Morgunblaðið - 29.12.2004, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einhver færir þér hugsanlega gjöf í
dag sem gerir þér kleift að sækja nám-
skeið eða setjast aftur á skólabekk.
Einnig er hugsanlegt að einhver bjóði
þér í ferðalag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gjafir og hlunnindi rata til þín í dag og
þér er ætlað að deila því sem að hönd-
um ber með öðrum. Búðu þig undir arf,
greiða eða kaupauka af einhverju tagi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hitnað gæti í kolunum í lausu sam-
bandi í dag. Daður og léttúð breytist í
jákvæðar og varanlegar tilfinningar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú kemur miklu í verk í dag því fé-
lagar þínir eru framtakssamir og
hvetjandi. Þú færð það sem þú óskar
þér núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Rómantíkin liggur í loftinu í dag og
upplagt að eiga stefnumót við ein-
hvern. Dagurinn er kjörinn fyrir teiti.
Afþreying með börnum gleður líka
hjarta þitt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Notaðu daginn til þess að fegra heim-
ilið eða hafa ofan af fyrir fjölskyldu-
meðlimum. Hvaðeina sem þú tekur þér
fyrir hendur verður ánægjulegt og gef-
andi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dagurinn í dag er góður til þess að
undirrita samninga eða ná sam-
komulagi við aðra. Samræður við
systkini og ættingja verða gleðilegar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Notaðu daginn til þess að færa björg í
bú, aðstæður fyrir hvers kyns viðskipti
eru góðar. Þú eyðir hugsanlega hell-
ingi ef þú ferð í verslunarleiðangur en
nýtur þess sem þú kaupir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér finnst þú góðhjartaður og elska
allan heiminn í dag, bogmaður. Þú get-
ur bara ekki hætt að brosa. Eitthvað
gerir þig bjartsýnan og vongóðan
núna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einhver sem þú veist ekki af kemur
þér á framfæri bakvið tjöldin. Fólk tal-
ar vel um þig þegar þú ert ekki við-
stödd, kæra steingeit.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þvílíkur dagur til þess að blanda geði
við náungann! Það er upplagt að
styrkja tengsl og taka höndum saman
með öðrum núna. Þú hvetur fólk til
dáða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú lítur feiknavel út í augum annarra
um þessar mundir. Ef þig langar til
þess að gera eitthvað sem þarfnast
leyfis frá öðrum er dagurinn í dag sá
rétti til þess að spyrja.
Stjörnuspá
Frances Drake
Steingeit
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert leiðtogi hópsins, hvort sem þér lík-
ar betur eða verr. Virðing annarra gerir
þig að foringja, hvort sem þú sækist eftir
því eða ekki. Kímnigáfa þín er kaldhæð-
in og þú ert mælskan uppmáluð.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 ímyndunarafl, 8
alir, 9 gerist oft, 10 kyn,
11 efnað, 13 nytjalönd, 15
flutnings, 18 þíðviðri, 21
ílát, 22 eyja, 23 kjánar, 24
hurðarhúns.
Lóðrétt | 2 muldrar, 3
ákveð, 4 afturkerrta, 5 ör-
lagagyðja, 6 hæðum, 7 lít-
ill, 12 sár, 14 fraus, 15
bæli, 16 hrotta, 17 nákom-
in, 18 hnigna, 19 rysk-
ingar, 20 siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 plógs, 4 fagur, 7 kaggi, 8 öflug, 9 pól, 11 röng, 13
turn, 14 róaði, 15 nóló, 17 nótt, 20 kal, 22 tafla, 23 játað, 24
rengi, 25 narta.
Lóðrétt | 1 pukur, 2 ólgan, 3 skip, 4 fjöl, 5 guldu, 6 Regin,
10 ólata, 12 gró, 13 tin, 15 notar, 16 lyfin, 18 Óttar, 19 tíðka,
20 kali, 21 ljón.
60 ÁRA afmæli. Ídag, miðviku-
daginn 29. desember,
er sextugur Pétur
Kristjánsson, raf-
eindavirkjameistari,
starfsmaður Fast-
eignastofu Reykja-
víkurborgar. Hann
verður að heiman, í faðmi barna sinna
og barnabarna.
80 ÁRA afmæli.Á morgun, 30.
desember, verður átt-
ræð Dagmar Árna-
dóttir, Skiphóli í
Garði. Hún tekur á
móti gestum á heimili
sínu eftir kl. 17 á af-
mælisdaginn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Upplýsandi afköst.
Norður
♠KG6
♥652
♦K2
♣ÁDG52
Vestur Austur
♠Á108 ♠753
♥KDG9873 ♥–
♦3 ♦G8754
♣63 ♣109874
Suður
♠D942
♥Á104
♦ÁD1096
♣K
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 tígull
1 hjarta 2 lauf Pass 2 tíglar
2 hjörtu 3 hjörtu * Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Allir vita að það getur verið kúnst að
kasta rétt af sér í vörninni þegar þrýst-
ingurinn eykst. Færri vita að afköstin
geta líka skipt máli þótt þrýstingurinn
sé enginn. Spil dagsins er gott dæmi.
Vestur hóf vörnina að sjálfsögðu
með hjartakóng. Austur henti spaða og
suður dúkkaði. Vestur hélt áfram með
háhjarta, suður dúkkaði, en fékk svo
þriðja slaginn á hjartaás. Suður lagði
niður laufkóng, fór inn í borð á tígul-
kóng og tók ÁDG í laufi.
Eins og lesandinn hefur löngu áttað
sig á, þá veltur geimið á íferðinni í tíg-
ulinn. Sagnhafi er með átta toppslagi
og verður að svína fyrir tígulgosann til
að ná í þann níunda. Sem er svo sem
möguleiki þegar vitað er um sjölit í
hjarta í vestur, en þó engan veginn
sjálfgert.
Nema, auðvitað, ef vestur hendir
hugsunarlaust tveimur spöðum í laufin.
Sagnhafi veit sem er að vestur á spaða-
ásinn og ef hann sér tvo spaðahunda
koma siglandi er hægur vandi að
teikna upp skiptingu vesturs: 3-7-1-2.
Og þá er svíningin fyrir tígulgosann
ekkert vandamál.
Ef vestur hendir hins vegar tveimur
hjörtum í hálaufin, verður mun þyngra
fyrir sagnhafa að finna svíninguna.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
70 ÁRA afmæli.Sjötugur er á
morgun, fimmtudag-
inn 30. desember,
Magnús Stefánsson,
fyrrverandi bóndi í
Fagraskógi. Hann og
eiginkona hans, Auð-
ur Björnsdóttir,
ásamt fjölskyldu, hafa opið hús í Odd-
fellowhúsinu, Sjafnarstíg 3, Akureyri,
frá kl. 16 til 19 á afmælisdaginn.
Kvennakirkjan
í Dómkirkjunni
JÓLAMESSA Kvennakirkjunnar
verður í Dómkirkjunni í kvöld kl.
20.30. Séra Auður Eir Vilhjálms-
dóttir prédikar. Arna Kristín Ein-
arsdóttir og Hallfríður Ólafsdóttir
leika á flautu. Kór Kvennakirkj-
unnar leiðir söng á jólalögum.
Á eftir verður kaffi á kirkjuloftinu.
Þar verður bókin Gleði Guðs til sölu
en hún kom út rétt fyrir jólin og er
eftir séra Auði Eir Vilhjálmsdóttur.
Bókin heitir fullu nafni: Gleði Guðs
sem læknar sektarkennd, kvíða,
einsemd og reiði og gefur fyr-
irgefningu, frelsi, frið og fem-
inisma.
Skemmtanir
SÁÁ félagsstarf | Barnajólaball verður
haldið í húsi I.O.G.T. Stangarhyl 4 frá kl. 17–
19.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Gallerí Banananas | Úlfur Chaka – Geim-
dúkka og Fönix reglan/spacedol™ and the
phoenix rule. Opið eftir samkomulagi.
Gallerí Tukt | Innrás úr Breiðholtinu í Gallerí
Tukt. Samsýning níu myndlistarnema úr FB.
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir – Efnið
og andinn. Ari Sigvaldason fréttamaður –
mannlífsmyndir af götunni. Þetta vilja börn-
in sjá! – Myndskreytingar úr íslenskum
barnabókum sem gefnar hafa verið út á
árinu. Sýndar eru myndir úr nær fjörutíu
bókum eftir tuttugu og sjö myndskreyta.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk.
Hrafnista Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist-
insson myndlistamaður sýnir málverk og
tússmyndir í Menningarsal.
Kaffi Espresso | Guðrún Eggertsdóttir –
skúlptúrar og myndir.
Klink og Bank | Carl Boutard – Inner Station
– the heart of darkness.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist: um
veruleikann, manninn og ímyndina. 20 lista-
menn sýna. Í dag kl. 15 kemur myndlist-
armaðurinn Egill Sæbjörnsson fram í
tengslum við verkið „YOU TAKE ALL MY
TIME“.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Grafísk
hönnun á Íslandi. Erró – Víðáttur.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Textíllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning.
Myndir úr Kjarvalssafni.
Lóuhreiður | Sigrún Sigurðardóttir – Gróður
og grjót.
Norræna húsið | Vetrarmessa fimmtán
listamanna og -kvenna.
Söfn
www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Íslands,
Borgarskjalasafn Reykjavíkur og héraðs-
skjalasöfn um land allt hafa sameinast um
vefinn www.skjaladagur.is þar sem er að
finna fróðleik og sýningu um árið 1974 í
skjölum.
Mannfagnaður
Leikskálar | Jólaball kl. 17.30–19.30. Gengið
í kringum jólatré með jólasveinunum – kaffi
og kökur – dans – flugeldasýning. Aðgangs-
eyrir er kr. 500 fyrir 2ja ára og eldri. Allir
velkomnir.
Fréttir
Björgunarsveitin Víkverji | Flugeldasala kl.
16–20, 28. og 29. des. og 30. des. kl. 12–20,
gamlársdag kl. 10–14. Flugeldasýning gaml-
árskvöld.
Fundir
Ás | Aðalfundur veiðimannafélags Holta-
manna kl. 20.30.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Áramótaferð Útivist-
ar í Bása er 30. desember. Fararstjórar
Bergþóra Bergsdóttir og Reynir Þór Sig-
urðsson.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
JÓLABALL eldri borgara og Litla kórs
Neskirkju verður haldið kl. 15.30 í dag.
Gunnar Eyjólfsson leikari segir sögur, Litli
kórinn og Inga J. Backman syngja, stiginn
verður jóladans, veglegar kaffiveitingar og
sr. Sigurður Árni Þórðarson flytur hug-
vekju.
Kirkjubíllinn fer um hverfið og verða
ferðir hans sem hér segir: Strætóskýlinu
við Þorragötu kl. 15, Grund kl. 15.05,
Grandavegi 47 kl. 15.10 og Aflagranda 40
kl. 15.15.
Jólaball í Neskirkju
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD ÍR efnir til
stórtónleika í dag kl. 18 í Íþróttahúsi Selja-
skóla, en þar munu tveir af vinsælustu
listamönnum ungu kynslóðarinnar, þau
Birgitta Haukdal og Jón Sigurðsson, leika
fyrir gesti auk þess sem stúlkurnar í söng-
sveitinni Nylon munu troða upp, en þær
njóta einnig mikilla vinsælda um þessar
mundir.
„Tónleikarnir eru haldnir til að safna pen-
ingum til að reka deildina. Það er mikið
bras að reka deild innan félags, þó það sé
líka mjög skemmtilegt, en þetta er liður í
því að safna fé til rekstrarins,“ segir Gunn-
ar Sverrisson stjórnarmaður í körfuknatt-
leiksdeild ÍR. „Ég get lofað því að það verð-
ur mjög skemmtilegt, tónlistarmennirnir
eru ekki af verri endanum. En við rennum
auðvitað dálítið blint í sjóinn, við höfum
aldrei gert þetta. En við treystum á það að
fólk sjái sér fært að styrkja okkur og
skemmta sér í leiðinni með því að mæta á
ódýra og káta fjölskylduskemmtun. Miðinn
verður seldur á þúsund krónur í forsölu í fé-
lagsheimili ÍR í Mjóddinni til klukkan fimm í
dag. Þessi skemmtun er auðvitað ekki bara
fyrir fólk í Breiðholtinu, heldur fyrir alla
sem vilja gera eitthvað skemmtilegt.
Körfuknattleiksdeild ÍR er sögufræg, en
hún er sigursælasta körfuknattleiksdeild
Íslands, þó titlarnir hafi kannski ekki verið
eins margir upp á síðkastið. Unglinga-
starfið er fjölmennt og í blóma hjá okkur
enda afar fjölmennur borgarhluti sem fyllir
raðir okkar.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölskyldustórtónleikar hjá ÍR
Miðasala er í forsölu í ÍR-heimilinu
við Skógarsel til fimm í dag og
kostar miðinn aðeins 1.000 kr.
Einnig verða seldir miðar við inn-
ganginn í Seljaskóla á 1.500 kr.