Morgunblaðið - 29.12.2004, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Styrkir
Námsstyrkir
Verslunarráð Íslands auglýsir eftir umsóknum
um þrjá styrki til framhaldsnáms erlendis. Einn
styrkjanna er veittur úr Námssjóði Verslunar-
ráðs um upplýsingatækni en hinir tveir úr
Námssjóði Verslunarrás
1. Styrkirnir eru veittir til framhaldsnáms
við erlenda háskóla eða aðra sambærilega
skóla í greinum, sem tengjast atvinnulífinu
og stuðla að framþróun þess. Ein styrk-
veitingin gerir kröfu um nám á sviði upp-
lýsingatækni.
2. Skilyrði styrkveitingarinnar er að umsækj-
endur hafi lokið háskólanámi eða öðru
sambærilegu námi.
3. Hver styrkur er að fjárhæð kr. 250.000 og
verða þeir afhentir á Viðskiptaþingi Versl-
unarráðs Íslands 8. febrúar 2005.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu Versl-
unarráðs í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7,
103 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 föstudaginn
14. janúar 2005. Umsóknum þarf að fylgja afrit
af prófskírteini, vottorð um skólavist erlendis
og ljósmynd af umsækjenda. Nánari upplýs-
ingar má finna á heimasíðu Verslunarráðs,
www.verslunarrad.is.
Verslunarráð Íslands.
Atvinnuhúsnæði
Fiskislóð
Lagerhúsnæði — mikil lofthæð —
og skrifstofuhúsnæði
1. 280 fm gott lagerhúsnæði. Góð aðkoma.
Mikil lofthæð.
2. 350 fm skrifstofu- og lagerhúsnæði, þar af
skrifstofur um 150 fm. Húsnæði í mjög góðu
ástandi.
Fasteignafélagið Kirkjuhvoll.
Upplýsingar í síma 892 0160.
Fundir/Mannfagnaður
Hluthafafundur Tanga hf.
verður haldinn fimmtudaginn 6. janúar
nk. kl. 14:00 í Kaupvangi, Vopnafirði
Dagskrá:
1. Setning fundarins – Kosning starfsmanna.
Tillaga stjórnar um samruna félagsins við
HB Granda hf. skv. samrunaáætlun sem
stjórnin samþykkti 23. nóvember síðastlið-
inn.
2. Önnur mál löglega upp borin.
Dagskrá hluthafafundar og tillögur liggja
frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til af-
hendingar.
Atkvæðaseðlar og fundargögn munu verða
afhent hluthöfum á fundarstað.
Aðalfundur
Sjómannafélags Reykjavíkur
verður haldinn í Skipholti 50D í dag, miðviku-
daginn 29. desember, kl. 17.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Stjórn- og trúnaðarmannaráð
Sjómannafélags Reykjavíkur.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Kárahnjúkavirkjun
Útboð KAR-17
Hlaðhús
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í byggingu
Hlaðhúss í Norðurdal (Fljótsdal) samkvæmt
útboðsgögnum KAR-17.
Verkið felst í byggingu þjónustuhúss við Kára-
hnjúkavirkjun í Fljótsdal. Um er að ræða
tveggja hæða steinsteypt hús áfast forskála
aðkomuganga í Stöðvarhús Kárahnjúkavirkjun-
ar. Í húsinu verður stjórnstöð virkjunarinnar
ásamt verkstæði og starfsmannaaðstöðu.
Heildarflatarmál er um 1.800 m² og helstu
magntölur, steypa 1.500 m3, mót 6.900 m² og
bendistál 120 tonn.
Útboðsgögn verða afhent í móttöku Landsvirkj-
unar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, gegn
óafturkræfu gjaldi kr. 6.000 fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 11:00
mánudaginn 10. janúar 2005, þar sem þau
verða opnuð og lesin upp að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Tilboð/Útboð
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
ÞRJÁTÍU og þrír stúdentar voru
brautskráðir frá Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ við hátíðlega athöfn
nýlega. Nokkrir nemendanna voru
brautskráðir eftir þriggja og hálfs
árs nám, flestir í hóp sem starfað
hefur undir kjörorðunum Hópur –
Hraði – Gæði. Hópurinn er þjónusta
við sterka nemendur sem hefur skil-
að frábærum árangri, segir í frétt
frá skólanum. Úr HHG-hópnum
kom dúx skólans, Hulda Guðjóns-
dóttir, stúdent af tveimur brautum,
málabraut og náttúrufræðibraut.
Þorsteinn Þorsteinsson, skóla-
meistari, greindi frá starfsemi skól-
ans á haustönninni og afhenti nem-
endum skírteini. Í ávarpi til braut-
skráðra nemenda hvatti skóla-
meistari nemendur til að íhuga tvö
heit. Hið fyrra að stunda námið af al-
úð en hið síðara að sýna þolinmæði
og umburðarlyndi gagnvart öðru
fólki og eyða þannig misskilningi,
einelti og illindum. „Hverjum manni
fylgir saga – lífssaga sem er ætíð
stórmerkileg. Mannlífið er fjöl-
breytilegt og þannig á það að vera.
Nauðsynlegt er að átta sig á hvað
skiptir máli, staldra við og móta sína
eigin stefnu,“ sagði skólameistari
m.a. í erindi sínu.
Matthías G. Pétursson, formaður
skólanefndar, flutti kveðjur til stúd-
enta og skólans og þakkaði fyrir
ánægjulegt samstarf sl. átta ár, þar
sem hann er nú að hætta í skóla-
nefndinni. Þá flutti Sandra Ósk Jó-
hannsdóttir ávarp nýstúdenta.
Brautskráning hjá FG
Rangt nafn
Rangt nafn kom fram í frétt og
myndatexta hér í blaðinu á aðfanga-
dag um fallegustu jólaskreytingarnar
í Sandgerði. Annar eigandi hússins að
Bogabraut 6 heitir Andrea Sigurrós
Andrésdóttir. Dóttir hennar heitir
Berglind Lára Haraldsdóttir. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
LIONSKLÚBBUR
Reykjavíkur hefur fært
sjúkraþjálfun á Grensási
að gjöf Tunturi-þrekhjól
og handarmælingartæki
frá Saehan Corporation til að mæla
styrk og hreyfingar í höndum og
fingrum. Tækin koma að miklum
notum fyrir sjúklinga deildarinnar
bæði til þjálfunar og til að meta ár-
angur meðferðar, segir í frétta-
tilkynningu.
Á myndinni er starfsfólk á end-
urhæfingardeild LSH Grensási
ásamt fulltrúum frá Lionsklúbbi
Reykjavíkur við afhendingu gjaf-
anna 24. nóvember sl.
Gáfu æf-
inga- og
mælinga-
tæki á
Grensás