Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 31 MINNINGAR ✝ Sveinbjörg Ingi-leif Kristjáns- dóttir Wiium fæddist á Kóreksstöðum í Hjaltastaðaþinghá 22. febrúar 1907. Hún lést á Hjúkrun- arheimilinu Ási í Hveragerði laugar- daginn 18. desember síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Oddný Sveinsdóttir Wiium, f. 26. maí 1884, d. 2. maí 1976 og Kristján Wiium Níelsson, f. 24. apríl 1881, d. 1. júní 1932. Systkini Ingu eru Þórdís, f. 23. maí 1910, d. 19. febr. 2003, Guðbjörg Ólöf, f. 29. júlí 1914, d. 1. sept. 1994, Ásta, f. 16. des. 1920, d. 4. ágúst 2003 og Elsa Kristín, f. 29. des. 1923. Inga giftist 1931 Stefáni G. Guðmundssyni frá Borgum í Vopnafirði, f. 3. júní 1906, d. 22. mars 1966. Börn þeirra eru: 1) Kristján, f. 27. júlí 1933, d. 5. nóv. 2001, kvæntur Erlu Jennadóttur Wiium, f. 7. júlí 1930. Börn þeirra eru Sigfríður Inga, f. 1. jan. 1954, Margrét Sigrún, f. 31. des. 1954, Stefanía Gunnlaug, f. 5.júlí 1956, Jenný Hugrún, f. 5. febr. 1964 og Elín Ósk, f. 11. nóv. 1966. 2) Guð- mundur, f. 16. júní 1940, kvæntur Hólmfríði Kristmannsdóttur, f. 1. mars 1940. Börn þeirra eru Sig- ríður Edda, f. 21. ágúst 1964, Stef- án Gunnlaugur, f. 14. júní 1966, Harpa, f. 27. mars 1971 og Hólmar Ingi, f. 22. des. 1978, d. 28. des. 1981. Fósturdóttir Ingu og Stefáns er 3) Heið- rún Helga Magnús- dóttir, f. 10. mars 1935, gift Guðmundi Hermanníussyni, f. 15. febr. 1928. Börn þeirra eru Sigríður Áslaug, f. 11. jan. 1959, Inga Dís, f. 22. jan. 1962, Stefán Gunnlaugur, f. 26. apr. 1973 og uppeld- isdóttir Helgu og Guðmundar er Matt- hildur Ragnheiður Kristjánsdótt- ir, f. 31. ágúst. 1966. Barnabarna- börnin eru 22 og barnabarna- barnabarn 1. Inga ólst upp í Fagradal í Vopnafirði. Hún var einn vetur í Laugaskóla í Reykjadal í Suður- Þingeyjarsýslu og fór síðan til Englands þar sem hún lærði ensku og fjölbreytta handavinnu í handverksskóla í London. Með- fram bústörfum kenndi hún ung- mennum ensku, dönsku, handa- vinnu o.fl. Árið 1947 flutti fjölskyldan til Hveragerðis. Þar vann Inga við ýmis störf, svo sem garðyrkju, símvörslu og svo kenndi hún um árabil við Barna- og unglingaskólann í Hveragerði. Síðustu starfsár sín vann hún á Heilsuhæli NLFÍ. Inga verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elskuleg tengdamóðir mín hefur hvatt þennan heim 97 ára gömul, samferð okkar hefur varað í rúm 40 ár. Af öllum þeim sem með mér hafa gengið ævinnar veg held ég að enginn hafi haft jafnmikil áhrif á mig til þroska sem hún. Inga var sífellt að gefa af visku- brunni sínum en það sem var þó verðmætast af öllu, var sú mikla elska sem hún bar til samferða- fólksins og var óspör á. Það gat stundum verið erfitt að átta sig á henni, því það giltu nefnilega aðrar reglur fyrir hana, hún var sú sem gaf en það þýddi ekki að hún ætti að njóta þess sama. Inga var vel af Guði gerð. Hún var greind vel og fjölhæf til munns og handa og nýtti þessa hæfileika til kennslu í fjölmörg ár þar sem hún kenndi bæði ungum og öldn- um. Hún var mikil atorkukona til allra verka og virtist þurfa minni hvíld en aðrir, óhemju hraust í sín- um pena kroppi til útiverka sem hún elskaði að vinna. Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa hana hjá okkur í skógræktinni, þar sem hún vann sér til yndisauka, þá háfullorðin og varð ekki stoppuð. Ég sé hana fyrir mér í brekkunni við lækinn að reyta grasið frá litlum skógarplöntum og ég veit að ungviðið sem var hjá okkur í sveit og barnabörnin, muna hana þarna tautandi fyrir munni sér „tómir matar- og kaffitímar hér“ þegar þau voru send eftir henni. Þetta voru hennar síðustu vinnustundir áður en andleg heilsa bilaði, það var erfitt að sjá hana missa minni og verkhæfni og það reyndist henni þungt tímabil en sem betur fer gekk það yfir og ævikvöldið var ró- legt og fallegt. Það er gott að hugsa til hennar á grænum grundum inn- an um fólkið sitt frá Fagradal sem stóð hjarta hennar alltaf næst. Við fólkið hennar á Vopnafirði, sem vorum svo fjarri þegar hún hefði mest þurft á okkur að halda, þökkum af alhug öllu því elskulega starfsfólki sem er á sjúkradeildinni Ási í Hveragerði og biðjum þeim Guðs blessunar í störfum þeirra og lífi. Minningin um góða konu lifir. Hólmfríður. Okkur langar til að minnast ömmu okkar, Ingu Wiium, með nokkrum orðum, en margar ynd- islegar minningar eigum við systk- inin frá dvöl okkar á heimili henn- ar. Góður Guð hlýtur að hafa haft hönd í bagga með að móðir okkar Helga, 8 ára að aldri, var tekin í fóstur af ömmu og afa sem bjuggu þá í Fagradal í Vopnafirði. Seint verður fullþakkað það góða atlæti sem hún fékk á heimili þeirra í upp- vextinum. Amma var alveg stórmerkileg kona sem upplifði margt og ferðað- ist víða, og þóttu þau ferðalög frek- ar óvenjuleg, sér í lagi á hennar yngri árum. Ef hún ætlaði sér eitt- hvað, þá lét hún fátt aftra sér í að framkvæma það. Þegar hún var 22 ára réði hún sig í vist í London og dvaldi þar í u.þ.b. ár. Þar nýtti hún einnig tím- ann til að mennta sig, og fór á alls- kyns námskeið í handverks- og list- greinum. Amma ferðaðist síðar til ýmissa annarra staða, en oftast fór hún samt til London, þar sem Dodda systir hennar bjó. Síðasta ferðalagið hennar þangað var til að halda upp á 90 ára afmæl- ið árið 1997. Í mars 1966 lést afi, og skömmu síðar fór amma í „píla- grímsferð“ til Ísrael, en þá ferð höfðu afi og amma hugsað sér að fara saman. Amma var hagmælt mjög og skilur eftir sig stæður dag- bóka, ljóða og þýðinga á sögum úr dönskum blöðum, sem hún þýddi þegar hún var ung að aldri, sem og ýmsan annan fróðleik sem stór- merkilegt er að lesa og kynna sér. Látum við hér með fylgja tvær vísur úr ljóði sem hún orti 89 ára að aldri. Mun mér lánast gott að gera? Gleðja aðra, sorgir sefa? Létta byrði er aðrir bera? Börnum litlum gott að gefa? Aldrei gleymast góðar stundir. Gefið efnið og leikið undir. Bros og söngur böli eyða. Blessuð gleði framtíð leiða. Engri manneskju höfum við kynnst á lífsleiðinni sem var eins fórnfús og viljug og hún amma okk- ar var, hún vildi alltaf allt fyrir alla gera og hlífði sér aldrei þegar hún gat gert eitthvað fyrir þá sem stóðu henni nærri. Með sorg í hjarta kveðjum við yndislega konu. Við getum verið þakklát fyrir að hún hafi nú fengið að fara á vit látinna ástvina sem hafa án efa tekið á móti henni með opinn faðm, eins og hennar faðmur stóð ætíð opinn fyrir okkur öll með- an hún lifði. Við þökkum fyrir þann ómetanlega tíma sem við fengum að vera henni samferða. Inga Dís, Áslaug og Stefán. Elsku Inga amma. Eftir langt og gott líf kveður þú okkur í dag og það er margs að minnast. Efst í huga mér eru allar gleðistundir með þér á Hveramörk- inni. Þú varst nefnilega kona með mikla kímni og sterkar skoðanir. Og engin „venjuleg“ amma. Ein af mínum fyrstu minningum um þig voru þegar við komum til þín og Stebba afa í sumarheimsókn í Hveragerði. Skemmtilegast af öllu fannst mér þegar við fórum í bíltúr á Land Rover-jeppanum ykkar út í sveit. Gjarnan í Álfa- borgir til að hlusta á lóuna syngja og til að borða nesti. Þið afi áttuð það sameiginlegt að vilja fræða okkur börnin um fugla- og dýralíf og náttúruna í kringum okkur. Þú misstir afa svo allt of fljótt og þú saknaðir hans eflaust mikið. Þú valdir að vera útivinnandi kona, bæði við kennslu og garð- yrkustörf. Svo minning mín um þig er um mikla handvinnukonu sem var upptekin af sniðum og sauma- skap. Þú vannst sem handavinnu- kennari hér í Hveragerði á mínum skólaárum og varst vel metin þar. Þú prjónaðir líka mikið og saum- aðir út hin fallegustu verk. Áhugi þinn á tónlist og bók- menntum var mjög skemmtilegur. Þú hafðir gaman af að fara á tón- leika og fylgjast með í menning- unni. Þú last mikið og þið mamma gátuð rabbað endalaust um góðar bækur. Þú hafðir gaman af að skrifa dagbækur og gerðir það dag- lega í mörg ár. Þú varst ávallt mikill Austfirð- ingur í þér og þér þótti ákaflega vænt um æskustöðvarnar í Fagra- dal. Eftir að þú hættir að vinna varst þú eins og farfuglarnir. Á vorin fórst þú út í Bjarnarey til að hlúa að æðarfugli og hirða dún. Þetta var þér dýrmætur tími. Síðustu árin hef ég heimsótt þig á Hjúkrunarheimilið Ás. Þar leið þér vel og þar var unaðslega vel um þig hugsað. Þú mættir mér alltaf með brosi á vör og hafðir margt að segja þó að þú ættir erfitt með að koma orðum frá þér. Elsku amma ég þakka þér allar góðar stundir. Kærleik og hlýju gafst þú mér glaðir voru okkar fundir. Máninn himni merlar á björt ein stjarna skín. Nú er komið að kveðjustund blessuð sé minning þín. Þín Stefanía. Elsku amma, í dag kveðjum við þig í hinsta sinn. Þú sem alltaf hef- ur verið til staðar í lífi mínu sem og barna minna, og þín er sárt saknað. Í minningum okkar ert þú amm- an sem alltaf átti hlýjan faðm bæði í gleði og sorgum. Hjálparhellan sem alltaf var tilbúin að rétta fram hjálparhönd ef á þurfti að halda. Kjarkkonan sem 75 ára tókst að gæta langömmubarns sem aðeins var 2 vikna gamalt á meðan ég lá á sjúkrahúsi. Alltaf áttir þú tíma fyrir okkur hvort sem var að nóttu eða degi. Vísurnar sem þú samdir fyrir lang- ömmubörnin eru ófáar og þykir þeim svo undur vænt um þær. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Minningin um ömmuna með gull- hjartað lifir um ókomin ár. Takk fyrir allt. Sigríður Edda Wiium og fjölskylda. Látin er í hárri elli frænka mín, Inga Wiium frá Fagradal í Vopna- firði, lengst af húsfreyja í Hvera- gerði. Ég var ekki gömul, þegar ég kynntist henni, enda mikill vin- skapur og samgangur milli þeirra frænknanna, móður minnar og hennar. Oft var rennt austur í Hveragerði á sunnudögum, eða komið við hjá henni, þegar ekinn var „Hringurinn svokallaði. Alltaf voru viðtökurnar jafn ljúflegar og góðar, enda Inga með eindæmum gestrisin heim að sækja. Hún var einstaklega barngóð og hafði gott lag á að hæna að sér börn og unglinga og sýna þeim sér- staka virðingu. Hún var einnig ákaflega smekk- vís og listfeng í sér og hlúði að þeim, sem höfðu listræna hæfileika. Orgelharmóníum hafði hún í stofu hjá sér, sem móðir mín lék stund- um á, og síðar ég. Það voru mín fyrstu kynni af því hljóðfæri. Hún minntist þess lengi, þegar við töl- uðum síðar saman í síma, hversu gaman hún hefði haft af því, þegar ég settist við hljóðfærið og impróv- íseraði á það. Hún var mikil hann- yrðakona, enda bar heimili hennar vott um það. Hún var líka ljóðræn í sér, enda gat hún verið hagyrð- ingur, ef svo bar undir, og til eftir hana ljóð, þótt hún gerði jafnan sem minnst úr þeim hæfileikum sínum, eins hæversk og hún var. Hún studdi líka alla þá með ráðum og dáð, sem voru að feta sig á skáldabrautinni. Hún fylgdist vel með þjóðmála- umræðunni og hafði sínar sterku skoðanir á þeim efnum, sem hún lét óspart í ljós, og var sjaldan ósam- mála okkur. Allar umræður, sem hún kom af stað, fóru hávaðalaust fram, enda virtist hún ekki vera há- vaðamanneskja í eðli sínu. Ég man a.m.k. ekki eftir henni þannig. Ég gæti haldið svona lengi áfram og tínt til fleiri góða kosti, sem þessi ágæta frænka mín hafði, þó að slíkt hefði verið henni lítt að skapi í yfirlætisleysi sínu. Ég vil því í lokin þakka henni kærlega fyrir mig og mína, góð kynni og góða samferð og biðja henni allrar Guðs blessunar, þar sem hún er nú. Aðstandendum öll- um sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ingu Wiium. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Látin er í hárri elli kær vinkona, Inga Wiium og langar mig að minn- ast hennar í nokkrum orðum og þakka fyrir liðnar stundir frá ár- unum í Hveragerði. Inga og maður hennar Stefán Guðmundsson voru vinir og ná- grannar móðurforeldra minna, Grethe og Ragnars Ásgeirssonar. Afi og amma fluttu til Hveragerðis árið 1943 en Inga og Stefán fluttu þangað fáeinum árum síðar. Afi og amma bjuggu að Helgafelli og á milli húsanna var aðeins eitt hús, Símstöðin. Góð vinátta og samgangur var milli fjölskyldnanna. Minnist ég þess að oft var spiluð „whist“ á kvöldin að vetrarlagi og boðið upp á hressingu á eftir. Þegar afi og amma þurftu að bregða sér til Reykjavíkur gisti ég stundum hjá Ingu og Stefáni. Fékk ég þá fallega búið herbergi til af- nota fyrir mig. Heimilið var smekk- legt og hver hlutur átti sinn stað. Ég man hve gestrisin þau voru og hugsuðu vel um unga gestinn. Inga kenndi mér rommý og í minn- ingunni finnst mér að við höfum spilað hvert kvöld. Stundum voru svið í matinn, en ég hafði ekki van- ist því að borða svið og man ég að notaður var vasahnífur en ekki hefðbundin hnífapör. Á bolludaginn tókst mér að lauma mér gegnum bílskúrinn til að vekja þau snemma og var boðið upp á rjómabollur síð- degis. Allt var borið fram af gleði og kærleika. Inga var ákaflega dugleg og ósérhlífin kona, létt í spori, sívinn- andi og lét sér annt um fólk. Barna- börnin voru henni sérstaklega kær. Fjölskyldunni allri vottum við okkar dýpstu samúð. Úlfhildur Grímsdóttir og fjölskylda. INGA WIIUM með erfiðum veikindum Péturs og ekki síður langvarandi veikindum hans góðu konu Önnu Sigfúsdóttur. Það var mikið lán fyrir okkur á Gullberginu þegar Pétur kokkur kom til okkar árið 1989 og var nær óslitið þar til hann fór í land árið 2002. Hann hafði verið á sjónum frá unglingsaldri og ætlaði nú að njóta efri áranna með Önnu sinni og fjöl- skyldunni. En margt fer öðru vísi en ætlað er. Pétur var einstakt snyrtimenni og gekk fast eftir að allt væri hreint og strokið um borð en hann var ekki bara snyrtimenni heldur sérlega ljúfur í öllum sam- skiptum. Mér fannst oft eins og hann væri pabbi allra strákanna um borð. Menn eins og Pétur eru hverri útgerð ómetanlegir. Elsku Anna, börnin ykkar og þeirra fjölskyldur, síðustu misseri hafa verið ykkur erfið en megi allar góðu minningarnar um elskulegan eiginmann og föður milda sárasta söknuðinn. Með virðingu og trega kveðjum við kæran vin. Fyrir hönd útgerðar Gullbergs VE 292, Elínborg Jónsdóttir. Nú legg ég aftur ljóssins augu, lifandi Guð, í skjóli vængja þinna. Hræðist ei þó hverfi sólin bjarta ég halla mér að þínu föður hjarta. (Höf. óþ.) Elsku Pétur. Síst af öllu áttum við von á því að við settumst niður að skrifa minn- ingarorð um þig, vinur minn. Minn- ingarnar streyma fram um þig, kæri vinur. Þú varst alltaf svo ljúf- ur og góður, þú og hún Anna þín reyndust okkur alltaf vel, þegar ég og fjölskylda mín áttum heima í Vogum á Vatnsleysuströnd og einn- ig þegar við bjuggum í Eyjum. Ég kynntist þér fyrst þegar Anna systir kom með þig heim í Bergholt á Raufarhöfn. Þegar ég heimsótti ykkur til Eyja voruð þið búin að kaupa ykkur lítið og fallegt hús sem var perla í ykkar hjarta. Þar var oft margt um manninn og mikið gaman. Er þú og fjölskyldan þín fluttuð úr Eyjum í gosinu til Njarðvíkur var ég byrjaður að búa í Vogunum. Þar áttum við margar góðar stund- ir saman. Mig langar að minnast hversu góður, traustur og ljúfur maður þú varst. Það var sama hvað gekk á, alltaf varst þú jafnrólegur og yf- irvegaður en jafnframt stutt í glettnina. Mikið var ég lánsamur að hafa fengið þig, Pétur, til að vera svara- maður hjá mér þegar ég gifti mig. Þar sem ég átti ekki pabba á lífi komst þú mér í föðurstað á þessum tímamótum í lífi mínu. Já, mikið var nú gott að hafa þig við hlið mér þá. Þegar þú fluttir svo aftur til Eyja fluttum við fjölskyldan einnig þang- að og hélst þá vináttan og kunn- ingsskapurinn áfram. Var það sama og áður, ef við þurftum á einhverju að halda þá varstu alltaf reiðubúinn að aðstoða og færum við þér bestu þakkir fyrir allt og allt. Einnig vil ég þakka þér fyrir hvað þú varst góður við hana Önnu systur mína, þá sérstaklega núna undir það síðasta í öllum hennar veikindum, traustið, ástin og vænt- umþykjan til hennar fór ekki framhjá neinum. Ég vil að lokum þakka þér fyrir bíltúrinn sem við fórum daginn áð- ur en þú varst lagður inn á spítala hjá henni Önnu þinni og kvaddir þennan heim við hlið hennar, alveg eins og þú hefðir helst óskað eftir úr því sem komið var. Ég og fjölskylda mín eigum ynd- islegar minningar um góðan mann og munum ætíð minnast þín í hjört- um okkar. Elsku Anna, systir og mágkona, Margrét, Sigfús Pétur, Valdimar Helgi & fjölskyldur og aðrir að- standendur, Guð styrki ykkur og verndi á þessum sorgartíma. Minn- ing um elskulegan eiginmann, ynd- islegan föður og afa ylji ykkur um ókomin ár. Hinsta kveðja, Bergþór, Hulda og fjölskylda, Njarðvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.