Morgunblaðið - 29.12.2004, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 41
BEINT
FRÁ ÍRLANDI
Í KVÖLD 29. DES. OG
ANNAÐ KVÖLD 30. DES.
Michelle, Tom
& friends
DUBLINER
SPILAR
KL. 21:00
7.000,-
3.800,-
2.200,-
3.000,-
2.500,-
4.500,-
4.500,-
6.000,-
NÚ VERÐA LÆTI!
FJÖLSKYLDUPAKKAR
GOS
DRAUGAKÖKUR
risakökur og ísskápar
KR-flugeldar bjóða að vanda magnaða
flugelda í ótrúlegu úrvali og á frábæru verði.
Þú tryggir pottþétt áramót með heimsókn til okkar.
Sölustaður
KR-heimilið við Frostaskjól
Afgreiðslutími
28.12. kl. 10–22
29.12. kl. 10–22
30.12. kl. 10–22
31.12. kl. 9–16
ZONET, útgáfufyrirtæki Ótt-ars Felix Haukssonar, hefurendurútgefið plötuna
Undrahattinn með Ása í Bæ sem
upprunalega kom út árið 1978. Ási
var fæddur Ástgeir Kristinn Ólafs-
son árið 1914 og ólst hann upp í
Litlabæ í Vestmannaeyjum. Hann
var hálfgildings þjóðsagnapersóna
í lifanda lífi og setti mikinn brag á
samfélag Eyjanna og reyndar ís-
lenskt þjóðlíf allt. Kunnastur er
hann líklega fyrir dægurlagatexta
sína en hann fékkst jafnframt við
sjómennsku, ritstörf og samdi líka
tónlist. Ási lést árið 1985.
Það var tónlistarmaður af ann-arri og yngri kynslóð, sjálfur
Karl Sighvatsson heitinn, sem
gekkst fyrir því að Undrahatturinn
var gefinn út. Að sögn Óttars Felix
Haukssonar bar Karl mikla virð-
ingu fyrir starfi Ása og vissi sem
var að þótt að
lög og textar
Ása hefðu að-
allega orðið
þekkt í flutn-
ingi annarra
gæti hann vel staðið undir plötu
sjálfur. Karl setti því saman svo-
kallaða Bæjarsveit sem m.a. hafði á
að skipa þeim Tómasi Tómassyni
bassaleikara og Þórði Árnasyni gít-
arleikara, sem Karl átti eftir að
vinna með síðar í Þursaflokknum.
Aðrir liðsmenn Bæjarsveitarinnar
voru m.a. Sigurður Karlsson
trommuleikari, Grettir Björnsson
harmonikkuleikari og Gunnar
Ormslev saxafónleikari.
Ási var svo drifinn inn í hljóðver
og var útkoman úr þessu samkrulli
nokk sérstæð en alveg afskaplega
heillandi. Undirspilið og innlegg
Ása virðast þrífast í tveimur heim-
um, tónlistin með dálitlum áttunda
áratugsblæ (nett Steely Dan-
stemmning lætur á sér kræla) en
söngur Ása eins „hreinn“ og hann
getur orðið þar sem hann syngur
með eigin nefi um drykkjusvall, sjó-
mannslíf og allra handa sveitaróm-
antík. Óhefluð en giska lagviss
söngröddin varpar manni inn í ann-
an heim sem virðist laus við allt
pjatt, prjál og „kjaftæði“.
„Á gallabuxum og gúmmískóm/
hún gengur árla dags/Í fiskiverið
svo frísk og kát/og flakar til sól-
arslags“ segir t.d. í „Maja litla“ og í
laginu „Í verum“ segir m.a.: „Svo
siglum við suður á land/því síldin er
komin þar/og braskararnir kætast/
og bytturnar mætast/og berjast um
stelpurnar“.
Hreinskiptir textarnir eru á
stundum óborganlegir en hæstu
hæðum nær Ási þó í laginu um
Gölla Valdason. Textinn felur í sér
heilnæman boðskap þar sem
hjartahlýi utangarðsmaðurinn er
lofsunginn á kostnað „venjulega“
fólksins sem alltaf setur sig á háan
hest en síðan „saknar þess enginn“
eins og Ási syngur með tilþrifum.
Aron Arnarson hjá Thule-hljóðverum sá um að endur-
hljóðblanda og hljómjafna Undra-
hattinn fyrir geisladisk og var not-
ast við upprunalegu segulböndin
sem brúkuð voru í Hljóðrita fyrir
tuttugu og sex árum.
Útgáfur sem þessar eru að verða
mikilvægari eftir því sem frá líður.
Auðveldari og ódýrari tækni hefur
a.m.k. búið vel í haginn fyrir slíka
starfsemi. Greinarhöfundur furðar
sig á því að ekki sé gert meira af
þessu, fyrst í ár var hægt að nálgast
Óðin Valdimarsson á geisladiski, og
diskur með Sigurði Ólafssyni kom
fyrst út í fyrra og fór lágt. Hreini
Pálssyni, einum vinsælasta söngv-
ara Íslands á fjórða og þriðja ára-
tugnum, hefur enn ekki verið gerð
skil. Og þeir – og þær – eru fleiri.
Ég held að markaðsmenn ættu að
athuga þessi mál nánar. Geislaplata
eins og Undrahatturinn nær t.d. að
þjóna tveimur neytendahópum;
áhugasömum yngri hlustendum og
þeim eldri sem eru fyrir löngu bún-
ir að henda plötuspilaranum sínum.
Peningalega gæti svona útgáfu-
starfsemi því vel borgað sig þó að-
alatriðið sé auðvitað að gera þessa
hluti aðgengilega, hreinlega bjarga
þeim frá glötun. Slíkt er og verður
ómetanlegt og menn fá þá a.m.k.
greitt vel fyrir á himnum.
Alþýðutónlist
frá Eyjum
AF LISTUM
Arnar Eggert
Thoroddsen
arnart@mbl.is
’Óhefluð en giska lagvisssöngröddin varpar manni
inn í annan heim sem
virðist laus við allt pjatt,
prjál og „kjaftæði“.‘