Morgunblaðið - 29.12.2004, Síða 33

Morgunblaðið - 29.12.2004, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 33 Atvinnuauglýsingar Útburður og flokkun Íslandspóstur leitar að fólki í hressandi störf við útburð og flokkun á pósti á höfuðborgar- svæðinu. Um er að ræða hlutastörf eða full stöðugildi. Einnig getum við bætt við okkur fólki í tímavinnu sem hentar vel skólafólki. Hugsanlega leynist starf í hverfinu þínu. Allar frekari upplýsingar eru í síma 580 1000. Laus störf við Kárahnjúkavirkjun Impregilo, sem er aðalverktaki að Kárahnjúka- virkjun, óskar að ráða starfsmenn til starfa við byggingu virkjunarinnar, einkum við byggingu Kárahnjúkastíflu. Leitað er eftir starfsmönnum á eftirgreindum sviðum:  Tækjamenn — þ.m.t. kranamenn, stjórnend- ur þungavinnuvéla og bílstjórar stærstu þungaflutningsbíla.  Byggingamenn með reynslu úr stórfram- kvæmdum þ.m.t. smiðir, sérhæfðir bygg- ingaverkamenn og járniðnaðarmenn.  Rafvirkja.  Starfsfólk til þjónustustarfa í mötuneytum og vinnubúðum. Áskilin er minnst þriggja ára reynsla af sam- bærilegum störfum. Laun skv. virkjanasamningi verkalýðsfélaganna við SA og Landsvirkjun. Umsóknareyðublöð á skrifstofu okkar í Reykjavík á Lynghálsi 4 og verkstað. Umsóknum skal skila til Impregilo SpA, Laug- arási, 700 Egilsstöðum, fyrir 10. janúar nk. Járnamaður getur bætt við sig verkefnum eftir áramót. Upplýsingar í síma 898 9475. Franska og spænska kennara vantar frá áramótum, allt að 75% stöður Upplýsingar hjá aðstoðarskólameistara í síma 896 8624. Skólameistari. Baadermaður óskast á frystitogarann Þór frá Hafnarfirði. Upplýsingar í símum 555 2605 og 892 2222. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Tilkynningar Auglýsing um breytingu á Svæðisskipulagi Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Gerðahrepps og Keflavíkurflugvallar 1995—2015 Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Reykja- nesbæjar, Sandgerðisbæjar, Garðs og Keflavík- urflugvallar auglýsir hér með samkv. 13. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Reykjanesbæj- ar, Sandgerðisbæjar, Gerðahrepps og Keflavík- urflugvallar 1995-2015. Breytingin er fólgin í því að fella niður alla landnotkun í Svæðisskipulagi Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Gerðahrepps og Keflavíkur- flugvallar 1995-2015, að undanskildum há- vað- amörkum við Keflavíkurflugvöll sem Hollustu- vernd ríksins skilgreindi á grundvelli mælinga sem gerðar voru á árunum 1985 og 1986. En innan hávaðamarkanna eru svæði sem ekki teljast hæf til íbúðarbygginga, vegna hávaða frá flugumferð. Tillagan liggur frammi á almennum skrifstofu- tíma frá 29. desember 2004 til 26. janúar 2005 á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar, Sandgerð- isbæjar og Garðs og jafnframt á skrifstofu Flug- málastjórnar á Keflavíkurflugvelli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er gefinn kostur á að skila skriflegum athuga- semdum við skipulagstillöguna fyrir 9. febrúar 2005 á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Garðs eða á skrifstofu Flug- málastjórnar á Keflavíkurflugvelli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þeir sem ekki gera athuga- semdir við skipulagstillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni. Keflavíkurflugvöllur, 17. desember 2004. Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Garðs og Keflavíkurflugvallar. BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um ný deiliskipulög og breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að nýju og breyttu deiliskipulagi í Reykjavík. Reitur 1.133.2, Framnesreitur. Tillaga að deiliskipulagi fyrir reit sem afmarkast af Framnesvegi, Holtsgötu, Seljavegi og Vestur- götu. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir svölum og stækkun á húsunum nr. 10 – 32 við Framnesveg, viðbygg- ingum verði ætlað að auðvelda tengsl garðs og húss og rýmka íbúðir, tillaga gerð um að lóðir nr. 4 og 6 við Framnesveg verði sameinaðar, ósamþykktir skúrar víki af svæðinu, ekki verður gert ráð fyrir neinum bílastæðum inni á reitnum og að inngarðurinn verði lokaður fyrir almennri umferð. Gert er ráð fyrir að göngustígar sem eru í eigu Reykjavíkurborgar verði endurbættir, lýstir upp og fegraðir. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Reitur 1.170.0. Tillaga að deiliskipulagi fyrir reit 1.170.0, sem afmarkast af Lækjargötu, Hverfisgötu, Ingólfs- stræti og Bankastræti. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að öll hús á reitnum standi áfram en þó er stundum gert ráð fyrir niðurrifi bakhúsa sem skilyrði fyrir uppbyggingu, leyfð verði 1 – 4 hæða bakbyggingar á Stjórnar- ráðslóð, gert ráð fyrir uppbyggingu á baklóð Bankastrætis 3 og ekki er gert ráð fyrir fjölgun bílastæða ofanjarðar en gert ráð fyrir neðan- jarðarbílageymslu við uppbyggingu á Stjórnar- ráðslóð. Við aukið byggingarmagn á lóðum þar sem ekki verður við komið fleiri bílastæðum gilda reglur um gjald fyrir samsvarandi fjölda í bílastæðasjóð. Meðalnýtingarhlutfall á reit hækkar úr 1,76 í 2,43. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Ármúli – Lágmúli. Tillaga að deiliskipulagi fyrir lóðirnar að Ármúla 1 – 3 og Lágmúla 5 – 9 svæði sem nær yfir sex lóðir og afmarkast af lóðinni nr. 2 við Suður- landsbraut, Ármúla, Lágmúla og Háaleitisbraut. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir heimilt verði að byggja eina hæð ofan á húsið nr. 9 við Lágmúla, sjö hæða hús við Ármúla 1, möguleg bílageymsluhús á öllum lóðum (nema Ármúla 1a) lóðarhöfum er heimilt að sameinast um byggingu á bílageymslum, auk verulegrar upp- byggingar á lóðinni nr. 3 við Ármúla. Leyfilegt er að breyta bakhúsum í bílageymslur og hús skulu staðsett innan byggingareits. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Skútuvogur 14 og 16. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar nr. 14 og 16 við Skútuvog. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggingarreitur Skútuvogs 14 er snúið um 90° og minnkaður úr 90 x 50m í 41 x 71m og hann tengdur við Skútuvog 16 með byggingarreit 30 x13,4m fyrir tengibyggingu, útbyggingareitur, 9 x 41m, er vestan við aðalbyggingareit að Skútuvogi 14. Hámarks byggingarmagn á lóð er 9.700m2. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 08:20 – 16:15, frá 29. desember til og með 9. febrúar 2005. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- fulltrúa eigi síðar en 9. febrúar 2005. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 29. desember 2004 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Félagslíf Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.