÍSÍ vegna sérsambanda ÍSÍ. Stuðningur ríkisins við sér- samböndin og afreksfólkið mun ekki aðeins skila sér í auknum þátttökurétti á stórmótum og við- urkenningum, heldur byggja enn frekar upp hið mikla forvarnar- starf sem sérsamböndin og íþrótta- félögin vinna saman að. Sú stefna sem ÍSÍ hvetur sérsamböndin að vinna eftir, hefur það að leiðarljósi að íþróttaiðkun skuli vera þrosk- andi bæði líkamlega, sálrænt og fé- lagslega. Með því móti má skapa aðstæður fyrir mun fleiri börn og unglinga til að njóta sín innan íþróttahreyfingarinnar. Kjör íþróttamanns ársins 2004 Ásgerður Halldórsdóttir fjallar um kjör íþróttamanns ársins ’Stuðningur ríkisins viðsérsamböndin og af- reksfólkið mun ekki að- eins skila sér í auknum þátttökurétti á stórmót- um og viðurkenningum, heldur byggja enn frekar upp hið mikla forvarnarstarf.‘ Ásgerður Halldórsdóttir Höfundur er gjaldkeri HSÍ. Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Hafsteinn Hjaltason: „Landa- kröfumenn hafa engar heimildir fyrir því, að Kjölur sé þeirra eign- arland, eða eignarland Biskups- tungna- og Svínavatnshreppa.“ María Th. Jónsdóttir: „Á landinu okkar eru starfandi mjög góðar hjúkrunardeildir fyrir heilabilaða en þær eru bara allt of fáar og fjölgar hægt.“ Guðmundur Hafsteinsson: „Því eru gráður LHÍ að inntaki engu fremur háskólagráður en þær sem TR útskrifaði nemendur með, nema síður sé.“ Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir: „Ég vil hér með votta okkur mína dýpstu samúð vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í íslensku þjóð- félagi með skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar í stöðu hæsta- réttardómara. Ég segi okkur af því að ég er þolandinn í „Prófess- orsmálinu“.“ Sveinn Aðalsteinsson: „Nýj- asta útspil Landsvirkjunar og Al- coa, er að lýsa því yfir að Kára- hnjúkavirkjun, álbræðslan í Reyðarfirði og línulagnir þar á milli flokkist undir að verða „sjálf- bærar“!“ Á mbl.is Aðsendar greinar ÞAÐ má segja að það annríki björgunarsveita sem við höfum orðið vitni að um jólahátíðina sé dæmigert fyrir þetta ár. Frá því seinnipart aðfangadags og út allan jóladag voru björg- unarsveitir einhvers staðar að störfum og um tíma á Suður-, Norður- og Austur- landi. Mér er ekki minnisstætt svo mikið annríki áður yfir jóla- dagana. Við erum og verðum alltaf reglu- lega minnt á þær að- stæður sem við búum við. Þá er gott að eiga góða að. Það er sama hvenær kallið kemur, innan stundar eru menn lagðir af stað til hjálpar. Það hefur sennilega aldrei verið jafn annasamt hjá björgunar- sveitum og á þessu ári. Útköll árs- ins til lands og sjávar eru orðin 930. Hér eru eingöngu talin þau út- köll sem skráð eru hjá Neyðarlín- unni. Fjöldi hjálparbeiðna berst einnig til björgunarsveita beint og er boðaður milli manna en ekki í gegnum neyðarlínu. Við reiknum með að a.m.k. 25% af heildarfjölda útkalla sé boðaður með þeim hætti og því ekki skráður. Þeir eru ekki margir dagarnir á árinu sem ekki hefur verið útkall einhvers staðar. Fyrir nokkrum ár- um var það undantekning ef útköll voru að sumri til, menn töluðu um sumarfrí. Í sumar leið ekki sá dag- ur að leitað væri til björg- unarsveita og marga daga voru nokkur útköll. Við erum með 101 björgunarsveit í landinu sem sam- an mynda þá keðju sem almanna- varnakerfi okkar byggist á. Virkir félagar þessara sveita eru um 3.500, sem tilbúnir eru til starfa hvenær sem er. Þjálfun og tækja- kostur sveitanna er stöðugt að efl- ast. Um 2.500 manns sækja á hverju ári einhver af hinum fjöl- mörgu námskeiðum sem haldin eru á vegum björgunarskóla Slysa- varnafélagsins Landsbjargar. Nú eru framhaldsskólar farnir að meta nám í skólanum til eininga. Sveit- irnar ráða yfir u.þ.b. 170 björgunarbifreiðum, 30 snjóbílum, 60 snjósleðum 14 stærri björgunar- skipum, 30 harðbotna hraðbjörgunarbátum auk smærri báta og annarra tækja. Þó öll vinna björgunarfólks sé sjálfboðavinna þá kostar mikið að við- halda þjálfun þess, efla og endurnýja tækjakostinn þannig að þetta hugprúða fólk megi starfa við sem öruggastar aðstæður og eigi bestu mögu- leika á að ná árangri í sínu starfi. Slysavarnafélagið Landsbjörg og einingar þess hafa notið skilnings stjórnvalda m.a. með niðurfellingu aðflutningsgjalda af tækjakosti og þátttöku í ákveðum þáttum starf- seminnar. Grundvöllur fjárhags- legrar afkomu björgunarsveitanna byggist á þessu samstarfi, skipt- ingu fé úr sameiginlegum fjáröfl- unum Slysavarnafélagsins Lands- bjargar og eigin fjáröflunum sveit- anna en þar skiptir flugeldasalan langmestu máli. Þá er komið að þér, lesandi góð- ur. Nú fer í hönd sá tími sem þess- ar sveitir treysta á almenning að sýna hug sinn í verki. Flugelda- salan er sveitunum mikilvægasta fjáröflunarleiðin. Hjá mörgum björgunarsveitum skiptir það sköp- um í afkomu næsta árs að vel tak- ist til við söluna í desember. Ára- löng hefð og reynsla hefur kennt okkur mikið í þessum málum og við reynum af fremsta megni að treysta öryggið sem allra best. Aldrei verður þó brýnt nægilega fyrir öllum sem umgangast flug- elda að gera það af mikilli var- kárni. Slysavarnafélagið Landsbjörg sendir landsmönnum öllum bestu óskir um farsæld á komandi ári um leið og við þökkum stuðninginn á undanförnum árum. Annríki í flugeldasölu Jón Gunnarsson fjallar um flug- eldasölu björgunarsveitanna ’Aldrei verður þó brýntnægilega fyrir öllum sem umgangast flugelda að gera það af mikilli varkárni.‘ Jón Gunnarsson Höfundur er formaður Slysavarna- félagsins Landsbjargar. J ames Dobbins hjá Rand- rannsóknastofnuninni bandarísku segir í grein í næsta hefti Foreign Affairs (janúar/febrúar- heftinu 2005) að Bandaríkjamenn séu nú þegar búnir að tapa stríð- inu í Írak. Dobbins, sem gegnt hefur margvíslegum trúnaðar- störfum fyrir Bandaríkjaforseta segir bandarísk stjórnvöld rúin öllu trausti meðal íraskra borgara, tímabært sé að menn fari að horf- ast í augu við þá staðreynd. Dobbins telur enn hugsanlegt að hófsömu öflin í Írak fari með sigur af hólmi í valdabaráttu við uppreisnarmenn og aðra rót- tæklinga. Til að hjálpa þeim eigi Bandaríkin að draga her- lið sitt frá Írak eins fljótt og kost- ur er, þjálfa Íraka til að ráða sjálfir niðurlögum uppreisn- armanna og fá Írani og Evrópu- menn til að leggja hönd á plóginn. Bandaríkjamenn geti þó ekki kallað her sinn á brott fyrirvara- laust og mikilvægt sé að halda kosningar í janúar, eins og að hef- ur verið stefnt. Menn verði á hinn bóginn að gera sér grein fyrir að kosningar valdi því gjarnan að lín- ur skýrist og öfgar magnist. Það sé ills viti í klofnu samfélagi eins og Írak. Líkur séu á að uppreisn- armönnum vaxi ásmegin, a.m.k. á helstu svæðum súnníta, hvað sem líður kosningum í landinu. Þarna er Dobbins sammála Molly Bingham, blaðamanni sem dvaldist í Írak frá því í ágúst 2003 og fram í júní á þessu ári, en hún skrifar grein í The Boston Globe 15. desember sl. er ber yfirskrift- ina (á ensku) „Why Elections Won’t Quell Iraq Resistance“. Bingham ræddi við fjölda upp- reisnarmanna á meðan hún var í Írak, hún telur sig geta fullyrt að kosningarnar í janúar muni ekki verða til að slá á uppreisnina. Bingham, sem í vetur er styrk- þegi hjá Nieman-blaðamanna- stofnuninni í Harvard, reynir í grein sinni að leiðrétta nokkrar villur sem hún telur einkenna hugsunarhátt bandarískra ráða- manna um ástandið í Írak. Það sé t.d. misskilningur að uppreisnin hafi byrjað nokkrum mánuðum eftir að Bandaríkin höfðu steypt Saddam Hussein af stóli, sökum þess að Bandaríkjastjórn lét hjá líða að fyrirbyggja rán og grip- deildir eftir fall Saddams og al- mennt öngþveiti. Nokkrir upp- reisnarmannanna sem hún hitti hafi tjáð henni að þeir hafi hafist handa við að skipuleggja baráttu sína strax eftir fall Saddams. Ekki sé hægt að lýsa öllum upp- reisnarmönnum einfaldlega sem stuðningsmönnum Saddams, glæpamönnum eða erlendum al- Qaeda-liðum. Vissulega séu raðir uppreisnarmanna fullar af slíkum mönnum, þar séu hins vegar líka venjulegir Írakar (bæði sjítar og súnnítar), gamlir og ungir. Þá sé það misskilningur að halda að um fastan fjölda manna sé að ræða, vel skipulögð samtök sem lúti forystu manna sem megi koma fyrir kattarnef (og þannig kæfa uppreisnina). Hernaðarað- gerðirnar nýverið í Fallujah breyti litlu, raunar séu þær til þess fallnar að uppreisnarmönn- um fjölgi. Engin sú stjórn sem taki við völdum eftir kosningarnar í næsta mánuði muni verða lög- mæt í augum þeirra. Sjálfsagt hafa Dobbins og Bing- ham mikið til síns máls. Írak er orðið það kviksyndi sem margir vöruðu við að það yrði Bandaríkja- mönnum. Ástandið er skelfilegt og ábyrgðin er bandarískra stjórn- valda að miklu leyti. Það er samt svolítið þreytandi að fylgjast með umræðunni um Íraksmálin eins og hún birtist hér á Íslandi. Hún er svo sjálfhverf, menn virðast telja meinta þátt- töku Íslands höfuðatriði. Fást því aldrei til að ræða fordómalaust um fortíð og framtíð í Írak. Í þeim efnum er mikilvægast að ræða hvernig tryggja megi betra ástand í Írak í framtíðinni – það er einfaldlega ekki mikilvægast að ræða um gerðir sem nú verða ekki teknar til baka. Menn mega ekki gleyma sér í andúðinni á aðgerð- um Bandaríkjastjórnar, það á ekki að verða að aðalatriði að sjá Bandaríkin fara illa út úr öllu saman – þ.e.a.s. ef það hefur sam- hliða í för með sér meiri hörm- ungar en ella fyrir írösku þjóðina. Við eigum að ræða hörmungar Íraka og hvernig best er að draga úr þeim, ekki bara þá hörmung (sem margir telja) að Ísland hafi gerst pólitískur stuðningsaðili innrásarinnar í fyrra. Hún er aukaatriði. Að þeim orðum slepptum þá get ég nú samt ekki stillt mig um að rekja svör nokkurra erlendra að- ila sem ég leitaði til nýverið. Bar ég það undir þessa aðila hvort líta bæri svo á að Ísland hefði lýst yfir stríði gegn Írak er við skráðum okkur á lista þeirra þjóða sem studdu innrás Bandaríkjanna. Ivo Daalder, fræðimaður við Brookings-stofnunina, virtist vilja skera okkur úr snörunni, ef svo má að orði komast. Hann sagði að það „að lýsa yfir pólitískum stuðn- ingi við tilteknar aðgerðir – jafn- vel þó um stríð sé að ræða – sé ekki sami hlutur og að lýsa yfir stríði“. Simon Chesterman, fram- kvæmdastjóri Alþjóðalagastofn- unarinnar við New York-háskóla, var ekki jafn afdráttarlaus en taldi samt hæpið að líta á Ísland sem stríðsaðila. Það megi hugsanlega færa rök fyrir því að Ísland sé hluti af hernámsliði í Írak; það flæki hins vegar málið að öryggis- ráð SÞ hefur skilgreint Bandarík- in og Bretland sem hernámsliðið í Írak, aðrar þjóðir séu þar einungis til aðstoðar, skv. skilgreiningu. Tók Chesterman fram að hafa beri í huga að núorðið lýsi þjóðir ekkert yfir stríði lengur á hendur annarri þjóð. Slíkar yfirlýsingar heyri fortíðinni til, til þeirra tíma er stríð voru ekki ólögleg í sjálfu sér. Nú þegar stríð séu álitin ólög- leg fari menn fram í nafni sjálfs- varnar eða á grundvelli ályktana öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Óvinnandi stríð í Írak Upphaf alls vísdóms er að viðurkenna að Bandaríkin geta ekki unnið það stríð sem enn geisar í Írak. […] bandarísk stjórnvöld hafa glatað tiltrú Íraka og eru ekki líkleg til að endurvinna hana. VIÐHORF Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is James F. Dobbins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.